Morgunblaðið - 23.02.1995, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 23. FEBRÚAR 1995 35
morgun sem hann kvaddi. Eitt lit-
ríkasta blómið úr systkinahópnum
er fallið og við stöndum skilnings-
vana eftir en svo rík af minningum
um góðan dreng sem við vitum að
guðirnir hafa elskað, eins og við
sem elskuðum hann öll.
Þegar tengdafaðir minn lést fyrir
þremur árum eftir snögga og erfiða
sjúkdómslegu orti Eddi bróðir:
Örlög flýja enginn má
ekkert ráð fékk dugað.
Það er hart að horf upp á
heljarmenni bugað.
Þessi orð eiga við í dag um til-
fínningar okkar sem kveðjum.
Systkinin öll kveðja sinn góða vin
og bróður í djúpri þökk fyrir allt
sem var. Ég bið guð að styrkja þau
öll og sérstaklega elskulega tengda-
móður mína, Sigrúnu, Jóhannes og
litlu Sigrúnu. Börnin okkar Sverris
senda samúðarkveðjur úr fjarlægð
vegna fraénda síns. Blessuð sé
minning hans.
Rannveig Guðmundsdóttir.
Hverfulleiki lífsins er ofarlega í
huga, þegar Erlingur Jónsson er
kvaddur hinstu kveðju svo langt um
aldur fram. Um hríð verður hlé á
samræðum okkar um hesta-
mennsku, hrossarækt, kveðskap og
þjóðlegan fróðleik, en á þeim svið-
um var hann óþijótandi fróðleiks-
brunnur.
Með Erlingi er genginn óvenju
heilsteyptur drengskaparmaður:
Sannorður og orðheldinn vinur vina
sinna. Maður sem vildi hvers manns
vanda leysa. Hans hlýtur að bíða
góð heimkoma, nú þegar hann hef-
ur lagt í sína hinstu för.
Aðstandendum votta ég dýpstu
samúð.
Anders Hansen.
Á þessum krossgötum lífsins
langar mig að senda Erlingi vini
mínum hinstu kveðju. Ég er ekki
búinn að þekkja hann lengi, þótt
ég hafi þekkt til fólksins hans síðan
foreldrar mínir settust að á ísafirði.
Ætli ég hafi ekki verið tíu ára þá
og Erlingur ófæddur, en eldri
systkini hans nokkur komin á stjá
og við bjuggum ekki langt frá þeim
og reyndar var faðir hans kennari
minn. Ættarstofninn er traustur,
að hluta úr Önundarfírði, veit ég,
og menn hafa ekki þurft að skamm-
ast sín fyrir þann uppruna. Þessi
stóra ætt á víða rætur og sterkar
þær sem ég þekki til. Af góðum
stofnum vaxa góðir einstaklingar
og skiptir þá engu hvort þar er á
ferð maður eða vinur hans, hestur-
inn.
Það er raunar ekki nema ár síð-
an að við Erlingur kynntumst og
| þó tel ég mér óhætt að segja, að
' við höfum verið vinir og vel vitað
hvor af öðrum. Þegar mér varð
hugsað um heill og frama heiðins
siðar og félagsins okkar kom jafn-
skjótt í hugann maðurinn Erlingur
og vera hans öll. Að öðrum ólöstuð-
um varð hann mér tákn þess besta,
einmitt þeirrar manngjörvi, sem ég
Ihygg að við heiðnir menn viljum
hafa í heiðri og gera okkur fyrir-
1 mynd af. Þeir sem þekktu hann
| taka undir það, að hann væri
drengur góður og meira verður
manni naumast hrósað. Það þýðir
m.a. að vera heill í orðum og gerð-
um og það var Erlingur.
Hann gekk til liðs við okkur
þegar mikið lá við og það ríkti al-
menn eining um hann og störf
hans á þeim vettvangi. Ég var stolt-
á ur af því að hann skyldi gjarnan
bera undir mig það sem honum
' þótti þar máli skipta. Það þýddi
| auðvitað ekki að honum þætti
prentað með Hólaprenti allt það
sem ég sagði, né heldur þurfti ég
að vera honum sammála í öllu. En
okkur varð ekki sundurorða og þó
!
