Morgunblaðið - 06.05.1995, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 06.05.1995, Blaðsíða 38
38 LAUGARDAGUR 6. MAÍ 1995 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ GUNNAR ÖRN WILLIAMSSON + Gunnar Örn var fæddur 12. jan- úar 1974. Hann lést af slysförum .28. apríl sl. Gunnar Örn var jarðsunginn frá Dómkirkjunni i Reykjavík 5. maí sl. NÚ ER hann Gunnar Öm frændi ekki lengur á meðal okkar. Það er svo erfitt og sárt að sætta sig við það, svo ótrúlegt að fá aldrei aftur að sjá brosið hans bjarta. Það var svo bjart yfir honum Gunnari frænda, hann var svo hlýr og hjálpsamur. Hann átti jafn auðvelt að vinna hylli bama sem fullorðinna. Enda var alltaf spurt hvort Gunnar Örn kæmi ekki örugglega í matarboðin hennar ömmu Tótu. En nú kemur hann ekki oftar, nema í huga okk- ar og þar mun hann ávallt vera hjá okkur í minningunni. Allt frá bemsku og ætíð síðan var hann yndið í æskuranni Óx hann sem fagur fífill í túni brosti mót sólu sálin hreina. Elskaði sonur, ástkæri bróðir ástvinir þínir þig sífeilt trega þökk fyrir líf þitt, ljúft og fagurt ljómandi dæmi þinna vega. (Fr.Fr.) Þessi fallegu erindi leituðu á huga okkar núna og fannst okkur þau eiga svo vel við elskulegan frænda okkar. Síðustu minningar mínar af sam- vistum við Gunnar frænda voru tveimur dögum fyrir andlát hans. Fyrir hveija keppni, sem hann tók þátt í, heimsótti hann frænda sinn til að fullvissa mig um að allt væri tilbúið og um að hann myndi núna standa uppi sem sigurvegari. Ég varð þeirrar ánægju aðnjótandi að fá að taka þátt í og styðja frænda minn í þeirri íþrótt sem hans líf snerist um og okkar síðasta samtal snerist upp í umræðu um að á næsta ári skyldum við gera enn betur. Elsku frændi, í okkar augum ertu sigurvegarinn en þetta varð alltof dýrkeyptur sig- ur. Elsku Kristín, Villi, Eðvarð, Sigrún, Stef- anía og elsku amma Þórunn, megi guð gefa ykkur styrk á þessum dimmum dögum. Blessuð sé minning- in um góðan dreng. Anna María ogBjarni, Ingimar og Isak. Það er undarlegt og jafnframt sorglegt að hugsa til þess að Gunnar Orn Will- iamsson eigi ekki eftir að koma inn á skrifstofuna til mín, með örlitlum fyrirgangi og þetta stríðnislega bros á andlitinu, sem hann setti stundum upp og spyija hvernig gangi, hvort ég hafí nú eitthvað að gera eða illt sé nú í efni með félagið okkar, Stjörnuna í Garða- bænum, eða einhveijar aðrar hnyttnar athugasemdir. Gunnar Öm hóf störf hjá Guð- mundi Jónassyni hf. fyrir um það bil tveimur ámm, fyrst á verkstæð- inu en eftir að hann tók meirapróf- ið þá stundaði hann eingöngu akst- ur. Honum fórst það vel úr hendi og varð hann brátt vinsæll og eftir- sóttur bílstjóri, einkum af ungu kynslóðinni, og var það gagnkvæmt því að Gunnar hafði yndi af að umgangast böm og var mjög barn- góður. Gunnar Öm var á unglingsaldri þegar við kynntumst, þá átti skíða- íþróttin hug hans allan og náði hann góðum árangri í þeirri íþrótta- grein og vann til margra verðlauna með félagi sínu, Ármanni. Seinna beindist áhugi hans að vélsleðum og keppni á vélsleðum og hafði hann getið sér gott orð á þeim vettvangi og var að undirbúa keppni á íslandsmótinu í ár þegar hann féll frá. Það er erfitt að sætta sig við það þegar ungur maður er hrifinn á brott á morgni lífsins og framtíð- in virðist blasa við eins og óskrifað blað. Minningar um góðan dreng standa þó eftir og ylja um hjarta- rætur. Gunnar Öm Williamsson mætti BRIDS Umsjön Arnór G. Ragnarsson Kjördæmakeppnin á Egilsstöðum 20.