Morgunblaðið - 26.04.1995, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ
Ljósmynd/Haraldur Baldursson.
FRÁ íslandsmóti grunnskóla.
Kasparov
sigraði í Riga
SKÁK
Riga, Lcttlandi
MINNINGARMÓT
um Mikhail Tal,
fyrrum heimsmeistara
GARY Kasparov, heimsmeist-
ari atvinnumannasambandsins
PCA, sigraði örugglega á stór-
móti í Riga í Lettlandi sem PCA
hélt til minningar um Mikhail
Tal. Kasparov samdi um jafntefli
við Boris Gulko í síðustu umferð
og tryggði sér þar með sigur.
Indveijinn Anand varð í öðru
sæti og varð af sigri vegna taps
fyrir Kasparov í sögulegri skák
sem birtist hér í skákþættinum á
laugardaginn.
Þeir tveir virðast mjög sterkir
um þessar mundir og má vænta
magnaðs heimsmeistaraeinvígis á
milli þeirra í haust.
Úrslit mótsins
1. Kasparov, Rússl. 7 Vi v.
2. Anand, Indlandi 7 v.
3. ívantsjúk, Úkraínu 6V2 v.
4—5. Kramnik, Rússlandi 6 v.
4—5. Short, Englandi 6 v.
6. Gulko, Bandaríkj. 5 v.
7. Júsupov, Þýskalandi 4Vj v.
8. Ehlvest, Eistlandi 3V2 v.
9—11. Kengis, Lettlandi 3 v.
9—11. Timman, Hollandi 3 v.
9—11. Vaganjan, Armeníu 3 v.
Það stóð á stöku á mótinu og
þurfti einn keppandi að sitja yfir
í hverri umferð. Það mæltist mis-
jafnlega fyrir áður en dregið var
í töfluröð að Kasparov var úthlut-
að númerinu 1, sem þýddi að
hann sat yfir í fyrstu umferð og
gat fagnað 32ja ára afmæli sínu.
Slík forréttindi fram yfir aðra
keppendur verða ekki til að kveða
niður þær raddir sem segja að
Kasparov ráði öllu því sem hann
vilji innan PCA.
Ein stutt og skemmtileg skák
frá Riga, í anda Tals:
Hvítt: Vladímir Kramnik
Svart: Jan Ehlvest
Slavnesk vörn
1. Rf3 - d5 2. d4 - Rf6 3. c4
— c6 4. Rc3 — e6 5. Bg5 —
dxc4 6. e4 - b5 7. e5 - h6 8.
Bh4 — g5 9. Rxg5 — hxg5 10.
Bxg5 - Rbd7 11. g3 - Da5 12.
exf6 — Ba6?!
Algengara er 12. — b4. Það
er spuming hvort þessi leikur ber
sitt bar eftir meðferðina hér:
13. Df3 - Hc8 14. Be2 - b4
15. Re4 - c5 16. d5!
Fer að tillögu þýska stórmeist-
arans Rainers Knaak. í skákinni
Ivan Sokolov—Gata Kamsky í
Belgrad 1991 lék hvítur 16. dxc5
sem er lakara.
- exd5 17. Df5!
Knaak stakk aðeins uppá 17.
0-0 - Bb7 18. Hfel.
17. - dxe4 18. 0-0-0 - Hc7 19.
Bg4 - Bb5
Svörtu stöðunni verður ekki
bjargað. Eftir 19. — Dxa2 bregð-
ur hviti kóngurinn sér á göngu-
för: 20. Hxd7! - Dal+ 21. Kd2
- Dxb2+ 22. Ke3 - Dc3+ 23.
Kf4 og vinnur.
20. Dxe4+ - Kd8 21. Bxd7 -
Bxd7 22. Hhel - Bh6 23. Da8+
- Hc8 24. Hxd7+ - Kxd7 25.
Dd5+ og Ehlvest gafst upp því
hann er óveijandi mát.
Stórmót í Dos Hermanas
Um síðustu helgi hófst afar
öflugt skákmót í Dos Hermanas
á Spáni. Það er ennþá sterkara
en Linaresmótið. Skákmenn gátu
ekki bæði tekið þátt í móti at-
vinnumannasambandsins í Riga
og í Dos Hermanas. Það kom því
í ljós hveijir eru hallir undir Ka-
sparov og samtök hans, þeir
tefldu í Riga, og hveijir eru
andsnúnir honum.
Karpov þurfti að fresta fyrstu
skák sinni á mótinu þar sem hann
komst ekki í tæka tíð.
Staðan eftir tvær umferðir:
1. Kamsky (2.730) D/2 v.
2. Lautier (2.635) 1 v. og frestuð
skák.
3—5. Salov (2.695), Júdit Polgar
(2.630) og Illescas (2.600) 1 v.
