Morgunblaðið - 06.05.1995, Page 2
2 LAUGARDAGUR 6. MAÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Yfírvinnubann mjólkur-
fræðinga hófst á miðnætti
YFIRVINNUBANN mjólkurfræðinga hjá öllum
mjólkurbúum landsins hófst á miðnætti. Mjólk-
urfræðingar hafa jafnframt boðað verkfall hjá
Mjólkursamlagi KEA á Akureyri sem hefst á
mánudag og stendur til 10. maí og hjá Mjólkurs-
amsölunni í Reykjavík 10.-12. maí.
Sáttafundi í deilunni sem hófst hjá ríkissátta-
semjara kl. 14 í gær lauk án árangurs undir
kvöld en næsti fundur er boðaður á sunnudag.
Neytendur á sölusvæði KEA þurfa ekki
að hamstra mjólk
Hólmgeir Karlsson, framleiðslustjóri hjá
Mjólkursamlagi KEA, sagði að ef til verkfalls
kæmi á mánudag ylli það verulegri röskun hjá
samlaginu en hann gerði þó ekki ráð fyrir að
neytendur myndu finna fyrir skorti á mjólkur-
vörum. Hann sagði að samlagið hefði búið sig
undir hugsanlegt verkfall á seinustu dögum
til að geta fullnægt eftirspum eftir mjólkurvör-
um. „Neytendur þurfa ekki að hamstra mjólk
á okkar svæði,“ sagði hann. Að sögn Hólm-
geirs munu hins vegar skapast vandræði við
að taka við mjólk frá bændum, því ekki yrði
hægt að vikta inn mjólk í samlagið tii geymslu
á meðan á verkfallinu stæði og sagði hann að
því væri útlit fyrir að öllu óbreyttu að til þess
gæti komið að hella þyrfti niður mjólk.
Sáttafundur á þriðjudag í Sleipnisdeilunni
Boðað allsheijarverkfall Bifreiðastjórafé-
lagsins Sleipnis hefst næstkomandi fimmtudag
hafí samningar ekki náðst fyrir þann tíma.
Enginn samningafundur var haldinn í deilunni
í gær en næsti fundur er boðaður hjá ríkissátta-
semjara á þriðjudag.
Þórarinn V. Þórarinsson, framkvæmdastjóri
VSÍ, sagði að tiltekinn árangur hefði náðst á
samningafundi með Sleipnismönnum í fyrri-
nótt. Þar hefði tekist að fínna lausn á ágrein-
ingi um vinnufyrirkomulag en hins vegar stæði
launaþátturinn eftir óleystur.
Skráður fyr-
ir rafmagns-
reikningi að
sér for-
spurðum
HÉRAÐSDÓMUR Austurlands hef-
ur fellt úr gildi fjámám sem gert
var í eigum manns til tryggingar
skuld við -Rafmagnsveitur ríkisins.
Maðurinn hafði aldrei skráð sig sjálf-
ur sem gjaldandi hjá rafmagnsveit-
unni heldur byggðist krafan á því
að móðir konu sem hann hafði búið
með um 2 mánaða skeið hafði haft
samband við ráfveituna og tilkynnt
að maðurinn myndi borga rafmagns-
reikninga heimilisins.
Rafmagnsveitumar höfðu á þeim
forsendum skráð manninn sem
gjaldanda án þess að fyrir lægju
gögn um að hann hefði samþykkt
að svo skyldi vera. Maðurinn sagði
að sér hefði fyrst orðið þetta ljóst
um hálfu ári eftir að sambúðinni
lauk.
Þá greiddi hann Rafmagnsveit-
unni sem nam ríflega helmingi orku-
kostnaðarins fyrir þann tíma sem
sambúðin stóð og lýsti því þá yfir
munnlega, að eigin sögn og vitnis,
að hann teldi sig greiða umfram
skyldu. Rafmagnsveitumar héldu
málinu til streitu og gerðu fjámám
fyrir eftirstöðvunum í eigum hans.
