Morgunblaðið - 22.03.1995, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 22. MARZ 1995 11
FRÉTTIR
Búnaðarþing vill aðgerðir til lausnar vanda sauðfjárbænda
Leitað samkomulags
um nýja stefnumörkun
Alvarleg staða sauðfjár-
ræktarinnar var eitt
helsta málið á Búnaðar-
þingi og þar var sam-
þykkt ályktun um að-
gerðir sem þingið telur
að grípa þurfi til í því
skyni að finna lausn á
vanda greinarinnar.
INNVEGIN framleiðsla sauðfjáraf-
urða hefur fallið úr 15.378 tonnum
árið 1978 í 8.797 tonn árið 1984,
eða um 43%, en tekjusamdráttur
sauðfjárbænda á tímabilinu er hlut-
fallslega meiri. Búnaðarþing telur
að til að ráða bót á vandanum þurfi
víðtæka pólitíska lausn pg fól það
stjórn Bændasamtaka íslands að
leita eftir samkomulagi við ríkisvald-
ið um nýja stefnumörkun.
Búnaðarþing, sem lauka s.l.
sunnudag, telur brýnast sem fyrstu
aðgerð til lausnar á vanda sauðfjár-
bænda að heimild verði fengin til
að flytja út á erlenda markaði kinda-
kjöt sem er innan greiðslumarks,
þannig að birgðastaðan 1. september
verði ekki umfram 500 tonn, en
birgðir munu nú vera um 1.500 tonn.
Jafnframt þurfi að gera sérstakar
ráðstafanir til að allt sláturfé komi
í sláturhús í haust með því að greiða
tiltekna upphæð á allt innvigtað
kindakjöt umfram efri mörk
greiðslumarks, en til að tryggja
framgang þessara aðgerða þurfi að
koma til sérstakir fjármunir frá hinu
opinbera.
Jafnframt þessu þurfi að tryggja
rétt bændafólks til atvinnuleysisbóta
og efla Jarðasjóð í samræmi við bók-
un búvörusamninga þannig að sjóð-
urinn geti keypt jarðir þeirra bænda
sem vilja hætta búskap eða aðstoðað
sveitarfélög við slík kaup.
Heimaslátrun verði
takmörkuð
Næstu aðgerðir sem Búnaðarþing
vill að gripið verði til er að skoða
sérstaklega fyrirkomulag á stuðningi
WVestfrost
Frystikistur Staðgr.verð
HF201 72x65x85 41.610,-
HF271 92x65x85 46.360,-
HF396 126x65 x85 53.770,-
HF506 156x65x85 62.795,-
SB30O 126x65x85 58.710,-
Frystiskápar
FS205 125 cm 56.430,-
FS 275 155 cm 67.545,-
FS 345 185 cm 80.180,-
Kæliskápar
KS 250 125 cm 53.390,-
KS315 155 cm 57.190,-
KS 385 185 cm 64.695,-
Kæli- og frystiskápar
KF 285 155 cm 80.465,-
kælir 199 Itr frystir 80 ltr 2 pressur
KF350 185 cm 93.670,-
kælir 200 ltr frystir 156 ltr 2 pressur
KF 355 185 cm 88.540,-
kælir 271 Itr frystir 100 Itr rp 2 pressur
TM !
Faxafeni 12. Sími 38 000 1
Morgunblaðið/Kristján Zophaníasson
VANDI sauðfjárræktarinnar verður helsta úrslausnarefni
hinnar nýju forystu bændasamtakanna.
ríkisins við sauðfjárframleiðsluna
með það að leiðarljósi að ná sem
flestu fé í sláturhús, skapa aukinn
sveigjanleika í framleiðslu, skapa
möguleika á störfum greiðslumarks-
hafa að landgræðslu og skógrækt,
og að kanna með hvaða hætti sé
hægt að beina stuðningi til þeirra
sveita og jaðarbyggða sem standa
sérstaklega höllum fæti og hvernig
staðið sé að slíku í nágrannalöndun-
um.
Þingið felur stjórn bændasamtak-
anna að beita sér fyrir því að heima-
slátrun verði takmörkuð svo sem
kostur sé og verði meðal annars skoð-
að að gera samanburð á ásetningi
og afurðum, koma á leyfisveitingum
og skráningu á heimaslátrun og
meta möguleika á því að taka upp
merkingarkerfi á gripum samkvæmt
stöðlum Evrópusambandsins.
