Morgunblaðið - 05.03.1995, Síða 22
22 B SUNNUDAGUR 5. MARZ1995
MORGUNBLAÐIÐ
SKOÐUN
ÓHÆFAR
KENN SLUBÆKUR
ÉG FJALLA.ÐI í janúarmánuði sl.
hér í Skoðun um skoðanamynd-
andi kennslu í mannkynssögu,
nánast innrætingu, í umflöllun um
„Heimsbyggðina I“. Hér verður
fram haldið sem frá var horfið í
skoðun á „Heimsbyggðin II —
Mannkynssögu eftir 1850“ eftir
Asle Sven og Sv. A. Aastad í þýð-
ingu Sigurðar Ragnarssonar.
HÖFUNDAR, sem eru norskir,
skrifa formála fyrir ritinu, sem
kemur út í Noregi og á íslandi á
sama ári. „Fyrri efnisskipan (útg.
1983, ísl. þýðing 1985) er haldið
í stórum dráttum, en tímabilinu
eftir 1945 er ætlað meira rými á
kostnað tímabilsins 1950-1945.
Þjóðernishyggju og þjóðemis-
stefnu eru gerð ítarlegri skil til
að auðvelda notendum bókarinanr
skilning á atburðunum í Austur-
Evrópu og upplausn Sovétríkjanna
og Júgóslavíu ... Höfundar hafa
orðið að velja efni sitt úr gífurleg-
um þekkingarforða og haga
áherslum eftir bestu vitund ...
Lögð hefur verið áhersla á að verk-
ið standist ströngustu fræðilegar
kröfur og því til tryggingar hefur
verið leitað til ýmissa sérfræð-
inga ...
Orsök af öðrum toga
í þessum brotum úr formála
má sjá tilgang höfunda með þess-
ari Heimsbyggð II. Þjóðemis-
hyggja er álitin vera kveikjan að
atburðum í Austur-Evrópu og upp-
lausn Sovétríkjanna. Aðalástæðan
var af öðmm toga, efnahagur ríkj-
anna var í rúst, kúgun og njósnir
einkenndu stjómarfarið og pynt-
ingar og morð vom hlutskipti
þeirra sem andæfðu ómennsku
stjómarfari. Höfundar segjast
skrifa eftir bestu vitund, en þar
kemur babb í bátinn. Það er ekki
gerlegt að skrifa samtímasögu
eftir þeim mælikvarða, heimildir
um atburði 1945 — dagsins í dag
— em meira og minna óbirtar,
könnum skjalasafna Sovétríkjanna
og leppríkja þeirra er takmörkuð
og margt á eftir að koma í ljós
bæði varðandi þau og einnig gildir
þetta um skjalasöfn á Vesturlönd-
um. Fjölmargir einstaklingar sem
mótuðu atburðarásina hafa ekki
sagt sitt síðasta orð og fjarlægð
frá nútímanum til sögulegs mats
er engin. Því geta höfundar ekki
staðhæft að þeir skrifi „eftir bestu
vitund". Þeir gera skrifað lauslegt
yfirlit um samtímavið-
burði, einhvers konar
,journalisma“, en ekki
meir. Auk þess em
skoðanir þeirra fjarri
allri sagnfræðilegri
gagnrýni og tilraun til
hlutleysis. Þeir era
haldnir um of af kenn-
ingakreddum
marxískrar söguskoð-
unar, eins og sjá má
á eftirfarandi umfjöll-
un um þessa bók
þeirra.
íslenskur sagn-
fræðingur hefur lýst
vel viðhorfum til þess
að skrifa samtíma-
sögu, sem er Jón Espólín f lok
Árbókanna.
„... at fyrir utan þat, er frá-
sagnir verðr því vandara at semja
hverjum furir sik, sem nær er því
er yfir stendr, ok færra gjörkunn-
ugt, þá verðr það allra vandast
þegar fjölbreytni eykst jafnan á
öllum hlutum, ok von er stórra
tíðinda ok tilburð meir en fyrri,
ok er þá eigi hægt at byija á miklu
efni ok margbrotnu fyrir þann,
sem aldrei verðr auðit at sjá þar
lyktir. (Jón Espólin: Islands
Árbækur í sögu-formi. XII. Deild.
Lyktir. Kaupmannahöfn 1955.)
Höfundar tala um umfangs-
mikla könnun og nefndir til sögu-
kennarar; þýðandinn nefnir í for-
mála fyrra bindis „ítarlega könn-
un“. Norskir formálahöfundar
nefna einnig sérfræðinga í þessu
sambandi. Þetta er allt góðra
gjalda vert, en hinn rauði þráður
beggja bindanna er hin gamal-
kunna söguspeki eða rytjuma af
marxískri söguskoðun.
