Morgunblaðið - 22.03.1995, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 22. MARZ 1995 39
FRETTIR
Morgunblaðið/Guðmundur Ólafsson
TRÉKROSS sem fannst við fornleifarannsókn á bænum undir
sandinum. Einn af fjölmörgum gripum sem sýna m.a. hve vel
varðveittar minjarnar eru og gefa innsýn í daglegt líf fornmanna.
Fræðslufundur
Minja og sögu
Verðlaun afhent í
stuttmyndakeppni
8 framhaldsskóla
Erindi um
þýðingar
KENEVA Kunz heldur erindi á
vegum Félags íslenskra fræða í
Skólabæ, Suðurgötu 26, í kvöld,
miðvikudagskvöld, 22. mars, kl.
20,30.
í erindi sínu fjallar Keneva um
þýðingar á bókmenntaverkum og
spyr hvort hægt sé að taka vilja
þýðandans fyrir verkið. Keneva
mun taka dæmi af þýðingum á
Laxdælu og Gunnlaugs sögu orms-
tungu til skýringar máli sínu, en
í erindi sínu tekur hún á vandamál-
um þýðandans almennt.
Keneva Kunz er doktor í þýð-
ingafræðum frá Kaupmannahafn-
arháskóla og kom doktorsritgerð
hennar út í ritröðinni Studia Is-
landica á sl. hausti og nefnist Tell-
ers of Tales, an Evaluation of
English Translations of Laxdæla
Saga.
Eftir framsögu Kenevu gefst
mönnum kostur á léttum veiting-
um áður en almennar umræður
hefjast. Fundurinn er öllum opinn.
-----♦ ♦ ♦----
Rætt um eftir-
litsiðnað í sjáv-
arútvegi
VSÍ, LÍÚ, Samtök fiskvinnslu og
sjávarútvegshópur Gæðastjórnun-
arfélags íslands efna til fundar um
hvert eftirlitsiðnaðurinn stefnir í
sjávarútvegi. Fundurinn verður
haldinn fimmtudaginn 23. mars
kl. 8.15-10 að Skála, Hótel Sögu.
Framsögumenn fundarins eru
Þórarinn V. Þórarinsson, fram-
kvæmdastjóri VSÍ, Þórður Ás-
geirsson, fiskistofustjóri, Baldur
Hjaltason, forstjóri Lýsis hf., og
Sigurbjörn Svavarsson, útgerðar-
stjóri Granda hf. Að loknum fram-
söguerindum stýrir Ágúst Guð-
mundsson, Bakkavör hf., umræð-
um og fyrirspurnum.
Markmið fundarins er að segja
til um hvert eftirlitsiðnaðurinn
stefnir á tímum aukinnar gæða-
stjómunar og innra eftirlits hjá
fyrirtækjum.
-----♦—♦- ♦---
Blús á
Kringlukránni
HUÓMSVEITIN Speedwell Blue
I leikur á Kringlukránni í kvöld,
miðvikudagskvöldið 22. mars, og
hefjast tónleikarnir kl. 22. Að-
gangur er ókeypis.
Hljómsveitina skipa Eric Lewis,
gítar og söngur, Hafþór Guð-
mundsson, trommur, og Brynjar
Brynjólfsson, bassi. Hljómsveitin
leikur R&B og blús og meðal þeirra
í laga sem verða flutt eru lög eftir
Muddy Waters og Willie Dixon.
I Eric, sem er stofnandi hljóm-
sveitarinnar, er breskur og hefur
leikið blús þar í landi undanfarin
ár.
♦ ♦ ♦
Söngkeppni
framhalds-
skólanna
| HIN árlega söngkeppni Félags
framhaldsskólanema fer fram á
Hótel íslandi fimmtudaginn 23.
mars. Keppnin hefst kl. 20 en hús-
ið verður opnað kl. 19.
í ár eru keppendur alls frá 26
skólum víða af landinu. Hljóm-
sveitin Þreb leikur undir fyrir kepp-
endur en þessi hljómsveit var sér-
í staklega sett saman fyrir keppnina
í ár. Kynnir verður Stefán Karl
Stefánsson. Miðasala fer fram á
' 3. hæð í Hinu húsinu dagana 22.
og 23. mars. Miðaverð er 900 kr.
