Morgunblaðið - 23.02.1995, Síða 18

Morgunblaðið - 23.02.1995, Síða 18
18 FIMMTUDAGUR 23. FEBRÚAR 1995 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR „Stríð Og friður“ all- an daginn ÍMIR REGLUBUNDIN kvikmyndasýning fellur niður í bíósal MÍR, Vatnsstíg 10, nk. sunnudag 26. febrúar, þar sem stórmyndin „Stríð og friður“ verður sýnd daginn áður í fullri lengd - frá morgni til kvölds. Næsta sunnudagssýning í bíó- salnum verður því 5. mars kl. 16, í mars, apríl og maí er ráðgert að sýna margar kvikmyndir sem tengj- ast á einni eða annan hátt heims- styrjöldinni síðari í tilefni þess að 50 ár eru liðin frá lokum stríðsins í Evrópu 9. maí nk. Aðgangur að sunnudagssýning- um MÍR er ókeypis, en þeir sem vilja sjá „Stríð og frið“ þurfa að tryggja sér miða fyrirfram. -----♦ ♦ ♦ Tónfundir í Borgarfirði TÓNLISTARSKÓLI Borgarfjarðar mun halda tvo tónfundi í tilefni af degi tónlistarskólanna. Fyrri tónfundurinn verður í Borg- ameskirkju föstudaginn 24. febrúar nk. kl. 20.30 og síðari tónfundurinn í Kleppjárnsreykjaskóla mánudag- inn 27. febrúar nk. kl. 10.30. Verði verkfall grunnskólakennara óleyst verður tónfundurinn í Kleppjáms- reykjaskóla kl. 14. Nemendur munu flytja fjölbreytta dagskrá, syngja og leika á hin ýmsu hljóðfæri. Tón- fundimir era öllum opnir. Leikfélag Fijótsdaishéraðs Sú eina sanna Morgunblaðið/Anna Ingólfsdóttir HALLDÓRA Malín Pétursdóttir sem leikur Önnu Frank. KVIKMYNDIR Laugarásbíó CORRINA, CORRINA ★ ★ Leikstjóri Jessie Nelson. Handrit Steve Tesich, Paula Mazur. Aðalleik- endur Whoopi Goldberg, Ray Liotta, Tina Majorino, Joan Cusack, Don Amache. Bandarísk. New Line Cin- ema 1994. TÓNSKÁLDIÐ Manny Singer (Ray Liotta) er að jafna sig eftir fráfall konu sinnar. Það hefur ekki síður bitnað á Molly (Tina Major- ino), ungri dóttir hans, sem hefur ekki mælt orð af vörum síðan móðir hennar dó. Nú er hann kom- inn með ráðskonu númer tvö, hina þeldökku Corrinu (Whoopi Gold- berg), vel menntaða og raungóða sem reynist í alla staði til fyrir- myndar. Fær meira að segja Molly litlu til að tala á ný. En það verða árekstrar, tónskáldið rekur Corr- inu en kemst fljótlega að raun um að hún er rétta manneskjan. Myndin gerist á sjötta áratugn- um þegar bilið var breitt á mili kynþátta í Norður-Ameríku. Ekki síst á milli vel stæðra, hvítra milli- stéttarfjölskyldna og litaðra hjúa. Reynt er að mjókka bilið á milli Mannys og Singer með því að gera Corrinu að hálfgerðum dýrl- ingi sem kann ráð við öllu, kætir alla og bætir umhverfið með mannkostum sínum og visku. Lúr- ir m.a. á notadrjúgri þekkingu á bragfræði og á ekki í vandræðum með að leggja til eina og eina lag- línu þegar tónskáldið rekur í vörð- umar. Heldur ótrúleg persóna en Goldberg er fær leikkona og tekst WHOOPI Goldberg fer með aðalhlutverkið í myndinni. furðu vel að fleyta Corrinu yfir klisjumar. Liotta sýnir það hins- vegar að hann er enginn bógur í rómantísk, alvöragefin hlutverk, tónskáldið hans og umhyggjusam- ur heimilisfaðirinn ósköp vand- ræðalegur og ósannfærandi, þrátt fyrir gleraugnabrelluna góðu. Þá er myndin afar fyrirsjáanleg