Morgunblaðið - 31.01.1995, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 31.01.1995, Qupperneq 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 31. JANÚAR 1995 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR Davíð, nú forseti þingsins er frú Salome og . . . Hreinsunarátaki á Súða- vík lauk á laugardag HREINSUNIN var í fullum gangi þegar Morgunblaðsmenn bar að á laugardagsmorgun. Morgunblaðið/Þorkell aðrir; bjarga því sem bjargað verð- ur,“ sagði Hildur Maríasdóttir þegar blaðamaður og ljósmyndari Morgun- blaðsins hittu hana í Súðavík á laug- ardag. Hildur er uppalin hjá ömmu sinni í einu þeirra húsa við Aðalgötu í Súðavík sem eyðilagðist í snjófljóð- inu úr Traðargiii. Síðar bjó hún lang- dvölum erlendis en hefur alltaf hald- ið tengslum við Súðavík þar sem hún á ættingja og vini. Hún segist hafa farið aftur til Súðavíkur með bróður sínum, mágkonu og dóttur sinni þeg- ar opnað var fyrir umferð á þriðju- daginn í síðustu viku. Síðan hafí þau verið að moka upp úr rústunum frá því klukkan 8 á morgnana fram á kvöld otr stundum fram til miðnæt.t,- HREINSUNARÁTAKI með aðstoð björgunarsveitarmanna af Vest- fjörðum og neyðarsveitar slökkvi- liðsins í Reykjavík í Súðavík lauk degi fyrr en áætlað hafði verið eða fyrrihluta laugardags. Elvar Ragn- arsson, formaður framkvæmda- nefndar hreppsnefndar Súðavíkur, segir að verkið hafi einfaldlega gengið hratt og búið væri að hreinsa götur og opin svæði. Bergsveinn Alfonsson, aðalvarð- stjóri hjá slökkviliðinu í Reykjavík sagði að hlutverk neyðarsveitarinn- ar hefði rauninnni aðeins falist í því að láta hlutina ganga. Svæðisstjóm hjálparsveita hefði séð um að útvega mannafla til hreinsunarinnar og unnið hefði verið af kappi, aðallega í einstökum húsum, alla vikuna. Hins vegar sagði Bergsveinn að tækjaskortur hefði háð mönnunum. Fá tæki væru á staðnum og önnur, í nálægari byggðarlögðum, hefðu meira og minna verið upptekin enda snjóþungt á svæðinu. Áf þeim sök- um hefði ekki verið hægt að hefja sjálft átakið fyrr en á föstudag. Hreinsunin hófst um kl. átta á föstu- dagskvöld og var unnið með 17 vörubíla, 3 ámoksturstæki, 2 gröfur og jarðýtu fram til klukkan 7 á laug- ardagsmorgn. Bergsveinn sagði að á þeim tíma hefði tekist að ryðja nánast öll opin svæði og götur í bænum og byrjað væri á rústum ónýtra húsa. Ómetanlegt starf Elvar sagði að slökkvilið og björg- unarlið að sunnan hefði unnið ómet- anlegt starf í Súðavík. Hreinsunará- takið hefði gengið hraðar en ætlað hefði verið í fyrstu og nú væri svo komið að búið væri að ryðja götur og opin svæði. Heimamenn tækju við og farið yrði hægar í að ryðja úr vegi húsarústum. Hann sagði að haft yrði samband við hveija fjöl- skyldu fyrir sig og henni eða full- trúa hennar gefrnn kostur á að vera við þegar hús fjölskyldunnar væri rutt. Elvar sagði að búið væn að hreinsa mikið úr rústunum og lík- HILDUR sagði að hreinsunin væri mikið púl ólíkt skrifstofu- vinnunni sem hún væri vön. lega fyndist ekki mikið meira af persónulegum munum fyrr en byij- að yrði að moka. Væntanlega myndu einhveijir sjá um að tína úr snjónum þá persónulegu hluti sem eftir væru. „Ég er að gera svipað og allir is. Þá taki við frágangur og eina nóttina hafí þau verið að til klukkan þijú eftir miðnætti. Hildur segir að öll húsgögn og tæki séu ónýt. Einna helst sé að leita að litlum hlutum og fatnaði en ekki sé heldur víst að hægt sé að bjarga fötunum því eng- inn tími sé til að koma þeim strax í þvott. Hún sagði að erfitt væri að átta sig á úr hvaða húsum hlutimir kæmi og dæmi væru um að einstaka hlutir hefði farið alla leið út í sjó. Renault og BMW til B&L Sé ekki fram á bjartari tíma í bílasölu næstu ár MIKLAR hræringar hafa verið í bíl- greininni að und- anförnu. Globus hf. hefur ákveðið að hætta sölu bíla •og Brimborg tekið við umboðum þess, Ford og Citroen, og líkur benda til þess að Bílheimar hf. taki við Saab-umboðinu. Bíla- umboðið hf. hefur selt Bif- reiðum og landbúnaðar- vélum umboð sín fyrir BMW og Renault, en þeg- ar fyrirtækið tók við Ren- ault-umboðinu var mark- aðshlutdeildin hérlendis um 0,3%. Nú þegar fyrir- tækið hættir með þessi umboð er markaðshlut- deildin komin upp í 4,2% en Pétur Óli Pétursson Pétlir OIÍ PétUTSSOn framkvæmdastjóri segir að það sé ekki nóg að auka mark- ►Pétur ÓIi Pétursson fram-. aðshlutdeildina þegar heildar- markaðurinn