Morgunblaðið - 26.04.1995, Síða 22
22 MIÐVIKUDAGUR 26. APRÍL 1995
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
Vittu til, kærleiks-
vorið kemur
BRÁÐUM kemur
vorið með öllu því góða
sem því fylgir og
kannski er það nú þeg-
ar sumsstaðar komið,
bara að heyra eða
minnast sjálfur á vorið
lyftir okkur langt upp
og við öndum léttar við
sjúgum að okkur þenn-
an yndislega ilm sem
fylgir vorinu, öll nátt-
úran fer í gang á vorin
og þar með ýmsir hlut-
ar okkar eigin líkama
og sálar. Það er ekkert
langt síðan ég tók eftir
þessu hjá mér sjálfum
svo ég ætla að biðja
þig, ef þú hefur ekki tekið eftir
þessu, að hlusta eftir hljóðum og
tilfinningum þínum þegar vorið
vaknar eftir örfáa daga, þetta er
stórkQstlegt, yndislegt og gerist í
svo víðtækum skilningi bara ef við
viljum hleypa því inn til okkar.
Vorið, kærleikurinn, fegurðin og
ástin eiga margt sameiginlegt.
Hvaða núlifandi maður man ekki
eftir vorinu í Prag 1968 og öllum
þeim yndislegu tilfínningum sem það
vakti í hjörtum fólksins í Tékkósló-
vakíu, þó að veturinn kæmi þar aft-
ur alltof fljótt skildi vorið eftir það
sterkar rætur að það hlaut að vera
stutt í það aftur, fólkið hafði ákveð-
ið að svo skildi verða. Nú má engin
misskilja mig með að breitt stjóm-
arfar í Tékkóslóvakíu hafi leyst allan
vanda fólksins þar, það sem ég er
að segja er, það þarf alltaf að vera
vor í hjörtum okkar, þá gleymist
allur ótti og aðeins verður til ást og
fegurð. Það er nefnilega svo einfalt
að það er hægt að sigra alla erfíð-
leika með kærleikann og vináttuna
eina að vopni.
Við sem erum komin
á miðjan aldur og ól-
umst upp á miklum
uppgangstímum á ís-
landi verðum að viður-
kenna að mörg okkar
tíndum sjálfum okkur
í öllum látunum, ég er
einn af þeim, verðskyn
okkar glataðist í verð-
bólgunni, i þrotlausri
vinnu og peningum,
sem nóg var af, rækt-
uðum við græðgina
þannig að hún varð að
sjálfsögðum hlut og
raunar ein helsta for-
sendan fyrir því að við
næðum settu marki, ég
er að tala um þá skefjalausu sam-
keppni á öllum sviðum sem okkar
kynslóð hefur tamið sér sem lausn-
arorð allra hluta, ég á mjög erfitt
með að sjá að vorið felist í henni,
að baki þeirri skoðun minni liggur
Kærleikurinn og fegurð
vorsins verði leið ykkar,
segir Jóhannes Bene-
diktsson, í meðfylgj-
andi vorhugleiðingu.
sú einfalda staðreynd samkeppn-
innar að sá vinni sem verður ofaná
í keppninni, hver sem sú samkeppni
er. Er ekki kominn tími til að sá
sem verður að sætta sig við að tapa
verði metinn að verðleikum, mér
finnst það að minnsta kosti. Ég er
ekki að tala um að við eigum að
nota óheiðarlegar aðferðir, síður en
svo, því þá fyrst erum við komin út
á hálan ís. Nei, ég er að tala um
það að enginn er æðri öðrum og
að allir eiga sama rétt til lífsins á
meðan það brýtur ekki á öðrum,
það er grundvallaratriði. Ég álít
vorið vera fólgið í því að ég og þú
förum í auknu mæli að meta hvort
annað að verðleikum, algjörlega
burt séð frá því hvar við stöndum
í svokölluðum efnisgæðastiga.
Einu sinni átti ég í deilum við
vin minn og keppinaut um efnis-
lega hluti og fannst hann beita
mig ranglæti, þar sem ég var í
verri aðstöðu en hann gat ég ekki,
þó ég hefði viljað, beitt aflsmunar,
ég bað hann að koma með mér í
bíltúr og ég ók með hann að næsta
kirkjugarði og spurði, hvort heldur
þú að hér séu jarðaðir þeir sem
höfðu betur í samkeppninni og
unnu eða hinir sem töpuðu? Hvað
meinarðu? sagði hann, auðvitað
báðir. Við gerðum út um þetta
deilumál okkar þarna á staðnum
og hann hefur oft þakkað mér fyr-
ir þetta uppátæki mitt.
