Morgunblaðið - 06.05.1995, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 06.05.1995, Blaðsíða 56
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN I, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBUSCENTRUM.IS / AKUREYRl: HAFNARSTRÆTI 85 LAUGARDAGUR 6. MAÍ 1995 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Æft fyrir opnunarhá- tíð HM 95 UM FJÖGUR hundruð börn úr íþróttafélögunum á Stór-Reykja- víkursvæðinu tóku þátt í æfingu fyrir opnunarhátíð Heimsmeist- aramótsins í handknattleik sem hefst á morgun. Þrír leikir verða í Laugardalshöll, Sviss-Túnis kl. 15, Ungverjaland-Suður-Kórea kl. 17 og ognunarhátiðin hefst kl. 19. Leikur Islands og Bandaríkjanna hefst kl. 20 og er því sem næst uppselt í sæti á leikinn. Keppni í öðrum riðlum hefst á mánudag. 50 milljónir manna/28 og B-blað -------♦ ♦ ♦--------- Kindakjötssala Verulegur samdráttur SALA kindakjöts hefur dregist veru- lega saman og var 40% minni í i'narsmánuði en í sama mánuði í fyrra. Kindakjötssala hefur dregist saman um tæp 15% á tólf mánaða tímabili. Heildarkjötsala miðað við tólf mánaða tímabil hefur dregist saman um 6,8%, fer úr rúmlega 16.330 tonnum í tæplega 15.217 tonn. Framleiðsla og sala svínakjöts hefur hins vegar talsvert aukist síðustu tólf mánuði miðað við sama tímabil í fyrra, eða um 10,2%. Þá hefur framleiðsla á nautakjöti á síðustu tólf mánuðum aukist um tæp 7% en salan dregist saman um 0,5%. Miðað við tólf mánaða tímabil hefur framleiðsla alifuglakjöts dreg- ist saman úr tæplega 1.533 tonnum í tæplega 1.406 tonn. Miðað við tólf mánaða tímabil hefur magn innveginnar mjólkur aukist um 0,2% og sala mjólkurvara aukist um 1,8%. ■ Kindakjötssalan/8 Morgunblaðið/RAX Ráðherra ákveður úreldingu Mjólkursamlags Borgfirðinga Sól hf. í viðræðum um framhald á starfsemi GUÐMUNDUR Bjarnason, landbún- aðarráðherra, hefur ákveðið að stað- festa samning um úreldingu Mjólkur- samlags Borgfírðinga. Páll Kr. Páls- son, framkvæmdastjóri Sólar hf., hefur lýst yfir miklum vonbrigðum með þá ákvörðun ráðherrans, en for- ráðamenn Sólar hafa undanfama daga rætt við stjóm Kaupfélags Borgfírðinga um aðrar leiðir í málinu. Viðræður forsvarsmanna Sólar og Kaupfélags Borgfírðinga hafa falið í sér að kannaður yrði möguleiki á því að stofna nýtt hlutafélag í eigu fyrirtækjanna tveggja og mjólkur- innleggjenda hjá MSB um fram- leiðslu á söfum og mjólkurafurðum í stað þess þess að grípa til úrelding- ar mjólkursamlagsins. Guðmundur Bjamason staðfesti að hann hefði vitað af áhuga for- svarsmanna Sólar og að þeir væm í viðræðum við Kaupfélag Borgfirð- inga. Aðspurður hvað ylli því að ákvörðun væri tekin um staðfestingu samningsins um úreldinguna á sama tíma, sagðist Guðmundur ekki hafa fengið neinar óskir um breytingar á því sem fyrir hefði legið um málið. Sól hf. bað um frest Páll Kr. Pálsson sagðist hafa ósk- að eftir því við Guðmund að hann frestaði því að skrifa undir úrelding- una á meðan viðræður ættu sér stað um sameiningu drykkjarvörufram- leiðslu Sólar og mjólkurframleiðslu í Borgamesi í nýju hlutafélagi. „Mér skildist á ráðherranum að hann væri jákvæður fyrir því að afstaða stjóm- armanna kaupfélagsins yrði könn- uð,“ sagði Páll. „Við emm rétt að byija að ræða við þessa menn og höfum til þessa fengið jákvæðar und- irtektir. Eg get þvi ekki annað en lýst furðu minni með þá ákvörðun að ijúka til að skrifa undir úrelding- una núna.