6—8. Karpov (2.775), Gelfand
(2.695) og Adams (2.650) V2
v. og frestuð skák.
9—10. Piket (2.645) og Shirov
(2.725) V2 v.
íslandsmót
grunnskólasveita
Sigurganga Æfingaskóla
Kennaraháskóla íslands hélt
áfram á íslandsmóti grunnskóla
um síðustu helgi. Gagnfræðaskóli
Akureyrar stóð sig einnig vel, lenti
í öðru sæti og náði að veita sigur-
vegurunum nokkra keppni. Sveit-
imar kepptu innbyrðis í fímmtu
umferð og sigraði Æfíngaskólinn
með minnsta mun, 2V2-IV2.
í sigursveitinni tefldu þeir
Bragi Þorfínnsson (7 v. af 7),
Björn Þorfinnsson (8V2 v. af 9),
Davíð Ingimarsson (9 v. af 9),
Óttar Norðfjörð (6V2 v. af 9) og
Bjarni Kolbeinsson (2 v. af 2).
Með sigrinum tryggði Æfínga-
skólinn sér rétt til þátttöku á
Norðurlandamóti grunnskóla sem
fram fer í Danmörku i haust og
á þar Norðurlandatitilinn að veija.
Úrslit:
1. Æfingaskóli KHÍ 32R v. af 36
2. Gagnfræðaskóli Akureyrar 28R v.
3. Hólabrekkuskóli 23R v.
4. Garðaskóli 21R v.
5. Digranesskóli 21 v.
6. Grandaskóli 19R v.
7. Seljaskóli 19 v.
8. Melaskóli 18 v.
9-10. Æfingask. KHÍ, B sv. 17R v.
9—10. Breiðholtsskóli 17R v.
11-13. Ártúnsskóli 17 v.
11-13. Breiðagerðisskóli 17 v.
11—13. Hólabrekkuskóli, B sv. 17 v.
Alls tóku 22 sveitir þátt í mót-
inu og keppendur voru á annað
hundrað talsins. Skákstjórar voru
Haraldur Baldursson og Hlíðar
Þór Hreinsson. Mótið fór fram í
Skákmiðstöðinni, Faxafeni 12.
Veitt voru verðlaun fyrir bestan
árangur á fyrsta og öðru borði.
Jón Viktor Gunnarsson, Hvassa-
leitisskóla, vann allar skákir sínar
á fyrsta borði og á öðru borði
hlaut Björn Þorfinnsson, Æfinga-
skóla KHÍ 8R v. af 9.
Um næstu helgi fer íslandsmót
barnaskólasveita fram og hefst á
laugardaginn kl. 13.
Margeir Pétursson.
MIÐVIKUDAGUR 26. APRÍL 1995 35
FRÉTTIR
Verkefnaskrá sjávarútvegsráðuneytisins
Tvöföldunarreglan komi
ekki til framkvæmda
í VERKEFNASKRÁ sjávarútvegs-
ráðuneytisins sem Þorsteinn Páls-
son sjávarútvegsráðherra lagði
fram á fyrsta ríkisstjórnarfundi
nýrrar ríkisstjórnar er kveðið á um
að lög um stjórn fiskveiða verði
þegar endurskoðuð: Meðal atriða
sem stefnt er að er að tryggja að
afkastageta fiskiskipaflotans auk-
ist ekki og heimilað verði að nýta
skip sem úrelt hafa verið til annarr-
ar atvinnustarfsemi en fiskveiða.
Einnig á að skapa svigrúm til að
bæta hlut þeirra báta sem orðið
hafa fyrir mestri skerðingu afla-
heimilda vegna minnkandi þorsk-
veiða. Þá verður banndagakerfið
tekið til endurskoðunar og leitað
annarra leiða við stjórnun en að
ijölga banndögum og svonefnd
tvöföldunarregla verður ekki látin
koma til framkvæmda.
Þorsteinn segir að stefnt verði
að því að ljúka afgreiðslu fjögurra
ofangreindu atriðanna á vorþing-
inu. Ónnur atriði séu ýmist komin
í vinnslu eða ákveðið verði á næst-
unni með hvaða hætti þau verði
unnin.
Þorsteinn segir að í núgildandi
löggjöf séu ákvæði sem byggja á
viðleitni til flotastýringar sem lúta
að því að við endurnýjun skipa
fari út sambærileg skip í rúmlesta-
tölu. Bent hafi verið á að ýmsir
fleiri þættir ráði sóknarmöguleik-
um þeirra en stærð, t.a.m. tog-
kraftur og fleiri þættir. Tryggður
verði lagagrundvöllur sem heimilar
mönnum að setja nýjar viðmið-
unarreglur.
