Morgunblaðið - 23.02.1995, Blaðsíða 2
2 FIMMTUÐAGUR 23; FEBRÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Forsætisráðherra í eldhúsdagsumræðum
Fyrsta
loðnan til
Helguvíkur
„ÞETTA verður stutt stopp, því
að við höldum strax á miðin aft-
ur um leið og löndun er lokið,“
sagði Oddgeir Jóhannsson skip-
stjóri á loðnuskipinu Hákoni ÞH
250, eftir að hann hafði lagst
að bryggju fyrstur skipa í höfn-
inni í Helguvík í gær. Hákon ÞH
var með um 600 tonn af loðnu
sem fengust út af Skarðsfjöru
aðfaranótt þriðjudags og tók
siglingin til Helguvíkur um 14
tíma.
Oddgeir sagði að sér litist vel
á aðstæður í Helguvík og ekki
mikið mál að sigla þar inn. Hann
sagði að brýnt væri að halda þar
áfram uppbyggingu til móttöku
á loðnu og að þar yrði byggð
bræðsla fyrir næstu vertíð. I
áhöfn á Hákoni eru 22 menn,
um borð er aðstaða til frystingar
og höfðu um 100 tonn af aflanum
verið fryst.
Pétur Jóhannsson, hafnar-
stóri hafnanna í Keflvík, Njarð-
víkum og Höfnum, sagði að sá
hluti aflans sem væri óunninn
færi til flokkunar. Að því loknu
færi hrygnan til vinnslu en
hængnum yrði dælt í geymslu-
tanka og hann síðar fluttur til
Siglufjarðar til bræðslu. Að sögn
Péturs var stutt í næsta bát þvi
Grindvíkingur væri á landleið.
Von var á honum seint í gær-
kvöldi.
Þurfum stjórnmála-
legan styrk til að
fylgja batanum eftir
DAVÍÐ Oddsson, forsætisráð-
herra, sagði í eldhúsdagsumræð-
um á Alþingi í gærkvöldi, að kosn-
ingabaráttan mundi snúast um
það, hvort nægilegur stjómmála-
legur styrkur verði til staðar til
þess að fylgja efnahagsbatanum
eftir, að kosningum loknum. For-
sætisráðherra sagði, að vörninni
væri lokið og sóknin hafin, nýir
kjarasamningar mundu tryggja
aukinn kaupmátt á ný.
Davíð Oddsson sagði, að skattar
fyrirtækja hefðu verið lækkaðir
um 2.000 milljónir á kjörtímabilinu
en skattar einstaklinga hefðu stað-
ið í stað og mundu lækka með
þeim skattabreytingum, sem
ákveðnar hefðu verið í tengslum
við kjarasamninga. Forsætisráð-
Lesendaþj ónusta
Morgunblaðsins
Spurt og
svarað um
tilvísunar-
kerfið
HEILBRIGÐISRÁÐHERRA
hefur gefið út reglugerð um
tilvísunarkerfi í heilbrigðis-
þjónustunni. Til að auðvelda
lesendum að átta sig á þess-
ari breytingu mun Morg-
unblaðið taka á móti spum-
ingum þeirra í síma 691100
milli kl. 10 og 11 árdegis,
mánudaga til föstudaga.
Spumingunum verður komið
á framfæri við heilbrigðis- og
tryggingaráðuneytið, svo og
Sérfræðingafélag íslenzkra
lækna, eftir því, sem efni
þeirra gefur tilefni til og
verða svörin birt svo fljótt
sem unnt er. Lesendur geta
beint spurningum sínum til
annars hvors aðilans eða
beggja ef því er að skipta.
Nauðsynlegt er að nöfn og
heimilisföng fylgi spurning-
um lesenda.
herra sagði, að skattamál atvinnu-
fyrirtækja væm í fyrsta sinn með
þeim hætti, að erlend stóriðjufyrir-
tæki gætu gengið beint inn í ís-
lenzkt skattakerfi og enga sér-
staka samninga þyrfti um skatta-
mál þeirra.
