Morgunblaðið - 06.05.1995, Page 14
14 LAUGARDAGUR 6. MAÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Sól hf. ræðir við Kaupfélag Borgfirðinga stofnun
hlutafélags um framleiðslu á söfum og mjólk
Ráðherra stað-
festir úreldingii MSB
GUÐMUNDUR Bjamason, landbún-
aðarráðherra, hefur ákveðið að stað-
festa samninginn um úreldingu
Mjólkursamlags Borgfirðinga, MSB,
en eins og kunnugt er náðu stjórnir
Kaupfélags Borgfirðinga og Mjólk-
ursamsölunnar í Reykjavík sam-
komulagi í desember sl. um að úrelda
mjólkursamlagið og flytja alla mjólk-
urvinnslu þess til Reykjavíkur.
Forráðamenn Sólar hf. hafa und-
anfama daga átt í viðræðum við
stjóm Kaupfélags Borgfirðinga um
að kannaður verði möguleiki á því
að stofna nýtt hlutafélag í eigu Sólar
hf., Kaupfélags Borgfírðinga og
mjólkurinnleggjenda hjá Mjólkurbú-
inu í Borgarfirði um framleiðslu á
söfum og mjólkurafurðum í stað þess
að grípa til úreldingar. Páll Kr. Páls-
son, framkvæmdastjóri Sólar, segir
ákvörðun landbúnaðarráðherra mikil
vonbrigði.
„Það er hægt að segja að ég sé
um það bil að ganga frá þessu sam-
komulagi," sagði Guðmundur Bjama-
son í samtali við Morgunblaðið. Hann
sagðist aðspurður hafa heyrt af
áhuga forsvarsmanna Sólar og að
þeir væm í viðræðum við Kaupfélag
Borgfirðinga. Aðspurður hvað ylli því
að ákvörðun væri tekin um að stað-
festa samninginn um úreldinguna á
sama tíma og Sól væri í viðræðum
við Kaupfélag Borgfírðinga um aðra
kosti, sagðist Guðmundur ekki hafa
fengið neinar óskir um breytingar á
því sem fyrir hefði legið um málið.
„Ég hefði í sjálfu sér gjarnan viljað
vera búinn að afgreiða málið fyrr.
Ég átti hins vegar seinasta fundinn
sem þurfti að eiga um þetta mál við
Iögfræðilega aðila í gær [fyrradag]
og í framhaldi af því hef ég unnið
að málinu í dag. [gær]“
„Þessi ákvörðun landbúnaðarráð-
herra er okkur hjá Sól mikil von-
brigði,“ sagði Páll Kr. Pálsson. „Ég
átti viðtal við ráðherrann síðastliðinn
þriðjudag, 2. maí, og sýndi honum
fax sem ég hafði sent stjóm Kaupfé-
lags Borgfírðinga þar sem við fórum
fram að þeir skoðuðu þann kost að
Sól tæki þátt í stofnun nýs hlutafé-
lags með Kaupfélagi Borgfirðinga og
mjólkurinnleggjendum hjá Mjólkur-
búinu í Borgarfirði þannig að drykkj-
arvöruframleiðsla Sólar og mjólkur-
framleiðsla í Borgamesi yrði samein-
uð.“
Páll sagði að málið snúist um að
gerð yrði athugun þar sem borin yrði
saman hagkvæmni úreldingar Mjólk-
ursamlagsins í Borgamesi og þess
að Sól flytti alla safaframleiðslu sína
„Gífurleg von-
brigði,“ segir Páll
Kr. Pálsson, fram-
kvæmdastjóri
Sólar hf.
uppeftir og sameinaðist þar mjólkur-
vinnslunni í áðumefndu hlutafélagi.
Alls yrði þar um að ræða drykkjar-
vöruvinnslu og afurðavinnslu upp á
um 15-18 milljón lítra og sagði Páll
að áætla mætti að heildarfjöldi starfs-
manna í slíku fyrirtæki yrði á bilinu
60-80 manns.
