Morgunblaðið - 22.03.1995, Side 8

Morgunblaðið - 22.03.1995, Side 8
8 MIÐVIKUDAGUR 22. MARZ 1995 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Þú skalt aldeilis eiga mig á fæti ef þú hættir ekki að kássast upp á ESB ástina mína, hr. Tobin. Umboðsmaður Alþingis um kvörtun Hundaræktarfélagsins Borgin endurreikni hundaley fisgj ald UMBOÐSMAÐUR Alþingis beinir þeim tilmælum til borgarstjómar Reykjavíkur að fram fari traustur útreikningur á þeim kostnaðarliðum, sem heimilt er að leggja til grundvall- ar útreikningi á fjárhæð gjalds fyrir leyfi til hundahalds fyrir árið 1995. Reynist gjaldið hafa verið ákvarðað of hátt beri að lækka það. Þetta er niðurstaða umboðsmanns, sem fjallaði um kvörtun Hundarækt- arfélags íslands. Félagið taldi leyfis- gjald vegna hundahalds hærra en næmi þeim kostnaði, sem borgin hefði af hundahaldinu. Það, sem of- tekið væri með þessum hætti af hálfu Reykjavíkurborgar og látið renna í borgarsjóð, væri í raun skattheimta, sem ekki ætti stoð í viðhlítandi skatt- lagningarheimild. Umboðsmaður vitnar í niðurstöð- um sínum m.a. til bréfs lögfræði- og stjórnsýsludeildar Reykjavíkurborg- ar vegna málsins, um að borgarbók- hald hafi reiknað út, að á tíu ára tímabili hafi þjónustugjöld vegna hundahalds verið hærri en bókfærð útgjöld af hundaeftirlitinu, sern næmi rúmum 4,7 milljónum króna. I bréfi borgarlö'gmanns hafí því aftur á móti verið mótmælt, að þjónustu- gjöld hafi verið oftekin, heldur hafi kostnaður af rekstri hundaeftirlits ævinlega verið hærri en tekjur. Ekki traustur útreikningxir „Af framansögðu er Ijóst, að ekki liggur nægjanlega skýrt fyrir, hvaða kostnaðarliðir hafa verið lagðir til grundvallar við útreikning gjaldsins eða hversu háir þeir hafa verið. Þar sem ekki hefur farið fram traustur útreikningur á þeim kostnaðarliðum, sem heimilt er að leggja til grundvall- ar útreikningi á ijárhæð þessa gjalds, verður ekki fullyrt, hvort það hafi verið ákvarðað of hátt, og ef svo var, hversu mikið oftekið hafi verið,“ segir umboðsmaður, sem bendir einnig á að kostnaður vegna inn- heimtu á leyfisgjaldi í vanskilum verði ekki tekinn af leyfishöfum í hinu almenna leyfisgjaldi, nema til þess komi sérstök lagaheimild. Umboðsmaður mælist til að borg- arstjórn láti fara fram traustan út- reikning á kostnaðarliðum og þegar sá útreikningur liggi fyrir verði kostn- aðarliðir athugaðir af umhverfisráðu- neytinu í samræmi við ákvæði laga. Safnað til rannsókna ágigt RAUÐ fjöður Lionshreyfingarinn- ar verður seld dagana 31. mars til 2. apríl næstkomandi. Forseti Islands, frú Vigdís Finnbogadótt- ir, er verndari söfnunarinnar. Forsetinn heimsótti Gigtarfélag íslands í tilefni af undirritun samnings félagsins og Lionshreyf- ingarinnar um söfnunina. Því sem safnast verður varið til að koma^á fót Gigtarrannsókna- stofnun íslands, sem vísindaráð Gigtarfélags íslands hefur undir- búið undanfarin ár. Hlutverk rannsóknastofnunarinnar verður að nýta sem best sérstöðu íslands til rannsókna á gigtarsjúkdómum, að því er segir í fréttatilkynningu. Rannsóknir íslenskra gigtarsér- Morgunblaðið/Kristinn ALBERT Kemp, fjölumdæmisstjóri Lionshreyfingarinnar á fs- landi, nældi rauðri fjöður í barm forseta íslands, frú Vigdísar Finnbogadóttur. Á milli þeirra sést Kristjan Steinsson formaður vísindaráðs Gigtarfélags íslands. fræðinga munu hafa vakið athygli erlendis og verður rannsókna- stofnuninni ætlað að taka frum- kvæði í fjölþjóðlegum rannsókn- um á gigtarsjúkdómum. Hver rauð fjöður verður seld á 300 krónur og hafa Lionsmenn sett sér það markmið að safna 25 til 30 milljónum króna í þessari sjöttu landssöfnun sinni. Formaður Lögmannafélags Islands Konum fjölgar í lögmannastétt KONUR veita nú forystu helstu fé- lögum lögmanna og lögfræðinga hér á landi. Nýlega var við- mælandi blaðsins, Þór- unn Guðmundsdóttir hrl., kjörin fyrst kvenna for- maður Lögmannafélags íslands. Hún hefur áður setið í stjórn félagsins og einnig í stjórn Lögfræð- ingafélags íslands þar sem Dögg Pálsdóttir skrifstofustjóri gegnir nú formennsku, einnig fyrst kvenna. - Hver er munurinn á Lögfræðingafélaginu og Lögmannafélaginu? Lögfræðingafélag Is- lands eru ftjáls félaga- samtök lögfræðinga og