Morgunblaðið - 06.05.1995, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 06.05.1995, Blaðsíða 20
MORGUNBLAÐIÐ 20 LAUGARDAGUR 6. MAÍ 1995 ERLENT Reuter Bretadrottn- ing minnist fómarlamba stríðsins FORSÆTISRÁÐHERRAR, kon- ungar og forsetar frá 60 ríkjum koma saman í London um helg- ina í tilefni af 50 ára afmæli loka síðari heimsstyrjaldarinn- ar í Evrópu. Elísabet Breta- drottning hóf hátíðahöldin með ræðu á breska þinginu þar sem hún hvatti landsmenn til að sýna þakklæti vegna þeirra fórna sem voru færðar í stríðinu og minnast þeirra sem féllu. A myndinni færir forseti lávarða- deildarinnar drottningunni ávarpið og við hlið hennar situr Karl Bretaprins. Clinton full- vissar Tékka um stækkun NATO Rússar rjúfa ein- hliða vopnahlé Grosní. Reuter. Washington. Reuter. BILL Clinton Bandaríkjaforseti sagði Vaclav Klaus, forsætisráð- herra Tékklands, á fimmtudag að Bandaríkin myndu standa að stækkun Atlantshafsbandalagsins, NATO, hvað sem mótmælum Rússa liði, að sögn tékkneska leið- togans. „Ég var fullvissaður um að forsetinn er fylgjandi stækkun NATO,“ sagði Klaus eftir fund hans með Clinton í Hvíta húsinu. Klaus sagði Clinton viðurkenna að Tékkland tilheyrði þeim hópi ríkja sem yrði veitt aðild að NATO. Bandaríkjaforseti hefði sagst myndu ræða málið við Borís Jelts- ín Rússlandsforseta á fundi þeirra í Moskvu í næstu viku. „Hann stað- festi að staða hans væri sterk og að ekki yrði hægt að hafa neikvæð áhrif á hana,“ sagði Klaus. Clinton og Jeltsín munu eiga fund í Kreml á miðvikudag þar sem þeir munu ræða ýmis mál sem rík- in deila um, m.a. um stækkun NATO, sem Rússar telja ógnun við öryggi sitt. Klaus lagði á það áherslu er hann ræddi við fréttamenn í Was- hington að ósk Tékk um aðild að NATO væri ekki beint gegn Rúss- um heldur lægi að baki ósk um að tilheyra Evrópu í einu og öllu. RUSSNESKAR herþyrlur gerðu í fyrrinótt og í gær harðar árásir á helsta vígi uppreisnarmanna í Tsjetsjníu, borgina Bamut, að sögn borgarbúa. Þar með hefur einhliða vopnahlé Rússa verið rofið en það var sett vegna hátíðahalda í tilefni þess að fimmtíu ár eru liðin frá stríðslokum í Evrópu. Uppreisnar- menn segjast ætla að halda bardögum í lágmarki á meðan hátíðahöldunum stendur. Rússar hafa neit- að að tjá sig um málið en að sögn fólks sem býr í borg- inni og skammt fyrir utan hana, vörpuðú Rússar sprengjum og skutu eld- flaugum á borgina á fimmtudags- kvöld og fram eftir nóttu. Þá hófust árásir að nýju í gærmorgun. Borís Jeltsín Rússlandsforseti Iýsti yfír tveggja vikna hléi á bardög- um í tilefni hátíðahalda í Moskvu, sem leiðtogar rúmlega fimmtíu ríkja munu vera viðstaddir. Pavel Gratsjov, varnarmálaráð- herra Rússlands, sagði í gær að tsjetsjenskir skæruliðar hefðu huns- að vopnahléð og að þeir hefðu gert að minnsta kosti tíu árásir á dag á rússneska herliðið frá því að vopna- hléð tók gildi. Skæruliðar Tsjetsjena kváðust í gær myndu halda bardögum í lág- marki á meðan hátíðahöldin stæðu yfir. AMERÍKUBIKARINN ’95 JUpphafiö: Fimm mínútum áöur en ræst er af staö hringsigla bátarnir viö marklínuna af kappi til aö skapa sér bestu stöðu er skotið hveður viö. JBeitivindsleggur: Þegar siglt er gegn vindinum reynir báturinn sem á undan fer aö stjórna því hve mikinn byr hinn fær í seglin meö þvi aö kross-sigla fyrir framan hana. Vannæring skerðir námsgetu milljóna barna Boston. Morgunblaðið. VÍSINDAMENN við Tufts-háskóla í Boston greindu frá því í vikunni, að milljónir fátækra barna í Barida- ríkjunum byggju við næringarskort, sem gæti haft alvarleg áhrif á náms- getu þeirra og framtíðarmöguleika. Sögðu þeir að allt að helmingur barna, sem byggju