Páll sagðist hafa óskað eftir því
við Guðmund að hann frestaði því
að skrifa undir úreldinguna á meðan
viðræður ættu sér stað milli forsvars-
manna Sólar og Kaupfélags Borgfírð-
inga. „Mér skildist á ráðherranum
að hann væri jákvæður fyrir því að
afstaða stjórnarmanna kaupfélagsins
yrði könnuð. Það er líka ljóst að hann
var ekki að útiloka neitt með því að
bíða,“ sagði Páll. „Með því að skrifa
undir nú er hann hins vegar að úti-
loka möguleika sem ef til vill væri
hagkvæmari en úreldingin.“
Páll sagðist hafa átt viðræður við
framkvæmdastjóra Kaupfélags Borg-
fírðinga, stjómarformann og aðra
stjómarmenn þar sem þeir lýstu yfír
áhuga á að skoða hugmynd Sólar
nánar. „Við erum rétt að byija að
ræða við þessa menn og höfum til
þessa fengið jákvæðar undirtektir.
Ég' get því ekki annað en lýst furðu
minni með þá ákvörðun að ijúka til
að skrifa undir úreldinguna núna.“
Guðmundur Bjamason sagði að sér
hefði verið kunnugt um áhuga for-
svarsmanna Sólar. „Ég hef ekki feng-
ið neitt formlegt um málið, enda tel
ég í sjálfu sér ekki að þeir hafí neitt
við mig að tala. Þeirra aðkoma að
málinu hlýtur að vera í gegnum eig-
endur samlagsins. Ég hef heldur ekki
fengið neitt frá kaupfélagsstjóm í
dag [í gær] með þeim hætti að það
væri ástæða til þess að breyta því
sem hér lá fyrir,“ sagði Guðmundur
og neitaði því að þrýst hefði verið á
hann af utanaðkomandi aðilum að
ganga frá málinu.
ÁgTeiningur?
1 fréttum Stöðvar 2 í gærkvöldi
var sagt að ágreiningur hefði orðið
um ákvörðun Guðmundar Bjamason-
ar á ríkistjómarfundi í gær. í sam-
tali við Morgunblaðið í gærkvöldi
Hleranir á farsímum leyfðar
Bonn. Reuter.
ÞÝSKA stjómin fyrirskipaði í gær
símafyrirtækjum sem þjónusta far-
síma að gera löggæslumönnum
mögulegt að hlera símana. Lögreglan
segir slíkt verða mikilvægan hlekk í
baráttunni gegn skipulögðum glæpa-
samtökum.
Stjómin samþykkti tillögu þessa
efnis frá ráðherra póstmála, Eolfgang
Bötsch, en hún kveður á um að síma-
fyrirtæki verði að veita lögreglu að-
gang að tæknibúnaði fyrirtækjanna
svo að hægt sé að hlera símana.
Fyrirtækin hafa lýst sig reiðubúin
að leyfa hlerarimar en deilt er um
hver eigi að greiða fyrir þær breyting-
ar sem gera þarf á símkerfunum til
þess að þetta sé hægt. Er talið að
hann nemi um 50 milljónum marka,
um 2,2 milljörðum kr. ísl.
hafnaði Guðmundur því alfarið. „For-
sætisráðherrann hefur óskað eftir því
við ráðherra í þessari ríkisstjórn að
þeir beri upp stærri mál á ríkisstjóm-
arfundum, þó ákvörðunarvaldið liggi
hjá einstaka ráðherra. Ég taldi því
rétt að skýra frá þessari ákvörðun
minni um úreldinguna á ríkisstjómar-
fundi í morgun [gærmorgun]. For-
sætisráðherra spurði þá hvort mér
væri kunnugt um viðræður Sólar við
Kaupfélag Borgfírðinga. Ég játaði
því, en lýsti jafnframt þeirri skoðun
minni að það væri út af fyrir sig
ekki mitt mál. Það sem lægi fyrir í
ráðuneytinu væri skýr viljayfirlýsing
kaupfélagsins. Þannig lauk þessari
umræðu,“ sagði Guðmundur Bjarna-
Erlendir ferðamenn
í janúar-apríl
1995 Fjöldi % Breyt. trá fyrra ári
1. Bandaríkin 7.076 19,6 12,8%
2. Danmörk 5.676 15,8 24,2%
3. Þýskaland 5.227 14,5 30,2%
4. Svíþjóð 4.768 13,2 15,4%
5. Bretland -3:597 10,0 -29,7%
6. Noregur 3.206 8,9 40,7%
7. Holland 1.267 3,5 -1,1%
8. Finnland 907 2,5 77,8%
9. Frakkland 525 1,5 ■57,4%
10. Sviss 480 1,3 100,0%
Önnur lönd 3.309 9,2 17,6%
ÁFRAMHALDANDI vöxtur hefur verið á fjölda erlendra ferðamanna
það sem af er þessu ári. Þannig komu hingað rösklega 36 þúsund
ferðamenn fyrstu fjóra mánuðuðina, samanborið við um 31.700
ferðamenn á þessum tíma í fyrra. Vekur þar sérstaka athygli að í
aprilmánuði einum varð fjölgunin um 20%. Líklegt má telja að
heimsóknir erlendra gesta hafi verið óvenjutíðar í apríl þar sem stór
hluti af hótelrými í Reykjavík er upptekinn í maí vegna úrslitakeppni
heimsmeistaramótsins í handknattleik.
