Morgunblaðið - 26.04.1995, Blaðsíða 37
MIÐVIKUDAGUR 26. APRÍL 1995 37
BRÉF TIL BLAÐSIIMS
lOOáraafmæli
Hjálpræðishersins
og ráðhúsið
Frá Daníel Óskarssyni:
VEGNA þess að mikið hefur verið
rætt og ritað undanfarið um 100 ára
afmæli Hjálpræðishersins og sam-
skipti okkar við borgarstjórn, tel ég
rétt að koma nokkrum upplýsingum
á framfæri til að leiðrétta leiðan
misskilning.
Ég ritaði borgarstjóra bréf þann
27.09.94, þar sem ég kem með
nokkrar fyrirspumir og óskir í sam-
bandi við 100 ára hátíðahöldin í
maí. Þar nefni ég meðal annars að
fyrrverandi borgarstjóri, Markús Öm
Antonsson, hafi bent á að tilvalið
væri að halda afmælissamkomuna í
Tjarnarsal ráðhússins. Um svipað
leyti hringdi ég í ritara borgarstjóra
og bað um viðtal við borgarstjóra í
sambandi við 100 ára afmælið.
Nokkram dögum síðar var hringt í
mig og mér tilkynnt að ég fengi við-
talstíma, en að ég ætti að ræða við
aðstoðarkonu borgarstjóra, Kristínu
A. Árnadóttur.
Komið hefur fram í umræðunni
að aðstoðarkona borgarstjóra hafi
tekið mér mjög fálega, jafnvel verið
ókurteis. Svo er alls ekki. Hún var
mjög elskuleg í alla staði, en benti
á að hugsanlega kynni að verða erfíð-
leikum bundið að fá Tjarnarsal ráð-
hússins til afnota vegna reglna um
notkun salarins en þær eru þess efn-
is að þar skuli einungis vera atburð-
ir sem höfði til alls almennings. Hún
tjáði mér um leið að borgarstjóri vildi
að Hjálpræðishernum yrði sýnd sú
virðing og vinsemd sem honum bæri
á þessum merku tímamótum. Nú
hefur borist mér til eyrna að breyting
sé í vændum varðandi áðurnefndar
reglur um notkun Tjarnarsalarins og
er j)að vel.
I framhaldi af þessu átti ég marga
fundi með Ólafi Jónssyni fulltrúa, en
á fundum okkar kom fram að erfitt
væri að fá að halda hátíðarsamkomu
í Ráðhúsinu vegna þess sem áður
hefur verið nefnt. Því tókum við í
Hjálpræðishemum þá ákvörðun ein-
hvern tíma um áramótin að leita til
Fíladelfíusafnaðarins um að halda
hátíðarsamkomuna í kirkju þeirra við
Hátún, en flestar samkomur hátíðar-
haldanna eiga að vera þar. Þetta var
gert til að tryggja okkur stað og
geta fest dagskrána fyrir hátíðahöld-
in 19.-21. maí.
Lúðrasveit Hjálpræðishersins frá
Skotlandi sem kemur hingað yfir
afmælið, mun halda tónleika á Ing-
ólfstorgi og í Tjarnarsal ráðhússins
í boði borgarstjórnar. Borgarstjóri
mun bjóða til móttöku vegna komu
herráðsformanns Hjálpræðishersins
og hún mun einnig flytja ávarp á
hátíðarsamkomunni í Fíladelfíu og
rita kveðjuorð í Herópið. Hjálpræð-
isherinn metur mjög gott samstarf
við borgaryfirvöld á liðnum áratug-
um og veit að svo muni verða áfram.
DANÍEL ÓSKARSSON,
yfirforingi Hjálpræðishersins.
Að feðra rétt
Frá Halldórí Jónssyni:
í MENNINGARKÁLFI Morgun-
blaðsins um síðustu helgi er frétt um
að „Norðmaðurinn Mariss Janson,
| stjórnandi Oslóarfílharmoníunnar",
, hafi verið skipaður stjórnandi sinfó-
' níunnar í Pittsburgh. Hið rétta er
( að Mariss Jansons, eins og hann
heitir, fæddist í Riga 1943.
