Morgunblaðið - 06.05.1995, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
LAUGARDAGUR 6. MAÍ 1995 37
þá tíðkaðist. Hann var óvenjulegur
athafnamaður og merkur brautryðj-
andi í iðnaði á íslandi og trúði statt
og stöðugt á trausta sál í hraustum
líkama. A Álafossi rak hann ekki
bara mikla ullarverksmiðju, heldur
líka íþróttaskóla fyrir unga drengi.
Þar skyldi unga kynslóðin mótuð
við sund og líkamsrækt, lýsis-
drykkju og fánahyllingu, því að hjá
honum ríkti vorhugur þeirrar kyn-
slóðar, sem hafði barizt fyrir - og
hafði í augsýn - sjálfstæði Islands.
Fyrir mig og aðra unga drengi var
þetta ógleymanlegur tími og dýr-
mætari í endurminningunni. Sigríð-
ur var kennari við íþróttaskólann
sem ung kona og þótti sjálfsagt að
hún væri sunddrottning. Hvað ann-
að?
Sérsinnuð athafna- og hugsjóna-
skáld, eins og Siguijón, hafa hvorki
tíma né áhuga á að níða niður skó-
inn af öðrum. Þau sofa vel þótt
öðrum gangi vel. Þessa arfleifð fékk
dóttir hans. Sigríður var mikið
borgarbarn. Hún var fljót að kynn-
ast og þekkti ótrúlega marga. Menn
spurðu sig hvernig hún gæti setzt
að uppi í sveit. Hún fór létt með
það. Hún var félagslynd, vinmörg
og frásagnarglöð. Hún hafði ein-
stakan frásagnarmáta og engum
gat leiðst i návist hennar.
Margs er að minnast við fráfall
Sigríðar. Kynni okkar voru löng,
með hléum. Fyrstu kynni voru í
íþróttaskólanum á Álafossi. Nokkr-
um árum síðar fórum við nokkrir
drengir í hjólreiðaferð um Borgar-
fjörð, foreldrum okkar til skelfing-
ar, og kvöddum dyra í Reykholti
síðla kvölds. Sigríður var þá stjó'rn-
andi skólans þar og þarf ekki að
fjölyrða um móttökurnar sem ung-
ir, þreyttir ferðalangar fengu.
Mörg ár liðu. Leiðir okkar lágu
saman í sambandi við veikindi, sem
ráðinn var bugur á. Veikindi eru
ekki til þess fallin að auka á reisn
fólks, en í huga mínum á ég skýra
mynd af henni á Landakotsspítala.
Hún var þar eins og drottning.
Enga konu hef ég séð hafa slíka
reisn sem Sigríði á Hurðarbaki.
Upp úr þessu urðu kynnin nán-
ari, þegar synir mínir fóru að Hurð-
arbaki í sveit. Engir gætu séð af
börnum sínum í hendur betra fólks,
en þeirra Sigríðar og Bjama. Ef
hún var stórbrotin, þá var hann
jafnoki hennar. Eftir að ég hafði
kynnst Sigríði vel, en áður en ég
hitti Bjama, vissi ég að hún hakk-
aði til að „sýna mér Bjama“. Þau
reyndust hvort öðru samboðin.
Síðar hittumst við sjaldnar og
nú saknar maður þeirra funda, sem
hefðu getað orðið. Það er mikil
gæfa að hafa kynnst fjölskyldunni
á Hurðarbaki og víst hefði maður
óskað Sigríði lengra ævikvölds með
bónda sínum.
Manni finnst nú syrta yfir Borg-
arfirði. í okkar fjölskyldu munar
um minni vinamissi en Sturlu á
Sturlu-Reykjum og Sigríði á Hurð-
arbaki á fáum árum. Og nú leita
hugsanir okkar til Bjarna og ann-
arra ástvina. Þar verður mikið tóm.
En þeir, sem hafa misst mikið, hafa
mikið átt. En minninguna eigum
við öll.
Guðjón Lárusson.
Sigríður á Hurðarbaki er nú fall-
in frá, stórbrotin og einstök kona
er í dag til moldar borin og kvödd
af vinum og vandamönnum. Fréttin
kom á óvart og við bræður stöldrum
við og hugir okkar reika aftur um
rúma tvo áratugi og við minnumst
þess þegar við fórum fyrst til sum-
ardvalar að Hurðarbaki. Það var
ein mesta gæfa okkar í lífinu en
sumrin urðu að minnsta kosti tíu
sem við dvöldumst þar, auk ferða
á öðrum árstímum og það einlæga
samband sem haldist hefur við fjöl-
skylduna þar síðan. Hurðarbak var
og er okkar annað heimili og í dag
minnumst við þess með hlýju og
söknuði. Góðar minningar koma
fram í hugann um öll almenn sveita-
störf á stóru heimili þar sem alltaf
var mikið af fólki og líf og fjör,
útreiðar á kvöldií um helgar og
ferðir á hestamannamót svo ekki
sé talað um réttimar að hausti,
samskipti við fjölskylduna og miklu
fleira fólk í þessari fallegustu sveit
landsins, Borgarfirði. Bjarni og Sig-
ríður vom ávallt eitt í okkar huga,
bæði hávaxinn og glæsileg. Hann
rólegur og glettinn en hún aftur
hrókur alls fagnaðar og gustaði af
henni eins og sagt er. Hún hafði
frábæra frásagnargáfu og sagði
sögur svo unun var á að hlýða.