Aðlagaðar „staðreyndir“
Annað bindi Heimsbyggðar
hefst í hagsögu í víðum skilningi,
stórfjölgun íbúa allra Evrópulanda
og búferlaflutningum vestur um
haf. Iðnvæðingin og auknar vís-
indarannsóknir em tíundaðar og
síðan kaflar um fjölskyldumun-
strið og loks hugmyndafræði og
aukin þjóðernishyggja. Kaflinn um
Evrópu 1850-1914 endar á París-
arkommúnunni. Fjallað er um
kenningar Marx og Engels. Ef
mynd ætti að fást af félagsfræði-
legum kenningum 19. og 20. aldar
þyrfti einnig að vinna úttekt á
kenningum Marx Webers, Comtes
og Durkheims, en svo
er ekki. Heimsvalda-
stefnan er næsti kafli.
Þar segir frá yfirgangi
Evrópuþjóða í öðrum
heimshlutum, einkum
Breta. Heimsstyrjöld-
inni fyrri eru gerð skil
og síðan rísa Sovétrík-
in og hin gamalkunna
saga þeirra rifjuð upp
að hefðbundnum
hætti,-sbr. fyrri út-
gáfu. Næstu kaflar
em aðeins rýrðir til
þess að hafa meira
rými fyrir samtíma-
sögu. Aðeins er dregið
úr einfeldningslegasta
áróðrinum. Bandaríkin verða stór-
veldi. Kapítalisminn í kreppu,
gömlu lummumar úr fyrri útgáfu.
Fasisminn og nasisminn. Á bls.
81 segir: „Þær Clara Zetkin og
Rósa Luxemburg tóku virkan þátt
í þessu starfí (baráttu friðar-
sinna), en þær stóðu framarlega
í Sósíaldemókrataflokknum
þýska.“ Á bls. 196 í fyrri gerð
Kennslubækur, sem
hallar eru undir einhliða
marxíska sögutúlkun,
hljóta vaxandi gagn-
rýni. Siglaugur
Brynleifsson telur
Heimsbyggðina I og II
þeirrar gerðar.
bókarinnar segir: „Vinstri armur
Sósíaldemókrataflokksins nefndist
„spartakistar“. Laut hann forystu
þeirra Rósu Luxemborg og Karls
Liebknechts ... Hópurinn stofnaði
Kommúnistaflokk Þýskalands
(KPD) um áramótin 1918-1919.“
Svona em staðreyndir aðlagað-
ar þörfum höfunda, sem skrifa
„eftir bestu vitund".
Rauðar og brúnar
útrýmingarbúðir
„Heimsstyrjöldin síðari.“ Þar er
svipuð frásögn færð nemendum
og í fyrri gerðinni. Minnst er á
útrýmingarbúðir nasista. Á bls.
272 í endurskoðuðu útgáfunni er
Siglaugur
Brynleifsson
skrifað í sambandi við nýnasista
nú á dögum: „Hópar þessir hentu
á lofti staðhæfíngar einstaka
sagnfræðinga um að frásagnir af
útrýmingarbúðum Hitlers séu ein-
ungis áróðurstilbúningur sigur-
vegaranna í stríðinu til að ófrægja
nasismann." Höfundar þessarar
bókar feta sömu slóð með því að
láta sem engar sovéskar útrýming-
arbúðir hafi verið til, þeir nota
orðið „fangabúðir" í staðinn. Svo
kemur að „kalda stríðinu", þar er
sökudólgurinn Bandaríkin og síð-
an kemur „risaveldið Bandaríkin
og þar fær Ronald Reagan heldur
kaldar kveðjur: „Ronald Reagan
og hrossalækning." Sagan er sögð
allt til núverandi forseta. Á bls.
239 segir: „Bandaríkjamenn hafa
verið einhverjir mestu mengunar-
valdar veraldar,“ og fleira í þeim
dúr. „Sovétríkin eftir 1945 — risa-
veldið sem hvarf.“ Höfundar segja
frá „þýðunni" á dögum
Khrutstjovs. Þar er getið bókar
Soltsjenitsyns, Dagur í lífí Invans
Denisovitsj, en riti hans um Gulag-
ið er sleppt. Sú bók opnaði viður-
styggð stjórnarfarsins í Sovétríkj-
unum, sem virðist að dómi höfunda
þessarar bókar ekki hafa verið svo
slæmt, því að á bls. 251 er sagt:
„Sovétríkin urðu eins konar vel-
ferðarríki ...“ Síðan er megin mál
samskonar lofgerð um hina allt
um lykjandi félagshyggju og er
að finna í fyrri gerð ritsins. Lýst
er ástæðum fyrir hruni leppríkj-
anna og að því er virðist telja
höfundarnir efnahagskreppuna á
Vesturlöndum vera helstu orsök-
ina fyrir hrani þeirra, bls. 278.
„Auk þess vora miklar tækni-
framfarir á Vesturlöndum“ en lep-
príkin drógust aftur úr þróuninni,
sama blaðsíða. Höfundar skrifa á
bls. 278 að Ceausescu hafi „kraf-
ist þess að vera tignaður sem guð“.
Nýjar upplýsingar, svo það var að
vonum að ýmsir dyggir flokks-
menn vildu breytingar, enda ráða
starfsmenn guðsins enn ríkjum í
Rúmeníu, þótt höfundar láti annað
í veðri vaka.
Hallir undir Sovétríkin
Samanburður risaveldanna
Bandríkjanna og Sovétríkjanna er
heldur hallur undir Sovétríkin.
