Morgunblaðið - 22.03.1995, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 22. MARZ 1995 41
BREF TIL BLAÐSINS
Sægreifar og aðrir
útgerðarmenn
Frá Vernharði Bjarnasyni:
HINUM svokölluðu félagshyggju-
mönnum hættir mikið til að níða
niður menn, sem hafa sýnt dugnað
og fyrirhyggju í rekstri. Eru það
oft hinir verstu menn að þeirra
mati, en ef þeir reka á núlli eru
þeir sæmilegir en ef þeir reka fyr-
irtækin með miklu tapi eru þeir
hinir bestu menn, sem eiga að fá
fyrirgreiðslu úr öllum sjóðum. Þeir
hafa fundið upp orðið Sægreifar
á bestu útgerðarmenn þjóðarinnar,
og mætti orða svo að mesti heiður
sé fyrir góða menn að hljóta sví-
virðingar af vörum þessara
manna.
Ég vil í stuttu máli gera grein
fyrir hvað Sægreifi er að mínu
mati: Það er útgerðarmaður, sem
veit hvað hann er að gera, og
skilur hvers virði er að standa í
skilum og greiða niður skuldir sín-
ar, taka ekki lán nema arðvon
geti staðið á bak við lánin. Þegar
hann hefír eignast t.d. 2 skip og
greitt niður lán af þeim, þá geta
þau með rekstri sínum aðstoðað
og greitt niður t.d. 3ja skip, ef
fjárfest yrði í því, og kannski einn-
ig lagt fram fé til að kaupa kvóta
af þeim sem eru svo grunnhyggn-
ir að fórna kvóta, sem þeir fengu
ókeypis, fyrir léttúð og stundar-
hagnað.
Því verður ekki neitað að nefnd-
ir Sægreifar eru í dag bestir og
dýrmætustu synir þessarar þjóðar
og má þar til nefna frændurna á
Akureyri, sem reka Samheija hf.
Þeir hafa með dugnaði, sparnaði,
og hagsýni sýnt fram á hvernig á
að standa að rekstri, og væri þarf-
legt ef félagshyggjukennararnir í
Háskólanum hefðu þá til fyrir-
myndar við kennslu ungmenna.
Útgerðarmenn í öðrum flokki
eru þeir sem í upphafi fengu kvóta
út á afla sem þeir höfðu fyrir
kvótatímabil, og freistuðust til að
selja sín réttindi, og hirða pening-
ana til eyðslu. Þeir fóru að eins
og sjómaður, sem varð það á að
pissa á fæturna til að hita þá í
miklu frosti, en fæturnir frusu í
staðinn.
Margir þessir menn byijuðu aft-
ur með því að kaupa nýja skak-
báta, oft úr plasti, með nýjum lán-
um úr Fiskveiðasjóði, og gera út
á svokallaðar krókaveiðar, og
hrópa nú manna hæst um sæ-
greifa og ræningja. Árinni kennir
illur ræðari, segir gamalt máltæki.
Útgerðarmenn í þriðja flokki
eru félagshyggjuútgerðir, sem
aldrei hafa skilið, að fjárfestingar
ættu að vera bannorð, nema arð-
semi standi þar að baki. Það er
mörgum í minni þegar skírður var
nýr togari félagsiiyggjumanna í
Slippstöðinni á Akureyri. Sjón-
varpið sýndi hinn merka atburð,
og þegar kona félagshyggju-for-
stjórans var búin að skíra, þá
spurði fréttamaður útvarpsins,
hvort þetta væri ekki dýrt, og erf-
itt að reka. Þá svaraði félags-
hyggju-forstjórinn: Jú, jú, en við
ætlum nú aldrei að borga þetta,
en hann skaffar mikla atvinnu
heima.
Þetta hefir verið algengasta
hugarfóstur félagshyggjunnar, að
einhver annar ætti að borga. Dag-
lega heyrist í fréttum að hin og
önnur skuldafyrirtæki eigi að sam-
einast, til að fá 70-80 milljónir
úr Byggðasjóði, þá sé allt í lagi,
einsog þegar Framsókn undir
stjórn Steingríms Hermannssonar
samdi við Stefán Valgeirsson um
milljarða fjáraustur með erlendu
láni, til að reisa við, að talið var,
fyrirtæki sem voru vonlaus. En
lappirnar kól undan fyrirtækjun-
um alveg, og að hálfu undan sjálf-
um Landsbankanum, sem hefur
þurft að afskrifa 2 milljarða króna
árlega, og biður nú um 1250 millj-
óna króna gjöf, sem vitanlega á
að koma úr ríkissjóði.
Hvað um veðhæfni þeirra eigna
sem Landsbankinn á veð í, og drit-
að hefir niður á hinum og öðrum
dreifbýlisstöðum, sem engan til-
verurétt eiga í nútíma þjóðfélagi?
