Morgunblaðið - 26.04.1995, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 26.04.1995, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR MIÐVIKUDAGUR 26. APRÍL 1995 17 Sápaá sumar- kvöldum KAFFILEIKHÚ SIÐ hefur ákveðið að brydda upp á þeirri nýjung að standa fyrir síð- kvöldssýningu á Sápu tvö nú þegar sumarið er gengið í garð. Næstkomandi föstudagskvöld, 28. apríl, verður fyrsta sýning- in og hefst hún kl. 22.30. Hús- ið er opnað kl. 20 og verður, sem fyrr, boðið upp á ljúffeng- an kvöldverð úr eldhúsi Stein- unnar Bergþórsdóttur, fyrir sýningu. Laugardaginn 29. apríl verður einnig sýning á Sápu tvö en hún hefst á venju- legum tíma kl. 21. Það er von aðstandenda að þessi nýjung falli í góðan jarð- veg. Fram á sumar verða síð- kvöldssýningar einu sinni í viku, þær næstu fostudaginn 5. maí og laugardaginn 13. maí. Leik- stjóri grínleiksins er Sigríður Margrét Guðmundsdóttir. Fyrirlestrar Vís- indafélagsins Heiður og hefnd SJÖTTI fundur Vísindafélags íslendinga á þessu starfsári verður haldinn í Norræna hús- inu í kvöld og hefst kl. 20.30. Helgi Þorláksson sagnfræð- ingur flytur erindi sem hann nefnir Heiður og hefnd. Fyrirlesari mun ræða um íslendingasögur sem heimildir um samfélag fæðardeilna og blóðhefndar. Sú skoðun ryður sér til rúms að sögurnar eigi að geta verið fullgildar heim- ildir um félagslega skipan, ákveðin kerfi og ríkjandi við- horf á 12. og 13. öld. Megin- spurning er hvort þekking á viðhorfum til heiðurs og hefnd- ar í öðrum samfélögum fæðar- deilna og blóðhefndar geti skerpt skilning okkar á lýsing- um Islendingasagna, og ann- arra fornsagna, á sama efni, segir í fréttatilkynningu. Aðgangur að fundum Vís- indafélagsins er ókeypis og öllum heimill. Kaffistofa Nor- ræna hússins verður opin fundarmönnum að loknum fyr- irlestri. Skólaári Tón- listarskóla Rangæinga að ljúka FRÁ Tónlistarskóla Rangæ- inga hafa 75 nemendur lokið stigsprófum á ýmis hljóðfæri og í einsöng og fyrsti nemand- inn hefur lokið 8. stigi frá skólanum, en það er Anna Magnúsdóttir sem því lauk á píanó með tónleikum sem hún hélt í sal skólans 10. apríl síð- astliðinn. Einnig lauk einn nemandi 6. stigi á píanó og sjö nemendur luku 5. stigi, þrír á píanó, þrír í söng og einn á þverflautu. Vortónleikar Tónlistarskól- ans verða haldnir á Heima- landi 26. apríl og í Grunnskól- anum á Hellu 27. apríl og hefj- ast á báðum stöðum kl. 21. Þar verður boðið upp á fjöl- breytta dagskrá og munu margir, bæði yngri og eldri nemendur skólans, sýna af- rakstur vetrarins. Skólaslit og einkunnaafhending verða í Hvoli 1. maí kl. 15 og munu nemendur einnig sýna leikni sína þar. TÓNLIST íslcnska ðpcran EINSÖNGSTÓNLEIKAR Verk eftir Britten, Purcell, Hándel, Bizet, Gounod, Mahler, Webem, Somers og Floyd. Valdine Anderson sópran, Steinunn Bima Ragnarsdótt- ir, pianó. Laugardaginn 22. apríl. GÓÐAN gest bar að garði sl. laugardag, þegar vestur-íslenzka óperusöngkonan Valdine Anderson hélt tónleika ásamt Steinunni Birnu Ragnarsdóttur píanóleikara. Skv. upplýsingum séra Braga Friðriks- sonar í tónleikaskrá hefur móðir söngkonunnar, frú Helga Ander- son, unnið mikið