Morgunblaðið - 26.04.1995, Page 9

Morgunblaðið - 26.04.1995, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. APRÍL 1995 9 FRÉTTIR Nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda Morgunblaoio/Knstinn VERÐLAUNAHAFARNIR ásamt borgarsljóra. Frá vinstri: Ingibjörg Sólrún Gisladóttir borgar- stjóri, Haukur Elvar Hafsteinsson, Atli Þór Fanndal, Kristján Lindberg Björnsson, Anton Eyþór Rúnarsson, Þóra Óskarsdóttir og Halldór Falkvard Birgisson. Þau eru á aldrinum 9-12 ára og eru öll nemendur í Foldaskóla í Grafarvogi. Ungir hugvitsmenn verðlaunaðir UNGIR hugvitsmenn voru verðlaun- aðir í Ráðhúsi Reykjavíkur á sunnu- dag. Þá afhenti borgarstjóri, Ingi- björg Sólrún Gísladóttir, verðlaun í nýsköpunarkeppni grunnskólanem- enda. Nemendur úr 20 grunnskólum tóku þátt í keppninni. Tilgangurinn með keppninni, sem nú var haldin í fjórða skipti, er að efla hugvit barna. Foldaskóli í Graf- arvogi hefur verið í fararbroddi í slíku starfi og þar er nú fyrsti og eini nýsköpunarkennari landsins, Gísli Þorsteinsson, í hlutastarfi. Gísli hefur samið námsefni fyrir níu og tíu ára börn í nýsköpun. Niu ára nemendur í Foldaskóla fóru í vetur allir í gegnum verkefnið Frum- kvæði - sköpun og farið var af stað með tækninám fyrir 10 ára nemend- ur. Verðlaun voru veitt fyrir útlits- og formhönnun og fyrir uppfinningu og Tækniskóli Islands veitti sérstök tækniverðlaun. Þau fékk Kristján Lindberg Björnsson fyrir tæki til að leita að fólki í snjóflóðum. Gísli Þor- steinsson segir að þar flétti Kristján saman nokkra þekkta tæknilega þætti á sniðugan hátt. Sryóflóðaleitartæki í nýnæmikönnun Ekki var hægt að sýna uppfinn- ingu Kristjáns í Ráðhúsinu þar sem hún hefur verið send í nýnæmiskönn- un til Danmerkur. Gísli segir að tæk- ið hafí verið sýnt nokkrum mönnum hér heima og niðurstaðan orðið sú að þar væri merk uppfínning á ferð- inni. Því hafi tækið verið sent til Danmerkur tii að láta athuga hvort það hefði verið búið til áður. Reynist svo ekki vera gæti Kristján selt hug- myndina eða fengið einkaleyfi á henni. Meðal annarra verðlaunaðra upp- fínninga var kökuhnífur/-klemma sem Atli Þór Fanndal bjó til og af- henti hann borgarstjóra hana að gjöf á sunnudag. Við það tækifæri ávarp- aði Haukur Elvar Hafsteinsson, 10 ára, samkomuna, talaði um nýsköp- un og kynnti Félag ungra uppfinn- ingamanna, FUU. Ein hugmynd í framleiðslu Samtök iðnaðarins hafa ákveðið að taka eina hugmynd úr keppninni upp á sína arma og koma henni í framleiðslu. Gísli telur málningarföt- utrekt Halldórs Falkvards Birgisson- ar, sem fékk fyrstu verðlaun fyrir útlits- og formhönnun, eiga góða möguleika á að verða fyrir valinu. Þóra Óskarsdóttir fékk fyrstu verðlaun fyrir uppfinningu sína sem voru sérstakar vatns- og snjóhlífar á stígvél. Haukur Elvar Hafsteinsson fékk verðlaun fyrir baðbjöllu og An- ton Eyþór Rúnarsson fékk verðlaun fyrir skíðabakpoka. Morgunblaðið/Jón Svavarsson FRÁ ÚTHLUTUN úr Minningarsjóði Guðjóns Samúeissonar. Guðni Pálsson formaður Félags íslenskra arkítekta, Haraldur Helgason, Guðjón Friðriksson og Pétur H. Ármannsson. Fyrstu styrkir úr Minningarsjóði Efnisvinnsla á Austurlandi Arnarfell hf. með lægsta tilboð ARNARFELL hf. átti lægsta tilboð í efnisvinnslu á Austurlandi, en alls bárust Vegagerðinni sex tilboð í verkið. Tilboð Arnarfells hljóðaði upp á rúmlega 28,3 milljónir króna, en kostnaðaráætlun var tæplega 46,8 milljónir. Næstlægsta tilboðið var frá Myll- unni hf., sem bauð tæplega 38,1 milljón króna. Borgarverk bauð rúm- lega 39,3 milljónir, Jarðverk hf. bauð rúmlega 43,9 milljónir, Tak hf. bauð rúmlega 49,7 milljónir og hæsta til- boðið áttu Fossvélar hf., sem buðu rúmlega 58,2 milljónir króna í verkið. ----------1 ♦ «---- Loftpressa ofhitnaði SLÖKKVILIÐIÐ í Reykjavík var síð- degis á mánudag