Morgunblaðið - 10.02.1995, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 10. FEBRÚAR 1995 25
AÐSENDAR GREINAR
Guðmundur Þórhalisson, ráðftjafi
Hugarfar
stöðugleikans
AÐILAR vinnumarkaðarins og
ríkisvaldið undirbúa þessa dagana
viðræður um kjarasamninga á al-
mennum markaði. Formenn lands-
og svæðasambanda ASI hafa ný-
lega kynnt stjórnvöldum kröfugerð
sína um aðgerðir ríkisvaldsins
vegna komandi kjarasamninga.
Jafnframt hefur mikill meirihluti
félagsmanna í Kennarasambandi
Islands og Hinu íslenska kennar-
afélagi samþykkt viðamikla verk-
fallsboðun.
Við gerð kjarasamninga er að
mörgu að hyggja fyrir viðsemjend-
ur. Afar mikilvægt er að hafa lang-
tímasjónarmið í huga þar sem
skammvinn hækkun launa ræður
ekki ferðinni ein og sér. Þýðingar-
mikið er að skapa aðstæður sem
tryggja almennar kjarabætur
heildarinnar til frambúðar. Samn-
ingsaðilar mega ekki missa fót-
anna í einstökum þröngum þáttum
Við gerð kjarasamninga
er mikilvægt að hafa í
huga sameiginlega
stefnu verðmætasköp-
unar, segir Jón
Asbergsson. Það
verður að skapa verð-
mætin áður en farið
er að skipta þeim.
kjaraviðræðnanna heldur gera sér
grein fýrir heildarmyndinni. Það
er staðreynd að ísland hefur siglt
í öldudal á undanförnum árum.
Hvaða lærdóm má læra af mistök-
um fyrri ára? Hvemig má lyfta
þjóðarskútunni upp úr öldudalnum
á nýjan leik? Hvernig er unnt að
auka framleiðni íslenskra atvinnu-
fyrirtækja svo þau megi standa
undir aukinni velmegun, hærri
launum og fleiri störfum? Þessum
spumingum verða samningsaðilar
að reyna að svara.
Síðustu ár hafa verið ótvíræð
batamerki á lofti. Þrátt fyrir erfið
ytri skilyrði og hægan hagvöxt,
hefur ríkt stöðugleiki í íslensku
efnahagslífi. Verðbólgan hefur
verið nánast engin, gengisskráning
krónunnar stöðug og vextir hafa
lækkað. Þessi stöðugleiki er mikil
kjarabót fyrir alla, fjölskyldur jafnt
sem fyrirtæki.
Einn athyglisverðasti bati
undanfarinna ára kemur fram í
utanríkisverslun okkar íslendinga.
í stað óhagstæðs vöruskiptajöfn-
uðar á áram áður, er nú umtals-
verður afgangur af vöraskiptum
okkar við útlönd tvö ár í röð. Ut-
flutningsverslun okkar hefur vera-
lega sótt í sig veðrið
og sem dæmi má
nefna að útflutnings-
verðmæti almenns
iðnaðarvamings jókst
um 15% að raunvirði
milli áranna 1993-94.
Fiskafurðir okkar
hafa selst vel og í vax-
andi mæli í verðmæt-
ari sölueiningum en
áður, sem þýðir að
virðisaukinn hér
heima er meiri. Minni
fyrirtæki, sem selja
háþróaða vöru, leita
einnig í vaxandi mæli Jón Ásbergsson
á erlenda markaði.
Þessa þróun ber að standa vörð
um og efla á allan máta, því hún
er undirstaða velferðar á komandi
árum.
Bati og stöðugleiki
í íslensku efnahagslífi
stendur síður en svo á
traustum grunni. Gott
dæmi um hina já-
kvæðu en brothættu
þróun, eru gjaldeyris-
tekjur landsmanna í
fyrra af óvenjulega
hagstæðri loðnuvertíð
og umdeildum Smugu-
veiðum. Það er ekki
sjálfgefið að slíkir
lottóvinningar falli
okkur aftur í skaut á
þessu ári.