FRÆÐSLUFUNDUR á vegum
Minja og sögu verður haldinn í
Þjóðminjasafni íslands fimmtu-
daginn 23. mars og hefst kl. 17.15.
Fyrirlesturinn nefnist: Forn bær í
frera.
Guðmundur Ólafsson, fornleifa-
fræðingur, flytur erindi um nýjar
fomleifarannsóknir í Vestribyggð
Gengið með
höfninni
HAFNARGÖNGUHÓPURINN fer í
gönguferð frá Hafnarhúsinu kl. 20
í kvöld, miðvikudagskvöldið 22.
mars.
Gengið verður frá hafnarbökkum
frá Ingólfsgarði út í Örfirisey. Á
leiðinni verður ýmislegt gert til fróð-
leiks og skemmtunar, m.a. litið inn
hjá Gunnari víkingaskipasmið. í lok
göngunnar býður veitingastaður í
miðbænum hópnum upp á kaffi og
meðlæti. Þórður mætir með nikkuna.
Allir velkomnir.
-----♦ ♦ ♦-----
Bæjarráð
Hafnarfjarðar
Niðurstaða í
samræmi við
málatilbúnað
NIÐURSTAÐA dómsmálaráðherra
og setts félagsmálaráðherra, er í
samræmi við málatilbúnað oddvita
Sjálfstæðisflokks og Alþýðubanda-
lags um samskipti bæjarsjóðs Hafn-
arfjarðar og Hagvirki/Kletts, segir
í bókun bæjarfulltrúa Alþýðuflokks
sem lögð var fram í bæjarráði Hafn-
arfjarðar.
I bókun bæjarfulltnianna, kemur
fram að kæruatriðin snúi ekki síst
að oddvitum Sjálfstæðisflokks og
Alþýðubandalags og flokkum þeirra
ásamt almennum dylgjum í garð
Alþýðuflokksins í Hafnarfirði. Það
væri kaldhæðni örlaganna að kærð
skuli samskipti bæjarsjóðs og Hag-
virki/Kletts í tíð fyrri meirihluta
þegar sömu menn hafi staðið fyrir
tugmilljóna greiðslum úr bæjarsjóði
til fyrirtækisins eftir að þeir komust
til valda. Þar mætti sérstaklega
nefna ákvörðun um að greiða út
vörslufé bæjarsjóðs, upp á fimmtu
milljón, rétt fyrir gjaldþrot fyrirtæk-
isins. Þá segir að á sama tíma hafi
forstöðumaður þess verið lykilmaður
í meirihlutasamstarfi Sjálfstæðis-
flokks og Alþýðubandalags.
á Grænlandi og sýnir litskyggnur.
Bærinn undir sandinum, eins og
staðurinn nefnist, er einn merk-
asti fomleifafundur síðari ára hér
á norðurslóðum. Einstök varð-
veisluskilyrði hafa varpað nýju
tjósi á daglegt lif og þróun byggð-
ar norrænna manna á Grænlandi.
Fundurinn er öllum opinn.
Dönskjasssveit
á Sögn
EIN vinsælasta jasshljómsveit Dan-
merkur, Fessors Big City Band, er
væntanleg til landsins og leikur í
Súlnasal Hótel Sögu miðvikudaginn
24. mars.
Fessors Big City Band hefur ieik-
ið jass í rúmlega 25 ár og spannar
tónlistin breitt svið jass- og blústón-
listar þar sem heyra má áhrif m.a.
New Orleans-, dixíland-, gospel-,
soul- og jassrokktónlistar.
Hljómsveitin hefur leikið með mörg-
um þekktustu hljómlistarmönnum
Dana þ.á m. Kim Larsen, Gnags,
Povl Dissing og Benny Andersen,
Lone Kellerman og Gasolin.
Hljómsveitin spilar frá kl. 22-2
þann 24. mars en 25. mars spilar
hún á undan Ríósögu, skemmtidag-
skrá kvöldsins.
------♦ ♦ ♦-----
Samkeppnis-
mismunun í
fiskverslun
SAMTÖK fiskvinnslustöðva án út-
gerðar boða til almenns félagsfund-
ar um þetta efni og verður fundur-
inn haldinn í veitingahúsinu Gaflin-
um í Hafnarfirði nk. fimmtudag,
23. mars, og hefst kl. 20.15.
