Morgunblaðið - 31.01.1995, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 31. JANÚAR 1995 17
FRÉTTIR: EVRÓPA
Ræða Jacques Santers í Davos
Stefnir að sameig-
inlegum vömum
o g myntbandalagi
Davos, Sviss. Reuter.
JACQUES Santer, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambands-
ins, sagði í ræðu á Alþjóðaefnahagsráðstefnunni í Davos í Sviss
um seinustu helgi, að hann væri ákveðinn í að stefna áfram að
sameiginíegum vörnum ESB-ríkja og hvika hvergi frá markmiðinu
um sameiginlegan gjaldmiðil.
Santer sagði afar
aðkallandi að stíga
fleiri skref í átt til
sameiginlegra varna
og skilgreina betur
hlutverk Vestur-Evr-
Ópusambandsins á
ríkjaráðstefnunni um
framtíðarþróun ESB,
sem á að hefjast á
næsta ári. „Maas-
tricht-sáttmálinn
kveður á um að sam-
bandinu beri að hafa
sameiginlega stefnu í
öryggismálum og
stefna í fyllingu
tímans að sameiginlegum vörn-
um,“ sagði Santer. „Ég er ákveð-
inn í því að stefna beri að umtals-
verðum árangri í þeim efnum.“
Forsetinn sagði að markmið
Evrópuríkja hlyti að vera „kerfi,
sem tryggir stöðugleika og frið
um alla Evrópu, í endurskipulögðu
samstarfi við heimsveldin.“
Framkvæmdastjórnin sölsar
ekki undir sig meiri völd
Hann vísaði því hins vegar á
bug að Evrópusambandið ætlaði
að fara að sýna mátt sinn og
megin með því að taka sér stærra
hlutverk í varnar- og utanríkismál-
um.
Santer hafnaði því
jafnframt að fram-
kvæmdastjórnin
hygðist nota ríkjaráð-
stefnuna til að auka
eigin hlut í stjórnkerfi
ESB. „Framkvæmda-
stjómin hefur ekki
hug á að sölsa undir
sig aukin völd á ráð-
stefnunni, hvað sem
illa upplýstir áhorf-
endur kunna að
halda,“ sagði hann.
„Hins vegar þurfum
við að auka skilvirkni
stofnana okkar, án
þess þó að eyðileggja hið nauðsyn-
lega jafnvægi milli valdaaðila.“
Santer lagði ríka áherzlu á að
ekki bæri að hvika frá því mark-
miði, sem ákveðið hefði verið í
Maastricht-samkomulaginu, að
koma á efnahags- og myntbanda-
lagi aðildarríkjanna fyrir aldamót-
in. „Stefna mín á þessu sviði er
skýr. Við eigum hvergi að víkja
út af brautinni til efnahags- og
myntbandalags .. . Það er að
sjálfsögðu ekki aðeins til þess fall-
ið að auka trúverðugleika sameig-
inlegu Evrópumyntarinnar, heldur
einnig til þess að við getum til
lengri tíma hagnazt á lægri vöxt-
um um allt sambandið."
Jacques Santers
Breska stjórnin
lýsir andstöðu við
frekari samruna
London. Reuter, The Daily Telegraph.
BRESKA ríkisstjórnin ákvað á
fundi á laugardag að leggjast gegn
áformum Evrópusambandsins um
að koma á sameiginlegum gjald-
miðli árið 1997. Malcolm Rifkind
varnarmálaráðherra greindi einnig
frá því á alþjóðlegu efnahagsráð-
stefnunni í Davos í Sviss að Bret-
ar myndu ekki láta af hendi yfir-
ráðin yfir her sínum.
John Major, forsætisráðherra
Bretlands, sagði í viðtali við BBC
á sunnudag að áhugi á auknum
Evrópusamruna færi nú dvínandi
í Evrópu og að í framtíðinni yrði
samstarfið laustengdara. „Það er
víðtækur stuðningur fyrir því inn-
an ESB að ákvarðanataka verði
færð á ný til þjóðríkjanna. Ég tel
að sambandið muni í framtíðinni
ekki þróast í að verða miðstýrð
heild,“ sagði Major.
