Morgunblaðið - 26.04.1995, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 26.04.1995, Qupperneq 14
14 MIÐVIKUDAGUR 26. APRÍL 1995 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR: EVRÓPA ERLEIMT Noregur og ESB semja um tollfrjálsan innflutningskvóta á sjávarafurðum Fundi Islands og ESB um tollamál frestað NOREGUR og Evrópusambanclið hafa náð bráðabirgðasamkomulagi um tollftjálsan inriflutningskvóta fyrir norskar fiskafurðir, sem auka- tollur lagðist á við inngöngu þriggja EFTA-ríkja í ESB um síðustu ára- mót. Viðræðufundi Íslands og ESB um tollamál, sem halda átti síðastlið- inn föstudag í Brussel, var frestað þar til niðurstaða lægi fyrir í samn- ingum Noregs við sambandið. Samningur Noregs og ESB á enn eftir að hljóta staðfestingu aðildar- ríkja ESB og norska Stórþingsins, en ekki er búizt við að neinar hiridr- anir verði þar í veginum. Nær til 32 fisktegunda Vegna þess að samningurinn hef- ur ekki verið kynntur fyrir öllum aðildarríkjum, hefur ekki verið upp- lýst hvað innflutningskvóti Norð- manna er nákvæmlega stór, en hann nær til 32 fisktegunda. Norðmenn höfðu gert kröfu um 17.730 tonn, sem er tala byggð á tollfijálsum inn- flutningi Noregs til Austurríkis, Sví- þjóðar og Finnlands á síðasta ári. Fríverzlun með fisk gilti í EFTA, en þegar þessi þijú ríki gengu í ESB um áramót, lögðust nýir tollar á inn- flutning Norðmanna. Ljóst er að Norðmenn fengu ekki ýtrustu kröfur sínar uppfylltar, en Eivinn Berg, sendiherra Noregs í Brussel, sagði þó í.samtali við Reut- ers-fréttastofuna að samkomulagið væri „viðunandi". Kvótinn, sem Norðmenn fengu, mun vera byggður á meðaltali inn- flutnings norskra afurða til ríkjanna þriggja á árabilinu 1992-1994. Niðurstöðu í samningum Noregs beðið ísland hefur gert kröfur á hendur ESB um tollfijálsan innflutningsk- vóta, með sömu rökum og Noregur, þ.e. að tollar á íslenzkum afurðum hafí hækkað með inngöngu EFTA- ríkja í ESB. Þar er einkum um að ræða saltsfld, sem flutt er tii Svíþjóð- ar og Finnlands, en einnig lambakjöt og íslenzka hesta á fæti. Á seinasta ári var andvirði saltsíldarútflutnings- ins á fjórða hundrað milljóna króna. Viðræðufundur íslands og ESB um tollamálin var áformaður í lok síðustu viku í Brussel. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins var fund- inum frestað, þar sem islenzk stjóm- völd vildu sjá hvemig samningum við Noreg reiddi af. Nú má búast við að samningsnið- urstaða Norðmanna verði skoðuð rækilega í utanríkisráðuneytinu og síðan boðað til fundar með Evrópu- sambandinu að nýju í næsta mánuði. Frestur ESA vegna einkaleyfis á áfengisinnflutningi runninn út Olíklegt að áfengislöggjöf verði breytt SEX vikna frestur, sem Eftirlits- stofnun EFTA (ESA), gaf íslenskum stjórnvöldum til að afnema einka- leyfi á áfengisinnflutningi, rann út fyrir nokkru. Ætlaði stofnunin að taka ákvörðun að þeim tíma loknum um hvort að íslendingar yrðu kærð- ir til EFTA-dómstólsins vegna máls- ins. Ríkisstjórnin ræddi á fyrsta fundi sínum í gær um þau mál, sem snúa að Eftirlitsstofnun EFTÁ. Ákveðið hefur verið að verða við kröfum stofnunarinnar og afnema aukagjald á innfluttan bjór frá og með 1. maí næstkomandi og er þá búizt við nokkurri verðlækkun á innfluttum bjórtegundum. Á ríkisstjórnarfundinum var jafn- framt rætt um kröfur ESA um af- nám einkaréttar Áfengis- og tóbaks- verzlunarinnar á einkarétti til inn- flutnings og heildsölu áfengis. Frumvörp um slíkar breytingar náðu ekki fram að ganga á seinasta Al- þingi. