Morgunblaðið - 10.02.1995, Blaðsíða 12
12 FÖSTUDAGUR 10. FEBRÚAR 1995
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Styrkir til
jafnréttis-
verkefna
Undanfarin ár hefur jafnréttis-
nefnd Akureyrar veitt styrki til
ótal verkefna á sviði jafnréttis-
mála.
Flestir þeirra hafa runnið til
skólaverkefna en einnig hafa
kvennaíþróttir verið styrktar,
sjálfsstyrking kvennahópa, athug-
un á stöðu karla í sjúkaliðastétt,
þróun mæðravemdar og fleira.
Nefndin lýsir nú eftir umsóknum
fyrir þetta ár. Hámarksstyrkur er
100 þúsund krónur en alls er hálf
milljón til úthlutunar á árinu.
Umsóknum skal skila til jafn-
réttis- og fræðslufulltrúa Akur-
eyrarbæjar á bæjarskrifstofunum
við Geislagötu en þar eru jafn-
framt veittar nánari upplýsingar.
Umsóknarfrestur er til 20. febrúar
næstkomandi.
Slippstöðin-Oddi
Heimild til að
auka hlutafé
Á HLUTHAFAFUNDI í Slippstöð-
inni-Odda hf. á Akureyri í gær var
veitt heimild til stjórnar að auka
hlutafé stöðvarinnar um 60
milljónir króna.
Jöklar hf., dótturfyrirtæki Sölu-
miðstöðvar hraðfrystihúsanna,
DNG, rafeindaiðnaður í Glæsibæj-
arhreppi og Málning hf. í Reykja-
vík hafa tryggt sér kaup á meiri-
hluta hlutabréfa í Slippstöðinni-
Odda, en þau eru í eigu Lands-
banka íslands.
Bæjarráð
Akureyrar
Ein milljón
til Súðavík-
urhrepps
BÆJARRÁÐ Akureyrar sam-
þykkti á fundi í gær að leggja
fram eina milljón króna til aðstoð-
ar á Súðavík.
Bréf Sambands íslenskra sveit-
arfélaga þar sem greint er frá
undirbúningi og samvinnu sveitar-
félaga landsins um aðstoð við
Súðavíkurhrepp vegna tekjumiss-
is og tjóns á eignum hreppsins
vegna snjóflóðanna 16. janúar síð-
astliðinn var til umfjöllunar á
fundi ráðsins. Stjóm sambandsins
mælti með því við sveitarfélögin
að þau styrktu Súðavíkurhrepp
með 60 króna lágmarksframlagi
á hvem íbúa.
Á fundi bæjarráðs var einnig
lagt fram bréf frá bæjarstjórninni
í Álasundi, vinabæ Akureyrar í
Noregi, þar sem ítrekaðar era
samúðarkveðjur vegna snjóflóða-
slysanna í janúar og fylgdi með
bréfinu ávísun að upphæð 10 þús-
und norskar krónur sem framlag
í söfnunina „Samhugur í verki“.
Sem frekari aðstoð hefur bæjar-
stjórinn í Álasundi sett af stað
fjársöfnun í Álasundi og nágrenni
og hvatt til fjárstuðnings frá öðr-
um vinabæjum Akureyrar á
Norðurlöndum, Lathi í Finnlandi,
VÁsterÁs í Svíþjóð og Randers í
Danmörku.
Starfsemi Einangrunarstöðvar ríkisins
í Hrísey lögð niður fyrir ári
Einangrunarstöð
gæludýra starfar án
tilskilinna leyfa
MÁL hundaeigenda á Akureyri
sem fluttu inn þrjá dverghunda frá
Bandaríkjunum síðastliðið haust
var tekið fyrir í Héraðsdómi Norð-
urlands eystra í gær. Hundaeig-
endumir hafa neitað að greiða
reikninga vegna vistar hundanna
á stöðinni á þeim forsendum að
um vanefndir á samningi sé að
ræða og að misræmi sé milli þeirr-
ar þjónustu sem veitt var og þess
sem greitt var fyrir.
Bent er á að eigendurnir hafi
haft leyfí til að flytja inn tvo hunda,
en komið með þrjá og þá hafi þeir
ekki komið heim á þeim degi sem
þeirra var vænst og því hafi dýra-
læknir ekki verið til staðar við
heimkomuna. Einn hundanna
drapst í einangranarstöðinni fljót-
lega eftir að þangað var komið.
