Morgunblaðið - 08.01.1995, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ
Arnað heilla
John Casablancas
MODELING & CAREER CENTER
Grensásvegi 7’ s. 5887799
ÍDAG
STJÖRNUSPÁ
Hrútur . .
(21.mars- 19. apríl)
Þú hefur áhugaverðar hug-
myndir varðandi vinnuna, en
þær þarfnast nánari undir-
búnings. Þér berast góðar
fréttir í kvöld.
Naut
(20. apríl - 20. maí) Iffö
Láttu ekki undirbúning
skemmtunar valda deilum.
Þér berast fréttir í dag sem
erfítt er að skilgreina í fyrstu.
Tvíburar
(21.maí-20.júní) «1
Pjölskyldumálin eru efst á
baugi árdegis. Nú er ekki rétti
tíminn til að lána öðrum pen-
inga. Vinur er eitthvað miður
sín.
Krabbi
(21. júní — 22. júll) HliB
Láttu ekki vinnuna koma upp
á milli ástvina i dag. Gættu
þess einnig að standa við lof-
orð sem þú hefur gefið vini.
Ljón
(23. júlí — 22. ágúst) <ef
Þér er óhætt að treysta á eig-
in dómgreind ef fyrirhuguð
viðskipti orka tvímælis. Farðu
sparlega með peninga í kvöld.
Meyja
(23. ágúst - 22. september)
Varastu tilhneigingu til
óþarfa framhieypni í sam-
skiptum við aðra í dag. Þú
fmnur góða lausn á gömlu
vandamáli í kvöld.
Vog
(23. sept. - 22. október)
Láttu það ekki of mikið á þig
fá þótt þér blöskri framkoma
kunningja. Hikaðu ekki við
að taka mikilvæga ákvörðun
í kvöld.
Sþoródreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Taktu ekki of mikið mark á
stóryrðum raupgjarns vinar í
dag. Ástvinir eru einhuga um
að skemmta sér vel í kvöld.
Bogmaóur
(22. nóv. - 21. desember)
Þú bíður eftir svari frá ein-
hverjum sem á erfitt með að
taka ákvörðun. Hugsaðu vel
um heilsuna og gættu hófs í
mat og drykk.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú efast um gildi ráðlegginga
sem þú færð frá vini. Reyndu
að mæta tímanlega ef þú átt
stefnumót við einhvern í
kvöld.
Vatnsberi
(20.janúar- 18. febrúar)
Það getur verið erfitt að ná
samningum um fjármál í dag,
og því betra að bíða til morg-
uns. Trúðu ekki öllu sem þér
er sagt.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars)
Gættu þess að styggja ekki
hörundsáran vin í dag, og
taktu ekki mark á sögusögn-
um því sumir hafa tilhneig-
ingu til að ýkja.
Stjörnusþána á aó lesa sem
dœgradvöl. Sþár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum grunni
vísindalegra staóreynda.
SUNNUDAGUR 8. JANÚAR 1995 39
SKÁK
Um.sjön Margcir
Pétursson
DANSKI stórmeistarinn orð-
heppni, Bent Larsen, verður
sextugur á þessu ári rétt eins
og Friðrik Ólafsson. Larsen
sagði eitt sinn um leik sinn
í skákskýringum: „Et dárligt
træk som vinder hurtigt"
sem útleggst víst svona í ís-
lenskri þýðingu: „Lélegur
leikur sem vinnur fljótt."
Sumir hafa hikstað á þessari
þversögn. Eftirfarandi flétta
landa Larssens kann að
varpa nokkru ljósi á málið:
Staðan kom upp á Ólymp-
íuskákmótinu í Moskvu. Let-
neski stórmeistarinn Zig-
urds Lanka (2.540) var með
hvítt en danski alþjóðameist-
arinn Peter Heine-Nielsen
(2.485) var með svart og
átti leik.
STEINGEIT
Afmælisbarn dagsins: Þú
hefur góða listræna hæfi-
leika og hefur áhuga á
mannúðarmálum.
Viltu vera fvrirsæta?