ERFIDRYKKJUR
P E R L A N sími 620200
gat hér verið um viðkvæm mál að
ræða. Ég veit að önnur störf Erl-
ings voru jafnfarsæl, þannig var
öll hans framganga. Hann var mjög
vel látinn, enda fær maður hvar
sem hann gekk fram til starfa eða
leiks.
Þegar ég kynntist honum gekk
hann ekki lengur heill til skógar
og brátt kom í ljós, að hann átti í
stríði við einn þessara illvígu vá-
gesta sem heija á okkur mennina
og hvorki menn né goð virðast ráða
við. Baráttan varð stutt en hörð
og lauk með falli Erlings löngu
fyrir aldur fram, en fullum sigri
hans þó, að skilningi og lífsskoðun
forfeðra okkar. Því hver maður
hlýtur að deyja, manndóm sinn
sýnir hann í því hvernig hann
bregst við erfiðleikum og dauða
sínum. Þar vann Erlingur sigur sem
ekki getur orðið stærri og er okkur
hinum fyrirmynd, einnig þar. Ég
hitti hann nokkrum sinum meðan
síðasta lotan og harðasta stóð yfir
og þó sjaldnar en ég hefði viljað.
Við sem hittum hann öðru hvoru
og sáum hversu af honum dró stöð-
ugt, við undruðumst andlegt þrek
hans og æðruleysi. Aðeins óvenju
sterkur maður og heilsteyptur sýn-
ir slíkan hetjuskap. Og varla er
hlutur ástvina miklu léttari.
Erlingur sagðist vera gæfumað-
ur, þrátt fyrir allt. Það hygg ég
að sé rétt. Betri konu og fjölskyldu
sýnist mér að erfítt sé að eignast
og er slík gæfa þó að einhveiju
leyti verk mannsins sjálfs. Æfí
Erlings varð allt of skömm. Gamla
orðtækið segir: Þeir sem guðimir
elska deyja ungir. Ekki veit ég
MIIMNINGAR
sönnur á því, en guðirnir harma
það þó örugglega ekki að fá þenn-
an mann til sín, hveijir svo sem
þeir kunna að vera. Hann var þó
búinn að lifa ríkara lífí og fyllra
en margir miklu eldri menn, e.t.v.
flestir.
Erlingur var mjög góður hagyrð-
ingur, en hann bar eindregið á
móti, þegar ég bar upp á hann
skáldskapargáfu. Þar hafði dreng-
ur áreiðanlega rangt fyrir sér. Eg
get barið saman vísu en lipurt verð-
ur það ekki. Erlingur myndi líklega
brosa að tilraunum mínum í þá
veru, græskulaust þó, svo það reyni
ég ekki hér. En ég vil draga saman
það sem mig langar að segja i litla
stemmningu, sem ég sendi honum
fyrir skömmu. Ég kalla það ekki
ljóð, það er frekar ákveðin tilfinn-
ing fyrir manninum í lífi sínu og
náttúru. Með því vil ég kveðja Erl-
ing og senda fólki hans öllu innileg-
ar samúðarkveðjur frá mér og mín-
um.
Náttóran og vættir allar bíða þess kyrrlátlega
Að lifandi andinn skilji við þreyttan líkamann
Sem leysist að nýju í moldina sem gaf efnin í hann
En andinn fari í ferðina löngu til þeirra Víðuvalla
Þar sem undangengnir Áar bjóða hann velkominn.
Svo fremi hann óttist ekki að deyja
Hafi lifað í sátt við menn og náttúru
Og umfram allt sjálfur við sjálfan sig
Hvorki svikið huldumey né meðbræður
Né Jarðarverur aðrar sem ævin líður með
Slíkur maður lifir fijáls og deyr fijáls.
Eyvindur P. Eiríksson.
• Fleiri minningargreinar um
ErlingA. Jónsson bíða birtingar
ogmunu birtast í blaðinu næstu
daga.
t
Útför elskulegrar frænku okkar,
GUÐMUNDU S. KRISTINSDÓTTUR,
Freyjugötu 34,
Reykjavík,
fer fram frá Hallgrímskirkju föstudaginn
24. febrúar kl. 13.30.
Blóm og kransar afþakkaðir.
Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent
á Hallgrímskirkju eða líknarstofnanir.