Engin bylting boðuð varðandi
krókaveiðar
Þorsteinn segir að verið sé að
skoða nokkrar leiðir til að skapa
svigrúm til að bæta hlut þeirra
báta sem hafa orðið fyrir mestri
skerðingu aflaheimilda. Eitt af
þeim atriðum sem eru til skoðunar
er hvort úthluta eigi 12.000 þorskí-
gildistonna aflaheimildum sem
voru fluttar frá þróunarsjóði sjáv-
arútvegsins inn í fiskveiðistjómun-
arlögin með öðrum hætti en áður
hefur verið gert til að skapa þetta
svigrúm. Átti hann von á því að
ráðuneytið yrði tilbúið með sínar
tillögur í þessu efni áður en vor-
þingið kæmi saman.
Þorsteinn segir að finna þurfi
aðrar leiðir til að stjórna krókaveið-
um en hann boðar enga byltingu
í þeim efnum. „Ég hef lengi verið
þeirrar skoðunar að slíka breytingu
í TILEFNI af 50 ára afmæli Sam-
einuðu þjóðanna á næsta ári efnir
Umhverfistofnun SÞ til alþjóð-
legrar ljósmyildasamkeppni. Ljós-
myndirnar eiga með einum eða
öðrum hætti að snerta umhverfis-
mál.
Keppnin verður í þrem flokk-
um, 1. flokki atvinnuljósmyndara,
2. flokki áhugaljósmyndara og 3.
flokki barna og unglinga. Auk
þess verða veitt ýmiss konar
aukaverðlaun m.a. frá Canon-fyr-
irtækinu og allir verðlaunahafar
fá afhentar ýmiss konar ljós-
myndavörur og tæki.
í atvinnumannaflokknum eru
hæstu verðlaun 20 þúsund Banda-
ríkjadalir, í áhugamannaflokkn-
um 10 þúsund dalir og í barna-
og unglingaflokknum eitt þúsund
dalir.
Myndir sendar í keppnina þurfa
yrði að gera því banndagakerfið
eins og lögin mæla fyrir um gat
aldrei gengið upp.“
Um næstu áramót átti það
ákvæði að koma til framkvæmda
að útgerðir gætu ekki leigt til sín
meiri kvóta en sem næmi því afla-
marki sem þeir fengu úthlutað.
Þorsteinn segir að þetta hefði tak-
markað möguleika einstaklingsút-
gerða til þess að taka þátt í þeirri
hagræðingu sem á sér stað í grein-
inni. Engin mörk verða lengur á
því hve mikinn kvóta útgerðir
leigja að öðru leyti en því að þær
geta ekki tekið til sín meiri afla-
hlutdeild en sem nemur veiðigetu
skipsins.
Verðmyndun á sjávarafla
Samkvæmt verkefnaskránni
verður gerð úttekt á mismunandi
leiðum við fiskveiðistjórnun og
bornir saman kostir og gallar
ólíkra fiskveiðistjórnunarkerfa.
Niðurstöðurnar verða nýttar við
þróun fiskveiðistjórnunar. Þor-
steinn segir að sett verði sérstök
nefnd til að fjalla um þetta mál.
Taka á verðmyndun á sjávarafla
til endurskoðunar og meta hvaða
leiðir séu færar til að leiðrétta það
misgengi sem orðið hefur innbyrð-
is á launakjörum sjómanna. Þor-
steinn segir eðlilegt að farið sé
yfir þessa hluti, ekki síst í ljósi
þeirrar umræðu sem orðið hefur
um málið. „Ég hef bent á það á
undanfömum mánuðum að verð-
myndunin er um margt ófullkomin
og innbyrðis launamismunur hjá
sjómönnum er býsna mikill. Við
ætlum okkur að láta skoða þessi
mál og hvort aðrar lausnir eru til
þar en menn ná fram í frjálsum
samningum. Það er ekki verið að
skrifa þama upp á uppskrift að
einhverri tiltekinni lausn og ég hef
bent á það að menn megi ekki
bara líta á hagsmuni útgerðarinnar
í þessu efni. Þótt menn geti leyst
hagsmuni hennar með því að setja
allan fisk á markað þurfa menn
að hafa heildarhagsmuni greinar-
innar í huga, fiskvinnslunnar, fisk-
vinnslufólksins og markaðsstarf-
seminnar."
Hafrannsóknir efldar
Þá er ráðgert að samstarf verði
við utanríkisráðuneyti um gerð
samninga um veiðiheimildir á út-
hafinu og á fjarlægum miðum með
það að markmiði að tryggja skyn-
samlega nýtingu fiskistofna og
að hafa verið teknar á tímabilinu
1. janúar 1994 til 30. apríl 1995
en þann dag lýkur fresti til að
skila myndum í keppnina. Hver
keppandi má senda allt að þijár
myndir.