Nú þegar Alþingiskosningum er
lokið með öllu því brauki og bramli
sem þeim fylgir er nauðsynlegt að
við aðgætum hvort líkamsklukkan
okkar er rétt, þ.e. afstaða okkar til
okkar sjálfra og umhverfisins, alveg
burt séð frá því hvaða frambjóðend-
ur við studdum eða hvort við vorum
bara heima og tókum ekki þátt.
Að mínu mati hefur þingræðið ver-
ið nauðsynlegt og í rauninni það
besta sem þekkt er fyrir það þroska-
stig mannsins sem við höfum verið
á og ég hef alltaf hvatt fólk til að
taka afstöðu, hver sem hún er, því
hún er rétt. Ég er aftur á móti
samfærður um að ýmislegt annað
yndislegi-a og réttlátara bíður okkar
í framtíðinni, því er okkur nauðsyn-
legt, ekki síður í pólitík en öðru,
að halda áfram að þroska okkur
að því marki sem bíður okkar. Eft-
ir því sem við erum jákvæðari og
móttækilegri fyrir það góða verðum
við betur undirbúin. í þessu sam-
bandi leyfi ég mér að minna á
stjórnkerfi indiána, þar sem allt
byggðist á að því að ávinna sér
virðingu og að taka fullt tillit til
náttúrunnar, þar sem maðurinn
væri til fyrir hana en ekki hún fyr-
ir hann. Hjá þeim skiptu efnisleg
gæði engu í þessu sambandi.
Já, lesandi góður, svona er nú
það, kannski ert þú ekki sammála
mér, það gerir þá ekkert til, en ef
þú ert það bið ég þig að njóta þess
að láta vorið flæða inn í hjarta þitt.
Ég vil enda þetta hugarflæði
mitt á ljóði sem segir svo ótrúlega
margt af því sem segja þarf. Ljóðið
er eftir eitt af þjóðskáldunum okk-
ar, Jóhannes úr Kötlum, en hann
sleit bamsskónum hér í dölum vest-
ur á fyrri hluta aldarinnar við kjör
sem flestir teldu í dag vera óboðleg
lifandi verum, þannig þekkti hann,
í víðum skilningi, af eigin raun
hvers virði vorkoman er.
Vor
Hið himneska, vængjaða vor,
það vitjar nú bamanna sinna.
Á allt, sem er fagurt, það andar,
- á allt, sem er gott, vill það minna.
Það kemur með sólskin í svip
og suðræna dýrð á brá,
- með eldinn í elskandi hjarta
og æskunnar dýpstu þrá.
Það kemur með viskunnar vald
og vekur til lífsins hið dauða.
Það kemur með guðlegar gjafir
og gleður hið veika og snauða.
- Það leggur hin grænu grös
við gömul og viðkvæm sár.
Það brosir við öllu, sem eldist,
og öllu, sem fellir tár.
Það kemur með blómskúf við barm
og blámann í dreymandi augum.
Það kveikir í kulnuðum æðum
og kvikar í þreyttum taugum.
Það opnar hvert einasta bijóst,
- það yngir hvert visnað strá.
Það kemur og sér og sigrar
með söngvum - hér norðurfrá.
Það kemur til mín, - til min.
Og mjúk eru faðmlögin hlýju.
Með gulli og grænum skógum
það gerir mig barn að nýju.
- Ég kríp við þess kristallsskör.
Ég kyssi á þess bláa fald.
Ég fel mig í blíðasta blænum
á bak við þess roðna tjald.
Sjá, himnarnir opnast mér enn,
og englamir birtast í ljóma.
Þeir fljúga um víðáttu vorsins
til vígslu - með helga dóma.
Því vígð er hver einasta von,
sem vaknar í heillandi sál,
og vígðar þær fijálsu fómir,
sem fleygt er á lífsins bál.
Þeir koma með sumar og sól
frá sælunnar furðuströndum,
og varpa nú ástum og æsku
um allt, - hér á Norðurlöndum.
- Og fegursti engillinn á
sitt óðal í ijóðrinu hér.
Hann sveipar mig sindrandi blæju
og sofnar - við hjarta mér.
Ég uni við ódáinsveig
frá æskunnar björtustu draumum.
Ég uni við rósanna angan
og ylinn frá ljóssins straumum.
Og hrokans og hræsninnar duft
ég hristi_ af fótum mér.
Ó, vor! Ég er barnið þitt bljúga,
sem biðjandi fylgir þér!
Þú ástn'ka, vængjaða vor!
Ó, vef mig í faðminn þinn hlýja,
og helgaðu uppreisn míns anda
með eldtungum roðinna skýja!
