Morgunblaðið - 10.01.1995, Qupperneq 53
u
I MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 10. JANÚAR 1995 53
I
I
I
J
I
I
j
I
»
I
)
«
I
I
3
j
'
I?
»
»
9
»
ÍÞRÓTTIR UNGLINGA/ ÞOLFIMI
... * m&SBm ] 1
l ,
Þolfimihópurinn hjá Aerobic sport sem æffr að kappl fyrir íslandsmótið. Fremst á myndinnf er þjálfarinn Unnur Pálmarsdóttir.
Þurfum að
æfabetur
Við erum búnar að fullklára æfing-
arnar okkar en við þurfum að
æfa hana betur. Þetta verður í fyrsta
skipti sem við sýnum einar og við
eigum örugglega enga sigurmögu-
leika," sagði Guðrún Elfa Gunnars-
dóttir sem var ásamt vinkonu sinni
Öldu Ægisdóttir að æfa fyrir íslands-
mótið í þolfimi.
„Við erum búnar að æfa í flóra
mánuði en við vorum átta eða níu
stelpurnar úr Hamrahlíðarskólanum
sem byijuðum á svipuðum tíma.
Vinkonurnar sögðu að líklega væri
hægt að telja eróbikk dýrt sport en
unglingaþolfimin væri á góðu verði.
„Við borgum 2900 krónur fyrir mán-
uðin og höfum æft nær daglega að
undanförnu."
Það þarf að huga að mörgu þegar
tekið er þátt í íslandsmóti og stúlk-
urnar sögðu að flestir fengu plötu-
snúða til að finna fyrir sig lög til að
sýna eftir. Hugmyndir af æfingunum
geta sem komið með ýmsu móti, t.d.
með því að horfa á myndbönd frá
erlendum mótum.
- En skyldi þeim finnast vera einhver
munur á kynjunum í þessari íþrótta-
grein?
„Jú, strákarnir eru mikið sterkari
en stelpurnar eiga miklu betra með
að ná sporum og takti. *
íþróttagrein sem nýtur
sífellt meirí vinsækla
ÞOLFIMI er íþróttagrein sem
er að sækja í sig veðrið ekki
síst hjá unglingunum. Um þrjá-
tíu unglingar hafa æft stíft sfð-
ustu mánuðina í líkamsræktar-
stöðinni Aerobic sport og
margir þeirra ætla sér að
keppa á íslandsmótinu um
næstu helgi.
Morgunblaðið leit við á æfingu
hjá hópnum sl. laugardag
og ræddi við unglinga og leiðbein-
andann Unni Pálmarsdóttir sem
hefur haft í nógu að snúast síðustu
mánuði við að aðstoða áhugasama
keppendur við æfingar.
Unnur þekkir mjög vel til í þol-
fimi og hún varð íslandsmeistari
kvenna í þessari grein á síðasta
ári. Hún tekur ekki þátt í mótinu
um næstu helgi vegna meiðsla í
hné.
Mikill áhugi
„Segja má að þetta hafi verið
hálfgerðar æfingabúðir á síðustu
tveimur vikum. Æft hefur verið
nær daglega frá tólf til fjögur á
daginn og áhuginn er mikill.
Krakkarnir eru líka mjög skemmti-
legir og tímarnir eru oft á léttu
nótunum. Stundum snúast þeir upp
í grín og þá getur verið erfitt að
einbeita sér,“ sagði þjálfarinn.
Stutt er þó í alvöruna enda ligg-
ur mikil vinna að baki sýningu í
þolfimi. Keppendur þurfa að finna
upp fjölbreyttar æfingar og láta
þær falla að tónlistinni sem þeir
velja sér með æfingunum.
Góð útrás
„Það eru margir sem vilja ekki
vera í boltaíþróttunum og þau geta
fengið góða útrás í þolfiminni.
Flestir krakkarnir eru mjög efnileg-
ur og nokkrir eiga framtíðina fyrir
sér. Hver veit nema einhveijir
þeirra eiga eftir að keppa á Ólymp-
íuleikunum síðar meir,“ sagði Unn-
ur en þolfimin verður líklega sýn-
ingargrein á Ólympíuleikunum á
næsta ári.
Mætti skípta í tvo hópa
Margir hafa náð góðri leikni í
þessari íþrótt og það fer því að
verða nauðsynlegt að bjóða upp á
grunntíma því það getur verið erf-
itt fyrir þá sem eru nýbyijaðir að
standast þeim vanari snúning.
Nokkuð er um að fólk sem byijar
í þessari íþrótt gefist upp en aðrir
hafa þolinmæði og komast yfir
byijunarörðugleika.
Fré Sýningu þolfimlhóps Aerobic-sport í Laugardalshöll
Helga Slf Halldórsdóttlr með frumlegar armbeygjur.
Sérkennilegar armbeygjur
Ólafur Pálsson, Halldór Óskar Gestsson og Birkir Hjálmarsson.
íþrótt sem krefst snerpu
„Þetta er góð íþrótt til að koma sér í form en hún kallar á mikla
snerpu ef maður ætlar að verða góður í henni,“ var samdóma
álit félaganna Ólafs Pálssonar, Halldórs Óskars Gestssonar og
Birkis Hjálmarssonar, sem æfa þolfimi hjá Aerobíc sport.
Strákamir ætla allir að keppa á fyrsta íslandsmótinu sem haldið verð-
ur fyrir unglinga S þessari íþróttagrein um næstu helgi og þegar
Morgunblaðið leit við voru þeir í óða önn að fínpússa þær æfingar sem
þeir ætluðu að bjóða uppá á íslandsmótinu.
Við verðum að minnsta kosti fjórir 5 piltaflokknum á þessu móti en
hugsanlegt er að þeir verði fleiri. Við reynum að koma með erfið atriði
eins og armbeygur með annarri hendi.
Félagarnir eru orðnir vanir að sýna og hafa meira að segja farið út
á land. Það reynir örugglega me:ra á taugamar að sýna æfingar undir
vökulum augum dómara sem gefa þeim einkunn fyrir frammistöðu. Pilt-
arnir vom þó hvergi smeykir, sögðust gera sitt besta en voru ekki tilbún-_
ir til að spá neinu um úrslit.
„Þetta er ekki erfift æfing. Fóturinn er settur uppá öxlina og síft-
an gerir maður armbeygur. Æfingin er mjög létt þó hún geti reynt
svolrtift á þegar maður gerir hana með einni hendi,“ sagði Helga
Sif Halldórsdóttir, stúlka úr unglingaflokki sem gerir æfingar sem
flestar stúlkur á hennar aldri áttu eflaust erfitt meft að gera.
Það eru fjórir mánuðir síðan ég byijaði að æfa en ég kom þá með
vinkonu minni. Mér fannst erfitt að ná krökkunum til að byija með
og mikið var um spor sem ég þurfti að læra. Nú er ég hins vegar farin
aðjiekkja alla og kann mjög vel við mig“ sagði Helga sem ætlar að keppa
á Islandsmótinu.
„Eg var í tvær vikur að búa til
„prógrammið" og mætti á hveiju degi. Ég fékk mikla hjálp frá Unni
[Pálmarsdóttir] og Magnúsi [Scheving] og það gekk vel að setja saman
æfinguna þó að það hafi tekið mikinn tíma.
- Hvað með íslandsmótid. Áttu möguleika á verðlaun'asæti?
„Ég veit það ekki. Mótið verður örugglega spennandi. Ég held að við
förum tólf héðan en veit ekki hve margar við verðum í heildina.