Guðmundur Guðmundsson (Erró),
Lárus Siggeirsson,
Kristinn Siggeirsson,
Gyða Siggeirsdóttir,
Gunnar Gunnlaugsson.
t
Föðurbróðir okkar,
SIGURJÓN GOTTSKÁLKSSON
frá Hraungerði
íVestmannaeyjum,
sfðast til heimilis
iHraunbúðum,
sem andaðist 13. febrúar sl., verður jarðsunginn frá Landakirkju
í Vestmannaeyjum laugardaginn 25. febrúar kl. 14.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
l
Ingunn Sigurðardóttir,
Sigurður G. Sigurðsson.
t
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
ÁGÚST FILIPPUSSON,
Hábæ 40,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Árbæjarkirkju
föstudaginn 24. febrúar 1995 kl. 13.30.
Börn, tengdabörn, barnabörn
og barnabarnabörn.
Lokað
Vegna jarðarfarar verður lokað föstudaginn
24. febrúar frá kl. 9.00-13.00.
Árvík hf.,
Ármúla 1.
t
Fósturfaðir minn,
ÁSGEIRÞ. NÚPAN
fyrrverandi útgerðarmaður
frá Höfn i Hornafirði,
sem andaðist í Vífilsstaðaspítala að
morgni 18. febrúar sl., verður jarð-
sunginn frá Hafnarkirkju laugardaginn
25. febrúar kl. 13.30.
Fyrir hönd aðstandenda,
Þórarinn
t
PÁLL JÓNASSON,
Stfghúsi,
Eyrarbakka,
sem lést 12. febrúar, verður jarðsunginn frá Eyrarbakkakirkju laug-
ardaginn 25. febrúar kl. 14.00.
Þeim, sem vilja minnast hans, er vinsamlega bent á Orgelsjóð
Eyrarbakkakirkju.
Aðstandendur.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
GÍSLI ÓLAFSON,
Fornuströnd 16,
Seltjarnarnesi,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni föstudaginn 24. febrúar
kl. 13.30.
Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Slysavarnafélagið.
Ingveldur Þ. Viggósdóttir,
Marfa Ólafson, Reynir Kjartansson,
Páll Ólafson, Guðrún Eggertsdóttir,
Einar Ólafson,
Jóhann Ólafson, Kolbrún Benediktsdóttir,
Ásgerður Halldórsdóttir, Kristján Guðlaugsson,
Erla Gfsladóttir, Gunnar Magnússon,
Gunnar Gfslason, Hildur Jóhannsdóttir
og barnabörn.
t
Við þökkum innilega öllum þeim, er auðsýndu okkur og fjölskyldum
okkar samúð og hlýhug vegna andláts afa okkar og fósturföður,
STEFÁNS GUNNBJÖRNS EGILSSONAR
tækjafræðings,
Nökkvavogi 41.
Arnþrúður Lilja Þorbjörnsdóttir, Sólveig Jakobsdóttir,
Sigrún Pétursdóttir, Oddur Jakobsson,
Auðbjörg Jakobsdóttir.
t
Hjartans þakkir til allra, er sýndu samúð
og vinarhug við fráfall ástkærs eigin-
manns míns, föðurokkar, sonar, bróður
og tengdasonar,
ÓLAFS S. SIGURGEIRSSONAR.
Hlýhugur ykkar allra gefur okkur styrk.
Auður T rygg vadóttir,
Arnar Olafsson, Harpa Rún Ólafsdóttir,
Hlynur Ólafsson, Helga Björk Ólafsdóttir,
Sigríður Guðmundsdóttir, Sigurgeir Jóhannsson,
Guðrún Eggertsdóttir, Tryggvi Kristjánsson
og aðrir aðstandendur.
Lokað
Lokað verður í dag, fimmtudag, vegna jarðarfarar
ERLINGS A. JÓNSSONAR, ritstjóra.
Eiðfaxi hf.,
Ármúli 38, Reykjavík.
Lokað
Skrifstofur okkar í Aðalstræti 6-8 verða lokað-
ar frá kl. 12 á hádegi föstudaginn 24. febrúar
vegna jarðarfarar
GÍSLA ÓLAFSONAR, stjórnarformanns.
Tryggingamiðstöðin hf.