Morgunblaðið - 05.03.1995, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 5. MARZ 1995 B 5
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
ÓGIRTUR rífur Hemmi upp stemmninguna stuttu fyrir útsendingu og á nokkrum mínútum eru lokaðir
íslendingar komnir í banastuð.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
LOKS tókst stjórnandanum Agli Eðvarðssyni og sviðsstjórunum
að koma manninum á réttan stað, fyrir framan myndavélina.
Ein gagnrýnin gekk út á það að
ég hefði fundið formúlu að þættin-
um. Nú fylgdist ég til dæmis í mán-
uð með vinsælustu þáttunum í
Bandaríkjunum og kynntist þar
frægum stjómanda að nafni Jack
Riley. Hann sá brot úr þáttum mín-
um og bauð mér vinnu, sem ég tók
nú ekki alvarlega. En hann sagði
jafnframt að það væri dauðaleit allra
dagskrárgerðarmanna að finna
formúlu að þætti, alveg eins og það
er dauðaleit ritstjóra að finna fram-
setningu á blaði. Hann sagði að það
hvarflaði ekki að þeim að breyta
vinsælum þáttum."
- Hvers vegna heldur þú að þætt-
ir þínir hafi náð þessum vinsældum?
„Fyrst og fremst held ég að öll
íslensk dagskrárgerð sé vel þegin.
Ég hef líka verið ljónheppinn með
samstarfsfólk. Það eru um fjörutíu
manns sem vinna að þættinum og
við stöndum saman eins og fjöl-
skylda. Þetta er frábært fólk og að
öðrum ólöstuðum má segja að það
hafi mætt mest á stjórnandanum
Agli Eðvarðssyni, sem er mikill lista-
maður og ákaflega fær. Hann er líka
einn allra besti vinur minn og hefur
gefið mér mikið. Oft höfum við gert
hluti sem hafa tæknilega verið á
mörkum hins mögulega. Það mæðir
líka mikið á sviðsstjórunum þeim
Helgu Pálmadóttur, Elsu Stefáns-
dóttur og Guðmundi Guðjónssyni
sem hætti raunar í fyrra.
Annars hef ég enga skýringu á
því hvers vegna þessir þættir hafa
verið svona lengi. Aðrir þættir hafa
verið skammlífir. En ég vil endilega
hafa samkeppni, það er bara keppn-
ismaðurinn í mér síðan ég var hjól-
beinóttur, fimm ára á Bárugötunni."
í landi kjaftasögunnar
Þrátt fyrir ódrepandi keppnisskap
segir Hemmi að það hafi stundum
hvarflað að sér að draga sig í hlé.
„Ég hef verið áberandi í þessu litla
samfélagi síðan ég var 15 ára, í
íþróttum framanaf og síðan í öðrum
störfum og það hefur tekið sinn toll.
Þegar ég legg mig svona á borðið
fyrir almenning er mér lífsins
ómögulegt að koma í veg fyrir einka-
skoðanir fólks á mér. Það hefur til
dæmis haft áhrif á ellefu ára dóttur
mína, sem geldur þess að pabbi
hennar er þekkt persóna og það tor-
veldar stundum samband okkar.
Litlu englunum mínum, börnin sem
ég hef haft samskipti við í þáttun-
um, finnst ég vera nokkurs konar
jólasveinn sem þau eigi að hafa að-
gang að. Dóttir mín skilur það ekki
því að hún er bara með sínum pabba.
Þetta vekur oft löngun hjá mér til
vera bara Jón Jónsson.
Fyrir tæpu ári gerðist það að ég
fékk mér í glas um páskana án þess
að fara út úr húsi, en þá urðu til
ótrúlegar kjaftasögur. Þó svo að ég
sé kominn með talsverðan skráp líða
börnin fyrir þetta. Ég þurfti að svara
fyrir það opinberlega að hafa fengið
mér í glas og ég hugsa að það séu
ekki margir sem hafa þurft að
standa í slíku, þótt þeir drekki og
skemmti sér tvisvar í viku, eða 104
daga á ári. Og það var ekki eins og
ég hefði gengið berserksgang um
bæinn! Ég hef nú ekki verið þessi
ofstopamaður í gegnum tíðina.
Við lifum nú stundum í landi
kjaftasögunnar og það stjórnaði lífi
mínu þar til fyrir tólf árum. Hemmi
hafði skapað sér þetta með íþrótta-
sprikli eða fjölmiðlastandi og afleið-
ingunum kastaði hann síðan í fangið
á Hermanni sem sat með þær feim-
inn og ósjálfbjarga. Jákvætt og neik-
vætt umtal ýmist lyfti manni upp _
eða setti mann niður í kjallara, og
þarna sat Hermann með allt þetta
blaður úr fólki sem hann þekkti ekki
neitt og lét það hafa áhrif á heilsu
sína.
Ég gerði mér ekki grein fyrir því
hver ég var og hveijar langanir mín-
ar voru. Það var ekki fyrr en 1983
sem ég tók mig í gegn og sagði hing-
að og ekki lengra. Frá þeim tíma
hefur mér liðið vel og það þarf tals-
vert til að setja mig út af laginu
núna.“
- Áttu marga vini?