Það er því mikil-
vægt að landsmenn
standi vörð um hinn hæga en já-
kvæða bata í íslensku efnahagslífi.
Kollsteypur fyrri ára og áratuga,
þar sem óstöðugleiki í atvinnu- og
efnahagslífi réð ríkjum, samfara
einangran í verslun og viðskiptum,
eru vonandi liðin tíð. Stöðugleikinn
í efnahagslífi byggist fyrst og
fremst á hugarfari stjórnvalda,
atvinnurekenda og launþega. Það
verður að skapa verðmætin áður
en farið er að skipta þeim. Stjóm-
völd og aðilar vinnumarkaðarins
verða að taka höndum saman um
að mynda sameiginlega stefnu
verðmætasköpunar, sem hefur það
að markmiði að auka hagsæld í
landinu og styrkja atvinnustarfsem-
ina. Aukin verðmæti leiða síðan
aftur til hærri launa og fleiri starfa.
Þetta ber fyrst og fremst að
hafa í huga við gerð komandi kjara-
samninga.
Höfundur er frnmkvæmdnstjóri
Útflutningsráðs íslands.
—iHWwmmiwmmHim————————ii—i—Mi—ni
T\ 'TTlí n
„ Tekjubréf ergóöur kostur fyrir
þá sem vilja fá tekjur reglulega. “
Hrefna Sigfinnsdóttir, ráögjafi
„Það kostar ekkert að mnleysa
spariskirteinin hjá okkur. “
Árni Oddur Þóröarson, ráögjafi
I8ÍR§£' 1
„Með leið 1 og 2 gœtir þú
átt von á gengishagnaði “
„Erþessi myndataka ekki
að verða búin.“
blvar Guðjónsson, markaðsstjón
„Lattu sja þig og við fmnum
góða leið sem hentarþér. “
Elín Krístjánsdóttir, ráðgjafi
GÓÐ i ai iqivi
Á INNLAUSN
Ráðgjafar Skandia benda á þrjár
góðar lausnir við innlausn
spariskírteina ríkissjóðs
ávöxtun 8%
80% Ecu
20% Dollar
Miðað við nafhávöxtun nú í viðkornandi myntum
ávoxtiui 8,5%
50% Innl.
50% Ert
Ef þú átt spariskírteini ríkissjóðs sem
komin eru á innlausnartíma getur þú
innleyst þau hjá Skandia án kostnaðar.
Ráðgjafar Skandia benda á þrjár
góðar lausnir tíl áframhaldandi
ávöxtunar við innlausn.
■ NEMENDUR úr Dansskóla
Heiðars Ástvaldssonar selja
mörg hundruð plötur sem skólinn
gefur til styrktar Blackpoolförum
skólans í Kolaportinu. í safninu
era m.a. margar ónotaðar plötur
svo sem um 20 stk. af salsa-plötum
sem Heiðar keypti í New York en
voru aldrei notaðar og nokkrar
Victor Silvester-plötur sem einnig
sluppu við notkun. I safninu era
að sjálfsögðu plötur með öllu
helstu dansplötum síðari ára svo
sem Joe Loss, Edmundo Ross,
Hugo Strauss, Bela Sander o.fl.
Allar helstu diskóplötur era í safn-
inu og einnig allar plötur The
Beatles.
M.v. nqfiiávaxtun mí í viðkomandi myntum
og 3,5% verðbólgu.
ávaxtun7J%
Tekjubréf
Raunávöxtun síðustu firiggja mánaða.
Að auki býðurSkandia spariskírteini
á skiptikjörum með 5,30% ávöxtun
ogfjölda aimarra kosta.
Hafðu samband við ráðgjafa Skandia
og þeirfinna góða lausn jyrir þig.
Skandia
LÖGGILT VER0BRÉFAFYRIRTÆKI
LAUGAVEQI 170 • SÍMI SB 13 700
imiimiiiiiin
I