Morgunblaðið - 10.02.1995, Qupperneq 40
40 FÖSTUDAGUR 10. FEBRÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
Grettir
Ferdinand
Smáfólk
Ég vissi að við værum við rangt
hús ... Ég vissi að þetta var ekki
kennarinn okkar ... Þessi kona
hélt eftir blómunum ...
Kennarinn okkar er hærri og er Ef þú hefur svona miklar áhyggj-
með gleraugu ... Hún hélt bíóm- ur af blómunum farðu þá til baka
unum ... og náðu í þau ... Hvaða hús var
það?
BREF
HL BLAÐSEMS
Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329
Er ITC fyrir þig?
ITC-ráðsfundur
Frá: Amal Rún Quase:
Á MORGUN, 11. febrúar, verður
haldinn 40. ráðsfundur Fyrstaráðs
ITC á íslandi.
Fyrir þá sem vita ekki hvað ITC
er langar mig að segja ykkur frá
samtökunum.
ITC stendur
fyrir Intem-
ational train-
ing in com-
munication
eða alþjóðleg
þjálfun í
mannlegum
samskiptum.
Aðal starf-
Amai Rún Quase semi samtak-
anna er að
þjálfa fólk í ræðumennsku og
kenna því að koma fram opinber-
lega. Einnig er lögð mikil áherslu
á fundarsköp og gott málfar.
En til hvers þurfum við að
sækja námskeið í ITC til að læra
að tala rétt og yfirleitt til að þora
að tjá okkur fyrir framan aðra?
Er þetta ekki eitthvað sem við
ættum að hafa lært í foreldrahús-
um eða í skóla? Þurfum við að
ganga í samtök eins og ITC til
þess að geta flutt mál okkar opin-
berlega?
Kanadíski heimspekingurinn
Brian Tracy segir frá könnunum
sem voru gerðar í Norður-Amer-
íku (Kanada og Bandaríkjunum)
þar sem kemur í ljós að um 54%
þátttakenda vildu frekar deyja en
flytja ræðu opinberlega. Við sem
höfum talið að lífið væri það síð-
asta sem hver maður vildi fórna!
Öll böm fæðast jákvæð, full af
sjálfsöryggi, laus við fordóma og
illgirni. (Takið eftir því hvað lítil
börn eru fljót að segja nei þegar
þeim líkar ekki eitthvað.) Hvað fer
þá úrskeiðis þegar við stækkum?
í mínu uppeldi varð öryggið og
sjálfstraustið útundan. Állt upp-
eldið miðaðist við það að ég fylgdi
fjöldanum. Minn eiginn vilji var
ekki talinn skipta máli. Kornið sem
fyllti mælinn var þegar reynt var
að selja mig í hjónaband, fyrst
þegar ég var 13 ára og síðan aft-
ur þegar ég var 15 ára. Annan
eiginmanninn sá ég aldrei og hinn
leist mér ekkert á! Svona lífs-
reynsla er nokkuð sem maður
gleymir aldrei. Margt fleira gæti
ég nefnt sem dæmi um það virð-
ingarleysi sem mér og öðrum kon-
um hefur verið sýnt.
Þátttaka mín í ITC hefur veitt
mér dýrmætt tækifæn til þess að
byggja upp sjálfstraust mitt og
öryggi. Ég geri ráð fyrir því að
þið ykkar sem eruð gift hafið sjálf
fengið að ráða ykkar makavali,
engu að síður er skortur á sjálf-
strausti nokkuð sem virðist fylgja
okkur öllum, þó í mismunandi
mæli sé. Ég veit að virk þátttaka
í ITC getur hjálpað ykkur mikið,
ekki síður en mér.
Á ráðstefnunni verður meðal
fyrirlesara Vilhjálmur Árnason
dósent og Þórkatla Aðalsteinsdótt-
ir sálfræðingur. Rætt verður m.a.
um hamingjuna og hvernig við
getum höndlað hana. Ég hvet ykk-
ur öll til þess að nota þetta tæki-
færi til þess að koma og kynnast
því hvað ITC hefur upp á að bjóða.
AMALRÚN QASE,
umsjónarmaður ráðstefnunnar.
Vafasamur niðurskurður
Frá Volker Schönwart:
ÉG ER þýskur listamaður og hef
ekki einvörðungu áhuga ferða-
langsins á íslandi, heldur einnig á
möguleikum sem hér bjóðast til
að stunda vinnu mína.
Sú mikla
menningar-
starfsemi sem
einkennir
þetta litla
samfélag hef-
ur snortið mig
djúpt. Þetta á
ekki einvörð-
ungu við um
ijölda þeirra
listviðburða
sem í boði eru
heldur hefur það komið mér
ánægjulega á óvart hvernig starf-
semi þessi er ekki einvörðungu
bundin við Reykjavík.
Að mínu viti hafa yfirvöld í
Hafnarfirði sýnt sérstaklega lofs-
vert framtak með því að gangast
fyrir listahátíð í bænum og með
því að reka listamiðstöðina í
Straumi. Þarna hefur íslenskum
og erlendum listamönnum gefist
kærkomið tækifæri til að kynnast
og bera saman bækur sínar.
Það kom mér því á óvart þegar
mér barst sú fregn að núverandi
yfirvöld í Hafnarfirði hygðust
skera niður framlög til menningar-
mála þannig að í ráði væri að loka
listaskólanum auk þess sem starf-
semin að Straumi væri í hættu.
Mér sýnist sú ákvörðun að loka
listaskólanum óg hefja rekstur hans
á ný með nýju starfsfólki til marks
um að núverandi bæjarstjóm vilji
ekki að fram fari opinber umræða
og misnoti vald sitt í flokkspólitísk-
um tilgangi. Árangri uppbygging-
arinnar er stefnt í voða.
Þar sem ég er útlendingur get
ég ef til vill betur en aðrir gert
mér grein fyrir hversu alvarlegar
afleiðingar það hefði í för með sér
ef starfseminni í Straumi yrði
hætt. Þar með yrði komið í veg
fyrir áhugavert samvinnuverkefni
sem vekja myndi athygli á alþjóða-
vettvangi. Þessi áætlun má ekki
verða fórnarlamb þröngra flokks-
hagsmuna. Skaðinn yrði mikill og
þá er ekki aðeins um að ræða lista-
mennina heldur sjálfan Hafnar-
fjarðarbæ og ímynd bæjarfélagsins
á menningarsviðinu.
Virðingarfyllst,
VOLKER SCHÖNWART,
Eberswalder Str. 19
D-10437 Berlin.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í
Gagnasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan,
hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu
efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari þar að lútandi.