Ó, lyftu mér hátt yfir húm
og hátt yfir dauða og gröf. -
.Þá fóma'eg þér framtíð minni
og færi þér ljóð mín að gjöf.
Ég lít þér í lotningu og trú
og leik mér við englana þína.
Og þú átt þá löngun til lífsins,
sem líður um sálu mína.
- Þú átt mína kærastu ósk,
þú mína heitustu þrá.
Þú ert komið, með sönginn að sunnan,
til að sigra - hér norðurfrá.
Gleðilegt sumar, vinir mínir,
kærleikurinn og fegurð vorsins
varði leiðina ykkar í bráð og lengd.
Höfundur er verktaki ogformað-
ur fulltrúaráðs Sj&lfstæðisfélag-
anna í Dalasýslu.
ÞEIRRI uppgötvun að strangar
íþróttaæfingar hefðu áhrif á ónæm-
iskerfi líkamans var fyrst veitt veru-
leg athygli á vetrarólympíuieikun-
um í St. Moritz. Ef við spyijum
íþróttamenn hvað sé mikilvægast I
þjálfuninni er algengasta svarið að
vera frískur. Þeir vita að framfarir
af margra mánaða þjálfun daginn
út og inn gerast ekki án veikinda
og meiðsla. í dag telja sérfræðingar
í íþróttalækningum öflugt ónæmis-
kerfi ekki síður mikilvægt en æf-
ingaprógramið. í einfaldaðri mynd
er ónæmiskerfið net af sérstökum
frumum og ferlum. Náttúrlegt
ónæmi og framkallað ónæmi, t.d.
ónæmisaðgerð - aðfengin aðferð
sem beitt er þegar einstaklingur
hefur fengið sjúkdóminn. Líkaminn
framleiðir mótefni sem veija líkam-
ann fyrir vírusum, bakteríum og
efnum sem eru óviðkomandi líkam-
anum. Hlutverk mótefna er að eyða
skaðlegum áhrifum mótefnisvak-
anna. Meira og meira af mótefnum
byggir líkamann upp. Lífstíðar-
minni er bundið í proteinum. Til-
teknar gerðir varnarfruma hvítra
blóðkorna eru T-frumur og B-frum-
ur, sem verða í eitlum, (rauðum)
beinmerg, milta og eitlabúi í þörm-
um. Þegar áþekkur mótefnisvaki
berst inn í líkamann er hann af-
kastameiri við að mynda mótefni.
Húðin og slímhimnur gegna veiga-
miklu hlutverki í varn-
arkefi líkamans gegn
örverum.
Margar rannsóknir
hafa verið gerðar á
áhrif þjálfunar á
ónæmiskerfið. Þær
sýna að léttar og meðal-
þungar æfingar hafa
lítil áhrif á ónæmiskerf-
ið meðan strangar æf-
ingar sýna miklar
breytingar í ónæmi-
skefinu. í einni athugun
voru ungir menn, sem
ekki þjálfuðu sig, látnir
stunda erobikkæfingar
40 - 50 mínútur dag-
lega fímm daga í viku.
Eftir 15 vikur var framganga „nat-
ural killer cells“ minni. Athuganir á
íþróttafólki frá þremur löndum
sýndu hærri tíðni veikinda en hjá
hinum almenna borgara og við auk-
ið keppnis- og þjálfunarálag hækk-
aði tíðni veikinda.
Dr. L. Fitzgerald við St. Georges
Hospital Medical School í London
fann út að ónæmiskerfi toppíþrótta-
manna var verulega veikt gegn vír-
ussjúkdómum. Álagið í þjálfun eða
keppni skiptir verulegu máli sem
sýnir að heilbrigður maraþonhlaup-
ari keppir og er frískur fram yfir
hlaupið, en fyrstu tvær vikur á eft-
ir er algengt að hann veikist. Rann-
sókn sýndi að þriðjung-
ur maraþonhalupara
sem lauk hlaupi varð
veikur í öndunarvegi
fyrstu tvær vikur eftir
hlaup. Dr. Gregory
Healt og félagar við
Disease Control Atl-
anta skoðuðu 530 kon-
ur og karla á 12 mán-
aða tímabili og báru
saman tíðni veikinda í
öndunarvegi og kíló-
metrafjölda sem hlaup-
inn var á viku. Niður-
staðan var að því fleiri
km á viku, þeim mun
hærri tíðni veikinda.