-21. maí KJÖRDÆMAKEPPNI Bridssam- bandsins verður haldin á Egilsstöð- um dagana 20. og 21. maí nk. og verður spilað og gist í Hótel Vala- skjálf. Spilað er í tveimur deildum, spilaðir 20 spila leikir og spilar hver sveit 120 spil. Mótssetningin verður á laugar- dag kl. 12.45 en verðlaunaafhelding á sunnudag kl. 18.15. Ef spilarar þurfa að fá gistingu er boðið upp á sumarhús þar sem nóttin kostar 1.200 kr. með morgunverði. Ef gist er á hótelinu kostar gistingin 2.000 kr. Hægt er að fá mat frá föstudagskvöldi til sunnudagskvölds fyrir 4.000 krón- ur. Hvert svæði sendir 4 sveitir á mótið og skulu þær vera frá a.m.k. 4 félögum. Svæðastjóm ákveður hvernig þær eru valdar og raðar niður á borð. Farið verður eftir meistarastigaskrá frá í febrúar þeg- ar ákvörðun er tekin um fyrir hvaða félag viðkomandi spilari spilar. Bridsdeild Barðstrendinga Áfram spilum við. Mánudags- kvöldin 8., 15. og 22. maí verður spilaður tvímenningur. Veitt verða kvöldverðlaun. Þá verða einnig veitt verðlaun fyrir samanlagðan árang- ur tvö kvöld og þijú kvöld. Spilað í Þönglabakka 1, stundvíslega kl. 19.30. Skráning á staðnum. Bridsdeild Félags eldri borgára, Kópavogi Spilaður var tvímenningur föstu- daginn 28. apríl ’95. 14 pör mættu. Úrslit urðu: Jósef Sigurðsson — Júlíus Ingibergsson 184 GarðarSigurðsson-CyrusHjartarson 180 Ásta Erlingsdóttir - Gunnþórunn Erlingsdóttir 178 Einar Einarsson - Helgi Vilhjálmsson 169 Helga Ámundadóttir - Hermann Finnbogason 169 Spilaður var tvímenningur þriðju- daginn 2. maí ’95. 19 pör mættu, spil- að var í 2 riðlum, úrlsit urðu: A-riðiU Ásta Erlingsdóttir—Ámi Jónssson 121 BergurÞorvalddson-ÞórarinnÁmason 120 GarðarSigurðsson-CyrusHjartarson 117 Heiður Gestsdóttir—Karl Adolfsson 116 B-riðill ÁstaSigurðardóttir-MargrétSigurðardóttir 96 HannesAIfonsson-EinarElíasson 91 Jón Friðriksson - Steinn Sveinsson 91 ÞórhallurArnason-SveinnSæmundsson 91 Bridsfélagið Muninn, Sandgerði Miðvikudaginn 26. apríl hófst ís- landsbankamótið, tveggja kvölda tví- menningsmót á vegum íslandsbanka í Keflavík, í Samkomuhúsinu, Sand- gerði. Þátttaka var heldur minni en menn reiknuðu með (en fámennt og góðmennt). Alls mættu 14 pör til leiks frá fimm félögum innan vébanda BSÍ. Vegleg verðlaun eru í boði fyrir þtjú efstu sætin, 15.000, 10.000, 5.000. örlögum sínum á sólbjörtum vor- degi 28. apríl sl. þegar hann dó í hörmulegu vélsleðaslysi á Akur- eyri. Enginn ræður sínum nætur- stað. Blessuð sé minning hans. Kæru Kristín og Willi og fjöl- skylda, ég votta ykkur dýpstu sam- úð. Jón M. Björgvinsson. Harmafregn berst heim að Skarði. Gunnar Örn er dáinn. Drengurinn sem kom til sumardval- ar að Skarði með afa sínum, Guð- mundi Jónassyni, hinum kunna og duglega fjallabílstjóra. Guðmundur vinur okkar bað okkur fyrir lífs- glaða dóttursoninn