félagsmenn um 800. Þar eru lögfræðingar sem gegna ýmsum störfum, bæði embættis- menn, lögfræðingar fyrirtækja og stofnana, málflutningsmenn og dómarar. Félagið sinnir fýrst og fremst fræðslustarfi fyrir lög- fræðinga. Þeir sem hafa málflutnings- réttindi, bæði fyrir héraðsdómi og hæstarétti eru hins vegar skyldaðir með lögum um mál- flytjendur til aðildar að Lög- mannafélagi íslands. Félags- menn eru nú 426, 280 héraðs- dómslögmenn og 146 hæstarétt- arlögmenn. Karlar eru í miklum meirihluta. í félaginu eru 49 konur og þar af fjórar hæstarétt- arlögmenn. - Hvers vegna er hlutfall hæstaréttarlögmanna í hópi kvenna mun lægra en karla? Það verður að skoða aldurs- dreifinguna í þessu sambandi. Ég tel að það sé líkt farið með stétt málflutningsmanna og aðr- ar stéttir sem til skamms tíma voru hefðbundnar karlastéttir, til dæmis læknastéttina. í eldri ald- urshópum eru fáar konur. Maður verður að hafa náð þrítugsaldri til að fá að flytja prófmál fyrir hæstarétti. Svo getur heppni ráð- ið því hvort maður fær prófmál. Hæstiréttur verður að sam- þykkja það þannig að þetta getur verið spurning um að hitta á mál sem Hæstiréttur samþykkir. -Fjölgar konum ört í stétt máiflutningsmanna? Mér finnst þeim hafa fjölgað mikið frá því ég bytjaði fyrir tólf árum. Þá starfa margar kon- ur nú sem lögmannsfulltrúar og því væntanlega á leið- ---------- inni Í stéttina. Stjórnin hefur - Hvert er hlutverk agavald yfir stjórnar Lögmannafé- félögum Þórunn Gudmundsdóttir hrl. ►Þórunn Guðmundsdóttir hrl. var nýlega kjörin formað- ur Lögmannafélags íslands og er fyrsta konan til að gegna því embætti. Hún lauk stúd- entsprófi frá MH 1976 og prófi í lögfræði frá Háskóla íslands 1982. Hún stundaði framhalds- nám við lagadeild Cornell há- skóla í íþöku og lauk þaðan LL.M. gráðu 1983. Þórunn öðlaðist málflutningsréttindi fyrir héraðsdómi 1984 og hæstarétti 1988. Hún starfaði sem fulltrúi sýslumannsins í Dalasýslu og hefur starfað sem lögmaður í Reykjavík frá 1983. Þórunn var skipuð próf- dómari við lagadeiid HÍ 1992. Hún var í stjórn Lögfræðinga- félags íslands 1987-89, í sljórn Lögmannafélags íslands 1988-91 og kjörin formaður 1995. Hún hefur verið í stjóm norrænu lögfræðingaþing- anna frá 1990. lagsins? _________ Samkvæmt mál- flutningalögum ber stjórninni að hafa eftirlit með félagsmönnum; að þeir hagi sér í samræmi við siðareglur og samþykktur Lög- mannafélagsins og í samræmi við lögin um málflytjendur. Stjórnin hefur líka agavald yfir féíagsmönnum og getur veitt áminningar. Þá úrskurðar stjórn- in um þóknun fyrir lögmanns- störf. Skjólstæðingar lögmanna geta leitað til stjórnar félagsins ef þeir telja að þeir fái ekki nógu góða þjónustu hjá sínum lög- manni, hann áskilji sér of háa þóknun, svari ekki bréfum og svo framvegis. Stjórnin sinnir einnig fræðslumálum og ýmsum öðrum hagsmunamálum lögmanna. Eins hefur Alþingi iðulega leitað umsagnar félagsins um laga- frumvörp. - Hvað um fjárhagslega ábyrgð á félagsmönnum? Félagið er fjármagnað með félagsgjöldum og svokölluðu málagjaldi, í hvert skipti sem lögmaður þingfestir mál greiðir hann 300 krónur til félagsins. Hluti af því rennur í námssjóð og hluti í ábyrgðasjóð. Ábyrgða- sjóðurinn var stofnaður að frum- kvæði félagsins til að bæta við- skiptamönnum það tjón sem þeir kunna að verða fyrir vegna gjald- þrots lögmanns. -------- - Eru einhver til- tekin verkefni sem þú hyggst vinna í þinni formannstíð? _________ Það liggur fyrir fé- laginu að breyta sam- þykktum sínum í samræmi við breytingar á lögum um málflytj- endur sem samþykktar voru á Alþingi rétt fyrir þinglok. Nú eru lögmenn skyldaðir til að hafa starfsábyrgðartryggingu. Með henni tryggja lögmenn sig fyrir ýmsum mistökum í starfi. Það eru margir lögmenn sem þegar hafa keypt slíka tryggingu, en félaginu ber að fylgja því eftir að allir geri það. í öðru lagi er lögmönnum nú gert að stofna sérstaka vörslufjárreikninga til að halda fé skjólstæðinga að- skildu frá eigin fé. Þetta eykur eftirlitshlutverk stjórnar Lög- mannafélagsins. Við þurfum að breyta samþykktum okkar fyrir 1. nóvember næstkomandi, svo þetta er verkefni sem verður gengið í fljótlega.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.