„Nei, ég mundi telja að ég ætti
þrjá til fjóra vini og er mjög ríkur
að eiga þá. Ég hafði alltaf álitið
mig félagsveru, en þegar ég fór að
skoða málið átti ég þúsund kunn-
ingja en fáa vini. Það var mjög sárt
að finna það. En ég held ég eigi
engan óvin. Þegar ég hafði rankað
við mér áttaði ég mig á því að ég
gat farið að velja mér vini. Ég mundi
vaða eld og reyk fyrir þá vini sem
ég á núna og þeir sennilega fyrir
mig.“
Eins og landsleikur
„Lífíð hefur verið keppni hjá mér
og ég bý mér hana til ef hún er
ekki fyrir hendi. Ég setti það skil-
yrði í upphafi að þátturinn yrði í
beinni útsendingu, því að ég vildi
heldur gera mistökin, hafa þessa
spennu eins og um landsleik væri
að ræða og lenda í öllum þeim vand-
ræðum sem við höfum lent í með
snúrur og spotta, heldur en að gera
einhvern samansoðinn þátt með
gerviklappi. Þá sögðu allir að ég
væri brjálaður að reyna þetta, það
væri betra að gera þátt sem hægt
væri að klippa til og gera fullkominn
áður en hann færi í loftið.
En ég hef enga þörf fyrir að vera
fullkominn. Það eru alltof margir
sem rembast við að hafa málfar og
framkomu fullkomna. Það er full-
skipað í þá deild. Ég vil frekar reyna
að vera sem líkastur sjálfum mér
því þá líður mér betur og veit að
ég fæ þá sömu svörun frá því fólki
sem ég umgengst. Framkoma mín
er vonandi ekkert öðruvísi við fanga
á Litla-Hrauni sem ég hef spilað
fótbolta við, en við forsetann, sem
ég met mikils."
- Þú segir ekki ósjaldan, verið
góð hvert við annað, og leggur
áherslu á að menn séu bjartsýnir og
í góðu skapi. Hvers vegna?
„Ég vil hafa þetta þannig. Ég
kynntist bjartsýni á Spáni þar sem
ég vann og í Asíu, þar sem maður
finnur hlýju fólksins. Veðráttan hef-
ur mikil áhrif á lundarfar okkar hér
á íslandi. Við erum með 11 vindstig
í bakið 11 mánuði ársins og erum
því fáskiptin. Því hef ég lagt mig
fram um að ná upp stemmningu í
salnum og það hefur tekist."
- Finnst þér ekkert þreytandi að
þurfa sífellt að hvetja aðra?
„Það sem er kannski mest þreyt-
andi við þáttinn hveiju sinni er að
þurfa að fara svona hálfgirtur með
buxurnar á hælunum til að rífa upp
stemmningu þegar maður ætti að
vera að einbeita sér að því að koma
sjálfum sér í stuð. En það er mitt
vinnulag, eða ólag að vera með allt
á síðustu stundu, ég verð að hafa
þessa spennu."
- Þú sest nú samt einn út í horn
síðustu mínútur fyrir upptöku, hvað
ertu þá að hugsa?
„Ég er nú aðallega að reyna að
vera jákvæður. Ég hef lært af ýms-
um góðum mönnum í þessum
skemmtanaiðnaði, eins og Ómari
Ragnarssyni, Ragnari Bjarnasyni og
Bessa Bjarnasyni, hvernig menn
eiga að setja sig í stöðu áður en
þeir fara inn á svið. Stundum er það
átak, einkum ef maður er með háan
hita eins og þrisvar hefur gerst.“
- Margir hafa setið í sófanum hjá
þér, finnurðu einhvern mun á því
að tala við fólk eftir því hvaða starfs-
stétt það tilheyrir?
„Já. Stjórnmálamenn og þekktara
fólk í þjóðfélaginu er oft viðkvæmt
fyrir ímynd sinni og ég get vel skil-
ið það. Yfirleitt finnst mér best að
eiga við þá sem óreyndastir eru og
þá sem eru heimsfrægir eins og til
dæmis David Attenborough, Christ-
opher Lee, Tammy Wynette, Dr.
Hook og fleiri sem hafa komið.í
þáttinn. Þetta fólk er gjörsamlega
laust við stjörnustæla og er meðfæri-
legasta fólk sem ég hef kynnst.
Ég héit að Tammy Wynette væri
prímadonna en þegar ég spurði hana
hvaða lag hún ætlaði að syngja fyr-
ir okkur sagðist hún ætla að syngja
besta lagið sitt. Og hvaða lag er það
spurði ég. „Stand by your Her-man“
sagði hún!
Ég átti langt samtal við David
Attenborough eftir þáttinn og hann
gaf mér góðar ábendingar um margt
sem ég hef fullan áhuga á að gera,
eins og til að mynda ferðaþætti. Og
svona smám saman hefur maður
verið að sanka að sér hugmyndum
um gerð sjónvarpsþátta."