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins er ekki víst að frum- vörpin verði lögð fram að nýju á vorþinginu, sem standa mun í u.þ.b. 10 daga, frá 15. maí næstkomandi. Mun það vera mat manna að svo mikil andstaða sé við málið á þingi, að tíu daga þing nægi tæplega til að afgreiða það. Búizt er við að stjórnarandstaðan — og jafnvel ein- hveijir stjórnarþingmenn einnig — muni halda uppi málþófi, verði reynt að koma málinu í gegn. Hjá ESA í Brussel fengust þær upplýsingar í gær að málið væri í skoðun og að stofnunin hefði ákveð- ið að bíða eftir afstöðu nýrrar ríkis- stjórnar, áður en ákvörðun yrði tek- in um kæru til EFTA-dómstólsins. Sagði talsmaður ESA að verið væri að hafa samband við ríkisstjórn ís- lands og fjármálaráðuneytið vegna málsins. Réttur samkynhneigðra til að gegna herjijóiiustu í Bretlandi Herforingjar vilja viðhalda banninu London. Reuter. BRESKU stjórnmálafiokkarnir og yfirmenn hersins eru að búa sig undir átök um það hvort núgild- andi bann við herþjónustu samkyn- hneigðra skuli standa áfram. Hefur Verkamannaflokkurinn heitið að nema það úr gildi komist hann til valda en Malcolm Rifkind, varnar- málaráðherra íhaldsflokksins, og yfirmenn í hernum ætla að beijast fyrir óbreyttu ástandi með öllum ráðum. Samkynhneigðir taka einnig þátt í baráttunni og þeir hafa hótað að svipta hulunni af meintri samkyn- hneigð sumra yfirmanna í hernum eins og þeir hafa gert gagnvart sumum prestum og stjórnmála- mönnum. í reglum breska vamar- málaráðuneytisins segir, að óviðun- andi sé, að samkynhneigt fólk, kariar og konur, gegni herþjónustu. Það geti valdið árekstrum, ýtt und- ir agaleysi og skaðað liðsandann. Á árunum 1991 til ’94 voru 260 menn og konur látin víkja úr hem- um af þessum sökum. Áströlsk fyrirmynd David Clark, talsmaður Verka- mannaflokksins í vamarmálum, segir, að komist flokkurinn til valda verði þessu breytt innan mánaðar og hann nefnir sérstaklega Ástralíu sem fyrirmynd en þar gegna sam- kynhneigðir einstaklingar herþjón- ustu en kynmök milli þeirra eru bönnuð. Svipuð andstaða og í Bandaríkjunum Þessi mál eru afar viðkvæm og Clark viðurkenndi, að þau gætu snúist í höndum hans eins og var með Bill Clinton, forseta Bandaríkj- anna. Hann gafst upp við að af- nema sams konar bann vegna mik- illar andstöðu í Pentagon, banda- ríska hermálaráðuneytinu. Raunar er nú farið framhjá banninu með þegjandi samkomulagi um að spyija einskis gegn því að samkyn- hneigðir einstaklingar opinberi ekki tilfinningar sínar. Glenn Miller slær í gegn TÓNLIST bandaríska hljómsveitar- stjórans Glenns Millers rýkur nú upp sölulista í Bretlandi, fimmtíu árum eftir dauða hans. Tónlistin er óijúfanlega tengd heims- styijöldinni síðari og er ástæða söluaukningarinnar hátíðahöld í