Morgunblaðið - 31.01.1995, Side 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 31. JANÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Notkun heitu pottanna í Ásabyggð við Flúðir hefur verið hætt
ÞORSTEINN Óli Sigurðsson rannsóknarlögreglumaður heldur ÓLAFUR Ómar Hlöðvers-
á öryggislokanum sem grunur leikur á að hafi bilað.
son umsjónarmaður sumar-
húsanna í Ásabyggð.
Brennheitt vatn get-
ur runnið í pottana
Öryggi við
heita potta
Leiðbein-
ingar til
p j_ •• /
í tvo ar
TÆKNIBLAÐ, sem ber yfir-
skriftina Öryggi við heita
potta og setlaugar með tilliti
til barna, hefur verið til í tvö
ár, að sögn Óla Hilmars Jóns-
sonar, deildarstjóra hjá Rann-
sóknarstofnun byggingariðn-
aðarins, RB.
Tækniblaðið var samið í
samvinnu RB og Slysavarna-
félags íslands og í því segir
hvemig ganga eigi frá heitum
pottum. I því er vísað í reglu-
gerðir, þar eru teikningar og
myndir og þar segir hvað
gera eigi til að tryggja öryggi
bama.
Óli Hilmar segir að vera
sé að vinna að viðbót í sam-
vinnu við SVFÍ. í þeirri við-
bót sé fjallað um öryggisatr-
iði í sambandi við hita til að
tryggja að ekki verði brunar
Bruna- og reyktjón í
versluninni Þingey
Bjargað-
ist út um
glugga
MAÐUR bjargaðist út um glugga
húss á Húsavík sem kviknaði í í
fyrrinótt. Eldurinn kom upp í versl-
uninni Þingey á neðri hæð hússins
og vaknaði maðurinn, sem var í íbúð
á annarri hæð, við reykskynjara í
versluninni. Að sögn lögreglu hefði
ekki mátt tæpara standa.
Að sögn lögreglu var kominn
reykur inn í íbúðina og hefði maður-
inn ekki mátt vakna mikið seinna.
Hann komst út á þak .og hoppaði
niður af því, eina hæð, og varð ekki
meint af.
Slökkvistarf gekk mjög vel.
Eldurinn var að læsa sig í þak húss-
ins en slökkvilið kom í tæka tíð og
náði að ráðast á eldinn áður en hann
varð óviðráðanlegur. Eldskemmdir
urðu á báðum hæðum en þó urðu
fyrst og fremst skemmdir af reyk.
Aðallega sót- og
reykskemmdir
Að sögn Áma Grétars Gunnars-
sonar, framkvæmdastjóra Þingeyjar,
urðu brunaskemmdir ekki mjög
miklar en hins vegar miklar
skemmdir af sóti og reyk, og allur
lager verslunarinnar er ósöluhæfur.
í gær voru tryggingamenn á staðn-
um að gera úttekt á tjóni og síðan
átti að byija að hreinsa tii. Ámi
Grétar sagðist gera ráð fyrir að
verslunin yrðu opnuð með nýjan lag-
er í lok næstu viku.
Lokað var í fleiri verslunum í
húsinu í gær vegna eldsvoðans.
Eldsupptök eru ekki kunn en
gmnur leikur á að kviknað hafí í
út frá rafmagni við kælipressu.
-----» ♦ ♦----
Tvennt flutt
á slysadeild
UMFERÐARSLYS varð við Kot-
strönd í Ölfusi í gærmorgun þegar
tveir bílar skullu saman.
Ökumenn beggja bílanna voru
fluttir á Sjúkrahús Suðurlands á Sel-
fossi.
Að sögn lögreglu á Selfossi fékk
annar ökumannanna að fara heim að
lokinni skoðun en hinn þurfti að gang-
ast undir frekari athugun.
Árekstur varð innanbæjar síðdegis
á Selfossi í gær. Engin slys urðu á
mönnum en báðir bflamir era mikið
skemmdir.
Að sögn lögreglu var gífurleg hálka
á þjóðvegum á Suðurlandi í gær.
UMSJÓNARMAÐUR með sumar-
húsunum í Ásabyggð við Flúðir hef-
ur ákveðið að banna notkun á heitu
pottunum við sumarhúsin á meðan
rannsókn á slysinu sem varð á
sunnudaginn stendur yfir, en þá
brenndust bam og móðir þess þegar
barnið féll í heitan pott við eitt hús-
anna. Vatnið var þá um 70 gráðu
heitt. Öryggisloki við pottana mælir
hita í affallsvatni og getur brenn-
heitt vatn rannið í þá áður en örygg-
islokinn fer að virka.
