Morgunblaðið - 23.02.1995, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 23. FEBRÚAR 1995 25
AÐSENDAR GREINAR
Kunststoffe
• Plastiques
Stangir og plotur.
Suðuþráður o.fl.
Vandað efni.
Gott verð.
Leitið upplýsinga.
UMBOÐS- OG HEILDVERSLUNIN
SMIÐJUVEGUR 70, KÓP.
SlMI 564 4711 • FAX 564 4725
Alþingi og Stasí
ATHYGLI alþjóðar var vakin er
það sannaðist bæði í fjölmiðlum og
við umræður á Alþingi, að ein ill-
ræmdasta leyniþjónusta fyrr og síð-
ar, STASÍ, hafi fengið íslenska
námsmenn í Austur-Þýskalandi til
starfa fyrir sig.
Austur-þýskir kommúnistar
beittu STASÍ, sem var arftak Ge-
stapos og SS-sveita Hitlers, fyrir
sig til þess að halda völdum og að
skipuleggja margvísleg ódæðisverk
víðs vegar um heim.
Þetta kom í ljós við athuganir
tveggja fréttamanna á skjölum
STASÍ í Berlín.
Það vakti sérstaka furðu, þegar
nafn eins alþingismanns kom upp
á yfirborðið í þessum rannsóknum,
er það sýndi sig að í mörg hundruð
metra hilluröðum fullum af möpp-
um yfir njósnamál var ein mappa,
sem öll skjöl höfðu verið fjarlægð
úr. Það sérstaka við þessa möppu
er að hún var merkt alþingismann-
inum Svavari Gestssyni,_ þáverandi
menntamálaráðherra. Á miða í
möppunni hafði verið skráð: „Akten
gelöscht, 25.juni 1989“, sem merk-
ir: „Skjölin eyðilögð, 25.júníl989.“
Dagsetningin 25. juní 1989 vakti
sérstaka athygli, því þá voru komm-
únistar enn við völd í Austur-Þýska-
landi og auðvitað áttu þá ekki aðr-
ir aðgang að slíkum skjölum en
æðstu menn í kerfinu, ráðherrar
og aðrir slíkir. Þá er hitt ekki síður
athyglisvert að menntamálaráð-
herrann þáverandi var erlendis
þann dag.
í viðtali við þingmanninn í DV
11. febrúar sl. staðfestir hann, að
hann var erlendis daginn sem skjöl-
in voru eyðilögð. í framhaldi af því
segir hann: „Það er verið að dylgja
um að ég hafi kannski verið í Grikk-
landi en svo hafi ég kannski farið
til Berlínar og eyðilagt þessi gögn.
Þetta eru landráðabrigsl. “
Aðalatriðið er að Svavar var er-
lendis daginn, sem skjölin voru eyði-
lögð. Hvort hann var í Grikklandi
eða Austur-Berlín skiptir í sjálfu
sér engu máli, því engum dettur í
hug að þingmaðurinn hafí sjálfur
eyðilagt skjölin. Aftur á móti er
símasamband um alla
Evrópu og svo er vitað
að samábyTgð og sam-
staða er rík á milli ráð-
herra af sömu flokk-
um.
Það sem allt veltur
á er að fá upplýst hver
hafi fyrirskipað eyði-
leggingu skjalanna og
hvers vegna. Úr því að
þau hafa verið eyðilögð
er vart von til þess að
þau finnist, þótt þing-
maðurinn í sýndar-
mennsku sinni hafí
sagt að hann voni til
Guðs að þau fínnist.
Gunnlaugur
Þórðarson
Þingmaður þessi
hefur verið þingmanna
duglegastur við að
heimta að Alþingi kjósf
rannsóknarnefnd til
þess að athuga hin
ýmsu mál, jafnt stofn-
anir sem einstaklinga.
Mig hefur lengi
furðað á því að ekki
skuli hafa komið fram
á Alþingi krafa um að
þetta mál, sem um-
ræddur þingmaður
hefur jafnað til landr-
áða skuli rannsakað af
sérstakri þingnefnd.
Láti Alþingi þetta mál
Rannsóknarnefndir
hafa verið kjörnar
af minna tilefni,
segir Gunnlaugur
Þórðarson, en
STASÍ-tengslum.
afskiptalaust þykir mér það bregð-
ast skyldum sínum við fólkið I land-
Höfundur er
hæstaréttarlögmaður.
Fylgstu mefo í
Kaupmannahöfn
Morgunblabib
fæst á Kastrupflugvelli
og Rábhústorginu
Dlur^tutihlnMh
-kjarni málsins!
Scandic parket er vönduð gæðaframleiðsla.
A
Scandic parket er rakaþolið og umhverfisvænt.
A
Scandic parketið er auðveldara
að leggja en annað parket.
A
Scandic parket hefur meira höggþol en sambærilegt parket.
A
Scandic parket er slitsterkt og þolir mikinn umgang.
A
Scandic parket má shpa oftar en einu sinni.
A
Scandic parket fæst sérpantað í mörgum litum.
HUSASMIÐJAN
Súðarvogi 3-5, Reykjavík
Skútuvogi16, Reykjavík
Helluhrauni 16, Hafriarfirði
og helstu byggingavöruverslanir
á landsbyggðinni