Morgunblaðið - 23.02.1995, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 23.02.1995, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR I —;— 1 SKIÐASVÆÐIIM BLAFJOLL Veðurhorfur: Norðan kaldi og létt- skýjað. Frost 4-8 stig. Skíðafæri: Gott skíðafæri og nægur snjór. Opið: Kl. 10—18 mán., fös., laug. og sunnudag Á þrið., mið. og fim. er opið kl. 10-22. Upplýsingar í síma 91-801111 (lesið er inn á símsvarann kl. 8 alla dag- ana, og síðan eins og þurfa þykir). Skíðakennsla er allar helgar og hefst hún kl. 10.30, 12.00, 13.30, 15.00 og 16.30 og stendur í 1 'h klst. í senn. Ferðir: Sérleyfisferðir Guðmundar Jónssonar sjá um daglegar ferðir þegar skíðasvæðin eru opin sam- kvæmt ákveðinni áætlun með við- komustöðum víða í borginni. Uppl. eru gefnar í síma 683277 eða hjá BSÍ í sími 22300. Teitur Jónasson hf. sér um ferðir frá Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði. Upplýsingar i síma 642030. KOLVIÐARHOLSSVÆÐI Veðurhorfur: Norðan kaldi og létt- skýjað. Frost 3-7 stig. Skíðafæri: Gott skíðafæri. Opið: Kl. 10—18 mán., fös., laug. og sunnudag. Á þri., mið. og fim. er opið kl. 10-21. Upplýsingar í síma 91-801111. Ferðir: Sjá Bláfjöll. SKALAFELL Veðurhorfur: Norðan og norðaustan kaldi eða stinningskaldi. Léttskýjað, þó ef til vill þokuskúfur á fjallinu. Frost 4-8 stig. Skfðafæri: Nægur snjór og ágætt færi. Opið: Kl. 10-18 mán., fös., laug. og sunnudag. Á þri., mið. og fim. er opið kl. 10-21. Upplýsingar: í síma 91 -801111. Skíðakennsla er allar helgar og hefst hún kl. 10.30, 12.00, 13.30, 15.00 og 16.30 og stendur í 1 'h klst. í senn. Ferðir: Sjá Bláfjöll. ISAFJORÐUR Veðurhorfur: ( dag verður norðan eða norðaustan kaldi, líklega tals- verður éljagangur framan af degi en dregur úr éljum síðdegis. Frost 5-9 stig. Skíðalyftur verða teknar í notkun um næstu helgi ef aðstæður leyfa. Ath. gönguskíðabrautir eru troðnar. AKUREYRI Veðurhorfur: Norðan kaldi í dag og éljagangur. Frost 4-7 stig. Skíðafæri: Gott skíðafæri og nægur snjór. Opið: Opið virka daga kl. 13-18.45 og laugardaga og sunnudaga kl. 10-17. Upplýsingar í síma 96-22930 (sím- svari), 22280 og 23379. Skíðakennsla: Boðið er upp á skíða- kennslu um helgina frá kl. 12 og á klst. fresti eftir þátttöku. Ferðir á svæðið á virkum dögum kl. 13.30, 15.30 og 16.30 og síðasta ferð kl. 18.30. í bæinn er síðasta ferð kl. 19. Þingmenn ræða stöðu garðyrkjunnar á Alþingi Orkuverð verði lækkað ÞINGMENN hvöttu til þess í um- ræðum á Alþingi á þriðjudag að stjórnvöld stuðluðu að samningum milli garðyrkjubænda og raf- magnssölufyrirtækja um lægra raforkuverð til ylræktar. Margrét Frímannsdóttir, þing- maður Alþýðubandalagsins, gerði rekstarvanda garðyrkjustöðva að umræðuefni utan dagskrár á Al- þingi. Hún sagði atvinnugreinina búa við of hátt raforkuverð, en það hefði m.a. í för með sér að þótt framleiðslugetan væri meiri en inn- anlandsneysla væri útflutningur ekki mögulegur vegna rekstarum- hverfisins. Mikla raflýsingu þarf til að ná sambærilegum gæðum í fram- leiðslunni og erlendis og þegar orkukostnaður garðyrkjustöðva væri skoðaður kæmi í ljós að orkan væri of stór hluti af rekstarkostn- aði eða um 15%. Margrét sagði að samningar, sem gilt hefðu í rúm tvö ár milli garðyrkjubænda og Landsvirkjun- ar um kaup á umframorku af RARIK, væru óhagstæðir. Hún spurði Sighvat Björgvinsson, iðn- aðarráðherra, hvort hann hyggðist beita sér fyrir því að þessir samn- ingar