Framsögumenn á fundinum
verða Logi Þormóðsson, sem fjalla
mun um samkeppnismismunun í
íslenskri fiskverslun, Jón Steinar
Gunnlaugsson hrl., sem útskýra
mun erindi sem hann hefur sent til
Samkeppnisráðs fyrir hönd samtak-
anna, og Guðjón A. Kristjánsson,
formaður Farmanna- og fiski-
mannasambands íslands, sem ræða
mun um verðlagningu á fiski til
sjómanna.
Eftir framsögu verða leyfðar
fijálsar umræður og fyrirspurnir.
Fundurinn er opinn öllum þeim sem
láta sig varða eðlilega samkeppni í
fiskverslun og frjálsa verðmyndun
á fiski.
STUTTMYNDAKEPPNI fram-
haldsskólanna er nú haldin í fyrsta
sinn. Framhaldsskólarnir, Hitt hús-
ið og Menningarsamtök ungs fólks
standa að keppninni. Alls taka 8
framhaldsskólar þátt að þessu sinni.
Verðlaunaafhending verður mið-
vikudagskvöldið 22. mars í Há-
skólabíói. Dagskrá verðlauna-
kvöldsins inniheldur sýnishorn úr
keppnismyndunum, en verður
fleyguð með skemmtiatriðum.
Hljómsveitin Unun leikur og Kósý
skemmtir, Hallbjörn Hjartarson
tekur tvö lög, Jassband MH leikur
og Páll Óskar Hjálmtýsson syngur
Arfleiddi Rauða
kross íslands að
eigum sínum
FRÚ GUÐRÚN Guðmundsdóttir
frá Akurtröðum í Eyrarsveit,
Grundarfirði, arfleiddi Rauða kross
íslands að eigum sínum eftir sinn
dag.
Varið til stuðnings flóttafólki
Guðrúnu voru mannúðarmál
hugleikin og ákvað að láta eigur
sínar, andvirði 2 milljóna króna,
renna til hjálparstarfa Rauða kross-
ins. Framkvæmdastjórn RKÍ veitti
þessari höfðinglegu gjöf viðtökur
fyrir stuttu og hefur nú ákveðið að
veija upphæðinni til stuðnings
flóttafólki frá fyrrum Júgóslavíu,
fjölskyldum sem dveljast í búðum í
Slóveníu og munaðarlausum börn-
um sem annast er um á heimilum
í Ungveijalandi. Fest voru kaup á
sérstökum pakkningum með hrein-
lætisvörum og öðrum nauðsynja-
vörum sem dreift verður til barna-
heimilanna og flóttamannabúð-
anna. Langvarandi skortur hefur
verið á þessum vörum og munu þær
koma í góðar þarfir, segir í fréttatil-
kynningu.
Guðrún fæddist árið 1903 og lést
á tíræðisaldri 8. desember 1993 á
Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund
þar sem hún var til heimilis síðustu
æviár sín.
------♦ ♦ ♦------
Ráðstefna um
bleikjueldi
BÆNDASAMTÖK íslands efna til
ráðstefnu um bleikjueldi undir heit-
inu íslensk bleikja ’95 í samvinnu
við Bændaskólann á Hólum í
Hjaltadal, Rannsóknastofnun land-
búnaðarins og Veiðimálastofnun.
Ráðstefnan verður í Bændahöllinni
við Hagatorg.í Búnaðarþingsalnum
á annarri hæð, fimmtudaginn 30.
mars.
Á ráðstefnunni munu halda er-
indi margir þeirra sem hafa lagt
hönd á plóginn við þróun þessarar
búgreinar. Vísindamenn kynna
helstu niðurstöður rannsókna sinna
og nokkrir bleikjuframleiðendur
segja frá reynslu sinni. Farið verður
yfir þróun greinarinnar og framtíð-
arhorfur, rætt verður um bleikju-
fóður, fyrirgreiðslur banka og fjár-
magnsstofnana, útflutning, vinnslu
og markaðsmál.