Neytendafélag Akureyrar og
nágrennis hefur veitt hundaeig-
endunum aðstoð í málinu og sagð-
ist Vilhjálmur Ingi Árnason, for-
maður félagsins, hafa haft sam-
band við umhverfisráðuneyti, lan-
búnaðarráðuneyti, heilbrigðisfull-
trúa og lögreglustjóra vegna máls-
ins.
Elnangrunarstöð ríkis-
ins lögð niður
Eigendur hundanna fengu í des-
ember síðastliðnum reikning frá
Mál hundaeigenda
vegna vangold-
inna reikninga
tekið fyrir í Hér-
aðsdómi Norður-
lands eystra
Einangrunarstöð ríkisins í Hrísey
en starfsemi á hennar vegum var
lögð niður 1. janúar árið 1994.
Einnig hefur þeim borist reikning-
ur frá Einangrunarstöð gæludýra
í Hrísey, en það fyrirtæki er ekki
til í skrám sýslumannsembættisins
í Eyjafirði, að sögn formanns neyt-
endafélagsins. Það segir hann að
bijóti í bága við dýraverndarlög, í
III. kafla laganna, sem tóku gildi
um mitt ár í fyrra og fjalla um
dýrahald í atvinnuskyni annað en
í landbúnaði, segir að leyfi lög-
reglustjóra þurfí til hvers konar
ræktunar, verslunar, þjálfunar,
tamningar, geymslu og leigu dýra
í atvinnuskyni sem ekki fellur und-
ir búfjárhald.
Vilhjálmur Ingi sagði að Ein-
angranarstöð ríkisins væri til á
skrá, m.a. hjá Skýrsluvélum ríkis-
ins en hún hefði hætt starfsemi
fyrir rúmu ári og ekki væri sam-
kvæmt upplýsingum frá umhverf-
isráðuneyti hægt að framselja leyfi
gömlu stöðvarinnar til hinnar nýju.
Það virtist því vera að landbúnað-
arráðneytið hefði gert samning við
hundaeigenduma um leyfi til að
flytja inn hunda af tiltekinni gerð,
sá samningur væri framseldur til
einkaaðila sem ekki hefði tilskilin
starfsleyfi og starfaði því í and-
stöðu við núgildandi dýravemdar-
lög.
Þarf leyfi
Sigurður Þráinsson, deildarstjóri
náttúrufræði- og vísindadeildar
umhverfisráðuneytisins, sagði að
samkvæmt lögum um dýravemd,
sem tóku gildi 1. júlí í fyrra, þyrfti
einangrunarstöðin að sækja um og
hafa leyfi vegna þeirrar starfsemi
sem þar færi fram. í áttunda kafla
laganna, 18. grein, sem fjallar um
eftirlit með framkvæmd laganna,
kemur fram að það séu lögreglu-
stjórar, héraðsdýralæknar og full-
trúar dýraverndarfélaga, en Sig-
urður sagðist ekki tilbúinn að segja
um hvers ábyrgðin væri í þessu
tiltekna máli.
Sigurgeir Þorgeirsson, aðstoðar-
maður landbúnaðarráðherra, vildi
ekki tjá sig um málið í gær.
Beinar siglingar
í haust
Eimskipafélag íslands hefur í
bréfi til bæjarráðs lýst yfir að fé-
lagið staðfesti allt það sem fram
kemur í bréfi Sölumiðstöðvar
hraðfrystihúsanna til bæjarstjórn-
ar Akureyrar varðandi atvinnu-
uppbyggingu í bænum og snýr að
þjónustu Eimskips og starfsemi
félagsins á Akureyri. Einnig kem-
ur fram í bréfínu að allt sem sett
er fram í bréfi SH sé í samráði
við og með samþykki Eimskips.
í bréfí Eimskipafélags íslands
kemur fram að beinar siglingar
milli Akureyrar og Evrópulanda
gætu hafist á haustmánuðum,
einnig er fyrirhugað að koma upp
gámaviðgerðarstöð og byggja fry-
stigeymslu á Akureyri.
Framkvæmda-
sjóöur háskólans
Á fundi bæjarráðs var einnig
samþykkt að Akureyrarbær gerð-
ist stuðningsaðili Framkvæmda-
sjóðs Háskólans á Akureyri, en
bréf frá undirbúninsnefnd sjóðsins
hafðí borist ráðinu og bænum boð-
ið að gerast stuðningsaðili með
því að greiða 25 þúsund króna
framlag til hans.