Maðurinn krafðist þess að héraðs-
dómur felldi fjárnámið úr gildi og
Héraðsdómur Austurlands kvað upp
úrskurð þess efnis en þó var mannin-
um gert að greiða eigin kostnað af
rekstri málsins.
Hæstarétt-
arhúsið rís
FRAMK VÆMDIR við hús Hæsta-
réttar ganga samkvæmt áætlun.
Smám saman fær húsið á sig mynd
þar sem það rís milli þriggja sögu-
frægra húsa í höfuðborginni, Arn-
arhvols, Þjóðleikhússins og Safna-
hússins.
Nýr leiklistargagn-
rýnandi Morgunblaðsins
SOFFÍA Auður Birg-
isdóttir er nýr leiklist-
argagnrýnandi
Morgunblaðsins. Soff-
ía Auður hefur áður
skrifað bókmennta-
gagnrýni í Morgun-
blaðið og verið dag-
skrárgerðarmaður hjá
útvarpi og sjónvarpi.
Auk þess hefur hún
fengist við kennslu í
tungumálum og bók-
menntum heima og
erlendis. Hún hefur
starfað sem ritstjóri
hjá bókaútgáfunni
Forlaginu frá því í jan-
úar 1994.
Soffía Auður lauk BA-prófi í
almennri bókmenntafræði frá Há-
skóla íslands 1984 og cand. mag.
prófi í íslenskum bókmenntum frá
sama skóla 1989. Hún stundaði
framhaldsnám í bókmenntum frá
hausti 1989 til áramóta 1992 við
Háskólann í South Carolina, Col-
umbia, Bandaríkjunum, og lauk
þaðan prófum. Hún hefur hlotið
ýmsa styrki og viðurkenningar.
Meðal ritstarfa Soffíu Auðar er
ritstjóm safnritsins Sögur ís-
lenskra kvenna (1987), en hún
valdi sögurnar og skrifaði formála
og eftirmála. Hún
skrifaði um þrjár ný-
sköpunarkonur í ís-
lenskri ljóðagerð í
Ljóðaárbók (1989) og
formála að Stórbók
Svövu Jakobsdóttur
(1994). Hún er höf-
undur greina um ís-
lenskar kvennabók-
menntir í Norrænni
bókmenntasögu sem
gefin er út í Dan-
mörku, Noregi og Sví-
þjóð. Meðal margra
fyrirlestra hennar em
Samband móður og
dóttur í íslenskum
bókmenntum og Kvalarar og
krossfestarar, um Svartfugl Gunn-
ars Gunnarssonar, í tilefni af 10þ
ára afmæli skáldsins.
Störf sín sem leiklistargagnrýn-
andi Morgunblaðsins hefur Soffía
Auður Birgisdóttir með því að
skrifa um Stakkaskipti eftir Guð-
mund Steinsson, sem fmmsýnt var
í Þjóðleikhúsinu í gærkvöldi, og
birtist gagnrýni hennar á bls. 6 í
dag.
Súsanna Svavarsdóttir sem ver-
ið hefur leiklistargagnrýnandi
blaðsins undanfarin ár lætur af
því starfi í lok þessa leikárs.
Soffía Auður
Birgisdóttlr
Morgunblaðið/RAX ,
Mikil bjór-
sala hjá ATVR
BJÓRSALA hjá ÁTVR var meiri
fyrir þessa helgi en alla jafna.
Sennilega á heimsmeistarakeppnin
í handbolta sinn þátt í því en einn-
ig gæti verið um áhrif verðlækkun-
ar að ræða. Vegna niðurfellingar
innflutningsgjalds lækkaði inn-
fluttur bjór um 8,83% að meðaltali
og innlendur um 4,26%.
Einar Jónatansson, útsölustjóri
í verslun ÁTVR í Kringlunni, sagði
að meiri hreyfing væri á erlendum
bjór en áður og gæti skýringin
verið verðlækkunin um mánaða-
mótin.
Einar sagði bjórsölu hafa verið
meiri fyrir þessa helgi en aðrar
venjulegar helgar og taldi skýring-
una vera þá að HM ’95 í handbolta
væri að hefjast. Hann hefði áður
séð aukningu í bjórsölu fyrir stór-
mót í íþróttum.