Undirbúningsnefnd ráðstefnunn-
ar skipa: Óskar ísfeld Sigurðsson,
Bændasamtökum íslands, Einar
Svavarsson, Bændaskólanum Hól-
um í Hjaltadal, Þuríður Pétursdótt-
ir, Rannsóknastofnun landbúnaðar-
ins og Jónas Jónasson, Veiðimála-
stofnun.
Þátttökugjald er 2500 kr. og eru
ráðstefnugjöld og hádegisverður
innifalin í því.
lög úr nokkrum þekktum kvik-
myndurn.
Áhorfendur velja
vinsælustu myndina
Valin verður besta myndin, besti
leikarinn, besta handritið, besta
leikstjórnin og besta myndatakan.
Einnig verður valin vinsælasta
myndin og hlýtur hún áhorfenda-
verðlaunin. Kynnir kvöldsins verður
Hallur Helgason, kvikmyndagerð-
armaður með meiru.
Verðlaunaafhending hefst kl. 20
stundvíslega, stendur til kl. 23. Að-
gangur er ókeypis á meðan húsrúm
leyfir.
■ / TILEFNI af því að góan er
liðin og einmánuður gengur í garð
verður dagskrá í Gjábakka mið-
vikudaginn 22. mars kl. 14. Meðal
efnis á dagskránni verður rímna-
kveðskapur, tónlistaratriði frá
Tónlistarskóla Kópavogs, böm úr
Þjóðdansafélagi Reykjavíkur sýna
þjóðdansa og Ragnar Bjarnason
lætur ljúfa tóna líða um húsið.
Vöfflukaffi verður á boðstólum og
allir eru velkomnir.
■ UMSJÓNARFÉLAG ein-
hverfra heldur almenn félagsfund
miðvikudaginn 22. mars kl. 20.30
á Bama- og unglingageðdeild
Landspítalans. Svanhildur Svav-
arsdóttir, talmeina- og boðskipta-
fræðingur, heldur fyrirlestur sem
hún nefnir: Boðskipti einhverfra.
Þar mun hún Qalla um rannsókn
sína sem hún gerði á frumkvæðis-
tjáningu einhverfra. Einnig mun
hún fjalla um leiðir til að efla
málnotkun þeirra.
■ LANDSAMBAND íslenskra
vélsleðamanna (LÍV) og
Björgunarskóli Landbjargar og
Slysavarnafélags íslands efna til
fræðslufundar um ýmis efni er
varða öryggismál vélsleðamanna.
Næsti fræðslufundur verður mið-
vikudaginn 22. mars í Húsi Flug-
björgunarsveitarinnar v/Flugvalla-
veg og hefst hann kl. 20. Efni
fundarins verður ofkæling og út-
búnaður vélsleðamanna. Fyrirles-
arar verða Halldór Almarsson og
Sævar Reynisson.
■ SÖNGKONAN Margrét
Hauksdóttir syngur miðvikudag-
inn 22. mars á Kringlukránni.
Dagskráin er að mestu leyti upp-
byggð áþekktumjassperlum. Mar-
grét hefur komið m.a. í sjónvarpi
og útvarpi á undanförnum mánuð-
um. Meðspilarar hennar eru þeir
Björn Thoroddsen, Bjarni Svein-
björnsson og Karl Möller. Tón-
leikamir hefjast kl. 22 og er að-
gangur ókeypis.
■ AÐALFUNDUR Ferðafélags
Islands verður haldinn í kvöld í
Mörkinni 6 og verður jafnframt
tekinn í notkun nýr samkomusal-
ur. Aðalfundurinn hefst kl. 20 og
er öllum félagsmönnum heimill
aðgangur er greitt hafa ársgjald
fyrir árið 1994. Félagsskírteini
verður að sýna við innganginn.
Gengið er inn frá miðbyggingu.
Undanfarin misseri hefur verið
unnið af krafti við að standsetja
salinn sem taka mun á þriðja
hundrað manns í sæti. Hann mun
henta sérstaklega fyrir myndasýn-
ingar en í upphafi aðalfundarins
og í tilefni þessarar fyrstu sam-
komu í salnum mun verða §tutt
Islandsmyndasýning. Kaffiveiting-
ar verða í hléi. Myndakvöld og
kvöldvökur verða framvegis í saln-
um og er fyrsta myndakvöldið
áætlað 5. apríl.