Bikarmeistarar
fá viðurkenningu
í tilefni af því að handknatt-
Ieikslið KA varð bikarmeistari ís-
lands 1995 staðfesti bæjarráð á
fundi sínum í gær viðurkenningu
að upphæð 500 þúsund krónur til
handa deildinni. Bæjarstjóri færði
handknattleiksdeildinni viður-
kenninguna að loknum leik síðast-
liðinn laugardag.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Gæðingar í vetrarbúningi
KULDINN undanfama daga virðist ekki bíta á hrossin, þau em
í vetrarbúningi sínum, em kafloðin, en líklega er eins gott fyrir
knapana að klæða af sér kuldann líkt og þeir gera þessir þrír
sem Ijósmyndari rakst á syðst í Aðalstræti í vikunni.
Málverka-
uppboð
á Hótel
KEA
GALLERÍ Borg heldur mál-
verkauppboð í samvinnu við
Listhúsið Þing sunnudaginn 12.
febrúar kl. 20.30.
Boðin verða upp verk eftir
marga af þekktustu listamönn-
um þjóðarinnar og má þar
nefna Jóhannes S. Kjarval,
Ásgrím Jónsson, Kristínu Jóns-
dóttur, Snorra Arinbjarnar,
Svavar Guðnason, Jón Engil-
berts, Louisu Matthíasdóttur,
Þorvald Skúlason, Gunniaug
Blöndal, Gunnalug Scheving,
Kareni Agneti Þórarinsson, Jón
Þorleifsson, Svein Þórarinsson,
Kristján Davíðsson, Eirík
Smith, Karólínu Lárusdóttur,
Júlíönu Sveinsdóttur, Sigur-
björn Jónsson og Tolla.
Verkin verða sýnd í Listhús-
inu Þingi laugardaginn 11.
febrúar og sunnudaginn 12.
febrúar frá kl. 14-18. Haraldur
Blöndal býður upp verkin.
Tónleikar í
Mývatnssveit
Mývatnssveit. Morgunblaðið.
BLANDAÐUR kór í Mývatns-
sveit hélt tónleika í Reykjahlíð-
arkirkju mánudaginn 6. febr-
úar kl. 21.00. Flytjendur með
kórnum voru Margrét Bóas-
dóttir, sópran, Baldvin Kristinn
Baldvinsson baritón, Antje Go-
bel, fiðla og Wolfgang
Tretzsch, orgel, sem einnig var
stjórnandi.
Efnisskráin var mjög fjöl-
breytt, einsöngslög, dúettar og
orgelverk eftir innlenda og er-
Ienda höfunda. Síðast var bæn
og blessunarorð og almennur
söngur „Nú fjöll og byggðir
blunda“ Tónleikunum var mjög
vel tekið.
Kennsla í
skíðagöngu
SKÍÐARÁÐ Akureyrar, Skóg-
ræktarfélag Eyfirðinga og
Skíðaþjónustan á Akureyri
bjóða upp á kennslu í skíða-
göngu í Kjarnaskógi á morgun,
laugardaginn 11. febrúar.
Um er að ræða klukkustund-
arlöng námskeið og verða hald-
in fjögur slík yfir daginn. Það
fyrsta hefst kl. 1.00, það næsta
kl. 12.00, þriðja námskeiðið
verður kl. 13.00 og það síðasta
kl. 14.00.
Allir sem talja sig þurfa á
tilsögn að halda, hvort heldur
byijendur eða lengra komnir
eru hvattir til að notfæra sér
þetta tækifæri. Á staðnum
verður hægt að fá lánuð skíði,
skó og stafí og kennslan er
ókeypis.
Snjómokstur
tækjum ofviða
BÆJARSTJÓRN Akureyrar
hefur samþykkt að kaupa nýtt
ámoksturstæki fyrir umhverf-
isdeild Akureyrarbæjar, en
vegna mikils snjómoksturs í
vetur og elli hafa moksturs-
tæki deildarinnar stór-
skemmst. Reynt hefur verið
að gera við tækin sem bila á
síðustu árum en vegna málm-
þreytu er nú svo komið að slíkt
dugar ekki lengur.