Við sumarhúsin í Ásabyggð era
13 heitir pottar. Þetta eru litlar set-
laugar úr trefjaplasti. Pottarnir eru
grafnir niður í jörðina og eru nokkur
stigaþrep niður að þeim frá húsun-
um. Þorsteinn Óli Sigurðsson, rann-
sóknarlögreglumaður á Selfossi,
sagði að mjög varasamt væri að
grafa pottana niður því að þar með
væra auknar líkur á að fólk félli í
þá fyrir slysni, t.d. vegna hálku.
Mikil hálka var við pottana í gær.
Þorsteinn sagði að best væri að fólk
þyrfti að klofa upp í pottana.
Öryggisloki tengdur við
affallsvatn
Þorsteinn sagði að það væri einn-
ig galli við pottana að öryggisloki
væri tengdur við affallsvatn. Ekki
færi að renna úr pottunum fyrr en
þeir væru orðnir hálffullir af vatni.
Á meðan gæti brennheitt vatn rann-
ið í þá.
Þegar slysið varð á sunnudag var
einmitt verið að láta renna í pottinn
og sagði Þorsteinn að sá möguleiki
hefði alls ekki verið útilokaður að
ekkert væri að öryggislokanum, en
að hann hefði ekki verið farinn að
virka þegar barnið datt í pottinn.
Öryggislokinn er nú til rannsóknar
hjá lögreglunni á Selfossi.
Þegar lögreglan á Selfossi mætti
á slysstað á sunnudaginn var vatnið
í pottinum 67 gráðu heitt.
Einfaldur og öruggur
öryggisbúnaður ekki
fáanlegur
Ólafur Ómar Hlöðversson hefur
umsjón með sumarhúsunum í Ása-
byggð, en við því starfi tók hann í
desember sl. Hann sagðist hafa gert
sér grein fyrir að bæta mætti öryggi
pottanna. I þeim tilgangi hefði hann
rætt við pípulagningamenn og sölu-
aðila öryggisloka um þessi mál.
Enginn hefði getað bent sér á ein-
faldan og öraggan búnað sem hent-
aði við húsin. Ólafur sagði að það
sem valdi erfiðleikum við húsin í
Ásabyggð væri að á svæðinu væri
skortur á köldu vatni til að blanda
saman við heita vatnið. Hann sagði
að meginatriðið væri að búa þannig
um hnútana að brennheitt vatn
gæti ekki rannið í pottana.
Ólafur sagði þeir sem vildu bæta
öryggismál við heita potta hefðu
enga reglugerð til að styðjast við,
sem væri mjög bagalegt. Ekkert
opinbert eftirlit væri heldur með
heitum pottum. Ólafur sagði hins
vegar ekki vanþörf á að setja reglu-
gerð um þessa hluti því að gífurleg-
ur fjöldi heitra potta væri til í land-
inu.
Ólafur sagði að fylgst hefði verið
með öryggislokum við sumarhúsin í
Ásabyggð. Hann sagðist þó ekki vita
hvort um reglubundið eftirlit hefði
verið að ræða. Engin skráning væri
til á þeim endurbótum sem gerðar
hefðu verið á iokunum í gegnum
árin.
Öryggi við pottana á Flúðum
var hert í fyrra
Öryggismál við heitu pottana við
hótelið á Flúðum vora tekin til
endurskoðunar í kjölfar 'slyss, sem
varð á síðasta ári þegar ungur piltur
lést eftir að hafa fallið í heitan pott
með biluðum öryggisloka. Jón Gauti
Jónsson hótelstjóri sagði að komið
hefði verið upp þriðja öryggiskerfinu
við pottana. Nú væri öryggisloki við
inntak inn í húsin, annar við pottana
þar sem vatnið rennur í þá og sá
þriðji væri á affallsvatninu. Þriðji
lokinn virkaði þannig að hann skrúf-
aði fyrir vatnið þegar það færi upp
fyrir 46 gráður.
Öryggi við
heita potta
Leiðbein-
ingartil
* j__ •• /
í tvo ar
TÆKNIBLAÐ, sem ber yfir-
skriftina Öryggi við heita
potta og setlaugar með tilliti
til barna, hefur verið til í tvö
ár, að sögn Óla Hilmars Jóns-
sonar, deildarstjóra hjá Rann-
sóknarstofnun byggingariðn-
aðarins, RB.
Tækniblaðið var samið í
samvinnu RB og Slysavarna-
félags íslands og í því segir
hvemig ganga eigi frá heitum
pottum. I því er vísað í reglu-
gerðir, þar eru teikningar og
myndir og þar segir hvað
gera eigi til að tryggja öryggi j
bama.
Óli Hilmar segir að vera
sé að vinna að viðbót í sam-
vinnu við SVFÍ. í þeirri við-
bót sé fjallað um öryggisatr-
iði í sambandi við hita til að
tryggja að ekki verði brunar
og um aðgerðir til að koma
í veg fyrir að börn geti fest
í niðurföllum.