sinn og treysti því að hér í Skarði mundi hann njóta sín. í sveitinni var ávallt nóg að gera og vélar áttu þegar hug drengsins allan. Gunnar reyndist okkur fljótt góður drengur og vann okur vel og fór aldrei á haustin fyrr en á síðasta degi, þegar skól- inn kallaði og sumrin urðu níu. Hann gekk röskur til allra verka og sveitastörfin áttu vel við hann. Ævinlega sýndi hann okkur virð- ingu ög heila vináttu. Gunnar Örn ljómaði af lífskrafti, hár, grannur og bjartur yfirlitum. Hann var góður vinur vina sinna og einn þessara einstaklinga sem börnin löðuðust að. Þegar mikið var um að vera var hann stundum kallaður „litli Guðmundur". Var það gert til hróss og líkaði honum það vel. ' Gunnar átti heimili sitt með for- eldrum og systkinum í Víðilundi 1, Garðabæ, umvafinn ástúð þeirra og hlýju alla tíð. Foreldrar hans studdu hann til þess náms sem áhugi hans beindist að og vann hann nú við fyrirtæki fjölskyldunn- ar. Heimilisfólkið allt að Skarði kveður með söknuði ungan vin, sem frá götunni gekk allt of fljótt. Góð- ar minningar eigum við frá þessum sumrum og um leið og við þökkum fyrir kynnin sendum við foreldrum hans, systkinum og ömmu innileg- ustu samúðarkveðjur. Kveðja okkar verða ljóðlínur skáldsins okkar úr Landsveitinni: Þar englar engli fagna, er allar sorgir þapa og deyja’ í dýrðarhljóm. Ó, mikli drottins dagur, er dauðinn verður fapr, hvert ár sem lífdögg laugi blóm! Sigríður Th. Sæmundsdóttir. Staðan eftir sex umferðir af þrett- án: GarðarGarðarsson-EyþórJónsson +22 Víðir Jónsson—Halldór Áspar +19 KjartanÓlason-ÓliÞórKjartansson +16 GunnlaugurSævarsson-Sverrir +15 ÞrösturÞorláksson - Anna Karlsdóttir +14 Gisli R. ísleifsson - Guðjón S. Jensen +14 Seinna kvöldið _var spilað 3. maí. Keppnisstjóri var ísleifur Gíslason. Bridsfélag kvenna Mánudaginn 24. apríl hófst þriggja kvölda tvimenningur hjá félaginu, ein- ungis 10 pör mættu til leiks en hægt er að bæta fleirum við vegna þess að tvö bestu kvöldin telja. Félagar eru hvattir til að mæta á þau tvö kvöld sem eftir eru, karlmenn eru einnig velkomnir, annars er staða efstu para þannig: Elín Jóhannsd. - Hertha Þorsteinsd. 132 Halldóra Magnúsd. — Bima Stefnisdóttir 119 HannaFriðriksd.-GuðrúnErlendsd. 115 SigrúnPétursd.-GuðrúnJöigensen 113 Bridsfélag Breiðholts Sl. þriðjudag, 2. mai, iauk vortvi- menningi félagsins. Úrslit urðu þessi: LiljaGuðnad.-MagnúsOddsson 702 María Ásmundsd. - Steindór Ingimundarson 696 Guðmundur Þórðarson - Þorvaldur Þórðarson 693 Þóranna Pálsd, - Ragna Briem 666 FriðrikJónsson-LúðvíkWdowiak 660 Hæstu skor kvöldsins hlutu: Guðmundur Þórðarson - Þorvaldur Þórðarson 254 Maria Ásmundsd. - Steindór Ingimundarson 242 BaldurBjartmarsson-HelgiSkúlason 229 Næsta þriðjudag verður spilaður eins kvölds tvímenningur. Þriðjudag- inn 16. maí verður spilaður einmenn- ingur sem er jafnframt firmakeppni. Spilað er í Þönglabakka 1 kl. 19.30. Það var mér mikið áfall er mér barst sú fregn til Þýskalands að vin- ur minn Gunnar Örn Willaimsson hefði látist af slysförum. Orð fá ekki lýst þeirri sorg og þeim söknuði sem ríkir þegar svo sviplegir atburðir gerast, að ungur maður í blóma