Morgunblaðið - 31.01.1995, Side 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 31. JANÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Davíð, nú forseti þingsins er frú Salome og . . .
Hreinsunarátaki á Súða-
vík lauk á laugardag
HREINSUNIN var í fullum gangi þegar Morgunblaðsmenn
bar að á laugardagsmorgun.
Morgunblaðið/Þorkell
aðrir; bjarga því sem bjargað verð-
ur,“ sagði Hildur Maríasdóttir þegar
blaðamaður og ljósmyndari Morgun-
blaðsins hittu hana í Súðavík á laug-
ardag. Hildur er uppalin hjá ömmu
sinni í einu þeirra húsa við Aðalgötu
í Súðavík sem eyðilagðist í snjófljóð-
inu úr Traðargiii. Síðar bjó hún lang-
dvölum erlendis en hefur alltaf hald-
ið tengslum við Súðavík þar sem hún
á ættingja og vini. Hún segist hafa
farið aftur til Súðavíkur með bróður
sínum, mágkonu og dóttur sinni þeg-
ar opnað var fyrir umferð á þriðju-
daginn í síðustu viku. Síðan hafí þau
verið að moka upp úr rústunum frá
því klukkan 8 á morgnana fram á
kvöld otr stundum fram til miðnæt.t,-
HREINSUNARÁTAKI með aðstoð
björgunarsveitarmanna af Vest-
fjörðum og neyðarsveitar slökkvi-
liðsins í Reykjavík í Súðavík lauk
degi fyrr en áætlað hafði verið eða
fyrrihluta laugardags. Elvar Ragn-
arsson, formaður framkvæmda-
nefndar hreppsnefndar Súðavíkur,
segir að verkið hafi einfaldlega
gengið hratt og búið væri að hreinsa
götur og opin svæði.
Bergsveinn Alfonsson, aðalvarð-
stjóri hjá slökkviliðinu í Reykjavík
sagði að hlutverk neyðarsveitarinn-
ar hefði rauninnni aðeins falist í því
að láta hlutina ganga. Svæðisstjóm
hjálparsveita hefði séð um að útvega
mannafla til hreinsunarinnar og
unnið hefði verið af kappi, aðallega
í einstökum húsum, alla vikuna.
Hins vegar sagði Bergsveinn að
tækjaskortur hefði háð mönnunum.
Fá tæki væru á staðnum og önnur,
í nálægari byggðarlögðum, hefðu
meira og minna verið upptekin enda
snjóþungt á svæðinu. Áf þeim sök-
um hefði ekki verið hægt að hefja
sjálft átakið fyrr en á föstudag.
Hreinsunin hófst um kl. átta á föstu-
dagskvöld og var unnið með 17
vörubíla, 3 ámoksturstæki, 2 gröfur
og jarðýtu fram til klukkan 7 á laug-
ardagsmorgn. Bergsveinn sagði að
á þeim tíma hefði tekist að ryðja
nánast öll opin svæði og götur í
bænum og byrjað væri á rústum
ónýtra húsa.
Ómetanlegt starf
Elvar sagði að slökkvilið og björg-
unarlið að sunnan hefði unnið ómet-
anlegt starf í Súðavík. Hreinsunará-
takið hefði gengið hraðar en ætlað
hefði verið í fyrstu og nú væri svo
komið að búið væri að ryðja götur
og opin svæði. Heimamenn tækju
við og farið yrði hægar í að ryðja
úr vegi húsarústum. Hann sagði að
haft yrði samband við hveija fjöl-
skyldu fyrir sig og henni eða full-
trúa hennar gefrnn kostur á að vera
við þegar hús fjölskyldunnar væri
rutt. Elvar sagði að búið væn að
hreinsa mikið úr rústunum og lík-
HILDUR sagði að hreinsunin
væri mikið púl ólíkt skrifstofu-
vinnunni sem hún væri vön.
lega fyndist ekki mikið meira af
persónulegum munum fyrr en byij-
að yrði að moka. Væntanlega
myndu einhveijir sjá um að tína úr
snjónum þá persónulegu hluti sem
eftir væru.
