Morgunblaðið - 31.01.1995, Side 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 31. JANÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
ÚR VERIIMU
• •
ORN KE kom með fyrstu
loðnuna til Seyðisfjarðar
Tímasetningin í samræmi við hefðir
Seyðisfirði - Fyrsta loðnan á vetr-
arvertíðinni barst til Seyðisfjarðar
á laugardaginn þegar loðnuskipið
Örn KE 13 kom til hafnar með
fullfermi, um 700 tonn. Loðnunni
var landað hjá SR-mjöli á Seyðis-
firði og fer í bræðslu.
Að venju var tekið á móti skipveij-
um með viðhöfn en þetta er annað
árið í röð sem Örninn er fyrstur til
að landa loðnu eystra. Þorvaldur
Jóhannsson bæjarstjóri færði Sig-
urði Sigurðssyni skipstjóra og áhöfn
hans gjöf frá bæjarbúum og lét þau
orð falla að hann væri sannfærður
um að skipið ætti eftir að koma
með marga loðnufarma í íslenskar
hafnir á þessu ári. Þá færði Gunnar
Sverrisson verksmiðjustjóri skip-
verjum gjöf frá SR-mjöli og starfs-
fólki þess.
Að sögn kunnugra virðist loðnan
vera nokkuð þokkaleg miðað við
árstíma; 48 fiskar í kg og sé hrygn-
an ein talin eru 56 í kg. Fyrstu
mælingar sýna að hrognafylling er
orðin um 7,4% en jafnan er miðað
við að hún þurfi að vera um 10%
til að frysting geti hafist. Þetta er
þó háð því hvaða kröfur kaupandinn
gerir.
Vonir bundnar við frystingu
Miklar vonir eru bundnar við
loðnufrystinguna að þessu sinni og
hefur hennar verið beðið með
óþreyju. Búið er að koma upp loðnu-
flokkunarstöðvum við báðar
bræðslurnar á Seyðisfirði. Tvö
frystihús eru á staðnum og von er
á þremur frystitogurum sem verða
staðsettir við bryggju til þess að
SIGURÐUR skipstjóri með sýnishorn af aflanum.
Morgunblaðið/Pétur Kristjánsson
ÞORVALDUR Jóhannsson bæjarstjóri á Seyðisfirði (t.h.) og Gunnar Sverrisson verksmiðjustjóri
hjá SR-mjöli afhentu Sigurði skipstjóra Sigurðssyni gjafir er Örninn lagðist að bryggju með fyrstu
loðnuna á vetrarvertíðinni.
frysta loðnu. Undanfarin ár hefur
verið unnið að móttöku frystigáma
og öllu því skipulagi sem þarf fyrir
þá miklu flutninga sem verða um
Seyðisfjarðarhöfn fari allt að ósk-
um.
Loðnan fékkst á Litla dýpi við
Hvalbak. Að sögn Sigurðar skip-
stjóra var hún á töluvert stóru svæði
en stóð djúpt og var dreifð. Hann
þakkaði djúpnótinni að aflinn fékkst
og sagði að lítið gagn væri af fjöru-
nót við þessi skilyrði. Tonnin 700
fengust í þremur köstum á föstu-
dagskvöld og aðfaranótt laugar-
dags en tvö til viðbótar sprungu.
Sigurður kvaðst hafa séð lítið af
loðnu frá því í haust og var því
farinn að ókyrrast. Honum létti því
mjög þegar hún kom skyndilega
fram á föstudag. „Við höfum svo
sem ekki séð neitt gríðarlegt magn
Loðna og þorrablót
Sigurður var hóflega bjartsýnn á
framhaldið þegar hann lét í haf
strax að lokinni löndun. Hann hafði
frétt af stórri og góðri loðnu út af
Vopnafirði en taldi þó að hún væri
ekki veiðanleg í nót og ætlaði aftur
á Litla dýpi.
Gunnar Sverrisson verksmiðju-
stjóri var loðnunni feginn enda
sagði hann að þjóðin öll hefði beðið
eftir henni með öndina í hálsinum.
„Við byijum að bræða þetta ferskt
strax í fyrramálið og vinna úr því
hágæðamjöl." Gunnar var þó ekki
farinn að örvænta enda er tímasetn-
ing loðnunnar að þessu sinni í sam-
ræmi við hefðir undanfarinna ára.