lífs- ins er numinn á brott til annarra til- verustiga. Gunnar Erni kynntist ég ekki náið fyrr en á síðasta ári, en sá skammi tími var nægur til þess að hans per- sónuleiki heillaði mig. Það var þessi kraftur og sjálfstæðið sem í honum bjó. Þegar við Gunnar hittumst var iðulega um fátt annað rætt en vél- sleðamennskuna. Hann var fljótur að ná tökum á vélsleðaíþróttinni og að skipa sér í hóp meðal þeirra fremstu í þeirri grein. Þær eru eftir- minnilegar stundirnar sem ég átti + Guðríður Hreinsdóttir fæddist 22. desember 1902 að Kvíarholti í Holtum, Rangárvallasýslu. Hún lést á Borgarspítalanum 4. apríl sl. Guðríðar var jarðsungin frá Seljakirkju 12. apríl sl. Af eilífðar ljósi bjarma ber sem brestina þunp greiðir, vort líf sem svo stutt og stopult er það stefnir á æðri leiðir. Og upphiminn fegri en auga sér mót öllum faðminn breiðir. (Einar Benediktsson) ÓÐUM hverfur af sjónarsviðinu sú kynslóð sem fæddist og sleit barns- skónum um síðustu aldamót. Okkur systumar langar með fáum orðum að minnast kærrar móður- systur, Guðríðar Hreinsdóttur eða Gauju eins og við kölluðum hana. Hún var síðust fimm systkina til þess að kveðja þennan heim, en öll voru þau fædd kringum aldamótin. Margar eru minningar okkar um þessa ljúfu, kyrrlátu frænku okkar bæði frá bemsku okkar og síðan eftir að hún giftist lífsförunauti sín- um, Frímanni Jónssyni. Þau voru einstaklega samrýnd og áttu sér mörg sameiginleg áhugamál. þau spiluðu brids við systkini Gauju, þau voru bæði ákaflega bókelsk og gest- risni var þeim báðum í blóð borin. Öll böm löðuðust að þeim og elskuðu að fara í heimsókn til Gauju og Frí- manns. Þau uppskám líka eins og til var sáð því bamalán þeirra var einstakt. Fyrst synir þeirra Jón og + Ottó Jónsson fæddist á Dalvík 1. janúar 1921. Hann andaðist á Borgarspítal- anum 9. apríl síðastliðinn og var jarðsunginn frá Dómkirkj- unni í Reykjavík 19. apríl sl. VINÁTTA setur sér ekki ávallt landamæri aldurs og mismunandi lífsviðhorfa, sem eiga sér rætur í hröðum þjóðfélagsbreytingum þess- arar aldar. Ottó Jónsson var þeirrar gerðar að hann lét ekki talsverðan aldursmun aftra sér frá því að rækta stöðugt vináttu við þann sem hér stýrir penna, svo að aldrei bar skugga á. Kynni okkar hófust í Menntaskól- anum í Reykjavík fyrir rúmlega þremur áratugum. Hinn kviki ensku- kennari vakti athygli okkar nemenda vegna hispurslausrar framkomu og framúrskarandi framburðar. Sex árum síðar lágu leiðir okkar beggja saman á ný á kennarastofu MR og áttum við eftir að vera samkennarar í ensku um árabil. Þrátt fyrir tak- markaða aðdáun Ottós á skipulögð- um vinnubrögðum tókst ávallt far- sællega að stýra hinu sameiginlega fleyi í höfn. Þolrif hins helmings undirritaðs, þ.e. þýskukennarans í mér, voru þó aldrei svo þanin að stórhætta væri á ferðum. Ottó hafði nefnilega sérstakt lag á að skapa stemmningu glaðværðar og hressi- leika sem eru ómetanlegir eiginleik- ar í öllu samstarfi. í þau skipti sem með Gunnari og bróður hans Eðvarði í vélsleðaferðunum á Langjökli og Vatnajökli í fyrra. Sérstaklega er ferðin sem við fórum inn á Hvera- velli á milli jóla og nýárs mér enn í fersku