Ég vil forðast að nefna þessa
mörgu vonlausu staði, sem eru
eins settir og bændabýli, sem
byggð hafa verið 'undanfarin ár
af falskri pólitík forsvarsmanna,
sem hrópuðu á öllum mannamót-
um, að við ættum að framleiða
endalaust kjöt handa hungruðum.
Kennarar Háskólans verða að
fara að kenna ungmennum okkar
rétt mat fjármagns, og hvers virði
peningar eru: Hvernig fjármagn
verður til, svo þjóðin þurfi ekki
endalaust að hlusta á peninga-
kröfugerð menntamanna til ann-
arra en sjálfra sín, því ekki er víst
að vel fari fyrir þeim, sem aldrei
hafa unnið fyrir eigið fé, við sköp-
un þeirra verðmæta sdm þjóðin
lifir af.
VERNHARÐUR BJARNASON,
frá Húsavík.
Happdrætti Slysavarnafélags íslands
Dregið hefur verið í þriðja útdrætti happdrættisins
(aukavinningar).
Aðeins dregið úr greiddum miðum.
Eftirtaldir aðilar hlutu vinning:
1. Ferð fyrir tvo í tvær vikur til Mallorka eða Benidorm,
miði nr 124574,
Kristín Guðmundsdóttir, Grindavík.
2. Ferð fyrir tvo til Dublin, miði nr. 83455,
Aðalsteinn Hermannsson, Raufarhöfn.
3. Ferð fyrir tvo til Dublin, miði nr 124468,
Reimar Alfreð Þorleifsson, Dalvík.
Næsti útdráttur úr seldum miðum er
mánudaginn 27. mars.
Af tæknilegum ástæðum verða vinningar ekki birtir fyrr en 28. mars,
kl. 20.55 á RÚV og kl. 20.30 á Stöð 2 og í Morgunblaðinu 29. mars.
m - kjarni málsins!
Jón Baldvin
Hannibalsson
Kristín
Ástgeirsdóttir
Málstofa BSRB
Skattar á tímum
kosningabaráttunnar
Opinn fundur í Félagamiðstöðinni,
Grettisgötu 89, í kvöld kl. 20:30
Frummælendur: Talsmenn stjórnmálaflokkanna.
Fundarstjóri: Atli Rúnar Halldórsson.
BSRB-félagar og annað áhugafólk! Notum
Jóhanna
Sigurðardóttir
Steingrímur
J. Sigfússon
tækifærið til að skiptast á skoðunum við frambjóðendur jj|f%
- .. 11 r,y, | ^
,oW W m. É
Guðntundur
Bjarnason
N
#'
B5RB
Geir H. Haarde
FeLAG LOGGIITRA BlfKLIOASALA
Felag LOggiltra Biirlidasala
Toyota Touring XLi árg. '92,
ek. 39 þús. km., rauður, ástandsk.
Verð 1.240.000. Ath. skipti.
MMC Lancer 4x4 station árg. '93, ek.
63 þús. km., grár, cen., R/R, 5 g.
V. 1.390.000.
Ford Escort 1,3 CLX St. árg. '93, ek.
25 ús. km., grár. V. 1.050.000.
Ath. skipti.
V.W Golf GL 1800 árg. '94, ek. 7 þús.
km., dökkblár, sjálfsk., cen., þjófav.,
álfelgur, geislasp. V. 1.650.000.
Ath. skipti.
M. Benz 230E árg. '91, ek. aöeins 4
þús. km., grár, sóllúga, cen., R/Ö, ABS,
4-H, CC o.m.fl. V. 3.500.000. Ath. skipti
á ódýrari jeppa. Góö lánakjör.
Suzuki Vitara JLXi árg. '92, ek. 47
þús. km., Ijósblár. V. 1.600.000.
Ath. skipti.
Félag Logqiltra Bifreidasala
FElag LOggiltra Bifrlidasala
(rstfff
Renault 19 TXE Chmade árg. '91
hvítur, ek. 51 þús. km. V. 850.000.
Nissan Sunny Wagon Artic 4WD árg.
'95, silfurgrár, álfelgur, upph., ek. 5 þús.
km. V. 1.590.000.
MMC Pajero Super Wagon árg. '92.
grænsans./gullsans., sjálfsk., álfelgur,
sóllúga, ek. 54 þús. km. V. 3.000.000.
Skipti á dýrari Toyota Landcruiser.
Jeep Charokee LTD árg. '88, vín-
rauöur, leöursæti, álfelgur, ek. 85 þús.
km. V. 1.790.000. Skipti.
MMC Lancer 4WD GLXi árg. '91, hvítur,
ek. 68 þús. km. V. 1.080.000.
MMC Pajero árg. '91, blásans., 31"
dekk, ek. 89 þús, km. V. 2.150.000.
Vill skipta á dýrari Nissan Patrol eða
Toyota Landcruiser.
NU ER BESTI SOLUTIMINN FRAMUNDAN - VANTAR ALLAR GERÐIR BILA A STAÐINN