“ Guðmundur Bjamason sagðist ekki hafa fengið neina formlega ósk varðandi þetta mál, enda hlyti að- ganga forsvarsmanna Sólar að því að vera í gegnum eigendur samlags- ins. „Ég hef heldur ekki fengið neitt frá kaupfélagsstjóm í dag [í gær] með þeim hætti að það væri ástæða til þess að breyta því sem hér lá fýrir,“ sagði Guðmundur og neitaði því að þrýst hefði verið á sig af utan- aðkomandi aðilum að ganga frá málinu. ■ Ráðherra staðfestir/14 Afliað glæðast á Reykja- neshrygg ÚTHAFSKARFAVEIÐIN á Reykja- neshrygg hefur verið að glæðast síðustu daga eftir lélega byijun vertíðar. Sextán íslensk skip em þar nú á veiðum og annar eins fjöldi skipa frá öðram löndum. Frést hefur af góðri veiði á Reykjaneshrygg síðustu daga. Sjó- menn og útgerðarmenn draga þó fremur úr fréttum af góðri veiði, segja að allar fréttir hafí áhrif á verð afurðanna í Japan. Þórður Magnússon, skipstjóri á frystiskip- inu Þemey RE, segir aðspurður um veiðina að hún sé „sóminn sjálfur“. Skipið var í gær búið að vera þijá daga á veiðum og hefur aflast nóg til að fullnýta vinnslugetuna allan tímann. Lengst af vertíð hefur ver- ið fremur tregur afli, að mati ís- lensku skipstjóranna, og segir Þórð- ur að tími hafí verið kominn á betra gengi. Sextán íslensk skip Sextán íslensk skip em á karfa- veiðunum, samkvæmt upplýsingum Tilkynningaskyldunnar. Auk þess em þar nokkur skip sem íslending- ar standa að útgerð á, rússnesk skip, færeysk og norsk. Telur Þórð- ur á Þerney að um 30 skip séu á svæðinu. Veiðisvæðið er nú mun sunnar en verið hefur, um 450 sjó- mílur suðvestur af Reykjanesi, og segir Þórður að karfínn sé á litlum svæðum og órafjarlægð á milli. ♦ ♦ ♦--- Féll sjö metra fram af klettum NÍU ára gamall drengur féll sjö metra fram af klettum við Gufunes- höfða í gær. Drengurinn meiddist aðeins lítillega. Lögreglunni var tilkynnt um slys- ið kl. 17.40 í gær. Drengurinn var fluttur með sjúkrabíl á slysadeild og reyndust meiðsli hans minni háttar. Sjö síldarskip á land- leið með fullfermi ALLS vom 22 skip farin til veiða í Síldarsmugunni í gærkvöldi sam- kvæmt upplýsingum Tilkynninga- skyldunnar. Heldur dró úr veiði í gær frá því í fyrradag að sögn Grétars Rögnvarssonar skipstjóra á Jóni Kjartanssyni. Hann var á leið til Norðfjarðar með 1.080 tonn af ágæt- is síld til bræðslu þegar talað var við hann í gærkvöldi. Aflinn fékkst að mestu í þremur köstum og var stærsta kastið 450 tonn. Samkvæmt upplýsingum blaðsins vora Júpiter, Súlan, Öm, Hólmaborg, Börkur og Sighvatur Bjamason einn- ig á landleið. Öll skipin munu hafa verið með fullfermi eða því sem næst. Grétar reiknaði með að allur > loðnufiotinn yrði kominn á síldarmið- in á næstu sólarhringum. Hann sagð- ist ekki hafa orðið var annarra en íslenskra skipa í Síldarsmugunni. 250 þúsund tonna kvóti íslensk og færeysk stjórnvöld náðu í fyrrinótt samkomulagi um að löndin tvö setji sér einhliða 250.000 tonna veiðikvóta úr norsk-íslenska síldarstofninum í eigin lögsögu og Síldarsmugunni. Þetta samkomulag var gert eftir að slitnaði upp úr við- ræðum við Norðmenn og Rússa. Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráð- herra og Halldór Ásgrímsson utan- ríkisráðherra segja óheppilegt að hafa þurft að grípa til þessara ráða, en telja að veiðamar muni ekki ganga á hrygningarstofn síldarinnar. Vex um meira en milljón tonn Alþjóðahafrannsóknaráðið lagði til að veidd yrðu 520.000 tonn úr norsk-íslenska síldarstofninum á þessu ári til að tiyggja sem hraðast- an vöxt hrygningarstofnsins. Jakob Jakobsson, forstjóri Hafrannsókna- stofnunar, segir að nú sé hrygning- arstofninn 2,4 milljónir tonna. Ef veidd verði 650.000 tonn verði stofn- inn 3,7 milljónir tonna á næsta ári. Þótt veiðin aukist um 250.000 tonn muni stofninn engu að síður stækka um meira en milljón tonn. Þessi aukning komi til vegna mjög góðs árgangs frá 1991 sem verði kyn- þroska á næsta ári. Árið 1997 bæt- ist svo við 1992-árgangurinn sem er enn stærri. Jan Henry T. Olsen, sjávarútvegs- ráðherra Noregs, fordæmdi í gær harðlega einhliða ákvörðun íslend- inga og Færeyinga um síldarkvóta. ■ Hrygningarstofn/4
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.