og heldur klén að flestri gerð. Litla stúlkan er hinsvegar bærilega leik- in og það er góð meining að baki Corrinu, Corrinu, sem ekki er van- þörf á, í miðjum klíðum ofbeldis- mynda. Það er því óhætt að mæla með henni fyrir yngri börnin á bænum. Það litla sem er, þá eru það já- kvæðar tilfinningar sem hún skilur eftir. Sæbjörn Valdimarsson ♦ ♦ Dagbók Onnu Frank Egilsstöðum. Morgunblaðið. ÆINGAR hafa gengið vel hjá Leik- féiagi F(jótsdalshéraðs á leikritinu Dagbók Ónnu Frank, sem félagið mun frumsýna 11. mars nk. Leikgerð er eftir Frances og Albert Hackett í þýðingu Stefáns Baldurssonar. Leikstjóri er Guð- jón Sigvaldason. Guðlaug Ólafs- dóttir aðstoðarleikstjóri sagði að æfingar væru búnar að vera frá 10. janúar og að þetta væru strangar æfingar. Leikarar eru tíu og stór hópur manna vinnur að gerð leikmyndar, búninga og leikskrá. Leikritið er samið upp úr dag- bók Önnu, en dagbókina hélt hún í tvö og hálft ár þar sem fjölskyld- an leyndist á geymslulofti yfir vöruskemmu í Ámsterdam á stríðsárunum. Aðalleikarinn 13 ára Halldóra Malín Pétursdóttir sem leikur Önnu Frank er 13 ára og er því á sama aldri og Anna var sjálf í upphafi dagbókarinnar. Aðrir leikarar eru; Atli Már Sveinsson, Kristrún Jónsdóttir, Daníel Behrend, Sigurborg Kr. Hannesdóttir, Sigurgeir Baldurs- son, Jón Gunnar Axelsson, Þór Ragnarsson, Sigrún Lárusdóttir og Soffía Björg Sigurjónsdóttir. Ónumið land TÓNOST Frí kirkjunn i MYRKIR MÚSÍKDAGAR Myrkir músíkdagar: Rascher SAXOFON-kvartettar eru sjald- heyrðir hér á hjaranum, enda grein- in nýleg og ekki ýkja útbreidd. Flestir tengja saxófóninn, þessa 150 ára gömlu uppfinningu Belg- ans Adoplphe Sax, við jassvirtúósa á við Charlie Parker og Coleman Hawkins, síður við sígilda tónlist (þó að frönsku impressjónistamir hafi notað saxinn lítilsháttar sem nýjan lit á sinfóníska spjaldinu) og sízt við „samtímatónlist", listmúsík nútímans. Svo nátengdur er sax- hljómblærinn svartri sveiflu, að meðan hann heldur einhveiju eftir af megineinkennum sínum, er hlustandinn óhjákvæmilega for- djacfaður af harksöngssveifluí- mynd snillinganna vestanhafs. Ef til vill er það sumpart vegna þess, að alvarlega þenkjandi nú- tímahöfundar virðast leggja áherzlu á að kalla fram sem óvenju- legust hljóð úr saxofóninum, auk þess að vilja auka tjáningarmögu- leika hans almennt. Er ekkert við því að segja, annað en að fyrir hlu- standa óvönum þessum nýja miðli hlýtur t.d. hin mikla beiting há- sviðsins (og jafnvel langt upp fyrir hið „normala“ 2,'h áttundar um- fang) samfara óhjákvæmilegu tísti og ískram að verka fremur ank- annaleg á stundum. Því þó að Rasc- her-kvartettinn hefði auðheyran- lega gífurlegt vald á hljóðfærum sínum (sópran-, alt-, tenór- og bari- ton-sax) og samspilið reyndist fág- að og samstillt á við beztu strengja- kvartetta, þá fór ekki hjá því, að höfundarnir virtust innstilltir á að láta reyna á blásturstækni spilar- anna fram að mörkum hins mögu- lega. Þegar mest lét, varð útkoman líka töluvert handan við það sem almenningur myndi kalla „áheyri- lega“ tónlist. En það er sjálfsagt