SS hreppti umhverfísviður-
kenningu Iðnlánasjóðs
SLATURFELAG Suðurlands á
Hvolsvelli hlaut umhverfisviður-
kenningu Iðnlánasjóðs, „Vernd“,
á ársfundi sjóðsins á þriðjudag. I
ávarpi sínu á fundinum sagði
Guðmundur Bjarnason, umhverf-
isráðherra, að fyrirtækið hefði í
stefnumarkandi áætlanagerð lagt
áherslu á umhverfismál, gæðamál
og vinnuvernd.
„Þannig hefur fyrirtækið unnið
markvisst að gæðasljórnun í
framleiðslu matvæla með því að
aðlaga framleiðslu og búnað fyr-
irtækisins að nýjum reglum um
matvælaframleiðslu, unnið að
innra eftirliti, jafnframt því að
móta stefnu um umhverfismál þar
sem t.d. er fjallað um nýtingu
hráefna, úrgangsmyndum og frá-
veitumál. Á Suðurlandi er unnið
að verkefninu „Hreint Suð-
urland" sem felst í heildarkönnun
á neysluvatnsgæðum, fráveitum,
sorphirðu og förgun úrgangs á
Suðurlandi. Umhverfisráðuneytið
styrkir þetta verkefni. Verkefnið
tengist víðtæku umhverfisátaki á
Suðurlandi og á m.a. að nýtast
sem markaðstæki vegna þróunar
í atvinnumálum s.s. matvælafram-
leiðslu. Fyrirtækið sem hlýtur
viðurkenningu í ár er til fyrir-
myndar á þessu sviði og ég vænti
þess að viðurkenning sé hvatning
fyrir það að halda áfram á sömu
braut og hvatning til annarra að
vinna markvisst að umhverfis- og
vinnuvemdarmálum, “ sagði um-
hverfisráðherra.
Jón Gunnar Jónsson, fram-
leiðslustjóri Sláturfélagsins tók
við viðurkenningunni úr hendi
umhverfisráðherra.
Flugleiða-
bréf
hækka
VIÐSKIPTI með hlutabréf í Flug-
leiðum hafa verið óvenjumikil síð-
ustu daga og gengi bréfanna farið
hækkandi. Þannig hefur gengið á
síðustu tveimur vikum hækkað um
4% eða úr 1,75 í 1,82, eins og sést
á línuritinu. Á fimmtudag voru seld
bréf fyrir tæpar 5 milljónir króna
og í gær fyrir um 1,5 milljón.
Engar sérstakar skýringar feng-
ust á verðhækkunum bréfanna á
verðbréfamarkaði í gær. Því verður
ætla að almennt gæti vaxandi bjart-
sýni um rekstur Flugleiða á mark-
aðnum.
Verulegur aukning hefur verið í
ferðalögum íslendinga og komum
erlendra ferðamanna hingað til
lands það sem af er árinu. Félagið
nýtur t.d. góðs af heimsmeistara-
mótinu í handknattleik. Þá hefur
lækkun á gengi bandaríkjadals haft
hagstæð áhrif á reksturinn.
Verðbréfaþing íslands:
Gengi hlutabréfa í
Flugleiðum frá 19. apríl
-HHH-i'
1-1*
19. 21. april
—I—I—I—I-
28.
HH'
1,70
5. maí
ICELAND
1995
/>í/ FÆRÐ UPPLYSINGAR UM HM'95
Á VERALDARVEFNUM buP:n^.baniban.is
ORACZLG' W o r I d W i d e W e b I n t e r f a c e K i t
TEYMI
ORACÍE HUGBÚNAÐUR Á ÍSIANDI