Morgunblaðið - 06.05.1995, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
LAUGARDAGUR 6. MAÍ1995 23
________!þú hjálpa
tubarni á Indlandi
að eignast heimili?
- kjarni málsins!
Við erum 5 bræður sem vorum
svangir og skítugir á götunni eftir að
foreldrar okkar dóu.
Nú höfum við eignast heimili fyrir
hjálp stuðningsforeldra á fslandi.
IIJÁLPARSTARF
Siflúni 3 • 105 Rvk • Sími 561 6117
mtán
Ingvar
Helgason hf.
Sævarhöföa 2
Sími 674000
OU Hip,
S' « %
Bókmenntaviðburður!
í HUGANN flýgur minning frá
árinu 1955. Út kom fyrsta ljóðabók
rúmlega tvítugs skálds, Hannesar
Péturssonar, sem vakti svo mikla
athygli, að einn menntamaður sagði
í umsögn sinni um Kvæðabókina,
að hann langaði til að standa uppi
á stól á Lækjartorgi og hrópa þessi
gleðitíðindi yfír allan lýðinn. Eins
er mér farið þegar ég les nýút-
komna ljóðabók eftir tæplega sjö-
tugan prest. Bókin heitir „Hvar er
land drauma" og er eftir séra Rögn-
vald Finnbogason.
í bókinni eru þijátíu og sex ljóð
sem höfundur skipar í fimm hluta.
Fyrsti kaflinn heitir Snæfellsnes,
en þar starfaði hann sem sóknar-
prestur í meira en tvo áratugi.
Vormorgunn undir Ljósufjöllum
breiðir sólhvíta birtu yfir landið
vetrarstormurinn heldur niðri í sér andanum
og kyrrlátt morgunkul sveigir stráin.
Ég bíð þess að fólur vormáni
verði afijalla
langt í vestri
með leyndarmálin öll
frá liðnum vetri.
Næst eru tveir stuttir kaflar sem
nefnast Norðurlönd og Rússland,
en sá þriðji heitir Japan og er jafn-
langur þeim fyrsta. í þeim hluta
er ljóðið sem er heiti bókarinnar,
Hvar er land drauma? Önnur falleg
Ljóðabókin „Hvar er
land drauma“ skipar
höfundi reglulegan sess
á skáldabekk, segir
Kristján Oddsson, sem
fjallar um ljóð séra
Rögnvalds Finnboga-
sonar.
ljóð í þeim hluta eru Sic transit og
Hvort mun.
Síðasta hluta bókarinnar nefnir
höfundur Líf og dauða. í honum
eru þrettán ljóð eins og í Snæfells-
nesi og Japan. Þriðja síðasta ljóð
bókarinnar heitir Huldir möskvar:
Brimlarnir móka
á Rifsketjum
þangið blaktir
í ládeyðunni
fætur mínir sökkva
í mjúkan sandinn
og svartbakurinn sveimar
yfir eggjum sínum
hafflöturinn sindrar
undir hádegissól
tveir silfraðir sjóbirtingar
sitja fastir i netinu
og meðan ég losa þá
fínn ég hulda möskva
herða að sjálfum mér.
í upphafi þessarar greinar líkti
ég útgáfu þessarar ljóðabókar við
útkomu Kvæðabókar Hannesar
Péturssonar. Hannes gaf seinna út
margar aðrar bækur og er löngu
orðinn eitt af höfuðskáldum þjóð-
arinnar. Bók séra Rögnvalds Finn-
bogasonar er fyrsta ljóðabók hans.
Hún mun að mínu mati skipa hon-
um veglegan sess á ljóðskáldabekk
jafnvel þótt hann gæfi ekki út fleiri
bækur. Eg vona þó að hinir huldu
möskvar herðist ekki svo skjótt, að
honum gefíst ekki tóm og tími til
frekari ljóðagerðar. Ég sendi höf-
undi kærar kveðjur og þakka þessa
ágætu ljóðabók.
Höfundur er fyrrverandi
bankasijóri.
Kristján Oddsson
Upphafsljóðið heitir „Kvöld í kirkj-
unni“ og er langviðamesta kvæði
bókarinnar. Það er haust og prest-
urinn er að búa sig undir að flytja
af staðnum við lok starfs síns. Hann
gengur út í kirkju sína til að kveðja
og kyrra hug sinn. Honum líður
fýrir sjónir fjörutíu ára starf í þágu
kirkjunnar og hann finnur einhveija
samsvörun við eyðimerkugöngu
ísraelslýðs með Móse. Hann ákallar
Guð og biður hann að tala við sig
beint án bókar eða formúlu. Prest-
urinn rekur skriftamál sín, þakkar
honum fýrir „að þú hefur forðað
mér frá öllum vegtyllum í kirkju
þinni, ég hef skriðið þar með skör-
um, en hver er hún þessi kirkja
þín?“ Og Guð svarar honum „mér
eru engar vígslur gildar aðrar en
lífið sjálft. Farðu í friði.“
Önnur ljóð í þessum hluta bókar-
innar eru stuttar náttúrulýsingar á
fallegu, hnitmiðuðu máli þar sem
hvergi örlar á skrúðmælgi. Ég nefni
sérstaklega „Vængtök álfta“, „Að
flytja fjöll“, „Á köldu vori“ og „Á
sumardaginn fyrsta", en það er
þannig: