Morgunblaðið - 23.02.1995, Page 40

Morgunblaðið - 23.02.1995, Page 40
40 FIMMTUDAGUR 23. FEBRÚAR 1995 MORGUNBLAÐIÐ Dýraglens EFÞusrfGO/Z e/nu E/JN 'A HÆL- AhJA 'A /M5F, EFZTV, DAUÐANS Ma rUta f jHhte— Grettir Tommi og Jenni Smáfólk ts.lv.. y,s' Y I RE6RET THE WM 1 ACTEP THAT NI6HT AT THE OBEPIENCE 5CHOOL PROM. . 50RT 0F„ 7 RE6RET5.. Illf I WONPER f IF OTHER PEOPLEHAVE TU A5 MANY q\\ RE6RET5 AS —\ 1 HAVE.. , Eftirsjá... skyldi annað fólk sjá eftir eins mörgxi og ég sé eftir? Ég sé eftir því hvernig ég hag- aði mér þarna um kvöldið í hlýðniskólanum... BREF TIL BLAÐSINS Kringlan 1103 Reykjavik • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 Opið bréf til Davíðs Oddssonar, Sighvats Björg- vinssonar, Ogmundar Jónassonar og Benedikts Davíðssonar Frá Sigurrós M. Sigurjónsdóttur, Arnóri Péturssyni og Braga Haii- dórssyni: VAR ÞAÐ ætlan eða stefna ríkis- stjórnarinnar þegar lögin um fé- lagslega aðstoð voru sett að lækka laun lægst launuðu elli- og örorku- lífeyrisþega um allt að 10%? Þar sem verkalýðshreyfingin hef- ur með þögninni samþykkt fyrr- greind lög er henni þá kunnugt um þessa lækkun og skrifar hún þegj- andi upp á hana? Málavextir eru eftirfarandi: í 2. gr. reglugerðar nr. 392 frá 21. ágúst 1987 er kveðið á um sér- staka heimilisuppbót fyrir þá sem njóta heimilisuppbótar. í reglugerðinni segir: „Frá sama tíma skulu þeir einstaklingar sem njóta heimilisuppbótar og hafa bæt- ur frá Tryggingastofnun ríkisins og aðrar tekjur undir lágmarkslaun- um, fá greidda sérstaka heimilis- uppbót, þannig að bætur þeirra og aðrar tekjur nemi lágmarkslaunum kr. 28.300 á mánuði." (Leturbreyt- ing undirritaðra.) Framkvæmd Tryggingastofnun- ar ríkisins á reglugerðinni hefur til þessa verið á þann hátt að aðrar tekjur en frá lífeyristryggingum hafa skert sérstaka heimilisuppbót „krónu á móti krónu“, þó með þeirri undantekningu að hafi viðkomandi greiðslur úr lífeyrissjóði hefur frí- tekjumark lífeyrissjóðs gagnvart tekjutryggingu og heimilisuppbót fyrst verið dregið frá áður en til skerðingar hefur komið. Frítekju- mark þetta er nú kr. 98.376 á árs- grundvelli eða 8.198 kr. á mánuði. Frítekjumark í lífeyrissjóði gagn- vart tekjutryggingu hefur þannig verið látið gilda gagnvart sérstakri heimilisuppbót. Sem hefur haft þau áhrif að einstaklingur sem hefur fengið allt að 8.198 kr. á mánuði frá lífeyrissjóði en engar aðrar tekj- ur nema bætur almannatrygginga hefur fengið sérstaka heimilisupp- bót sem í dag er. 5.304 kr. í 9. gr. laga um félagslega að- stoð sem sett voru um áramótin 1993 og 1994 segir í niðurlagi: „Ef einhleypingur hefur eingöngu tekj- ur úr lífeyristryggingum almanna- trygginga skai hann að viðbættri heimilisuppbót eiga rétt á sérstakri heimilisuppbót, 5.304 kr. á mán- uði.“ (Leturbreyting undirritaðra.) í frumvarpi laga til laga um fé- lagslega aðstoð, þingskjal 837, mál nr. 488, segir í athugasemdum: Um 8.-10. gr. „Samhljóða 20. gr. (var 19. gr. áður en ákvæði um umönn- unarbætur var bætt inn í lögin) laga um almannatryggingar." í umsögn um frumvarpið frá fjármálaráðu- neyti og fjárlagaskrifstofu segir: „Frumvarpið er fylgifrumvarp með frumvarpi til laga um almanna- tryggingar. Það er að mestu sam- hljóða samsvarandi greinum í gild- andi almannatryggingalögum, sem ætlunin er að gera að heimildar- ákvæðum. Aðgreining félagslegra bóta er talin nauðsynleg vegna samnings um EES og veldur því að bætur verða ekki greiddar þegar lögheimili er flutt til annars ríkis.“ Samkvæmt lögunum um félags- lega aðstoð hefur Tryggingastofn- un frá setningu þeirra ekki afgreitt sérstaka heimilisuppbót til þeirra elli- og örorkulífeyrisþega sem hafa verið með greiðslur úr lífeyrissjóði sem nema 5.304 kr. á mánuði, en sé upphæðin lægri fær viðkomandi greiddan mismun í sérstakri heimil- isuppbót. Fram að setningu laganna um félagslega aðstoð var nokkur fjöldi elli- og örorkulífeyrisþega sem hafði verið afgreiddur með sérstaka heimilisuppbót þar sem reiknað var út frá lífeyrissjóðs frítekjumarkinu. Nú mun Tryggingastofnun vera að fella niður eða skerða greiðslur þessara einstaklinga samkvæmt „krónu á móti krónu reglunni". Munu þeir því verða fyrir umtals- verðri tekjuskerðingu í næsta mán- uði! Af frumvarpi til laga um félags- lega aðstoð verður ekki skilið annað en að það hafi verið flutt í þeim tilgangi að koma í veg fyrir að rétt- ur til bóta héldi áfram eftir flutning lögheimilis til annars ríkis. Af því verður engan veginn ráðið að fella eigi niður eða lækka greiðslu til þeirra einstaklinga sem enn búa í landinu. Það hlyti að hafa komið fram í umsögnum og skýringum ef ætlan löggjafans hefði verið að lækka greiðslur bóta til einhleypinga sem búa einir og hafa óverulegar tekjur aðrar en frá Tryggingastofnun rík- isins um allt að 10-12%. Þær greiðslur sem tekjulitlir eða tekjulausir einhleypir elli- og ör- orkulífeyrisþega sem búa einir hafa átt rétt á eru grunnlífeyrir, tekju- trygging, heimilisuppbót og sérstök heimilisuppbót. Án skerðingar á sérstakri heimilisuppbót eru þessar greiðslur samtals 48.664 kr. sem láta má nærri að séu lágmarkslaun eins og kveðið er á um í reglugerð kr. 392 frá 21. ágúst 1987. Tryggingamálanefnd Sjálfs- bjargar, landssamband fatlaðra, vill í lengstu lög trúa og vona að hér hafi eingöngu verið um mistök að ræða við setningu laganna um fé- lagslega aðstoð og óskar því eftir svörum við ofangreindum spurning- um. Jafnframt að ef um mistök við lagasetninguna var að ræða verði þau leiðrétt hið fyrsta. SIGURRÓS M. SIGURJÓNSDÓTTIR, ARNÓR PÉTURSSON, BRAGIHALLDÓRSSON. Ailt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í Gagnasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fyigir fyrirvari þar að lútandi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.