Fyrir nokkrum dögum var ung
söngkona að ræða um hið ágæta
tónskáld Arvo Párt á einni af nýj-
ustu útvarpsstöðunum með sígildri
tónlist. Hún var ekki viss um þjóð-
erni hans, en taldi helzt að hann
væri pólskur. Síðar í þættinum talaði
viðmælandi hennar um „Pólverjann".
Arvo Part fæddist í Paide, Eistlandi,
1935 og ólst upp í Tallinn.
Ef þjóðerni Leifs heppna skiptir
máli, hvers eiga þá Eystrasaltslöndin
að gjalda með sína heimsfrægu tón-
listarmenn?
HALLDÓRJÓNSSON,
Álfaheiði 16.
Sál sjúkrahúsa
Frá Albert Jenssyni:
HJÁLMAR Jónsson, 19. aldar
skáldið snjalla og kraftmikla, bjó
að því alla sína löngu og þyrnum
stráðu ævi, að fyrstu tólf árin sín,
var hann á heimili sem veitti honum
vinsemd og öryggi. Upp úr ferm-
ingu tók við Veröld full af kulda
og allsleysi. Þá var hann nýbúinn
að missa Sigríði fóstru sína, einu
manneskjuna sem hann unni. Við
að missa þá umhyggju sem Sigríð-
ur, vandalaus konan, hafði veitt
honum, breyttist persóna hans.
Bólu-Hjálmar gerði sjálfum sér og
öðrum, erfitt með skapsmunum sín-
um, en minningar um fóstruna góðu
milduðu og auðvelduðu honum bar-
áttuna við óblíð kjör.
Víða til þess vott ég fann,
þótt venjist oftar hinu,
að Guð á margan gimstein þann,
sem glóir í mannsorpinu.
Vísa þessi var þakklætisvottur
Hjálmars til ókunnugs hjálpar-
manns.
Því dreg ég þetta brot út úr sög-
unni, að ég vil að að menn sjái
hvað góðleikinn var og er mannin-
um mikilvægur.
Fyrir mörgum árum, í heimsókn
til vistmanns á DAS, gekk ég fram
hjá opinni hurð inn á klósett, þar
á sat bjargarlaus gömul kona. Þó
mér hafi ósjálfrátt, aðeins eitt
augnablik, verið litið inn, gleymi
ég seint augnaráði hennar. Þar í,
var slíkt umkomuleysi og sársauki
vegna niðurlæingarinnar sem hún
varð að þola vegna kæruleysis
starfsmanns.
Sjúkrahús, elliheimili, vistheimili
fyrir ósjálfbjarga og hvað sem er í
þessum dúr, hefur sál, sem mótast
af þeim, sem í húsunum eru. Sama
með hvaða hætti.
Það starfsfólk slíkra húsa, sem
annast vistmenn eða sjúklinga, þarf
að vita að það er sitthvað að vera
eða gera.
Líka sitthvað, lifandi manneskja,
eða gólfið sem gengið er á. Enginn
má kenna lágum launum um skap-
gerðarvandamál sín.
Maður sem hefur náð því trausti
að vera settur til stjórnunar, í hve
litlu sem er, þarf að leggja sig fram
til að laða það besta fram í fólkinu
sem hann hefur umsjón með. Smá-
munasamur, rexgjam stjórnandi
sem þolir illa góðvild milli manna,
þarfnast endurhæfíngar eða öðru-
vísi vinnu. Góðan móral má ekki
eyðileggja með óþarfa stjórnsemi.
Stjórnandi þarf ekki sífellt að sýna
vald sitt. Þá bestu verða fáir varir
við.
Ef starfsfólki líður ekki vel, verða
sjúklingar og vistmenn fljótt varir
við það. Ein manneskja getur kom-
ið í veg fyrir góðan starfsanda. Þar
getur hver sem er verið að verki.
Sá á ekki samleið. Stofnanavinna
er illa launuð, öðrum en læknum.
Því ætti fólk, hvort sem það er lært
í umönnun eða ekki, að leita annað
DU PONT bflalakk notað af
fagmönnum um land allt.
Er bfllinn þinn
grjótbarinn eða
rispaður ?
DU PONT lakk
á úðabrúsa er
meðfærilegt og
endingargott.
oca&Gi 1
Faxafeni 12. Sími 38 000
ef starfíð hæfír ekki skapgerðinni.