Þróunarsjóður og
markaðsráð
Búnaðarþing vill að stofnaður
verði þróunarsjóður sem hafi það
hlutverk að stuðla að vöruþróun fyr-
ir innlendan og erlendan markað og
endurbótum á aðstöðu til slátrunar
og vinnslu kindakjöts samkvæmt
ESB stöðlum. Stefnt verði að 100
milljóna króna framlagi til sjóðsins
á ári og verði leitað eftir samkomu-
lagi við ríkisvaldið, Byggðastofnun,
Framleiðnisjóð o.fl. um fjármögnun
sjóðsins.
Þá vill Búnaðarþing að komið verði
á fót sérstöku markaðsráði kinda-
kjöts sem hafi ráðstöfunarrétt og
söiuábyrgð á allri kindakjötsfram-
leiðslunni, en starfí í samvinnu við
sláturleyfíshafa og aðra hagsmuna-
aðila. A markaðsráðið meðal annars
að hafa forgöngu um vöruþróun
kindakjötsafurða bæði fyrir innlenda
og erlenda markaði, úrbætur í að-
stöðu til slátrunar og vinnslu, sölu-
starf og skipulagningu á sölu kinda-
kjöts á innlendum markaði, sölustarf
erlendis og markaðs- og sölustarf
varðandi gærur og innmat sauðfjár.
Loks vill Búnaðarþing að Hag-
þjónustu landbúnaðarins verði falið
að 'skoða alla þætti kostnaðar við
sauðfjárframleiðslu og hagfræði-
ráðunautum bændasamtakanna
verði síðan falið að leggja fram til-
lögur um hvernig hægt sé að draga
úr kostnaðinum. Jafnframt verði
unnið skipulega að hagræðingu og
lækkun kostnað_ar við slátrun og
úrvinnsiu sauðfjárafurða, m.a. með
fækkun eða sérhæfingu sláturhúsa
og samvinnu um slátrun á stærri
svæðum.
Viðbótargisting
á tilboðst/erði
Austurstræti 17, 2. hæð ■ Sími 562-4600 |
VIA höfum nú fengiA viAbótargistingu
á Benidorm í þessa vinsœlu ferö og
getum nú boAift 8 viftbótaríbúftir á
Don Sahra fbúftarhótelinu sem er
staftsett f hjarta Benidorm.
Allar íbúðir meö elnu svefnherbergl,
bafti, cldhúsi, stofu og svölum og
veitingastaftur og mótttaka á hótclinu.
Verð frá kr. 50.830
pr. mann m.v. hjón meft 2 böm, 23. april.
Verð frá kr. 63.560
pr. mann m.v. 2 í ibúft, Don Salva.
* Innifalið í verði: Flugvallarskattar,
forfallogjald, flug, gisting og ferðir
til og fró flugvelli erlendis.
Guðni Ingólfsson
hjáVKS
Ekki hægt að
tjá sig um
útreikninga
GUÐNI Ingólfsson tölvunarfræðing-
ur hjá Verk- og kerfisfræðistofunni,
VKS, sem annaðist útreikninga fyrir
heilbrigðisráðuneytið vegna upptöku
tilvísanakerfisins, segist ekki geta
tjáð sig að svo stöddu um útreikn-
inga Jóhanns Rúnars Björgvinssonar
hagfræðings, sem hann vann fyrir
sérfræðilækna um kostnað vegna
tilvísanakerfisins.
Guðni segir að þar sem hann hefði
ekki séð niðurstöður Jóhanns og for-
sendur þeirra sé það bæði ófag-
mannlegt og óábyrgt að tjá sig um
málið.
Eins og kom fram í Morgunblað-
inu síðastliðinn laugardag benda nið-
urstöður Jóhanns Rúnars Birgisson-
ar til þess að tilvísanakerfið leiði til
90-200 milljóna króna kostnað-
arauka fyrir ríkið, en útreikningar
Verk- og kerfisfræðistofunnar bentu
hins vegar til þess að ríkið myndi
spara 120 milljónir með því að taka
upp tilvísanakerfi.
Sighvatur Björgvinsson heilbrigð-
isráðherra hefur lýst því yfir að ef
sérfræðingar afhendi honum skýrslu
Jóhanns Rúnars muni hann óska
eftir því að Verk- og kerfisfræðistóf-
an legði mat á útreikningana.
Prestaköll
auglýst laus
til umsóknar
BISKUP íslands hefur auglýst eft-
irtalin prestaköll og störf laus til
umsóknar.