Þessi veldi virðast hafa barist um
áhrif í heiminum og ef út í það
er farið, þá vom forsendur þeirra
þær sömu, græðgi í völd og áhrif,
að skoðun höfundar. Reynt er að
fletja út allan verulegan mismun
á viðhorfum þeirra til einstaklings-
ins. Hér em beinar falsanir við
hafðar. Bandaríkin voru og eru
réttarríki en Sovétríkin vom það
ekki. Höfundar skrifa að Gorbatsj-
ov hafi viljað „gera Sovétríkin að
réttarríki", bls. 254. Hinn hrái
vemleiki var allt annar, Sovétríkj-
unum var stjómað af flokki glæpa-
manna, eins og rússneskir sagn-
fræðingar orða það. Skil á réttu
og röngu vom horfin úr meðvitund
þorra þjóðanna sem þau byggðu.
Þegar veldi flokksleiðtoganna
hmndi stálu þeir t.d. gullbirgðum
bankakerfisins og gerðust glæpa-
menn í rústunum. Mafían er fyrr-
verandi starfskraftar gömlu rík-^
isglæpamannanna. Þessum glæp-
samlegu stjórnarháttum fylgdi fá-
tæk 85% þjóðanna og slík mengun
að stór landsvæði verða óbyggileg
í hundrað ár. Svik, lygi og falsan-
ir einkenndu stjórnarfarið og út-
sendarar þessa kerfis vom dreifðir
um allan heim og iðkuðu þar
mannrán, þjófnað, mútur og morð.
Hmn þessa ríkis kom öllum á
óvart, örfáir menn sáu hvert
stefndi, að gjörspilling stendur
aðeins takmarkaðan tíma og þann-
ig fór. Samanburður höfunda milli
Vesturlanda og Sovétríkjanna er
því villandi og marklaus.
Þræðir samtímasögu Rússlands
(til 1989-92) teygjast aftur til
þess tíma þegar „Sovétríkin risu“.
Þá var framtíð Rússlands mótuð.
Hvað gerist nú þegar tilraun er
gerð til þess að móta „borgaralegt
samfélag“ á rústum Sovétríkj-
anna? Grundvöllur borgaralegs
samfélags em lög og réttur og
kennd fyrir réttu og röngu, þ.e.a.s.
siðferðisvitund borgaranna. Hvort
Rússum tekst að grundvalla þær
forsendur veit enginn.
Óhæfar kennslubækur
Síðustu kaflar bókarinnar fjalla
um: „Frelsisheimt nýlenduþjóða.“
Þar í ríkjum er óvissa ríkjandi. í
Afríku náðu marxistar víða völd-
um, augljósasta dæmið um þá
stjórnarhætti var Etióphia; á
stjórn marxista þar er ekki minnst
í bókinni. Hér gengur aftur um-
fjöllunin úr fyrri gerð bókarinnar,
sama gildir um sögu ’68 kynslóð-
arinnar. „Alþjóðasamstarf“ er lo-
kakafli ritsins.
Rit þessi em frábmgðin fyrri
gerð hvað snertir myndaval. Ágætt
myndefni fylgir bæði í litum og
svart/hvítu og sumum vafasömum
inyndum til birtingar er sléppt.
T.d. myndin af líkum Rósenbergs-
hjónanna, á bls. 261 í fyrri gerð,
er hér ekki endurprentuð og fleiri
myndum í þeim dúr er sleppt. En
þótt nokkur siðbót hafi orðið í
myndavali er texti ritanna e.t.v.
enn vafasamari en í fyrri gerð.
Nú er reynt að beija í brestina og
gera hálfsannleika sennilegri og
breiða yfir fyrri staðhæfingar með
óljósu orðalagi. í stuttu máli reyna
höfundar að ljúga sig út úr lyginni.
Bækur þessar — Heimsbyggðin
I-II — eru óhæfar sem kennslu-
bækur. Falsanir em augljósar, en
ekki augljósar þeim sem fá þetta
í hendur sem fyrstu uppfræðslu í
sögu mannskynsins. Höfundarnir
ganga svo langt að jafnvel
kennslubækur í marxiskri sagn-
fræði í þýska alþýðulýðveldinu
vom vandaðri kennslubækur á
sinn hátt en þessi norsku ósköp.
Höfundur er rithöfundur
og kennari.
IRLAN
Nýr áfangastaður
Verð f rá kr. 28.698’
*Staðgreiðsluverð pr. mann tvbýli.
Páskaferö 13.-17. apr! (enginn vinnudagur)
Nú gefst íslendingu kostur á að kynnast ÍRUM
norðan landamæra í frábærri ferð.
Efnt verður til skoðunar- og skemmtiferða, auk þess
sem tími gefst til að skoða í verslanir sem
eru opnar á föstudaginn langa og laugardaginn.
Páskaferð
gott verð
innifalið: Flug, gisting,
morgunverður, akstur
til og frá hóteli erlendis,
allir flugvallarskattar.
FERÐASKRI FSTOFA
REYKJAVÍKUR
Abalstræti 16, sími 552-B200.