ekki nema eðlilegt að tónskáldin freistist til að gefa sig á vald tilrauna í tón- grein sem e.t.v. er síðasta ónumda landið á vettvangi hefðbundinna hljóðfæra, allra sízt meðan nýtur stórsnillinga eins og Rascher- kvartettsins. Að vísu man undirrit- aður í svipinn ekki eftir að hafa heyrt saxofónahóp flytja álíka tón- list áður, og allur samanburður því út úr myndinni, en það fór samt ekki á milli mála, að þeir félagar lögðu mikla alúð við flutninginn og höfðu ærna tækni og yfirsýn til að bera. Veitti ekki af, því verkin vora að sama skapi kröfuhörð, bæði fyr- ir flytjendur og hlustendur. Roads to Ixtlan eftir Danann Per Norgárd hét í höfuðið á mexíkóskri Shangri La og var skv. kynningu tenórist- ans Bruce Weinberger hugleiðing um Tíma í forsögu, sögu og nútíð. Eftirminnilegast var upphaf verks- ins með hægt hnígandi loftvarna- flautukenndum tvíundum og örtón- bilum, er kölluðu fram undiröldur differenstóna. Upp frá því hófst einnig torstaðsetjanlegt kazoo- kennt marr, er sennilega átti ræt- ur að rekja til meðóms í tréverki einhvers staðar innan stokks; var það rask hið eina er skyggði á lýtalausan flutning allt til loka, og sá böggull er fylgdi skammrifi því að færa tónleikahaldið frá upphaf- lega áætluðum stað í Listasafni ríkisins, næsta hús við Fríkirkjuna, vegna of líflegs hljómburðar safn- hússins. Saxofónkvartett Atla Heimis Sveinssonar, sem hér var fram- fluttur, er að sögn höfundar undir- búningur undir Konsert hans fyrir 4 saxofóna og hljómsveit. í kvart- ettinum segist hann hafa verið að skrifa sig frá, og nota, allt það sem hann vildi ekki nota í konsertinum, og mátti til sanns vegar færa, að hér fékk tilraunagammurinn að geysa óheft, þ.m.t. beiting hljóm- blásturs (multiphonics), sem kom þó einnig við sögu í flestum hinna verkanna, enda ekkert þeirra eldra en frá 1986. Verkið einkenndist framan af nokkuð af ágengum, þagnarrofnum bunum, en var þó í heild fremur rapsódískt í anda, og á stöku stað allt að því viðkvæmt. Eftir elzta tónskáld kvöldsins, Hans Kox (f. 1930) var tríóið The Three Chairs, samið 1989 og í fjór- um þáttum (Sónata, Scherzo, Song og Rondo), hlutfallega ómþýtt (maður var farinn að venjast ýmsu), en samt ekki ýkja eftir- minnilegt. Elztu verkin, bæði frá 1986, komu síðast og stóðu tiltölulega sterkust eftir í endurminningunni. Fyrst var New York Counterpoint eftir bandaríska minimalistann Steve Reich, og reyndist það furðu áheyrilegt í hefðbundnum skiln- ingi, jafnvel fyndið. Sá er þetta ritar er að vísu sízt hallur undir minimalisma, en hjakk-stíll Reichs virðist orðinn ívið liprari og fjöl- breyttari en í árdaga, og verk hans hér líktist a.m.k. ekki neinu hinna. Innblásnasta verk kvöldsins og mest sannfærandi var hins vegar lokaverkið, Music for Saxophones eftir Tristan Keuris, og minnti á eldheitar en þó stofuhæfar sam- ræður milli jafningja. Auðskilið vár, að hér fór eitt mest flutta verk af löngum verka.lista Rascherö- kvartettsins, enda bar túlkun hans á því af öðru sem platína af gulli. Ríkarður Ö. Pálsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.