Digranesprestakall í Reykjavík-
urprófastsdæmi eystra; sr. Þorberg-
ur Kristjánsson, sóknarprestur, læt-
ur nú af störfum fyrir aldurs sakir
1. ágúst og verður prestakallið veitt
frá þeim tíma.
Ólafsfjarðarprestakall í Eyjafjarð-
arprófastsdæmi; sr. Svavar Jónsson,
sóknarprestur, hefur verið ráðinn
héraðsprestur í Eyjafjarðar- og Þin-
geyjarprófastsdæmum. Prestkallið
verður veitt frá 1. júní.
Seyðisfjarðarprestakall í Múla-
prófastsdæmi; sr. Kristján Róberts-
son, sóknarprestur, lætur nú af
störfum fyrir aldurs sakir 1. ágúst
og verður prestakallið veitt frá þeim
tíma.
Þá er auglýst staða aðstoðar-
prests í Grafarvogsprestakalli í
Reykjavíkurprófastsdæmi eystra.
Staðan verður veitt frá 1. júlí nk.
Umsóknarfrestur er til 20. apríl
nk.
51500
Hafnarfjörður
Álfaskeið
4ra-5 herb. ca 100 fm íb. á 1.
hæð í þríbýli. Sérinng. 3 svefn-
herb. Bílskúrsr. Lítið áhv.
Álfaskeið
4ra herb. ca 100 fm íb. á 2. hæð
í fjölbýli. 3 svefnherb. Arinn.
Tvennarsvalir. Ekkert áhv. Laus.
Grænakínn
Efri sérh. og ris í tvíb. ásamt
bílsk. samt. ca 135 fm. Sérinng.
3 svefnherb., tvær stofur o.fl.
Baðherb. nýuppg. Áhv. ca 2,7 m.
Vesturvangur
Einb. á einni hæð ásamt bílsk.
samt. 200 fm. 3 svefnherb. Garð-
skáli. Mjög vönduð eigh. Ræktuð
lóð. Ath. skipti á minni eign.
Vörðustígur
Einb., kj., hæð og ris. Þarfnast
lagfæringa. Góð staðsetn. Út-
sýni. Ekkert áhv.
Flókagata
Einb. á fjórum pöllum, ca 190 fm,
ásamt nýjum bílsk. og öðrum
eldri. Mikið endurn. Útsýni.
Áhv. ca 2,5 millj. eldra Byggsj-
lán. Ath. skipti á minni eign.
Brunnstígur
Einb., kj., hæð og ris ca 200 fm.
Nýtt rafmagn og hiti. Gluggar
og gler nýtt að hluta. Ekkert áhv.
Álfaskeið
Einb. á tveimur hæðum með
hálfum kj. samt. 204 fm. Mikið
endurn. Lítið áhv. Ath. skipti á
lítilli íb.
Langeyrarvegur
Lítið einb. á tveimur hæðum ca
70 fm. 3 svefnherb. Áhv. ca 1 m.
Iðnaðarhúsnæði
Drangahraun
120 fm iðnaðarhúsn. pússað
og málað. Innr. skrifst. og snyrt-
ing. Stór hugrð. Meðal lofth.
3,50 m. Bílaiyfta getur fylgt.
Reykjavík
Laxakvísl
Stórskemmtil. 5-6 herb. íb. á
2. hæð og risi í nýl. litlu fjölb.
ca 137 fm. 3 svefnherb.
Þvottah. í íb. Fyrsta flokks sam-
eign. Áhv. ca 1,7 millj. eldra
Byggsj. lán.
Hæðargarður
Afar smekkl. nýl. uppgerð 5-6
herb. hæð og hækkað ris í litlu
fjölb. samt. 142 fm. M.a. nýtt
þak, rafmagn og Danfoss. Áhv.
ca 4,4 millj. húsbr. og eldra
byggsjl.
FASTEIGNASALA,
Linnetsstfg 3, 2. hæð, Hfj.,
Árni Grótar Finnsson hrl.,
Bjarni Lárusson hdl.,
símar 51500 og 51501.
Heimas. sölumanns 654171.
í miðbæ Kópavogs
Glæsilegt skrifstofuhúsnæði á þremur hæðum samtals
um 1400 fm. Má seljast í hlutum. Bílskýli undir húsi,
auk fjölda annarra bílastæða. Eignin afhendist strax
tilbúin undir tréverk að innan og fullfrágengin að utan.
Hagstæð greiðslukjör.
Upplýsingar veittar í síma 658517.