Morgunblaðið - 26.04.1995, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 26.04.1995, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. APRÍL 1995 5 FRÉTTIR Yalgerð- ur for- maður VALGERÐUR Sverrisdóttir var kjörinn formaður þing- flokks Framsóknarflokksins í gær. Hún er fyrst kvenna til að gegna þessu embætti fyrir hönd flokksins. Valgerður tek- ur við embættinu af Finni Ing- ólfssyni sem tekið hefur við embætti iðnaðar- og við- skiptaráðherra. Ölafur Örn Haraldsson og Siv Friðleifsdóttir voru kjörin í stjórn þingflokks framsókn- armanna með Valgerði. Svavar formaður Svavar Gestsson var kjör- inn þingflokksformaður Al- þýðubandalagsins í gær. Kristinn H. Gunnarsson var kjörinn varaformaður og Bryndís Hlöðversdóttir ritari. Á síðasta kjörtímabili var Ragnar Arnalds formaður þingflokks Alþýðubandalags- ins. Mesta loft- vægi í fjögur ár LOFTVOGIR Veðurstofu ís- lands mældu rúmlega 1045 millibara loftvægi á íjórum stöðum á Norðurlandi og Vest- fjörðum í fyrradag. Er það mesta loftvægi sem mælst hefur hér á landi frá 15. apríl 1991. Þá stóð loftvog í 1050 millibörum, sem er mesti loft- þrýstingur sem mælst hefur á þessum árstíma á íslandi sam- kvæmt upplýsingum frá Veð- urstofu. Meðalloftþrýstingur er hæstur í maí og er 1014 mb fyrir Reykjavík svo dæmi séu tekin og er það fátítt að loft- vægi mælist yfir 1045 inb hér. Hæst hefur loftvog staðið 1058,5 mb; í janúarmánuði árið 1841. Samkvæmt upplýs- ingum Veðurstofu er hátt loft- vægi meira áberandi á vorin og seint á haustin. Við þannig aðstæður er minna um úrkomu og skýin sjaldséðari, nema þar sem vindur blæs af hafi. Loft- þrýstingurinn náði hámarki í gær og er hæðin sem um ræð- ir á undanhaldi. Æfingaskól- inn meistari SVEIT Æfingaskóla KHÍ varð íslandsmeistari grunnskóla- sveita í skák 1995. Sveitin mun veija Norðurlandameist- aratitil á Norðurlandamótinu sem fer fram í Danmörku í haust. Yfir 100 keppendur í 22 sveitum tókum þátt að þessu sinni. Sigursveitina skipuðu: Bragi Þorfinnsson, Björn Þor- finnsson, Davíð Ingimarsson, Óttar Norðijörð og Bjarni Kol- beinsson sem var varamaður. 2 ára fangelsi fyrir brot gegn tveimur telpum HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hefur dæmt 54 ára gamlan mann, Hrafnkel Egilsson, í 2 ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gagnvart tveimur telpum, 10 og 11 ára gömlum. Þá var hann dæmdur til að greiða 500 þúsund krónur í miskabætur til hvorr- ar telpunnar. Maðurinn er venslaður telpunum og framdi brot- in gagnvart þeim í nokkur skipti, síðast í septem- ber 1993, ýmist á heimili sínu eða í fyrirtæki föð- ur síns. Málið kom upp eftir að fullorðin kona tengd manninum sagði móður annarrar telpunnar að hann hefði misnotað sig kynferðislega á árum áður. Telpumar höfðu talsvert umgengist manninn og játuðu þegar mæður þeirra spurðu þær að maðurinn hefði leitað á þær og misnotað. Eftir lögreglurannsókn, sefn hófst að tilstuðlan bamavemdaryfirvalda, var maðurinn ákærður fyr- ir að hafa í allmörg skipti káfað og sleikt kyn- færi telpnanna og fyrir að hafa látið þær gæla við kynfæri sín. Maðurinn neitaði ávallt sakargiftum en telpurn- ar lýstu athöfnum mannsins í viðtölum við sálfræð- ing og fyrir dómi og taldi dómarinn þær frásagn- ir einkar trúverðugar. Þá bára mæður telpnanna og amma annarrar þeirra að eiginkona mannsins hefði eftir að málið kom upp sagt þeim í símtölum að maðurinn hefði játað fyrir sér að hafa káfað og þuklað á telpunum. Konan kannaðist hins vegar ekki við það fyrir dómi. Pétur Guðgeirsson, héraðsdómari, taldi sök mannsins sannaða með framburði telpnanna, sem m.a hafi borið að mestu saman um það atvik þegar báðar voru viðstaddar og þoldu samtímis kynferðisathafnir mannsins enda sé það mat sál- fræðings að þær geri greinarmun á réttu og röngu og séu viðbrögð þeirra og einkenni slík að skýrsl- ur þeirra séu líklegar. Var hann því sakfelldur fyrir brot á 1. mgr. 202. greinar almennra hegningarlaga þar sem lagt er allt að 14 ára fangelsi við samræði eða öðrum kynferðismökum við börn yngri en 14 ára. Refsing mannsins var talin hæfileg 2 ára fangelsi en auk þess var hann dæmdur til að greiða hvorri telpnanna 500 þúsund krónur í miskabætur, auk málskostnaðar og alls sakarkostnaðar. Hvar gerir þú betri bílakaup k A Reyrtsluaktu Bifreiðar & Landbúnaðarvélar hf. ÁRMÚLA 13 ■ SlMI 5 53 1 236 Verðið á Renault 19 RN árgerð 1995 er aðeins kr. 1195.000,- INNIFALIÐ: Hörkuskemmtileg og sparneytin 1400 vél, vökvastýri, rafdrifnar rúðuvindur, fjarstýrðar samlæsingar, fjarstýrt útvarp/segulband, styrktarbitar í hurðum, bílbeltastrekkjarar, samlitir stuðarar, málmlitur, ryðvörn, skráning .. Fallegurfjölskyldubíll á fínu verði. RENAULT RENNUR UT! Hagstæðustu bílakaup ársins!?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.