33. - Bc3+?! (Hann er
glæsilegur þessi og kemur
að tilætluðum notum, en hið
einfalda 33. - Bxa4, 34.
Hxa4 - Hxb2 var betra).
34. bxc3 - Bxa4, 35.
Ddl?? (Eftir 35. De2! held-
ur hvítur jafntefli), 35. -
Bxc2 og hvítur gafst upp
því hann tapar drottning-
unni. Það var víst þetta sem
Larsen meinti.
ojAis&t-/ns/cóOcTUAá-T
// f&e/A. ofrit /' viibót ogéper £á/nsi.
ORÐABOKIIM
Það er ekki ný bára
eðanýbóla?
í DV mátti lesa eftirfar-
andi í ritstjórnargrein
13. des. sl.: „Það er
ekki ný bára í heimin-
um, að ríkisstjórnir
reyni að milda skap
kjósenda á kosninga-
ári. . .“ Eg hnaut um
þetta orðalag, enda nær
öruggt, að hér er af
misminni ruglað saman
orðtökum. Eg á von á,
að menn þekki almennt
orðtakið: „það er ekki
ný bóia,“ sem merkir,
að eitthvað sé ekki nýtt,
komi ekki fyrir í fyrsta
skipti. Það á einmitt vel
heima í ofangreindu
orðalagi og þá auðskilið
öllum. Halldór Halldórs-
son hefur dæmi um orð-
takið í þessari mynd frá
upphafi 20. aldar, en
hann bendir á, að í orða-
bók sr. Björns Halldórs-
sonar frá 18. öld komi
fyrir: „Það er ekki ný-
bóla,“ þ.e. ritað í einu
orði. Telur sr. Björn orð-
takið runnið frá bólu-
sótt. „„Nýbóla ætti þá
að merkja „ný tegund
af bólu“ eða „nýr farald-
ur af bólu“, og kánn það
að vera rétt“, segir HH.
Algengast mun nú vera
að leggja þannig
áherzlu á þetta orðtak,
að ný bóla sé venjulega
ritað í tveimur orðum.
No. bára er svo einnig
til í ýmsum orðtökum.
Allt frá fornu máli þekk-
ist orðtakið að sigla milli
skers og báru, sem
merkir það að koma sér
vel við báða aðilja. Í OH
eru dæmi frá 19. öld um
að synda milli skers og
báru. Þá getur maður
verið þungur á bárunni,
ekki sízt ef hann er mis-
rétti beittur. - J.A.J.
^/\ÁRA afmæli. Mið-
I Uvikudaginn ll.janúar
nk. verður sjötugur Björn
Stefánsson, innkaupa-
stjóri Hitaveitu Suður-
nesja, Háholti 27, Kefla-
vík. Eiginkona hans er
Helga Kristinsdóttir. Þau
hjónin taka á móti gestum
í Félagsheimili Karlakórs
Keflavíkur, Vesturbraut
17-19, Keflavík, milli kl.
19 og 22 á afmælisdaginn.
/» /\ÁRA afmæli. Á
OlJmorgun, 9. janúar,
verður sextugur Páll Jóns-
son, sparisjóðsstjóri, Óð-
insvöllum 16, Keflavík.
Eiginkona hans er Margrét
Jakobsdóttir. Þau eru er-
lendis um þessar mundir.
Nýmynd - Keflavík
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 9. júlí sl. í Grindavík-
urkirkju af sr. Jónu Kristínu
Þorvaldsdóttur Stefanía
Jónsdóttir og Guðmundur
Bragason. Þau eiga heima
á Víkubraut 24, Grindavík.
Með morgunkaffinu
DRAUGALEGT? Nei, ég
hef ekki órðið var við
neitt þau 400 ár sem ég
hef verið hér.
Farsi
Lopi
Postulín, glös og fylgihlutir
Kertastjakar og skrautmunir
(messing, gull, silfur o.fl.)
Boröbúnaður (stál)
Jólaskreytingar
vet
’blækVÁim
Nýr opnunartími 10-18
laugardaga 10 - 16
ÁLAFOSS búðin
viS Austurvöll
Pósthússtræti 13
sími 13404