dregst stöðugt sam- an. Hann segir að það hafí ráðið miklu um ákvörðun sína að selja umboðið að hann sjái ekki fram á bjartari tíma í sölu á bílum næstu eitt til tvö ár. Hvers vegna er þessi ákvörðun íekin núna? „Ég fékk ásættanlegt tilboð sem mér fannst mjög freistandi að taka. Ég met stöðuna þannig að hér verði ekki uppsveifla í bíla- innflutningi næstu eitt til tvö árin. Ég óttast ófrið á vinnumarkaði, verðbólgu og hækkandi vexti á þessu ári. Við slíka stöðu vaknar spurning um hvort gengi krónunn- ar haldist og markaðurinn stækk- ar ekki miðað við það sem hann hefur verið undanfarin tvö ár. Innflutningurinn síðustu tvö ár hefur ekki verið nema helmingur af því sem hann þarf að vera til að endurnýja bílaflota lands- manna. Heildarinnflutningur und- anfarin sex ár hefur verið um helmingur af því sem hann var sex ár þar á undan, þar af voru þijú ár reyndar afar óvenjuleg. Heildarinnflutningurinn þarf að vera 10-11 þúsund bílar á ári. í öðru lagi tók ég tilboðinu vegna þess að ég veit að mínir viðskipta- vinir,vefða í mjög góðum höndum hjá B&L sem hefur langa reynslu af bílainnflutningi og bílaviðskipt- um. B&L hefur sterka fjárhags- lega stöðu. í þriðja lagi er lang- flestum minna starfsmanna boðið starf hjá B&L og þeir fylgja því eftir sem við höfum verið að gera, að auka markaðshlutdeild Ren- ault.“ Telurðu nauðsyn á að fieiri fyr- irtæki á þessu sviði sameinist? „Þróunin erlendis _____________1 hefur víða verið þannig að fyrirtæki hafa tekið að sér æ fleiri merki. Við sjáum þessa þróun líka hér, Ingvar Helga- — son tók að sér alla GM-línuna sem var þá hjá Sambandinu, Ford og Citroén eru að fara til Brimborgar og Saab til Ingvars Helgasonar. Þetta verða því færri innflytjendur með fleiri merki. Það verður viðr- áðanlegra fyrir þá að taka á sig sveiflur. Að mínu áliti hafa menn í bílgreininni tekið rangar ákvarð- anir við sölu á notuðum bílum með eilífum útsölum og afsláttum sem er slagur sem er engin ástæða til að fara út í. í verðstríði tapa allir þátttakendur. Slíkt verðstríð hefur myndast að nokkru leyti á undanförnum misserum í notuðum bílum. Ef menn forðast verðstríð jafnar uppsöfnun notaðra bila sig kvæmdastjóri Bílaumboðsins hf. fæddist í Reykjavík árið 1949. Hann ólst upp í Reykjavík og dvaldist í Skagafirði frá fimm ára aldri fram að ferm- ingu. Hann lauk námi frá Sam- vinnuskólanum 1968 og hóf störf þjá Sambandinu. Hann dvaldist í Þýskalandi við störf og nám í tvö ár. Hann starfaði á skrifstofu Sambandsins í London í eittár, 1971-1972, og gerðist sölustjóri í véladeild SIS 1972 og gegndi því starfi til 1975. Þá stofnaði hann ásamt fleirum fyrirtækið Vélar og þjónustu og var þar fram- kvæmdastjóri til 1990. Þá seldi hann sinn hlut í fyrirtækinu og stofnaði ásamt fleirum Bílaum- boðið. Þar hefur hann verið framkvæmdastjóri síðan með eignarhlut upp á 2/«. Fyrirtæki hafa tekið að sér æ fleiri merki út á örfáum mánuðum og markað- urinn samþykkir verðið. Nú er markaðurinn farinn að bíða eftir útsölum og hreyfir sig ekki fyrr en nokkrum dögum áður en stóru umboðin þurfa að gera skil á virð- isaukaskatti. Þá þeyta þau inn á markaðinn fjölda notaðra bíla á niðursettu verði. Heildarsala not- aðra bíla eykst ekki við útsölurnar en menn eru neyddir til að taka þátt í leiknum. Þar af leiðandi hafa umboðin verið að tapa á við- skiptum með notaða bíla á undan- fömum misserum." Hvernig hafa afskipti hins opin- bera verið af bílgreininni? „Það hefði ekki áhrif á tekjur ríkissjóðs af bílainnflutningi að lækka innflutningsgjöld sem lögð eru á bíla. Ef innflutningsgjöld _________ lækkuðu um 10% og innflutningurinn ykist í kjölfarið um 15% hefði það ekki áhrif á tekjur ríkissjóðs, en sveiflur í bílainnflutningi jöfnuð- ust út, sem hlýtur að vera kapps- mál jafnt fyrir ríkissjóð og mark- aðinn í heild. Það er mjög óæski- legt að fá inn á markaðinn á mjög skömmum tíma mikinn innflutn- ing. Tekjustreymi ríkissjóðs ■ mjög sveiflukennt vegna þessa. Núna eru sum fyrirtækin í þessari grein að kikna í niðursveiflunni og þekking sem búið er að byggja upp í þeim fer forgörðum. Eins og nú er ástatt er mikið framboð af árgerðum 1986-1989 á bílasöl- um en lítið af nýrri árgerðum. Verðið á gömlu bílunum er því óeðlilega lágt og að sama skapi óeðlilega hátt á nýrri árgerðun- um.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.