kallað að Lyfja- verslun íslands í Borgartúni en þar hafði viðvörunarkerfi farið í gang. í ljós kom að loftpressa í loftræsti- herbergi hafði ofhitnað og frá henni lagði reyk. Við það fór viðvörunar- kerfi í gang. Slökkviliðsmenn reykræstu húsið með innanhússviftum. FYRSTU styrkir voru veittir úr Minningarsjóði Guðjóns Saniúels- sonar á sumardaginn fyrsta en sjóðurinn var stofnaður árið 1990. Þrír styrkir voru veittir úr sjóðnum en auglýst var eftir um- sóknum. Haraldur Helgason fékk 100 þúsund króna styrk til að afla gagna og skrá gögn arkítektafé- laganna á íslandi. Guðjón Frið- riksson fékk 100 þúsund króna styrk til að vinna áfram að gerð bóka um gömlu hverfin í Reykja- vík og aðra gamla bæi og þorp. Þá fékk byggingarlistardeild Listasafns Reylqavíkur á Kjarv- alsstöðum 50 þúsund króna styrk til að eignast módel af húsi eftir Högnu Sigurðardóttir í Garðabæ. Minningarsjóðurinn var stofn- aður í samræmi við erfðaskrá Guðjóns Samúelssonar. Guðjón var mikilvirkasti íslenski arkítekt- inn á starfsferli sínum en hann teiknaði meðal annars Þjóðleik- húsið, Háskóla Islands, Landspít- alann auk skóla, kirkna og emb- ættisbústaða víða um land. Aðstoðaryfirlögregluþjónn í Reykjavík 28 umsækjendur 28 UMSÓKNIR hafa borist lög- reglustjóranum í Reykjavík um stöðu aðstoðaryfirlögregluþjóns við umferðardeild en Magnús Ein- arsson, sem gegndi starfinu hefur tekið við stöðu yfirlögregluþjóns í Kópavogi. Umsækjendur eru: Árni Vigfús- son, aðaívarðstjóri, Baldvin Ottós- son, aðalvarðstjóri, Benedikt Lund, varðstjóri, Bertram Möller, varðstjóri, Bjarnþór Aðalsteins- son, rannsóknarlögreglumaður, Eiríkur Beck, rannsóknarlögreglu- maður, Geiijón Þórisson, aðalvarð- stjóri, Gylfí Jónsson, lögreglufull- trúi, Gunnlaugur K. Jónsson, rannsóknarlögreglumaður, Hilmar Þorbjörnsson, aðstoðaryfirlög- regluþjónn, Hjálmar Björgvinsson, aðstoðarvarðstjóri, Jakob S. Þór- arinsson, varðstjóri, Jóhann Dav- íðsson, flokksstjóri, Jón Fr. Bjartmarz, flokksstjóri, Jón Th. Friðþjófsson, flokksstjóri, Júlíus Óli Einarsson, flokkstjóri, Karl Steinar Valsson, flokksstjóri, Ómar Gaukur Jónsson, rannsókn- arlögreglumaður, Rúdólf Axels- son, aðalvarðstjóri, Rúnar Sig- urðsson rannsóknarlögreglumað- ur, Sigurður Benjamínsson, rann- sóknarlögreglumaður, Sigurður Sigurgeirsson, varðstjóri, Sigur- geir Arnþórsson, aðstoðarvarð- stjóri, Skarphéðinn Njálsson, varð- stjóri, Sævar Ingi Jónsson, lög- reglumaður, Sævar Stefánsson rannsóknarlögreglumaður, Viðar Waage, varðstjóri, Þröstur Ey- vinds, lögreglufulltrúi. Dómsmálaráðherra veitir stöð- una að fengnum tillögum lögreglu- stjóra. SIJMAliTILBOl) 30% afsláttur af fataefnum, gardínuefnum og fatnaði þriðjud. 25/4 til laugard. 29/4. Ath. nýjar vörur. Vefta / Hólagarði, Lóuhólum 2-6, sími 72010. DRAGTIR Ný sending frá KS KÍLL Skólavörðustíg 4A Sími 13069 // // lk VITI j&l.AND Nú er hlátur nýyakirm Islenskur kveöskapur í tali og tónum föstudaginn 5. maí. Landsþekktir hagyrbingar og skemmtikraftar. Vísnakveöskapur, gamanvísur, eftirhermur, kjaftasögur og lygasögur. Þeir munu syngja og kveða við undirleik Geirmundar Valtýssonar og Hauks Heiðars Ingólfssonar 'Flosi Olafsson #** Hákon Adalstciiissoii *** Ómur Ragnarsson *** Jólianncs Beiijaiiiínsson *** og Jónas Arnason scni jafnfraint er lieidnrsgcstnr Þaí> verbur hlegií>; sungih og dansah Hljómsveit Geirnnuular Valtýssonar lciknr fyrir ilansi til kl. (ki. Matseðill lijónniló^uó kónxasvepiHisiíiHi l.anihalnielustcik nied ilijon sinnei>ssósu Ferskir ávexlir i sykurkörfii med ískrenii verð kr. 3.900 með mat. kr. 2.000 á skemmtun og kr. BOO á áansleik að lokinni skemmtun. Borðapantanir í síma 568 7111 milli kl. 13 og 17 Eitt blab fyrir alla! ÍJiilMTwffllyÍEfMllj! ■ kjarni ntálsins!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.