Vatnsgreiddir
skákmeistarar
Hemmi, sem hefur lengi verið
fararstjóri á sumrin, hefur ekki ein-
ungis hugmyndir um hvernig gera
eigi góða ferðaþætti, heldur líka
skákþætti, sem hann hefur nú reynd-
ar stjórnað eins og flestir vita.
„Ég hef ótal hugmyndir um
hvernig eigi að koma skák og öðrum
íþróttum á framfæri og gera það
að áhugaverðu efni fyrir áhorfend-
ur. Við höfum verið með skákþætti
í sjónvarpinu undanfarin ár og feng-
um fyrir tveimur árum Judit Polgar
skákmeistara frá Ungveijalandi og
heimsmeistarann Karpov. Ég hélt til
dæmis lengi vel að Karpov væri
svona vatnsgreiddur, pirraður Rússi,
kerfiskarl, en hann er mjög jákvæð-
ur og opinn persónuleiki. Nú er ég
búinn að tryggja það að hinn heims-
meistarinn, Kasporov sjálfur, komi
hingað í mars og þessir garpar hafa
látið það berast út að sjónvarpið hér
hafi gert skákþætti sem eru með
þeim bestu í heimi.
Það er viðurkenning fyrir okkur
og af þessu fréttu þeir hjá BBC.
Auðvitað fannst þeim fáránlegt að
maður sem er með skemmtiþætti
skuli vera að sýsla í skák líka, en
þeir ætla að koma hingað og gera
þátt á íslandi. Þeir hafa boðið mér
að vera stjórnandi þess þáttar sem
mun fjalla um skáklíf og íslenska
menningu á léttum nótum. Þetta
verður þáttur í nýjum þáttaröðum
sem BBC framleiðir og ber heitið
„Correspondent". Þættirnir verða
unnir af helstu fréttariturum þeirra
um allan heim, fjalla um mannleg
málefni á jákvæðan hátt og verða
sendir út á besta tíma, eða klukkan
korter yfir sjö á Iaugardagskvöldum.
- Og nú er hundraðasti þátturinn
framundan, verður þú með einhvetja
afmælisdagskrá í tilefni þess?
„Það verður ekki ákveðið fyrr en
á síðustu stundu, en líklega verður
klippt það besta úr þessum hundrað
þáttum og sennilega verða einhveij-
ar af stjörnum okkar á staðnum.
En þetta hefur alltaf verið svona,
ég fæ hugmyndir á síðustu stundu
og kann ekki að vinna mér í haginn.
Það verður að vera þessi spenna,
mér finnst lífið þurfa að vera spenn-
andi.“
- Þeir sem hafa komið fram í
þættinum hafa þó sagt að þú sért
mjög vel undirbúinn og smámuna-
samur?
„Já, ætli ég sé ekki nokkuð skipu-
lagður í þessari óreiðu. Ég skrifa
hjá mér þau verkefni sem ég þarf
að sinna yfir daginn, en set alltaf
inn á hveijum degi eitthvað
skemmtilegt. Ég uppgötvaði að það
kemur enginn hingað og skemmtir
mér, ég verð að gera það sjálfur.
Því er engihn dagur öðrum fremri
hjá mér, það er jafn skemmtilegt
að vakna á mánudegi sem laugar-
degi.“
- Verða þættirnir „A tali hjá
Hemma Gunn“ áfram?
„Ég veit það ekki, ég er lausráð-
inn og hætti því alltaf á vorin, þótt
ég byrji kannski aftur að hausti,"
segir Hemmi. Eða Hermann. Ég vissi
aldrei við hvorn ég talaði.
Morgunverðarfundur
(fyrri af Iveim ''stjórnmáiafundum")
miðvilcudaginn 8.mars 1995
kl. 08.00 - 09.30, i Átthagasal Hótels Sögu
ÍSLENSKT ATVINNULÍF
OG PÓLITÍSKT UMHVERFI
- HVERT STEFNUM VIÐ
í SAMKEPPNI ÞJÓÐANNA?
STJÓRNMÁLAFORINGJAR Á PALLI
MEÐ TALSMÖNNUM ATVINNULÍFSINS
Forsendur og stefna fíokka og framboða
/ hnotskurn - 5 mínútna ávörp.
Ólafur Ragnar Grímsson, formaður Alþýðubandalagsins
Jón Baldvin Hannibalsson, formaður Alþýðuflokksins
Agúst Einarsson, varaformaður Þjóðvaka
Pallborð - spurningar, svör,
snörp skoðanaskipti
Talsmenn atvinnulífsins:
Friðþjófur Ó. Johnson, forstjóri Ó. Johnson & Kaaber hf.
Jenný Stefanía Jensdóttir, framkvæmdastjóri Plastos hf.
Páll Kr. Pálsson, framkvæmdastjóri Sólar hf.
Fyrirspurnir frá fundarmönnum
Fundarstjóri
Einar Sveinsson, formaður Verslunarráðs Islands
Fundargjald (morgunverður innifalinn) kr. 1.200.-
Fundurinn er opinn, en tilkynna verður þátttöku fyrirfram
í síma Verslunarráðsins, 588 6666 (kl. 08 - 16).
VERSLUNARRÁÐ ÍSLANDS