Verðlaun verða afhent við há-
tíðlega athöfn í októbermánuði
1995 í höfuðstöðvum SÞ í New
York. Verðlaunahöfum verður
boðið að vera viðstaddir athöfnina
á kostnað keppnishaldara en auk
þess verður greiddur ferðakostn-
aður eins fylgdarmanns með verð-
launahöfum í flokki barna og
unglinga.
Umsóknareyðublöð og nánari
upplýsingar fást hjá Sigrúnu Böð-
varsdóttur, c/o Hans Petersen
hf., sem tekur einnig við umsókn-
um. Athygli er vakin á að um-
sóknarfrestur rennur út 30. apríl
1995.
skapa íslenskum skipum aukið
svigrám til veiða utan efnahags-
lögsögu íslands. Jafnframt verði
áfram unniuð að löggjöf um veiðar
íslenskra skipa á úthafinu og að
framgangi hvalveiðimálsins. Þor-
steinn kvaðst vænta þess að gott
samstarf yrði milli þessara tveggja
ráðuneyta og með þessu væri verið
að treysta samstarf þeirra. Við
teljum að það sé lykilatriði að þau
vinni vel að þessum málum út á
við og ég er mjög ánægður með
það í hvaða farvegi þau mál eru.
Einnig er í verkefnaskránni
kveðið á um áframhald á endur-
skoðun á lögum um veiðar í fisk-
veiðilandhelgi íslands er m.a. bein-
ist að togveiðisvæðum. Nefnd sú
er að þessu vinnur á að ljúka störf-
um í sumar og frumvarp um ný-
skipan togveiðiheimilda verði flutt
er þing kemur saman í haust. Gert
er ráð fyrir frekari eflingu ha-
frannsókna og við fiskveiðiráðgjöf
verði sérstök áhersla lögð á aukna
samvinnu Hafrannsóknastofnun-
arinnar við sjómenn og útvegs-
menn. Þá verði efldar samanburð-
arrannsóknir á áhrifum mismun-
andi veiðarfæra á lífríki hafsins.
Hafrannsóknastofnuninni verði
gert kleift að stunda reglubundnar
rannsóknir á grunnslóð og stuðla
með því að aukinni nýtingu botn-
dýra og annars sjávarfangs.
Gert er ráð fyrir að lög um Fisk-
veiðasjóð íslands verði endurskoð-
uð og kannaðir verði möguleikar á
að koma á sveiflujöfnun í sjávarút-
vegi er tryggi í senn stöðugleika
í greininni og jafnvægi gagnvart
öðrum atvinnugreinum.
—.--....»-4-----
Skemmti-
ganga með
höfninni
í FYRSTU kvöldgöngu sumarsins
miðvikudaginn 26. apríl stendur
Hafnargönguhópurinn fyrir göngu-
ferð um hafnarsvæði Gömlu hafnar-
innar. Farið verður kl. 20 frá akker-
inu í Hafnarhúsaportinu niður á úti-
vistarsvæði Reykjavíkurhafnar á
miðbakka.
Eftir að hafa liðkað sig í leiktækj-
um og skoðað krabbana og gróskuna
í höfninni verður val um hressilega
göngu inn á Sólfarið, snúið þar við
og gengið eftir hafnarbökkum út í
Reykjanes í Örfirisey eða velja sér
rólega göngu með Suðurbugt og
Vesturhöfn út í Reykarnes. Þar sam-
einast hópamir og ganga til baka í
Hafnarhúsaportið. A leiðinni verður
skoðað víkingskip í smíðum og litið
um borð í skemmtiferðaskipið Ámes.
I lokin mætir Þórður með nikkuna
í Hafnarhúsaportinu og Reykjavík-
urhöfn býður göngufólki upp á
svaladrykk.
------» » ♦-----
■ BIBLÍUSKÓLINN við Holta-
veg heldur sitt síðasta námskeið á
þessari önn og ber það heitið Guð
faðir, skapari minn. Leitað verður
m.a. svara við spurningum eins og
Hver er Guð? Er Guð persónulegur?
Hver eru tengsl hans við sköpun-
ina? Fjallað verður einnig um sam-
félagið við Guð, vilja hans, boðorð,
náð og trú o.fl. Leiðbeinandi er
Skúli Svavarsson, kristniboði.
Kennt verður þriðjudagana 2., 9.
og 16. maí og fimmtudaga 4. og
11. maí kl. 20-21.30. Námskeiðs-
gjald er 1.000 kr. og fer kennsla
fram í aðalstöðvum KFUM og
KFUK við Holtaveg. Innritun lýkur
föstudaginn 28. apríl.
Alþjóðleg ljósmynda-
samkeppni SÞ