Portillo ánægður
Michael Portillo, atvinnumála-
ráðherra og einn helsti Evrópu-
andstæðingurinn í bresku stjórn-
inni, fagnaði hinni nýju afstöðu
Majors. „Það er búið að skýra
málin. Það er ekki neinn ágrein-
ingur á milli mín og annarra ráð-
herra í þessum efnum. Það er
enginn munur á skoðunum mínum
og meirihluta íhaldsmanna," sagði
Portillo í viðtali við breska sjón-
varpið.
Hann sagði ekki hægt að neyða
Breta inn í pólitískt samstarf, sem
þeir hefðu ekki áhuga á.
Portillo sagði í viðtali við Sky-
sjónvarpsstöðina að stjórnin gæti
séð fyrir þijú tilvik þar sem Bretar
myndu nota neitunarvald sitt á
ríkjaráðstefnunni, sem hefst á
næsta ári. í fyrsta lagi ef reynt
yrði að afnema neitunarvald að-
ildarríkja, í öðru lagi ef reynt yrði
að breyta reglum um atkvæða-
vægi þannig að erfiðara yrði fyrir
Breta að stöðva mál og í þriðja
lagi til að koma í veg fyrir að
Evrópuþingið fengi aukin völd.
Kemur ekki til greina!
Hans van den Broek, sem fer
með utanríkismál í framkvæmda-
stjórn Evrópusambandsins, sagði
að ekki kæmi til greina að eitt
aðildarríki kæmi í veg fyrir fram-
kvæmd Maastricht-sáttmálans. Öll
ríki hefðu þegar skuldbundið sig
til þess sem þar væri kveðið á um,
s.s. að taka upp sameiginlegan
gjaldmiðil.
Mikill ágreiningur er þó enn
innan íhaldsflokksins um Évrópu-
málin og sagði Edward Heath,
fyrrum forsætisráðherra, í samtali
við sjónvarpsmanninn David Frost
að breska stjórnin væri að ráðast
á allar samstarfsþjóðir sínar í
Evrópu. „Sumir trúa því að við
getum breytt samstarfinu í það
að vera einungis einhvers konar
rabbfundir. Það mun ekki gerast
og ef við reynum að knýja slíkt í
gegn mun það einungis skaða
okkur sjálfa,“ sagði Heath.
fimmtudaginn 2.febrúar, kl. 20.00
Hljómsveitarstjóri: Osmo Vdnska
Einleikari: Elmar Oliveira
Efnisskrá
Ludvig van Beethoven: Fiðlukonsert
Osmo Vánska Igor Stravinskíj: Vorblót Elmar Oliveira
Miðasala áxskrifetofutítha og við innganginn við upphaf tónleika. Greiðslukortaþjónusta.
I
31. janúar fagna Kínverjar nýju ári,
- ári svínsins. Kínversk stjömuspeki
segir að svín séu tryggir, áreiðanlegir og
mjög örlátir vinir, án þess að láta mikið
á því bera.
Starfsfólk Sjanghæ óskar landsmönnum
öllum gleðilegs árs og þakkar viðskiptin
á liðnum árum. í tilefni af nýju ári
bjóðum við tvö gimileg tilboð á matseðli
Þessi tilboð gilda íyrir tvo eða fleiri:
Krabbasúpa
Kjúklingur Sapor, gufusoðinn í kínversku víni
Smokkflskur með eplum og chillisósu
Svínarif á kantónska vísu
Súrsætt svínakjöt að hætti Malasíumanna
Djúpsteiktir ávextir með þeyttum rjóma
NYARSFAGNAÐUR
Kínaklúbbur Unnar og Sjanghœ
fagna ári svínsins með
veislumat og skemmtidagskrá í
Sjanghœ í kvöld, 31■ janúar,
kl. 18:00. Unnur segir frá
fyrirhugaðri Kínaferð í maí nk.
Borðapantanir hjá Sjanghæ.
Verð kr. 1390 á mann.
Allir velkomnir!
Verð 1390 kr. á mann
Kínversk sveppasúpa
Humar með chilli og árstíðasósu
Pekingönd með ostrusósu
Kantónskt svínakjöt með grænmeti
Lambakjöt Satay, að hætti Malasíumanna
Peking steikt hrísgrjón
Djúpsteikt epli með ís
Verð 1590 kr. á mann
Ókeypis heimsendingarþjónusta fyrir
tvo eða fleiri eftir kl. 18:00 alla daga.
-KÍNlfERfKtt veitingahúsið á íslandi
Lougavegi 28b Sími 551 6513 - 552 3535 - Fox 624762