að tónlistarmálum í Manitoba og tvívegis komið með söngkóra til Islands, og dvöl þeirra mæðgna á landinu nú mun að til- hlutan nefndar á vegum utanríkis- ráðuneytisins til að efla samskipti íslendinga hér heima og vestan hafs. Valdine Anderson býr nú í Frankfurt og virðist, eftir fyrrget- inni heimild að dæma, vera að skapa sér starfsferil í Mið-Evrópu. Hin fjölbreytta efnisskrá sýndi vel þróaða tækni söngkonunnar, er spannaði allt frá barokkóperu að framsæknum nútíma, að Vínar- klassík slepptri. Röddin var einkar liðug, enda stóð heiti fyrsta lags, Let the floríd music praise eftir Britten, sem nokkurs konar mottó fyrir afganginn. Þegar í þrem ar- íum úr óperu Hándels, Alceste, komu fram haldgóð tök bæði á leik- rænu sönglesi og mishröðum kólór- atúr, þar sem spengileg söngkonan gat stigbreytt víbratóinu að vild, ekki sízt á löngum tónum. Sú í raun sjálfsagða litunaraðferð mætti heyrast oftar hér á landr. í Alceste- aríunum gat einnig að heyra alvöru trillur, sem eru jafnel enn sjaldgæf- ari. Inntónun var víðast hvar mjög góð, og hæðin sömuleiðis, þó svo að röddin virtist færast nokkuð úr fókus á efstu tónum. Nú spyr sá er betur vildi vita: Er það trölla- saga alþýðu, að bústinn líkams- vöxtur hjálpi upp á í þeim efnum, eða hvers vegna virðast svo margar þéttholda söngkonur hafa þéttari rödd í hæðinni en tággrannar? Svo maður sleppi alræmdri athugasemd Toscaninis um fuglasöng og úlfa- þyt. Af Bizet-lögunum komu bezt út Adieu de I’dtesse Arabe, spænsku- legt lag þar sem Steinunn Birna skilaði vikivakakenndri hrynjand- inni af röggsamri natni, og hið sömuleiðis suðrænt hljómandi Ouvre ton cæur. Hið vel þekkta lag Gounods, Je veux vivre úr Rómeó og Júlíu var einnig dável flutt. Sótti píanóið nú í sig veðrið eftir fremur daufan undirleik, einkum í Hándel. Eftir hlé birtust sterkustu hliðar Valdine Anderson, þegar nútíminn knúði dyra eftir annars prýðilega túlkun á fjórum lögum eftir Ma- hler, þar sem söngkonan sýndi einkum góða tilfínningu fyrir þjóð- laga- og barnagæluþáttunum í tón- listinni. Hin „ósönghæfu“ örljóð Antons Webern Op. 25 í punktastíl með risastökkum milli lofts og kjallara reyndust eftir allt saman ágætlega sönghæf, og Steinunn Birna vék sér undan mýmörgum fallgryfjum raðtækniritháttarins með að virtist lítilli fyrirhöfn. Trompið var þó án efa hin heillandi útlegging kanadíska tónskáldsins H. Somers á þjóðarfugli landsins, Loon (Lómur), þar sem seiðandi víðátta kanadískra öræfa vaknaði eftirminnilega, m.a. með einhverri áhrifamestu beitingu á endurómi opinna píanóstrengja af söng sem undirritaður minnist að hafa heyrt í nýrri tónlist. Söngkonan flutti verkið, sem og síðasta lagið á prentaðri dagskrá, hið elegísk- dramatíska Ain’t it a Pretty Night eftir C. Floyd, af einstakri innlifun. Uppskáru þær stöllur verðskuldað lof í lófa, og ekki versnuðu undir- tektir við aukalagið, Draumalandið, sem sungið var á ástkæra ylhýra málinu. Valdine Anderson kom vel fyrir með góðum söng og ekki síður með skemmtilegum kynningum á lögun- um. Hafi hún þökk fyrir komuna með ósk um velfarnað í starfi syðra. Vonandi ratar hún hingað