Athuganir á sovéskum
skíðamönnum eftir fjögurra mán-
aða strangt keppnistímabil sýndi
verulega lækkun T-eitiIfruma í lík-
amanum sem er slæmt. Á fimm
mánuðum koma að meðaltali sex
veikindatilfelli. Næsta ár fækkuðu
sovéskir skíðamenn keppnum og
ónæmiskerfi þeirra varð sterkara
og enginn þeirra veiktist. Könnun
á breskum og amerískum íþrótta-
mönnum sýndi að landsliðsmennirn-
ir veiktust oftar en þeir sem kepptu
hjá félögum. Amerískir maraþon-
hlauparar sem þjálfa og keppa mest
hafa minnst af „Lymphocyte" T-
og B-frumum. Niðurstaðan er sú
að ef íþróttamaður þjálfar ekki mik-
ið nær hann ekki efri mörkum í
getu en ef hann þjálfar of mikið
og hart getur hann veikt ónæmis-
kerfi líkamans. Hvað er til ráða?
Beta carotin hefur áhrif á hvít
blóðkorn í ónæmiskerfinu og gefur
frá sér efni („tumor necrosis fact-
or“.) Það er líklegt að það geti einn-
ig hjálpað í minni háttar meiðslatil-
fellum. Ungum og heilbrigðum ein-
staklingum voru gefin 180 mg á
dag af Beta carotin og sýndi sig
þá veruleg ijölgun á T-eitilfrumum
(T-lymphocyta).
Góð næringarefni
styrkja ónæmiskerfíð,
segir Halldór Matthí-
asson, sem hér fjallar
m.a. um áhrif þjálfunar
á þetta kerfi.
Se/eniumvirkar vel til styrktar
ónæmiskerfinu og rannsóknir á dýr-
um staðfesta það. Selenium og E
styðja hvort annað í að styrkja
ónæmiskerfið.
Zink hjálpar T-eitilfrumu varn-
arkefinu.
C-vítamín 1 gr á dag hjálpar hvítu
blóðkornunum og mótefnum varnar-
starfið.
E-vítamín styrkir ónæmiskerfið.
Dr. Robert Tengerdy við Colarado
State University gerði m.a. rann-
sóknir á músum sem hafði verið
gefinn stór skammtur af E-vítamíni
og síðan sýktar af lungnabólgubakt-
eríum. 60% af músunum urðu ekki
veikar en þær sem ekki var gefið
E-vítamín veiktust allar. Yfir 100
rannsóknir frá 1980 sýna árangur
af E-vítamíni á ónæmiskerfið. Syk-
ursjúkum músum með skert ónæmi
voru gefnir stórir skammtar af E-vít-
amíni, 1500 mg daglega af monac-
yte og gátu unnið á eðlilegan hátt.
Sumir afreksíþróttamenn á landsl-
iðsmælikvarða hafa fylgt prógrammi
800-1600 mg E-vítamín á dag á
tímabili strangra æfinga og hafa náð
allt að þremur árum án þess að veikj-
ast. Einhveijir íhaldssamir efast
e.t.v. um ágæti þess. En það getur
hjálpað íþróttamanni til að halda sér
frískum með ströngum æfíngum.
Co enzyme Q 10 er almennt notað
íAmeríku, Japan ogEvrópu til hjálp-
ar við lækningu á hjartasjúkdómum.
Náttúrulegt ónæmi styrkist við
notkun Q 10, mótefnaframleiðsla
eykst. Það ver einnig fyrir encep-
halomyocadititis vírus. 30-60 mg á
dag af Q 10 virðast styrkja ónæmis-
kerfi íþróttamanna í ströngum æf-
ingum og hjálpa fólki við að halda
sér frísku.
Arginine hjálpar sjúklingum eftir
aðgerð í að efla ónæmiskerfið. 30
gr á dag hjálpa íþróttamanni við að
halda sér í toppformi.
Glutamín er mikilvægt fyrir
ónæmiskerfið. Glutamín verður til í
vöðvafrumum og ónæmiskefið notar
mikið magn af því. En glutamín
hjálpar vöðvum í áreynslu og eftir
æfingu. Því þyngri sem æfingin er
þeim mun meira notar vöðvinn af
glutamíni. Strangar æfingar hindra
framleiðslu glutamíns sem veldur
því að vöðvastyrkur minnkar óg
geta ónæmiskerfisins minnkar.
Góð næringarefni styrkja ónæm-
iskerfið. Fæðubótarefnin G og E,
Zink, Beta Carotine, Goenzymo Q
10 og Argirine vítamín Bl, B2, B3,
B6 og Chrom ásamt alhliða næringu
hjálpar við að styrkja ónæmiskerfi
íþróttamanna.
Byggt á grein eftir dr. Michael
Colgar úr Optimum Sports Nutriti-
on.
Höfundur er sjúkraþjálfi.
Áhrif þjálfunar
á ónæmiskerfi fólks
Sterkt ónæmiskerfi, lykillinn að toppárangri
Ilalldór
Matthíasson