við fátækt, fengi talsvert færri hitaeiningar og mikil- væg næringarefni á borð við járn, sink og vítamín, sem nauðsynleg eru til náms og hugsunar, en sérfræð- ingar mæltu með. Þetta er sennilega fyrsta banda- ríska rannsóknin á ólíku mataræði barna eftir efnum og J. Larry Brown, sem vann að henni, sagði, að munurinn hefði komið sér veru- lega á óvart. Búast má við að þessar niðurstöð- ur muni skjóta upp kollinum í um- ræðu, sem repúblikanar hafa komið af stað um það hvort hætta eigi að afhenda matarmiða og láta hvert ríki þess í stað fá ákveðna upphæð til að ráðstafa að vild til félagsmála. Ýmis hægri samtök, þar á meðal Heritage-stofnunin, hafa þegar dregið í efa að fátæk böm séu van- nærð. Fijálslyndir hópar segja hins vegar að könnunin sýni að niður- skurður geti aðeins gert illt verra. Deborah Frank, læknir við borg- arspítalann í Boston, sagði að þetta væri áhygjuefni vegna þess að starf- semi heilans væri sérlega viðkvæm fyrir næringarskorti. Skortur á næringu drægi úr námsgetu, slævði hugsun og skapaði hegðunarvanda- mál alllöngu áður en hann hefði áhrif á vöxt og líkamlegan þroska. í könnuninni var miðað við, að ijögurra manna fjölskylda teldist fátæk ef árstekjur hennar hefðu ver- ið undir 1,2 milljónum ÍSK árið 1993. 11 Snúiö viö baujur: Bátarnir veröa aö hafa baujurnar á stjórnboröa, hægri hliö, er þeir beygja viö þær og eru þá oft hörö átök um stööur. auja Undanvindsleggur: Þegar siglt er undan vindi getur skútan sem attar fer skýlt á hina svo vindurinn fari úr seglum hennar og hún missi ferö. 2. bauja Vindátt Rás- og endamark KYRRA- J h HAF y m m W Kalifornía Missionllói ■ Jj'i .....' rFlugvöllur \ Coronaao í ' % San San Skútuhöfn San Diego .Svœöl á kortl v “.../ Keppnis- brautin Diego flói mllur Heimild: Chicago Tribune Knight-Ridder Tribune Conner keppir um Amer- ikubikarinn í sjötta sinn Úrslitaeinvígið um Ameríku- bikarinn í skútusiglingum hefst í dag undan San Diego --------------*------"9------ í Kaliforníu. I grein Agústs -9-----------------------—— Asgeirssonar kemur fram, að á óvart komi að skútu- stjórinn Dennis Conner skuli keppa til úrslita í sjötta sinn. LOKAÞÁTTUR kappsiglingarinnar um Ameríkubikarinn hefst í dag á safírgrænum sjónum undan San Diego í Kalifomíu. Er það í 29. sinn sem keppt er um silfurkönnuna, eftirsóttustu verðlaun skútusíglinga, sem keppt hefur verið um frá árinu 1851. Mikla athygli vekur, að Dennis Conner, mesti kappsigl- ingamaður fyrr og síðar, skuii veija bikar- inn fyrir Bandaríkin. Gekk honum brösug- lega framan af undankeppninni og komst eiginlega í úrslit forkeppninnar fyrir mis- kunnsemi keppinauta sinna. Gegn Conner siglir nýsjálenski skútustjórinn Peter Blake á skútunni Black Magic, eða Svartagaldri, en þar er líka mikill afreksmaður á ferð. Conner sigldi upp og ofan í forkeppn- inni og kemur því á óvart að hann skuli sigla til úrslita. Virðist hann hafa verið SKIPVERJAR á Ungu Ameríku búa sig undir seglaskipti á æfingu fyrir lokaeinvíg- ið um Ameríkubikarinn. mun betur að sér um óvenjulega vinda og sjávarstrauma undan San Diego því smám saman vann hann á og stóð að lokum uppi sem sigurvegari í undankeppninni sem hófst 12. janúar. Sumir segja það til marks um einstaka hæfileika hans sem skútustjóra en aðrir segja hann kominn í úrslitin með klækjum og regl- ur keppninnar hafi verið sniðgengnar er skútufélögin þijú sammæltust um það fyrir úrslitin í flokki veijenda, að allar þijár skút- urnar sigldu í lokalotunni í stað tveggja stigahæstu. Hefði það orðið raunin hefði Conner setið eftir með sárt ennið. í staðinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.