Morgunblaðið - 06.05.1995, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 06.05.1995, Blaðsíða 8
8 LAUGARDAGUR 6. MAÍ 1995 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Vímuvarnadagnr Lionshreyfingarinnar á íslandi Athygli vakin á nauðsyn vímuvarna meðal unglinga í TILEFNI vímuvarnadags Lions í dag, laugardaginn 6. maí, selja Lionsfélagar sérstakt merki um allt land auk þess sem Lionsklúbb- ar standa í dag fyrir fjölskyldu- og unglingasamkomum. Á hverju ári vekur Lionshreyf- ingin athygli á nauðsyn vímuvama og því með hvaða hætti má koma í veg fyrir að vímuefni valdi ungl- ingum fjörtjóni. Tekjum af merkjasölu verður varið í að styrkja heilbrigt ungl- ingastarf og til þess að taka þátt í kostnaði við að þjálfa kennara í kennslu námsefnisins Að ná tökum á tilverunnieða „Lions Quest“ en á sjöunda hundrað kennarar hafa hlotið rétt til að kenna námsefnið og áætlað er að nær 5.000 grunn- skólanemar á landinu öllu njóti kennslu f því á hveijum vetri. Vímuvamahlaup Lions verður á Víðistaðatúni í Hafnarfirði í tilefni vímuvarnadagsins í dag og hefst kl. 13.00 með boðhiaupi milli grunnskólanna í bænum. Keppt er í fjórum aldursflokkum (7-10 ára). íþróttakennarar skólanna velja börnin sem keppa. Kl. 14 er götuhlaup fyrir almenning. Skráning er á staðnum frá kl. 12.30. Þátttakendur geta valið um 2 vegalengdir, 2,2 km eða 4,5 km og er óformleg tímataka. Innifalið í þátttökugjaldi er kakóglas og ijómavaffla og allir sem ljúka hlaupinu fá verðlauna- pening sem Sparisjóður Hafnar- fjarðar gefur. Hafnarfjarðarbær gefur öllum keppendum frítt í sundlaugina. Þegar allir eru komnir í mark verða dregin út aukaverðlaun, sem gefin eru af fyrirtækjum í bænum, úr skrán- ingarnúmerum þátttakenda. Á svæðinu verður tjaldasýning skátafélagsins Hraunbúa. Morgunblaðið/Kristinn BORGARSTJÓRA, Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, var í gær afhent fyrsta barmmerki Lionshreyf- ingarinnar en þau eru seld í tilefni vímuvarnadags. Frá vinstri: Bryndís Svavardóttir, formaður vímuvarnadagsnefndar, með barnabarn sitt, Bryndisi Líf Olavsdóttur, Ingibjörg Sólrún og Ólafur Briem, kynningarstjóri Lionshreyfingarinnar. Framleiðsla og sala búvara í marsmánuði Kindakj ötssalan 40% minni en í fyrra Samdráttur í Læri Salan síðustu 12 mánuði kjötsölu, en þó mestur í 9,0m.kr. kindakjöti -14,9% 6,8 m.kr. April '93- mars '94 Kindakjöt kr. 7.999.135 6.806.003 -14,9% Nautakjöt 3.253.066 3.235.442 É>S% Svínakjöt 2.915.998 3.175.072 8,9% Hrossakjöt 637.541 624.269 -2,1% Alifuglakjöt 1.523.960 1.376.703 -9,7% SALA kindakjöts í marsmánuði var 39,7% minni en í sama mánuði í fyrra, eða rúmlega 376,7 tonn á móti tæplega 625 tonnum í fyrra. Miðað við tólf mánaða tímabil hefur salan dregist saman um 14,9%, eða úr 7.999 tonnum í 6.806 tonn. Heildarkjötsalan miðað við tólf mánaða tímabil hefur dregist sarn- an um 6,8%, eða úr rúmlega 16.330 tonnum í tæplega 15.217 tonn. í marsmánuði var heildarsalan rúm- lega 1.109 tonn á móti tæplega tæplega 1.409 tonnum í fyrra, en það er 21,3% minni sala en í fyrra, sem skýrist að einhverju leyti af því að páskaverslunin var í mars í fyrra en í apríl núna. Aukin svínakjötssala Framleiðsla og sala svínakjöts síðustu tólf mánuði hefur verið tals- vert meiri en árið þar á undan. Þannig hefur framleiðslan aukist úr rúmlega 2.907 tonnum í rúmlega 3.205 tonn, eða um 10,2%, og salan úr 2.916 tonnum í 3.175 tonn, eða um 8,9%. Framleiðsla á nautakjöti á síð- ustu tólf mánuðum hefur aukist úr tæplega 3.276 tonnum í rúmlega 3.502 tonn, eða um 6,9%, en salan hefur hins vegar dregist saman um 0,5%, eða úr rúmlega 3.253 tonnum í rúmlega 3.235 tonn. Miðað við tólf mánaða tímabil hefur framleiðsla alifuglakjöts dregist saman úr tæplega 1.533 tonnum í tæplega 1.406, eða um 8,3%, og salan hefur dregist saman úr 1.524 tonnum í tæplega 1.377 tonn, eða um 9,7%. í marsmánuði var sala á alifuglakjöti hins vegar 8% meiri en í samamánuði í fyrra, og framleiðslan 22,9% meiri. Miðað við tólf mánaða tímabil hefur magn innveginnar mjólkur aukist um 0,2%, eða úr rúmlega 100.8 milljónum lítra í rúma 101 milljón lítra. Sala mjólkurvara hefur aukist um 1,8%, eða úr tæplega 98,5 milljónum lítra í tæplega 100,3 