Ekki ástæða til
að vera ánægður
Halldór Ásgrímsson, formaður
Framsóknarflokksins, sagði í ræðu
sinni, að skuldir ríkisins hefðu
hækkað úr 64 milljörðum í 145
milljarða á kjörtímabilinu og er-
lendar skuldir hefðu aukizt um 70
milljarða á sama tíma. Atvinnu-
lausum hefði fjölgað úr 2.000 í
rúmlega 6.000. Hann kvað ekki
ástæðu til að vera ánægður með
þennan árangur.
Ólafur Ragnar Grímsson, for-
maður Alþýðubandalags, sagði að
ríkisstjómin hefði lækkað skatta
á fyrirtæki en stórhækkað skatta
á einstaklinga og fjölskyldur.
Sjúklingar hefðu tekið á sig stór-
auknar byrðar og skuldir hins op-
inbera hefðu hækkað úr 15% af
landsframleiðslu í 30%. Kröfur
Seðlabankans á hendur ríkissjóði
hefðu hækkað úr 8 milljörðum í
18 milljarða.
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
HÁKON ÞH 250 leggst að bryggju í höfninni í Helguvík i gær.
Á litlu myndinni er Þorsteinn Arnason, formaður hafnarnefnd-
ar, að afhenda Oddgeiri Jóhannssyni blóm af þessu tilefni.
Stjórnarformaður Vátryggingafélags íslands hf.
Skandia með undirboð
á kostnað höfuðstöðva
INGI R. Helgason, stjórnarformað-
ur Vátryggingaféíags íslands hf.,
segir að vátryggingafélagið Skand-
ia hf. bjóði niður iðgjöld á markaðn-
um hér á kostnað höfuðstöðva
Skandia í Svíþjóð, og því geti félag-
ið ekki talist alvöru tryggingafélag.
Ingi sagði í samtali við Morgun-
blaðið að þeir viðskiptahættir
Skandia hf. að bjóða niður iðgjöld
á íslenskum markaði á kostnað
erlends aðila sem borgi kostnaðinn
sem endurtryggingarútgjöld geti
ekki talist eðlilegir. „Iðgjöldin
þeirra duga ekkert fyrir tjónum og
þá lækka þeir verðið,“ sagði hann.
Stóryrtar auglýsingar
Ingi sagði að þessir viðskipta-
hættir Skandia gætu ekki talist í
samræmi við samkeppnislög, en
þar kæmi hins vegar að skilgrein-
ingunni á því hvað væri undirboð.
Þeir sem hefðu efni á því að undir-
bjóða þyrftu hvorki að spyija kóng
né prest.
Athygli hafa vakið auglýsingar
frá Skandia hf. annars vegar og
VÍS hins vegar, sem birst hafa í
Morgunblaðinu, en í þeim þykja
nokkuð stór orð hafa verið viðhöfð.
Sagðist Ingi vona að ekki yrði
framhald á auglýsingum af þessu
tagi.
„Skandia Island hefur ekki efni
á því að undirbjóða miðað við ið-
. gjöldin sín en gerir það af því að
Skandia Svíþjóð borgar brúsann.
Það þykir okkur illt við að eiga,
en að fara í stríð við þá í auglýsing-
um og karp er síðasta sort,“ sagði
Ingi.
ísland dregið fyrir EFT A-dómstólinn verði einkaréttur ríkisins á áfengisinnflutningi ekki afnuminn
Fj ármálaráðherra seg-
ir fyrirstöðu á þingi
Dómur gæti bakað ríkinu skaðabótaskyldu
EFTIRLITSSTOFNUN EFTA
(ESA) mun draga ísland fyrir
EFTÁ-dómstólinn vegna brots á
samningnum um evrópskt efna-
hagssvæði verði frumvörp um af-
nám einkaréttar ríkisins á áfengis-
innflutningi og -heildsölu ekki sam-
þykkt fyrir þinglok. Friðrik Soph-
usson fjánnálaráðherra segir að vel
sé hægt að samþykkja málin á
þessu þingi, en fynrstaða sé á Al-
þingi gegn því að ísland standi við
samningsskuldbindingar í þessu
efni.