Vinna hefur þá hafist við hana sama
dag og þorrablót Seyðfirðinga hefur
verið haldið. Gárungar hafa haft á
mm
u hul
NORDISK FORSKERUTDANNINGSAKADEMI
Norrænar
umhverfisrannsóknir
NorFA býður vísindamönnum á Norðurlöndunum að sækja
um styrk til norræns vísindaþróunarstarfs í sambandi við
norrænu umhverfisrannsóknaáætlunina. Starfið þarf að
tengjast einhverju sviði innan þess verkefnis;
■fe Rannsóknir varðandi loftlagsbreytingar.
á*? Umhverfisrannsóknasamvinna á
Eystrasaltssvæðinu.
Hinar samfélagslegu forsendur umhverfis
málastefnunnar.
RSSj IJMSÓKNARFRESTUR ER TIL
yÍII| 1. MARS 1995
Gildir um allt starfssvið NorFA nema undirbúning
á norrænum vísindanámskeiðum.
NÁNARI upplýsingar
færðu í bæklingi NorFA „Gránslös forskarutbildning 1995“.
Pantaðu hann hjá þínum háskóla (erlend- eða upplýsinga-
deild) eða hjá skrifstofu NorFa;
NORDISK FORSKERUTDANNINGSAKADEMI
Póstbox 2714 St Hanshaugen, N-0131 Osló.
Sími: 00 47 22 03 75 20 / Símbréf: 00 47 22 03 75 31.
ennþá en þetta var engu að síður . orði að réttast væri að flýta þorra-
mikill léttir þar sem við höfum ekki blótinu til þess að loðnuvinnsla
fengið í dallinn í sex mánuði.“ gæti hafist fyrr.
NUPO-létt
- eini læknisfræðilega kannaði
megrunarkúrinn
Hvers þarf að gæta til að viðhalda grönnum og heilbrigðum líkama?
Eru megrunarkúrar hættulegir?
Já, þeir megrunarkúrar, sem uppfylla ekki þarfir líkamans fyrir alla nauðsynlega næringu,
geta reynst mjög hættulegir. NUPO-létt inniheldur öll þau næringarefni, sem líkaminn
þarfnast og er því hættulaus (Ath. að fæstir megrunarkúrar uppfylla öll þessi skilyrði).
Hvers vegna á ég að nota duft, en ekki venjulegan mat?
NUPO-létt er venjulegur matur, sem í raun er ekki frábrugðinn t.d. osti eða pasta. Það er
bara ekki hægt að búa til svo næringaríkan en um leið hitaeiningasnauðan mat, úr
venjulegum matvælum.
Eru ekki allir duftkúrar eins?
Nei, alls ekki. Oftast skortir talsvert á að aðrir kúrar uppfylli næringarþörf líkamans.
T.d. er ekki leyft að selja kúra eins og Herbalife í Danmörku og Svíþjóð, nema að uppfyllt-
um ströngum skilyrðum og alls ekki sem kúra sem einir og sér uppfylla fullkomlega
daglega næringarþörf líkamas.
Er það rétt að vöðvar og bein rýrni við að nota NUPO-létt?
Þar sem NUPO-létt er próteínríkt duft, sem uppfyllir þarfir líkamans fyrir próteín, rýrna
vöðvar og bein ekki (lean body mass, LBM) meira en eðlilegt er. Umframþyngd krefst
aukins LBM við aukna áreynslu, sem stafar af aukakílóunum. Við megrun getur LBM
tapið orðið allt að 25% af þyngdartapinu, sem er innan eðlilegra marka.
Óvandaðri megrunarkúrar stuðla að mun meira tapi á LBM.
Ef þú þarft að losna við einhver kíló, hvort sem þau eru færri eða fleiri, eða vilt bara
viðhalda þeirri þyngd, sem þú ert í - þá er NUPO-létt rétta leiðin fyrir þig.
Kynntu þér NUPO-létt
Þriðjudaginn 31. janúar nk. kl 18.00 hefst aðhald í megrun. Þar verður vigtað, gefnar ráðleg-
gingar um mataræði og skipst á upplýsingum, allt fólki að kostnaðarlausu.
Mótsstaður verður í LYF hf., Garðaflöt 16-18, Garðabæ.
Allir sem vilja léttast eru velkomnir.
Upplýsingar í síma 565 7479
)! lyf
HF.