Óli Hilmar segir að bygg-
ingarreglugerð sé það sem
strangt til tekið eigi að fara
eftir en tækniblöð RB séu
gögn sem allir á bygginga-
sviðinu eigi að hafa við hönd-
ina og gert sé ráð fyrir því
að byggingarfulltrúar fari
eftir þeim. Hann segir mögu-
legt að þessar leiðbeinandi
reglur verði settar inn í bygg-
ingarreglugerðir.
Strangar
öryggisráðstafanir
Óli Hilmar segir að sér
blöskri þegar menn segi að
engar leiðbeiningar um frá-
gang heitra potta séu til, sér-
staklega þegar um sé að ræða
menn á byggingarsviði. Þær
öryggisráðstafanir, sem á
tækniblaðinu er gert'ráð fyrir
að séu gerðar, séu hins vegar
mjög strangar og nefnir Óli
Hilmar t.d. að talað sé um
að á pottunum sé lok, að þeir
séu upphækkaðir og í kring-
um þá girðing. Hann segir
að sennilega sé ekki til sá
pottur á landinu sem uppfylli
öll þau skilyrði sem sett séu.
267 tóku afstöðu í
Skáís-könnun
40,4% kysu
Sjálfstæð-
isflokkinn
AF þeim sem afstöðu taka myndu
40,4% kjósa Sjálfstæðisflokkinn ef
kosið væri nú. Framsóknarflokkur
fengi 17,2% atkvæða, Þjóðvaki 16,1%,
Alþýðubandalag 11,6%, Alþýðuflokk-
ur 9,7% og Kvennalisti 4,9%.
Þetta eru niðurstöður skoðana-
könnunar Skáís, sem birtar voru á
Stöð 2 í gær og fyrradag. Samband
náðist við 517, eða 64,6% úrtaksins,
en af þeim tóku 267 afstöðu, eða
51,6%. Oákveðnir voru 35,6%, 6,4%
sögðust skila auðu eða kjósa ekki og
önnur 6,4% neituðu að svara.
Þá var einnig spurt um stuðning
við ríkisstjórnina. Af 517 tóku 461
afstöðu, eða 89,2%. Þar af voru 199
fylgjandi ríkisstjóminni, eða 43,2%,
og 262 á móti, eða 56,8%.
Stórri brugg-
verksmiðju lokað
FÍKNIEFNADEILD lögreglunnar í
Reykjavík lokaði á laugardag stórri
braggverksmiðju í vesturbæ Reykja-
víkur. Hald var lagt á 1.400 lítra af
gambra og 57 lítra af landa, mikið
magn hráefnis, bæði unnið og óunn-
ið, afkastamikið braggtæki og plast-
brúsa. Tæplega tvítugur maður var
handtekinn í tengslum við málið.
Tækjaframleiðendur verði
gerðir ábyrgir
Ómar Smári Ármannsson aðstoð-
aryfirlögregluþjónn segir að IÖgregl-
an hafi oftar en einu sinni vakið at-
hygli á nauðsyn þess að hér á landi
verði sett ákvæði í lög þess efnis að
bannað verði að flytja inn, framleiða,
selja eða nota braggtæki nema með
sérstöku leyfi. „Ástæðan er einföld.
Undanfarin misseri hafa menn í
miklum mæli og án takmarkana
framleitt búnað til að búa til ólölegt
áfengi, svokallaðan landa, sem eink-
um er ætlaður unglingum til neyslu.
Framleiðendum tækjanna er alveg
sama hverjum þeir selja sína vöru
svo framarlega sem þeir fá greitt
fyrir,“ segir Omar Smári.
Fólk sameinist um að uppræta
starfsemina
„Ef þessu heldur áfram mun
glæpamönnum þeim, sem eru að
framleiða, dreifa og selja unglingum
landa, gert kleift að þróa það öflugt
dreifí- og sölukerfi að það kemur
auðveldlega til með að nýtast í öðram
ólöglegum viðskiptum. Það er skylda
stjórnvalda að spyma við þessari
þróun og það er ekki síður skylda
almennings að láta til sín taka á
þessu sviði. Það getur fólk helst gert
með því að vera vakandi fyrir því
, Morgunblaðið/Júlíus
57 LITRAR af landa og 1.400 lítrar af gambra voru gerðir
upptækir í bruggverksmiðjunni.
sem það er að gera, hafna viðskiptum
við framleiðslu- og söluaðila og gefa
lögreglunni1 allar þær upplýsingar
sem það býr yfir svo koma megi lög-
um yfir þá. Fólk, fullorðnir sem ungl-
ingar, þurfa að sameinast um áð
gera allt sem í þess valdi stendur til
að uppræta þessa ógeðfelldu starf-
semi,“ segir Ómar Smári.
Ómar Smári bendir á að fólk geti
hringt nafnlaust í símsvara fíkni-
efnadeildar, 699090, í móttökusíma
lögreglunnar í Reykjavík, 699105,
eða á næstu lögreglustöð.