Morgunblaðið - 22.03.1995, Page 42

Morgunblaðið - 22.03.1995, Page 42
42 MIÐVIKUDAGUR 22. MARZ 1995 MORGUNBLAÐIÐ ÖRK af handboltafrímerkjunum 1995. Hæpnar frí- merkj ateikningar FRÍMERKI Fyrstu frímcrki ársins 100 ára afmæli Hjálpræð- ishersins. Seyðisfjarðar- kaupstaður 100 ára. Heimsmeistarakeppni í handbolta. - Smáörk frá Degi frímerkisins 1993 tekin úr sölu. - Tilboð í kíló- vöru til 31. marz nk. Nú hafa þau frímerki, sem minnzt var á í frímerkjaþætti 1. þ. m., séð dagsins Ijós. Geta menn því dæmt hver fyrir sig um, hvern- ig þeim lízt á. Því miður er ýmis- legt við þau að athuga, þegar grannt er skoðað. Fyrst er þá frímerki á aldaraf- mæli Hjálpræðishersins á Islandi. Þessi hreyfíng var stofnuð hér á landi aðeins 30 árum eftir, að hún hóf starfsemi sína í Lundúnaborg árið 1865 til bjargar aumustum allra þar í borg að frumkvæði þeirra ágætishjóna Catherine og Wiliams Booths, svo sem i tiikynningu póst- stjómarinnar segir. Breiddist Hjálp- ræðisherinn óðfluga út um allan heim _og starfar nú í hundrað lönd- um. í tilkynningunni segir m. a. þetta: „Markmið starfseminnar hef- ur verið að boða fagnaðarerindið í orði og verki. Því hefur trúboðs- og hjálparstarf gengið hönd í hönd. . . . „Hjálpræðisherinn rek- ur gistihús í Reykjavík og vistheim- ili á Seltjamamesi í samvinnu við Ríkisspítalana. Málgagn Hjálp- ræðishersins, Herópið, hefur komið út síðan 1895.“ Um teikningu þessa frímerkis má ýmislegt segja. Fyrst vil ég þá benda á það, sem ég hef oft látið í ljós, að ég teþ mjög ósmekklegt að láta nafnið ÍSLAND standa á höfði og þá ekki sízt eins og hér að vera jafnlítið áberandi og raun ber vitni. Landaheitið á að sjálf- sögðu að vera lárétt á frímerkjum, hvort sem það stendur að ofan eða neðan, og um leið vekja athygli þeirra, sem handfjatia frímerkið. Þá mun það vera nokkuð almenn regla, að fánar á fánastöng blakti til hægri en ekki til vinstri. Hið þriðja, sem er þó alvarlegast við þetta merki, er, að hér má þekkja andlit þeirra liðsmanna Hersins, sem á merkinu sjást. Slíkt er brot á þeirri hefð, sem ríkt hefur í út- gáfu íslenzkra frímerkja, að birta ekki mynd af núlifandi Islending- um. Hér breytir engu, þótt svo hafi viljað til, að mynd af núver- andi forseta okkar birtist á frí- merki í smáörk þeirri, sem út kom á liðnu ári í tilefni 50 ára afmælis lýðveldisins. Með öllu var óþarft að brjóta hefðina, með allri virð- ingu fyrir forseta okkar, enda sá Seðlabankinn ekki ástæðu til að taka fjórða forseta lýðveldisins með við myntsláttu þá, sem hann lét gera af þessu tilefni. Þá má ýmislegt segja um Seyð- isfjarðarmerkið. Fyrst er þá landa- heitið, sem er einnig á hvolfi. Vissulega sést það vel, en er aftur á móti allt of fyrirferðarmikið í samanburði við listaverkið.-Heldur finnst mér svo rislítið að birta hér mynd af minnismerki því, sem reisa á af tilefm 100 ára afmælis kaupstaðarins. Út yfír tekur þó, að ekki verður nafn kaupstaðarins lesið nema með stækkunargleri, en grilla má í ártölin, enda hvít á rauðum fleti. Ég hlýt að lýsa furðu minni yfír, að frímerkjaútgáfunefnd póst- stjórnarinnar skuli ekki hafa gert athugasemdir við teikningu beggja þessara frímerkja. Þá er komið að handknattleiks- merkjunum. Því verður ekki neitað, að þau eru nokkuð frumleg og munu örugglega vekja _ athygli margra. Þá kemur nafnið ISLAND mjög vel út í láréttri stöðu efst á frímerkjunum. Hins vegar eru þau allt of auglýsingakennd sem frí- merki til burðargjalds og minna m. a. um of á „plaköt" eða auglýs- ingaspjöld, sem ég sá nýlega á skjá Ríkissjónvarpsins frá Ferðamála- ráði Islands, að ég held. Þá er stærð merkjanna óhentug á bréf eða kort og minna um leið helzt á