Ef sjúklingi eða vistmanni fellur
ekki við starfsmann og öfugt, ætti
að taka tillit til þess. Það eru mann-
réttindi.
Starfsfólk verður að njóta örygg-
is og ánægju í starfi. Svo sjálfsagð-
ir þættir mannlegrar reisnar eiga
ekki að vera lagðir undir hæl smá-
munalegra einstaklinga. Þar sem
er góður starfsandi, er gott starfs-
fólk.
ALBERT JENSEN,
270931-7319
Háaleitisbraut 129.
ÍÞRÚWR
ö
Ef þú smellir á
ÍÞRÚItJR
færðu allt sem
skrifað er um
íþróttir í
Morgunblaðinu
í dag.
http://www.strengur.is
(
(
(
<
(
(
<
(
<
<
<
<
NYJA BÍLAHOLUN FUNAHOFÐA I S: 567-2277
Ford Econoline 250 árg. '92, ek. 86
þús. km., vínrauður/grár, 38“ dekk, tveir
millikassar hlutf., læsingar, spil 2,
Tangar Ranco 9000 demparar.
V. 3.950.000. Ath. skipti.
Toyota Corolla 1,6 GLi árg. '93, ek. 29
þús. km., sægrænn, sjálfsk.
V. 1.390.000. Ath. skipti.
Toyota Corolla 1,6 Sl árg. '93, ek. 46
þús. km., hvítur, 5 g.
V. 1.250.000. Beinsala.
VW Golf 1,8 GL árg. '94, ek. 7 þús.
km., dökkblár, sjálfsk., álfelgur,
þjófav. V. 1.650.000. Ath. skipti.
VW Golf GTi árg. '92, ek. 36 þús. km.,
svartur, 5 g. V. 1.380.000. Ath. skipti.
BPlP*
Nissan Patrol SLX árg. '91, ek. 106 þ.
km., svartur, álfelgur, 31“ dekk.
V. 2.650.000. Ath. skipti.
Ford Escort 1,4 CLX árg. '93, ek. 25
þús. km. grár, 5 g. V. 1.050.000.
Ath. skipti.
Mazda 626 GLX árg. '92, ek. 50
þús. km., grár, sjálfsk. V. 1.590.000.
Ath. skipti.
BMW 316i árg. '92, ek. 39 þús. km,
dökkblár, 5 g., álfelgur. V. 1.700.000.
Ath. skipti.
Nissan Primera SLX árg. '91, ek. 63
þús. km, blár, sjálfsk. V. 1.150.000.
Ath. skipti.
BILATORG FUNAHOFDA I Ss 587-7777
|Félag Löggiltra Bílasala
Toyota Hiace 4WD diesel árg. '91,
hvítur, sóllúga, vsk. bíll, ek. 89 þús. km.
V. 1.400.000. Skipti.
Range Rover Vouge árg. '89, græn-
sans., sjálfsk., ek. 100 þús. km.
V. 2.100.000. Skipti.
MMC Galant GLSi 4WD árg. '90.
silfurgrár, ek. 86 þús. km.
V. 1.180.000. Skipti.
Subaru Legacy 2000 GL árg. '92, vln-
rauður, fallegur bíll, ek. 46 þús. km.
V. 1.590.000. Skipti.
Toyota 4Runner V6 árg. '92, vínrauður,
sjálfsk., sóllúga, upphækkaður, 33* dekk,
ek. 50 þús. km. V. 2.750.000. Skipti á
dýrari Nissan Patrol eða Toyota Landr.
NU ER BESTI SOLUTIMINN FRAMUNDAN - VANTAR ALLAR GERÐIR BILA A STAÐINN
|félag Löggiltra Bílasala I
M E lJ
M. Benz 409 diesel árg. '88 ek. 260
þús. km., hvítur, nýtt lakk, 17 sæta. V.
2.650.000. Ath. skipti.
MMC Lancer GLXi árg. '93, ek. 31
þús. km., dökkgrár, sjálfsk.
V. 1.290.000.
Félag Löggiltra Bílasala
Toyota Landcrusíer VX árg. '92, silfur-
grár, álfelgur, 32“ dekk, sóllúga. Mjög
fallegt eintak. V. 3.950.000. Skipti.
IFélag Löggiltra Bílasala