„Ég er að gera svipað og allir
is. Þá taki við frágangur og eina
nóttina hafí þau verið að til klukkan
þijú eftir miðnætti. Hildur segir að
öll húsgögn og tæki séu ónýt. Einna
helst sé að leita að litlum hlutum
og fatnaði en ekki sé heldur víst að
hægt sé að bjarga fötunum því eng-
inn tími sé til að koma þeim strax
í þvott. Hún sagði að erfitt væri að
átta sig á úr hvaða húsum hlutimir
kæmi og dæmi væru um að einstaka
hlutir hefði farið alla leið út í sjó.
Renault og BMW til B&L
Sé ekki fram á
bjartari tíma í
bílasölu næstu ár
MIKLAR hræringar
hafa verið í bíl-
greininni að und-
anförnu. Globus hf. hefur
ákveðið að hætta sölu bíla
•og Brimborg tekið við
umboðum þess, Ford og
Citroen, og líkur benda til
þess að Bílheimar hf. taki
við Saab-umboðinu. Bíla-
umboðið hf. hefur selt Bif-
reiðum og landbúnaðar-
vélum umboð sín fyrir
BMW og Renault, en þeg-
ar fyrirtækið tók við Ren-
ault-umboðinu var mark-
aðshlutdeildin hérlendis
um 0,3%. Nú þegar fyrir-
tækið hættir með þessi
umboð er markaðshlut-
deildin komin upp í 4,2%
en Pétur Óli Pétursson Pétlir OIÍ PétUTSSOn
framkvæmdastjóri segir
að það sé ekki nóg að auka mark- ►Pétur ÓIi Pétursson fram-.
aðshlutdeildina þegar heildar-
markaðurinn dregst stöðugt sam-
an. Hann segir að það hafí ráðið
miklu um ákvörðun sína að selja
umboðið að hann sjái ekki fram á
bjartari tíma í sölu á bílum næstu
eitt til tvö ár.
Hvers vegna er þessi ákvörðun
íekin núna?
„Ég fékk ásættanlegt tilboð
sem mér fannst mjög freistandi
að taka. Ég met stöðuna þannig
að hér verði ekki uppsveifla í bíla-
innflutningi næstu eitt til tvö árin.
Ég óttast ófrið á vinnumarkaði,
verðbólgu og hækkandi vexti á
þessu ári. Við slíka stöðu vaknar
spurning um hvort gengi krónunn-
ar haldist og markaðurinn stækk-
ar ekki miðað við það sem hann
hefur verið undanfarin tvö ár.
Innflutningurinn síðustu tvö ár
hefur ekki verið nema helmingur
af því sem hann þarf að vera til
að endurnýja bílaflota lands-
manna. Heildarinnflutningur und-
anfarin sex ár hefur verið um
helmingur af því sem hann var
sex ár þar á undan, þar af voru
þijú ár reyndar afar óvenjuleg.
Heildarinnflutningurinn þarf að
vera 10-11 þúsund bílar á ári. í
öðru lagi tók ég tilboðinu vegna
þess að ég veit að mínir viðskipta-
vinir,vefða í mjög góðum höndum
hjá B&L sem hefur langa reynslu
af bílainnflutningi og bílaviðskipt-
um. B&L hefur sterka fjárhags-
lega stöðu. í þriðja lagi er lang-
flestum minna starfsmanna boðið
starf hjá B&L og þeir fylgja því
eftir sem við höfum verið að gera,
að auka markaðshlutdeild Ren-
ault.“
Telurðu nauðsyn á að fieiri fyr-
irtæki á þessu sviði sameinist?
„Þróunin erlendis _____________1
hefur víða verið þannig
að fyrirtæki hafa tekið
að sér æ fleiri merki.