yrðu endurskoðaðir og hvort hann væri tilbúinn að beita sér fyrir lækkun orkuverðs til garð- yrkju. Sighvatur sagðist ekki vera tilbúinn til að beita sér fyrir lækk- un orkuverðs til garðyrkju ef í því fælist að garðyrkjubændur eða aðrir raforkunotendur ákvæðu sjálfir verð á rafmagni. „Ég hef hins vegar reynt og mun áfram reyna að stuðla að því að garðyrkja, eins og aðrar at- vinnugreinar, fái rafmagn á eins lágu verði og aðstæður leyfa,“ sagði Sighvatur, en benti á að RARIK og Landsvirkjun væru sjálfstæð fyrirtæki. Gild rök fyrir samningum Ólafur Ragnar Grímsson, þing- maður Alþýðubandalagsins, sagði að iðnaðarráðuneytið hefði verið að leita að samningsaðilum víðs- vegar um veröldina til að kaupa ódýra orku. Á íslandi væru orku- kaupendur í garðyrkju einnig tilbú- inir að kaupa viðbótarorku og tryggja föst viðskipti. Og gild rök, og fordæmi, væru fyrir því að stjórnvöld beittu sér fyrir samning- um við garðyrkjubændur og drægju Landsvirkjun og RARIK að samningaborði um þessi mál. Blandarennur enn Guðni Ágústsson, þingmaður Framsóknarflokks, sagði að Landsvirkjun minnti hann á Bárð á Búrfelli sem átti skemmur fullar af feitu kjöti og tólg en tímdi ekki að gefa fólki sínu að éta. „Landsvirkjun á 700 gígavatt- stundir af rafmagni sem enginn notar. Blanda rennur enn til sjávar án þess að nokkur nýti hana. Það er eins og þeir skilji ekki enn að á íslandi ríkir lögmál um framboð og eftirspurn. Það er ófært að Landsvirkjun komist upp með það að beita aflgjaldi sem er ekki raun- hæft við núverandi aðstæður. Ég tel að þetta mikla fyrirtæki verði að taka þátt í nýsköpun á ís- landi,“ sagði Guðni. Nýr baróttumaður fyrir Reykvíkinga FIMMTUDAGUR 23. FEBRÚAR 1995 9 2. sætið í Reykj Olafyr Orn Haraldsson er fylgjandi öfnun tosningaréttar XB Framsóknarflokkurinn Hraðvirkar mæliaðferðir og tækninýjungar í gæðaeftirliti FTC á íslandi efnir til tveggja daga námsstefnu um hraðvirkar mæliaðferðir og tækninýjungar í gæðaeftirliti í matvælaiðnaði. Gestafyrirlesarar verða frá Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins, Rannsóknastofnun landbúnaðarins, embætti yfirdýralæknis og Vicam technology (USA). Kynntir veröa fjölmargir möguleikar sem matvælaframleiöendum standa til boða? • Hraðvirkar mæliaðferðir við hreinlætiseftirlit. • Hraðvirkar aðferðir til að mæla salmonellu og listeríu. • Ný tækni til að mæla hitastig með geisla. • Nýjar aðferðir til sýrustigs- og saltmælinga. • Nýjar aðferðir til að fygjast með neyslu- og frárennslisvatni. Auk fyrirlestra fer námsstefnan fram með verklegum æfingum og raunhæfum verkefnum, sem verða m.a. sérsniðin að þörfum Fiskvinnslu, kjötvinnslu, mjólkuriðnaði, drykkjarvöruframleiðslu. Námsstefnan verður haldin á Hótel Sögu 7. -8. mars nk. Þátttökugjald er kr. 19.000 (25% afsláttur fyrir tvo eða fleiri frá sama fyrirtæki) Skráning I síma 551 9920 eða í símbréfi 567 1495. Urval af síðbuxum og léttum blússum c TESSk^., sími 622230 OpiS virka daga kl. 9-18, laugardaga kl. 10-14 Glœsilegur vorfatnaður Fyrsta sendingin er komin ______Mari____________ Hverfisgötu 52-101 Reykjavik - Sími 91 -62 28 62 % Lítill pakki - augnkrem, rakamaski og næturkrem - fylgir Clinique litavörunum sem keyptar verða á kynningunni. Líttu inn Clitiique - ofnæmisprófaðar snyrtivörur án ilmefna. - Clinique kynni að henta þér. (SNYkTIVÖRUVERSLUNIN ____GLÆSIM__________

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.