aftur. Ríkarður Ö. Pálsson - kjarni málsins! Morgunblaðið/Pétur Kristjánsson Aldamótaelexír Seyðisfirði. Morgunblaðið. ÆFINGAR standa nú yfir hjá Leik- félagi Seyðisfjarðar á nýju leikverki eftir systurnar Iðunni og Kristínu Steinsdætur. Leikritið er samið að beiðni Leikfélags Seyðisfjarðar í til- efni af 100 ára afmæli kaupstaðar- ins í ár. Iðunn og Kristín eru sjálf- ar Seyðfirðingar og þekkja því vel til mála, en ljóst er af verkinu að þær hafa lagt mikla vinnu í rann- sóknir. Verkið hefur hlotið nafnið „Aldamótaelexír" og er ætlað að bregða upp mannlífsmyndum og andrúmslofti fyrir aldamótin síð- ustu. Umfjöllunin er bæði gaman- söm og alvörugefin og þó nokkuð um söng. Notuð er tónlist frá því fyrir aldamót sem þær systur hafa samið texta við. Þriggja manna hljómsveit sér um tónlistarflutning- inn. Leikstjórinn, Ingibjörg Björns- dóttir, kölluð Ibbý, hefur töluverða reynslu í leikhúsi. Aðspurð um feril sinn segir hún: „Mér fmnst í raun og veru ekki máli skipta hvað hver gerir í leikhúsi, mér finnst allt jafn mikilvægt.“ Sjálf er hún lærður leikari og hefur unnið flest þau störf sem fyrir koma í leikhúsi. Þetta er þriðja verkið sem hún leikstýrir utan þéttbýlisins á Suðvesturlandi og annað verkið eftir Iðunni og Krist- ínu. „Mér finnst ofsalega gaman að vinna úti á landi, en það getur líka verið erfitt. Það er svo margt sem þarf að taka tillit til. Fólk er náttúrlega í vinnu og fólk er fjöl- skyldufólk. Ég hef reynt að stilla æfingum þannig að fólk hafi eitt- hvert frí á kvöldin og um helgar. En þegar lokin nálgast fer að herða róðurinn." Á fjórða tug manna tekur þátt í uppsetningu verksins, þar af eru á sviði 17 fullorðnir leikarar og tíu börn. Frumsýning verðuru 29. apríl næstkomandi. Island gegn alnæmi „Við minnumst þeirra“ á Vopnafirði UOSMYNDASYNINGIN Við minnumst þeirra, sem sett var upp á Kaffihúsinu Mokka í síðasta mán- uði, er nú á leið til Vopnafjarðar og verður á Hótel Tanga frá 27. apríl til 4. maí. I fréttatilkynningu segir: „Sýn- ingin sem er minning um þá 27 íslendinga sem látist hafa úr al- næmi var unnin í tengslum við sjóð- inn ísland gegn alnæmi, sem var nýlega settur á laggirnar og mun beita sér fyrir fjársöfnun til að styðja við bakið á forvarnarstarfi og stuðn- ingi við smitaða einstaklinga. Sýn- ingin samanstendur af 27 táknræn- um myndum eftir Sólrúnu Jónsdótt- ur ljósmyndara, einni fyrir hvem einstakling sem sjúkdómurinn hefur lagt að velli hérlendis. Sólrún, sem er menntuð í Bandaríkjunum og Frakklandi, hefur starfað sem ljós- myndari til margra ára bæði hér heima og erlendis.“ Hrlii iii) bygfija? Villu lirtyla ? harflu iul liiria'? 25% afsláttnr af öllnm vörnm í 4 daga Midvikudag - fimmtudag - föstudag og laugardag stiik teppi - áliiilil - verkíæri - grasteppi - veggíóiliir - veggfóilursbiirðar í miklii órvali jjll fslcnsk Biálnfig Jmá/n/ngh/f ■ það segir sig sjálft - fsíöfrT) Sllppfélagia Málnlngarverk zmiöja Líttu inn í Litaver því það hefur ávallt borgað sig Opið laugardag frá kl. 10-16 VISA* ELITAöm ttaðQrciðslui Grensásvegi 18 Sími 581 2444

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.