merki- miða, sem menn líma í auglýsinga- skyni á umslög samhliða frímerkj- um. Því miður munu svo vera veru- legar villur í gerð fána þeirra, sem eru á jaðri arkarinnar. Þá er einkar óviðfelldið, svo að dýpra sé ekki tekið í árinni, að merki HM 95 er með enskum texta. Hér hefði út- gáfflnefndin svo sannarlega átt að grípa í taumana, úr því að teiknar- inn og aðstandendur HM 95 sáu ekki sóma sinn í að hafa hér ein- vörðungu íslenzkan texta. Póststjórnin hefur látið útbúa sérstaka gjafamöppu með þessum frímerkjum, en í henni er saga handboltans og þátttaka íslend- inga í keppninni rakin í máli og myndum. Vafalaust kaupa margir þessa möppu bæði til vinagjafa og eins til minja um þennan einstæða íþróttaviðburð hér á landi. Verð hennar er 480 krónur. Smáörk tekin úr umferð. Póststjómin hefur auglýst, að smáörk sú, sem út var gefín á Degi frímerkisins 9. október 1993, verði ekki höfð á boðstólum eftir 31. marz nk., hafí hún ekki selzt upp áður. Enda þótt seint sé, er hér at- hygli vakin á þessari auglýsingu. Kílóvara póststjórnarinnar. Póststjórnin hefur auglýst eftir tilboðum í kílóvöru sína, sem eru notuð íslenzk frímerki af fylgibréf- um og að sögn aðallega frá 1989. Kílóvaran verður sem áður í 250 gr pökkum, og má hver einstakl- ingur gera mest tilboð í 12 pakka eða 3 kg. Tilboð skulu berast fyrir 31. marz í ábyrgðarbréfi, og skal merkja þau orðunum: „Tilboð í kílóvöru". Lægsta verð í síðustu kílóvöru var kr. 5.555.00 fyrir einn pakka. Við tilboðsverð íslenzkra safnara bætist svo hinn óréttláti virðisaukaskattur, sem útlendir safnarar sleppa við að greiða. Til- boðin skulu send til Frímerkjasöl- unnar, Pósthólf 8445, 128 Reykja- vík. Jón Aðalsteinn Jónsson IDAG 34. - Bxh3! 35. Dxh3 - Dxf2 (Nú getur hvítur ekki valdað riddarann á e3) 36. Hfl - Dxe3 37. Dxe3 - Hxg2+ 38. Khl - Bxe3 39. Ba4 - Bf4 og Lautier gafst upp. Beljavskí er með mistæk- ari stórmeisturum. Hann varð langneðstur í Linar- es í fyrra, en í ár tók hann forystuna í upphafi. En seinni helming móts- ins tefldi hann lakar og endaði um miðbik móts- ins. Fjórða umferð á Skákþingi Norður- landa hefst í kvöld kl. 16 á Hótel Loft- leiðum. SKAK Umsjón Margeir Pétursson ÞESSI staða kom upp á stórmótinu í Linares sem lauk fyrir helgina. Frakk- inn Joel Lautier (2.655) var með hvítt, en Alex- ander Beljavskí (2.650) frá Úkraínu hafði svart og átti leik. Hvítur lék síðast 34. Hfl-gl. BRIDS Umsjón Guðm. Páll Arnarson OPNUNARDOBL vesturs varðar leiðina að tólf slög- um í tígulslemmu suðurs. Suður gefur; NS á hættu. Norður ♦ D642 V D1098 ♦ ÁK6 ♦ 75 Suður ♦ Á53 V Á2 ♦ DG109743 ♦ Á Vestur Norður Austur Suður - - - 1 tígull Dobl Redobl 3 lauf Pass Pass 3 tíglar Pass 6 tíglar Pass Pass Pass Útspil: laufkóngur. Hvernig er best að spila? (Trompið fellur 2-1.) Sagnir benda til að hálita- kóngamir séu í vestur og ennfremur að vestur sé með lengd í báðum litunum. Reynist það rétt, er spilið borðleggjandi. Sagnhafi tek- ur tvisvar tígul, stingur lauf og spilar smáum spaða að drottningu blinds. Ef vestur hoppar upp með spaðakóng og spilar spaða, drepur sagn- hafí heima á ás, tekur hjarta- ás og spilar trompunum til enda. Ef vestur á fjóra spaða, lendir hann í kastþröng með spaðann og hjartakóng: Norður ♦ D642 V D1098 ♦ ÁK6 ♦ 75 Austur ♦ 107 iinii: r * G109432 Suður ♦ Á53 V Á2 ♦ DG109743 ♦ Á Vestur er engu betur sett- ur með því að drepa ekki á spaðakóng. Sagnhafi fær þá á drottningu blinds og spilar einfaldlega hjartaás og meira hjarta að drottningunni. (Hann hefur auðvitað geymt tígulþristinn sem innkomu á sexuna.) Vestur ♦ KG98 V K76 ♦ 52 ♦ KD86 VELVAKANDI Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags Tapað/fundið Gleraugu töpuðust LESGLERAUGU í ljósdröppuðu hulstri töpuðust 1. mars sl. á Seltjamarnesi eða í kringum Landspítalann. Finanndi vinsamlegast hafið samband í síma 611826. Eyrnalokkur tapaðist SILFURLITAÐU R eyrnalokkur með bláum steini tapaðist sl. þriðju- dag. Finnandi vinsam- legast hafíð samband í síma 10388. Gæludýr Læða fæst gefins 2JA ára gömul læða fæst gefins vegna flutninga. Læðan er eyrnamerkt, ljósbröndótt og er símas- blönduð. Kötturinn, sem er inniköttur, er þrifaleg- ur og góður. Uppl. fást í síma 15827. COSPER HÖGNIHREKKVÍSI Víkverii skrifar... VÍKVERJA varð heldur betur á í messunni fyrir nokkrum dög- um, þegar hann hélt því fram að þótt auglýsingar dömubindafram- leiðenda væru hvimleiðar og væmn- ar, hefðu auglýsendurnir ekki geng- ið jafnlangt í markaðssetningartil- raunum sínum, í innbyrðis auglýs- ingastríði sínu og hinir vösku augiýs- endur þvottaefna, sem hafa borið sýnishorn af vöru sinni í hús. Fjöl- margir hafa komið að máli við Vík- veija, bæði póstburðarmenn frá Pósti og síma og konur, jafnvel ungl- ingsstúlkur og leiðrétt þessi skrif Víkveija. XXX RÉTT er að koma því hér með á framfæri, að seljendur dömu- bindanna eru að sögn að minnsta kosti jafnharðir í markaðssetning- unni og þvottaefnisauglýsendurnir, því samkvæmt frásögnum póstburð- armannanna hafa þeir þurft að bera út til ákveðinna kvenna, unglings- stúlkna og ungra kvenna, sýnishorn af dömubindum, með reglulegu milli- bili. Víkveiji biðst forláts á fyrri skrifum sínum, en hann vissi einfald- lega ekki betur. IFYRRAKVÖLD sá Víkveiji hiuta þáttar Eiríks Jónssonar á Stöð tvö, þar sem hann ræddi við tvö vonsvikin ungmenni sem fyrr um daginn höfðu ætlað að þreyta inn- tökupróf í Leiklistarskóla íslands. Það var að vonum að ungmennin væru vonsvikin, því fallið var frá því að halda inntökuprófíð, vegna þess að kennarar í verkfalli töldu að próf- ið væri verkfallsbrot, þar sem einn kennari átti að eiga sæti í dómnefnd skólans um hveijir skyldu teknir inn í skólann. Ungmennin, Þorlákur Lúðvíksson og Ólafía Ása Jóhannes- dóttir, lýstu því að þrotlaus vinna í heilan mánuð við lærdóm og æfingar á þeim hlutverkum sem áttu að vera prófverkefni þeirra við inntökuprófið væri nú unnin fyrir gýg. Auðvitað getur maður ekki annað en fyllst samúð í garð þeirra og annarra þeirra sem vildu þreyta inntökupróf- ið en fengu ekki. xxx EITT var þó í ofangreindu spjalli Eiríks við ungmennin, þó sér- staklega við Þorlák, sem vakti ekki kátínu Víkveija, heldur vandlæt- ingu, en það var galgopaskapur hins unga verðandi leikara, er hann fjall- aði um virtasta og dáðasta leikrita- höfund allra tíma, William Sha- kespeare. Þorlákur, sem gjarnan vill kalla sig „Þorra landsmanna" sagði heldur kotroskinn þegar spyrill spurði hann um hvaða leikverk hann hefði valið sér, að hann hefði valið sér einræðu Ríkharðs III, sem spyr- illinn virtist ekki alveg átta sig á hver væri. Sagði þá Þorlákur að þetta væri úr leikriti eftir „Billy Shake“ sem væri svo „cool“. Satt best að segja finnst Víkveija sem þessi umgengnismáti við virtasta leikskáld allra tíma sé fyrir neðan allar hellur, ekki síst þegar til þess er litið, að ummælin koma úr munni ungs manns, sem sækist eftir því að gera það að lífsstarfi sínu að gera ævistarf hans og annarra leik- skálda lifandi og vonandi ódauðlegt. Shakespeare er ekki einvörðungu menningararfleifð Breta, hann er leikskáld alheimsins og á að njóta virðingar i samræmi við það. Getum við átt von á því að heyra unga leik- listarnema okkar tala um Nóbels- skáldið okkar sem „Dóra Lax“ eða um þjóðskáldið okkar sem „Jonna Hall“?

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.