milljónir lítra. Innvegin mjólk í rtiars var 3,8% minni en í mars í fyrra og salan, mæld á grundvelli mjólkurfitu, var 3,2% minni. Er tal- ið að sölusamdrátturinn í mars stafi af því að páskasalan var í apríl í ár. Elín Agnarsdóttir og Ester Viðarsdóttir. Hjartveik börn Foreldrar barn- annaþurfaá stuðningí að halda STOFNFUNDUR Félags aðstandenda hjartveikra barna verður haldinn í Múlabæ, Ármúla 34, þriðjudag- inn 9. maí kl. 20.30. Félagið er stofnað til að styðja aðstandend- ur barna sem greinast með hjartveiki og til að berjast fyrir úrbótum. Meðal þeirra er að hjartaaðgerðir á bömum verði gerðar hér á landi ef kostur er, en til að svo megi verða þarf til dæmis að ráðast í kaup á hjarta- og lungnavél. Elín Viðarsdóttir og Ester Agnarsdóttir hafa unn- ið að undirbúningi stofnunar félagsins. Hve mörg börn greinast með hjartveiki árlega? „Hér greinast um 50-60 börn með hjartveiki árlega og meiri- hluti þeirra þarf að leita sér lækninga í útlöndum. Alls eru nú um eitt þúsund böm hér á landi sem hafa greinst hjartveik. Kostnaður við ferðir þeirra og aðstandenda þeirra til útlanda er mjög mikill og háar fjárhæðir gætu sparast ef aðgerðimar væru framkvæmdar hér á landi. Til þess þarf hins vegar hjarta- og lungnavél, sem ekki er til.“ Hver er tilgangurinn með stofn- un félagsins? „Fyrst og fremst verður fé- lagið vettvangur fólks til að leita sér stuðnings þegar barn grein- ist hjartveikt. Fj'öldi fólks hefur gengið í gegnum þá erfiðu reynslu og tilfinn- ingaálag sem fylgir veikindum af þessu tagi, en fæstir hafa átt þess kost að fá aðstoð annarra og leiðbeiningar um hvert sé best að snúa sér. Við hefðum viljað eiga þess kost að fá skýr svör við því, hvað í vændum væri, þegar okkar börn greindust hjartveik. Sumir þurfa aðeins að fara einu sinni til útlanda með barnið sitt í aðgerð, en aðr- ir þurfa jafnvel að fara nokkrum sinnum og í hvert skipti tekur ferðin að meðaltali 2-3 vikur. Við þetta bætist svo sjúkrahús- dvöl barnsins fyrir og eftir að- gerð. Allt reynir þetta mjög á aðstandendur og þar við bætast áhyggjur vegna fjárhagsins og ef til vill stefnir fólk atvinnu sinni í voða með miklum fjarvist- um.“ Hvaða þátt tekur Trygginga- stofnun ríkisins í kostnaði við ferðirnar út? ► Elín Agnarsdóttir er 29 ára húsmóðir. Hún á tvíburadætur, tveggja ára gamlar, og greind- ist önnur þeirra með þjartveiki á fyrstu vikum ævinnar. Elín Viðarsdóttir er þrítugur rönt- gentæknir. Hún er móðir tæp- lega þriggja ára telpu og fimm ára drengs sem greindist hjart- veikur skömmu eftir fæðingu. Dóttir Esterar og sonur Elínar hafa farið í hjartaaðgerðir í úttöndum. ..Tryggingastofnun greiðir ferðina og sjúkrahúsvistina fyrir barnið, auk ferðar fyrir einn aðstandanda og dagpeninga, sem oftast nægja fyrir hótel- dvöl. Þá er hins vegar allt uppi- hald eftir. Reyndin er einnig sú, að báðir foreldrar fara alltaf með baminu ef þess er nokkur kostur. Eins og áður sagði bæt- ist svo sjúkrahúsdvöl bamsins hér heima við, bæði fyrir og eftir aðgerð og hún hefur í för með sér vinnutap foreldra." Hveijar eru úrbætumar, sem þið teijið að þurfi að gera? „Fyrst og fremst viljum við að fleiri hjartaaðgerðir verði gerðar hér á landi. Við eigum menntaða lækna, en ástæða þess að ekki em gerðar fleiri aðgerðir hér er sú, að fjármagn skortir. Það hefur hins vegar verið reiknað út, að kostnaður við að færa aðgerðim- ar heim er um 30 millj- ónir króna. Þar af kostar hjarta- og lungnavél um 10 millj- ónir, en 20 milljónir til viðbótar þarf til að koma upp aðstöðu. Það er enginn spam- aður fólginn í því að senda böm- in út til aðgerða, því kostnaður við hveija aðgerð er að minnsta kosti 2 milljónir króna.“ Hafið þið rætt þessi mál við heilbrigðisyfírvöld? „Ingibjörg Pálmadóttir heil- brigðisráðherra verður sérstak- ur gestur á stofnfundinum á þriðjudag og við vonumst til að hún fái innsýn í okkar mál og öðlist skilning á þeim.“ Eigið þið von á fjölmenni á stofnfundinn? „Já, við vonumst til þess að aðstandendur hjartveikra barna fjölmenni, því margir hafa lýst því yfir að þeir vilji gjarnan taka þátt í stofnun félagsins, sem sé löngu tímabær." Aðgerðirnar verði gerðar hér á landi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.