minni. Veður var afar slæmt og verulega reyndi á samheldnina hjá ferðafélögunum. Þar reyndist Gunnar áreiðanlegur og traustur ferðafélagi, hann var sérstaklega ósérhlífínn og tók virkan þátt í öllu því sem þurfti að gera. Nú er hann Gunnar horfínn á braut til annarra hlutverka og það sem eftir situr eru góðar minningar sem munu lifa. Ég vil senda foreldr- um og systkinum hans mínar dýpstu samúðarkveðjur og megi góður guð styrkja þau í sorginni. Hreinn er kvæntust þeim Aðalheiði og Birgit sem reyndust tengdafor- eldrum sínum hinar bestu dætur. Þeirra fjölskyldur hafa vaxið og dafnað með efnilegum börnum og bamabörnum. Þau sýndu Gauju og Frímanni sérstaka umhyggju og eft- ir að Frímann dó fyrir tæpum tveim- ur árum hafa þau verið Gauju ómet- anleg stoð. Lýsandi dæmi um elsku og virðingu barnabarnanna er að eitt af langömmubörnunum heitir Guðríður. Gauja sagði okkur líka frá því að í vetur sem leið er hún gat ekki lengur gengið stiga, þá var hún bara borin á „gullstól” til þess að vera viðstödd skírn yngsta langömmubarnsins. Gauja lifði sannarlega tímana tvenna. Hún ólst upp í torfbæ í Kvíarholti í Holtum þar sem kulda- bólga á höndum og fótum var ekki óalgeng. Þvottur var þveginn í bæ- jariæknum og staðið við engjaslátt í votum mýrum. En mannlífið var gott og fallegt og minntust Kvíar- holtssystkinin með gleði, söngs og harmonikuleiks í fjósinu þar sem hlýjast- var. Gauja var víða kaupa- kona á sínum yngri árum og alls staðar eftirsótt vegna prúðmennsku sinnar og verklagni. Síðustu æviár sín dvöldust Gauja og Frímann í Seljahlíð. Þar fannst þeim gott að eyða ævikvöldinu og höfðu þau með trúmennsku sinni unnið fyrir þeim góðu dögum sem þau áttu í Seljahlíð. Blessuð sé minning góðrar konu. við störfuðum saman sem skjalaþýð- endur einkenndust vinnubrögð Ottós af skarpskyggni og næmri tilfinn- ingu fyrir íslensku og ensku máli, en það eru vissulega eigindir, sem prýða góðan þýðanda. Á ferðalögum mínum um lönd Suður- og Mið-Evrópu með Ottó sem ferðafélaga eða sem fararstjóra dáð- ist ég ávallt að því hve fljótur hann var að komast í gott talsamband við innfædda af öllum stigum. Þegar einhver vandamál komu upp, sáu persónutöfrar hans með leiftrandi brosi í fararbroddi til þess að menn áttuðu sig þegar á því að í raun hafi verið vitlaust gefið. Ottó var mikill og góður keppnis- maður, enda þrautþjálfaður knatt- spymumaður á yngri árum. Kapp hans og sigurvilji við skákborðið og í badminton komust iðulega á það stig að mér fannst sem við mér blasti ýmist hamhleypan Kasparov eða þá endurborinn Glámur í glímum þeim. En fyrst og síðast var það dreng- skapurinn sem einkenndi mótheija minn, hvemig sem glíman endaði hveiju sinni. Þakklæti er mér efst í huga fyrir allar hinar ánægjulegu stundir sem ég átti með Ottó, vini mínum. Dótt- ir mín, Lena Rós, saknar vissulega einnig góðs vinar, sem sýndi henni ávallt mikla hlýju og traust. Fjölskyldu Ottós og aðstandend- um færi ég innilegar samúðarkveðj- ur. Ásmundijr Guðmundsson. Þór Kjartansson. GUÐRÍÐUR HREINSDÓTTIR Ingigerður og Unnur. OTTÓ JÓNSSON
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.