næsta mánuði í tilefni þess að fimmtíu ár eru frá stríðslokum. Marcos ætlar sérsigur IMELDA Marcos, fyrrverandi for- setafrú á Filippseyjum, sagði í gær að hún myndi leggja mál sitt í dóm þjóðarinnar en kjörstjórn hafnaði á mánudag framboði hennar í þing- kosningum sem fram fara í næsta mánuði. Marcos áfrýjaði úrskurðin- um og svo lengi sem ekki hefur verið skorið úr málinu, getur hún boðið sig fram. Hún kveðst munu bera sigur úr býtum með einhveij- um ráðum. Glenn Miller Reuter Plútonsmygl á síðasta ári frá Moskvu Þjóðverjar sakaðir um sviðsetningn Bonn. Reuter. RÚSSNESKA orkuráðuneytið ít- rekaði á sunnudag fyrri fullyrðingar um, að þýska leyniþjónustan hefði sett á svið plútonsmygl til að klekkja á rússneskum stjómvöldum. Fannst plútonið um borð í flugvél, sem kom til Miinchenar frá Moskvu á síðasta ári. Georgíj Kaurov, talsmaður orku- ráðuneytisins, sagði, að plútoninu, 363 grömmum, hefði verið komið fyrir í flugvélinni til að svo liti út sem Rússar gætu ekki gætt plúton- birgða sinna og hann skoraði á þýsku stjórnina að Ieyfa rússnesk- um sérfræðingum að rannsaka plút- onið til að komast að uppruna þess. Rannsóknar krafist Bemd Schmidtbauer, þýskur embættismaður, sem fer með mál- efni ieyniþjónustunnar, neitaði þessum ásökunum en þær komu fyrst fram í þýska vikuritinu Der Spiegel fyrr í mánuðinum. Stjórnar- andstaðan í Þýskalandi ætlar hins vegar að krefjast nákvæmrar rann- sóknar á málinu og það getur varp- að skugga á samskipti Rússa og nánustu bandamanna þeirra á Vest- urlöndum, Þjóðverja, aðeins hálfum mánuði áður en Helmut Kohl kansl- ari fer til fundar við Borís Jeltsín, forseta Rússlands, í Moskvu. Ásakanir Rússa komu í kjölfar þess, að saksóknarar í Munchen viðurkenndu, að þeir hefðu vitað fyrirfram, að smygla ætti plútoni með flugvélinni til Þýskalands án þess hafa reynt að koma í veg fyr- ir það. Peter Stmck, einn þingmaður jafnaðarmanna, segir, að leyniþjón- ustunni hafi orðið á meiriháttarmis- tök hvort sem hún hafi sett smygl- ið á svið eða ekki því að samkvæmt samningum hefði hún átt að láta rússnesk yfirvöld vita strax. Mótmæla flutningi úr- gangsefna HÉRAÐSSTJÓRI Aomori í norð- urhluta Japans neitaði í gærmorg- un breska skipinu Pacific Pintail um leyfi til að leggjast að bryggju vegna þess að það var með 14 tonn af geislavirkum úrgangi um borð. Hann aflétti banninu um kvöldið eftir að sljórnvöld í Tókýó höfðu fullvissað hann um að úr- gangurinn yrði ekki grafinn í hér- aðinu til frambúðar. Andstæðing- ur kjarnorku fögnuðu hins vegar nijög en þeir hafa mótmælt flutn- ingunum ákaft, jafnt í Japan sem í Evrópu. Margir gagnrýndu þó hart að Kimura skyldi síðan láta undan síga. „Við erum bálreið," sagði talsmaður Greenpeace-sam- takanna. 46 Igarnorkuver eru í Japan. Japanar hafa sent notað eldsneyti úr kjarnorkuverum sín- um til endurvinnslu í Frakklandi en þar er unnið plúton úr efninu. Fyrirhugað er að senda alls 7.100 tonn af eldsneyti til Evrópu til endurvinnslu næstu árin þar sem unnin verða úr því 30 tonn af plú- toni. ' i ( 1 l; t ' í ! L I I ! I I ! I I

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.