í samtölum við nokkra veitinga-
menn kom fram að sums staðar
verður bjór lækkaður vemlega,
annars staðar ekki og enn annars
staðar er verið að skoða málið.
Þeir sem selja aðallega innlendan
bjór sögðu sumir að varla tæki því
að lækka um nokkrar krónur.
Á Rauða Ijóninu hefur bjórinn
þegar verið lækkaður í verði. Hálf-
ur lítri lækkaði úr 395 krónum í
350 og lítri úr 700 í 600 krónur.
Á Bíóbamum fer stór Pripps úr
400 krónum í 350. Á Feita dvergn-
um fengust þær upplýsingar að
sennilega yrði verðið lækkað nú
um helgina en ekki var búið að
ákveða hve lækkunin yrði mikil. Á
Kringlukránni, Sólon Islandus og
Kaffi Reykjavík hafði bjórverð ekki
verið lækkað en var alls staðar í
skoðun.
Lagafrumvarp
kynnt í ríkisstjórn
Bannað
að brjót-
ast inn í
læstar út-
sendingar
BANNAÐ verður með lögum
að búa til eða opna myndlykla
til að fá aðgang að læstum út-
sendingum án þess að greiða
áskriftargjald, ef framvarp
menntamálaráðherra nær fram
að ganga.
Bjöm Bjamason mennta-
málaráðherra kynnti lagafram-
varp þessa efnis á ríkisstjórnar-
fundi í gær. Hann sagði við
Morgunblaðið að hér á landi
hefði ekki verið nægileg vernd
fyrir þá sem sendu út læstar
sjónvarpssendingar gagnvart
þeim sem reyndu að bijótast inn
í læstar útsendingar.
Björn kynnti einnig framvarp
um breytingu á höfundarlögum
til samræmis við nýjar tilskip-
anir og samþykktir Evrópusam-
bandsins um nýja fjömiðlunar-
tækni.
„Bæði þessi frumvörp snerta
nýja tækni í fjölmiðlun og miða
að því að veita þeim sem nota
þessa nýju tækni sömu vernd
og þeim sem nota eldri tækni,“
sagði Björn Bjarnason.
Kjörnefnd VSÍ
Ólafur B. for-
maður, Víg-
lundur vara-
formaður
KJÖRNEFND Vinnuveitenda-
sambands íslands hefur komist
að þeirri niðurstöðu að tilnefna
Ólaf B. Ólafsson, framkvæmda-
stjóra Miðness hf. í Sandgerði,
formann sambandsins og Víg-
lund Þorsteinsson, forstjóra
B.M. Vallár hf., varaformann.
Aðalfundur VSÍ verður hald-
inn 16. maí nk. og lætur Magn-
ús Gunnarsson þá af for-
mennsku að eigin ósk. Kjör-
nefnd á eftir að ganga frá til-
lögu sinni formlega en gerir það
í síðasta lagi þremur dögum
fyrir aðalfund.
Framsókn
fær fjár-
laganefnd
FRAMSÓKNARFLOKKUR
mun hafa formennsku í fjár-
laganefnd Alþingis á komandi
þingi og Sjálfstæðisflokkur
mun fara með formennsku í
utanríkismálanefnd. Sam-
kvæmt heimildum Morgun-
blaðsins er talið líklegt að Jón
Kristjánsson verði formaður
fjárlaganefndar.
Að sögn Geirs Haarde, for-
manns þingflokks Sjálfstæðis-
flokks, hefur ekki verið tekin
ákvörðun um hver verður for-
maður utanríkismálanefndar en
það verði að liggja fyrir áður
en þing komi saman.
Sagði hann að meginreglan
við skiptingu nefnda milli
stjórnarflokkanna væri sú að
formennska í þingnefndum
fylgdi viðkomandi ráðuneytum
flokkanna. Þá muni stjómar-
andstaðan væntanlega óska eft-
ir formennsku í tveimur nefnd-
um en ekki hafí verið tekin
ákvörðum um hvaða nefndir
komi í hennar hlut.