Við sjáum þessa þróun
líka hér, Ingvar Helga- —
son tók að sér alla GM-línuna sem
var þá hjá Sambandinu, Ford og
Citroén eru að fara til Brimborgar
og Saab til Ingvars Helgasonar.
Þetta verða því færri innflytjendur
með fleiri merki. Það verður viðr-
áðanlegra fyrir þá að taka á sig
sveiflur. Að mínu áliti hafa menn
í bílgreininni tekið rangar ákvarð-
anir við sölu á notuðum bílum
með eilífum útsölum og afsláttum
sem er slagur sem er engin ástæða
til að fara út í. í verðstríði tapa
allir þátttakendur. Slíkt verðstríð
hefur myndast að nokkru leyti á
undanförnum misserum í notuðum
bílum. Ef menn forðast verðstríð
jafnar uppsöfnun notaðra bila sig
kvæmdastjóri Bílaumboðsins
hf. fæddist í Reykjavík árið
1949. Hann ólst upp í Reykjavík
og dvaldist í Skagafirði frá
fimm ára aldri fram að ferm-
ingu. Hann lauk námi frá Sam-
vinnuskólanum 1968 og hóf
störf þjá Sambandinu. Hann
dvaldist í Þýskalandi við störf
og nám í tvö ár. Hann starfaði
á skrifstofu Sambandsins í
London í eittár, 1971-1972, og
gerðist sölustjóri í véladeild SIS
1972 og gegndi því starfi til
1975. Þá stofnaði hann ásamt
fleirum fyrirtækið Vélar og
þjónustu og var þar fram-
kvæmdastjóri til 1990. Þá seldi
hann sinn hlut í fyrirtækinu og
stofnaði ásamt fleirum Bílaum-
boðið. Þar hefur hann verið
framkvæmdastjóri síðan með
eignarhlut upp á 2/«.
Fyrirtæki hafa
tekið að sér æ
fleiri merki
út á örfáum mánuðum og markað-
urinn samþykkir verðið. Nú er
markaðurinn farinn að bíða eftir
útsölum og hreyfir sig ekki fyrr
en nokkrum dögum áður en stóru
umboðin þurfa að gera skil á virð-
isaukaskatti. Þá þeyta þau inn á
markaðinn fjölda notaðra bíla á
niðursettu verði. Heildarsala not-
aðra bíla eykst ekki við útsölurnar
en menn eru neyddir til að taka
þátt í leiknum. Þar af leiðandi
hafa umboðin verið að tapa á við-
skiptum með notaða bíla á undan-
fömum misserum."
Hvernig hafa afskipti hins opin-
bera verið af bílgreininni?
„Það hefði ekki áhrif á tekjur
ríkissjóðs af bílainnflutningi að
lækka innflutningsgjöld sem lögð
eru á bíla. Ef innflutningsgjöld
_________ lækkuðu um 10% og
innflutningurinn ykist í
kjölfarið um 15% hefði
það ekki áhrif á tekjur
ríkissjóðs, en sveiflur í
bílainnflutningi jöfnuð-
ust út, sem hlýtur að vera kapps-
mál jafnt fyrir ríkissjóð og mark-
aðinn í heild. Það er mjög óæski-
legt að fá inn á markaðinn á mjög
skömmum tíma mikinn innflutn-
ing. Tekjustreymi ríkissjóðs ■
mjög sveiflukennt vegna þessa.
Núna eru sum fyrirtækin í þessari
grein að kikna í niðursveiflunni
og þekking sem búið er að byggja
upp í þeim fer forgörðum. Eins
og nú er ástatt er mikið framboð
af árgerðum 1986-1989 á bílasöl-
um en lítið af nýrri árgerðum.
Verðið á gömlu bílunum er því
óeðlilega lágt og að sama skapi
óeðlilega hátt á nýrri árgerðun-
um.“