ESA sendi ú'ármálaráðuneytinu
í gær rökstútt álit vegna málsins,
en áður hafði stofnunin sent form-
lega tilkynningu vegna einkaréttar
ÁTVR á innflutningi og heildsölu-
dreifingu áfengis. Álitið, sem nú
var sent, er harðorðara og segir
þar að núverandi fyrirkomulag
þessara mála sé brot á EES-samn-
ingnum. Stjómvöldum er gefinn
sex vikna frestur til að kippa mál-
um í lag.
ESA hefur ekki gert athuga-
semdir við fyrirkomulag smásölu
áfengis hér á landi.
Áherzla á niðurstöðu
á þessu þingi
Ríkisstjórnin samþykkti síðast-
liðið sumar að breyta fyrirkomulagi
heildsölu og innflutnings á áfengi
til samræmis við athugasemdir
ESA. Frumvörp þess efnis voru
lögð fram af fjármálaráðherra og
dómsmálaráðherra á Alþingi í
haust, en þau hafa enn ekki verið
samþykkt. Í síðasta mánuði sendi
fjármálaráðuneytið ESA bréf, þar
sem fram kom að lögð yrði áherzla
á að koma málunum f gegnum
þingið í vetur þannig að breytt lög
tækju giidi 1. apríl.
Heinz Zourek, eftirlitsfulltrúi
ESA sem fer meðal annars með
málefni ríkiseinokunar, sagði í
samtali við Morgunblaðið að það
væri ekki tilviljun að álitið væri
sent nú, er þingstörfum væri að
ljúka. ESA legði áherzlu á að þing-
málin um afnám einkaréttar ríkis-
ins yrðu sainþykkt á þessu þingi.
Aðspurður til hvaða aðgerða
ESA myndi grípa yrði einkaréttur
ríkisins ekki afnuminn nú þegar,
sagði Zourek: „Bregðist ísland ekki
við á viðunandi hátt að okkar mati
drögum við ísland fyrir EFTA-
dómstólinn."
Hann minnti á að Svíar hefðu
breytt fyrirkomulagi á innflutningi
áfengis fyrir allnokkru, í desember
hefði EFTA-dómstóllinn dæmt
fínnska einkaréttarkerfið ólöglegt
og fyrir stuttu hefðu Norðmenn
tilkynnt að þeir myndu breyta sín-
um reglum til samræmis við EES-
samninginn.
Skaðabótaskylda gæti skapazt
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins getur svo farið, verði
dómur felldur í EFTA-dómstólnum
íslenzkum stjórnvöldum í óhag, að
þeir öðlist skaðabótarétt á hendur
ríkinu, sem geti sannað að þeir
hafi tapað á núverandi fyrirkomu-
lagi innflutnings og heildsölu
áfengis.
Friðrik Sophusson sagði í sam-
tali við Morgunblaðið að fyrsta
umræða um áðurnefnd frumvörp
hefði farið fram á Alþingi í fyrra-
kvöld og málið færi nú til efna-
hags- og viðskiptanefndar, sem á
að fjalla um það í dag. „Það á að
vera hægt að afgreiða málið fyrir
þinglok ef sæmileg sátt er um það,“
sagði Friðrik.
Misskilningur hjá
bindindismönnum |
Hann sagði málið hafa verið rek-
ið með eðlilegum hætti á Alþingi.
„Hins vegar hefur verið fyrirstaða
í þinginu. Hún er af tvennum toga,
annars vegar Alþýðubandalagið og j
Kvennalistinn sem fara gegn mál-
inu og hins vegar einstakir bindind- |
ismenn, sem telja að þetta mál sé i
til þess fallið að leiða óhamingju
yfír þjóðina," sagði Friðrik. „Það
er hins vegar að sjálfsögðu á mis-
skilningi byggt vegna þess að
hvorki er verið að breyta verðpóli- J
tíkinni né smásöluverzluninni.“