Samverustundir á matmálstímum
voru skemmtilegustu tímarnir í
sveitinni. Fyrir um tíu árum eða svo
að okkur minnir, var sýndur viðtals-
þáttur í sjónvarpinu sem hét „Fólk-
ið í landinu". Ingvi Hrafn Jónsson
ræddi þar við Sigríði um líf hennar
og störf og kemur þar margt fram
um þessa miklu persónu sem var
sjálfstæð og sterk. Dóttir Siguijóns
Péturssonar glímukappa og íþrótta-
frömuðar á Álafossi, sunddrottning
íslands þrettán ára 1929, sem gekk
menntaveginn og útskrifaðist úr
Verslunarskólanum og síðar
Kennaraskólanum, auk þess sigldi
hún utan til náms í Englandi og
Danmörku. Hún varð forstjóri
Sundhallarinnar 1943 sem var af-
rek af konu á þeim tíma og síðar
eftir að hún flutti í sveitina, formað-
ur Félags borgfirskra kvenna og
meðlimur í Kvenfélagi Reykdæla.
Margt fleira kemur fram í þessum
skemmtilega þætti um dugmikla
konu sem við varðveitum vel. Sig-
ríður hafði áhuga á lífi og starfi
okkar bræðra og sýndi hvern hug
hún bar til okkar þegar ský dró
fyrir sólu um stundarsakir í lífi
okkar fyrir tæpum þremur árum.
Hún dró ekki dul á það þá hvers
virði við værum henni. í dag reikum
við um gamlar slóðir og óskum
þess að fá að hverfa aftur um tíma
til að allt verði aftur eins og það
var, en í stað slíkrar óskhyggju
geymum við minningu um góða
konu sem mikil gæfa var fyrir okk-
ur að fá að kynnast. Fjölskylda
okkar öll heima og heiman vottar
henni virðingu sína og sendir að-
standendum samúðarkveðjur.
Blessuð sé minning Sigríðar á
Hurðarbaki.
Stefán og Jóhannes
Guðjónssynir.
Sigríður Siguijónsdóttir er látin.
Hún á að baki litríkan æviferil, sem
mikil íþróttakona, forstjóri Sund-
hallarinnar í Reykjavík og forystu-
kona í félagsmálum til margra ára.
En fyrir mér var hún Sigga á Hurð-
arbaki myndarhúsmóðir á stóru
heimili í Reykholtsdal, þar sem ég
fékk að vera í sveit í 10 sumur.
Tildrög þess voru þau að ég kom
að Hurðarbaki með foreldrum mín-
um 7 ára gömul. Við vorum að fara
í ferðalag með fyrsta viðkomustað
að Hurðarbaki. Við gistum eina
nótt og mér fannst sveitalífið svo
heillandi að þegar átti að halda
áfram förinni vildi ég ekki fara og
spurði Siggu hvort ég mætti vera
eftir hjá þeim. Ekki veit ég hversu
skemmtilegt það hefur verið að sitja
uppi með gest sem ekki vildi fara,
en þar sem er hjartarúm er líka
húsrúm og samið var um að ég
fengi að vera í nokkra daga. Raun-
in varð hins vegar sú að alltaf var
of snemmt að fara þaðan og ég
fékk að vera fram á haust og síðan
næstu 10 sumrin.
Margar góðar minningar eru frá
þessum árum og mér finnst að þessi
tími hafi verið eitt samfellt ævin-
týri. Heyskapur, útreiðartúrar,
sundlaugaferðir, töðugjaldaferðir.
Hjá Siggu og Bjama var sannarlega
gott að vera, enda var jafnan mik-
ill gestagangur hjá þeim og mörg
börnin hafa þau tekið til sumardval-
ar og átt sinn þátt í að koma til
manns á sinn glaðværa og ljúfa
hátt. Þrátt fyrir að heilsuleysi hafi
jafnan fylgt henni, og tíðar sjúkra-
húsvistir, var Sigga jafnan kát og
glöð og smitandi hlátur hennar
heyrðist langar leiðir.
Ég vil að leiðarlokum þakka fyr-
ir það ástríki sem ég varð aðnjót-
andi í sveitasælunni að Hurðarbaki
og votta Bjarna, Þóm og Gunnari
og fjölskyldum þeirra mína dýpstu
samúð.
Kristín H. Traustadóttir.
UNNUR
ÞORLEIFSDÓTTIR
+ Unnur Þorleifs-
dóttir fæddist í
Stóragerði í Ós-
landshlíð í Skaga-
firði 5. mars 1909.
Hún lést á hjúkr-
unarheimilinu
Hornbrekku 27.
apríl síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru Þorleifur
Rögnvaldsson út-
vegsbóndi og Guð-
rún Sigurðardóttir.
Hún fluttist ásamt
foreldrum sínum
sex ára að aldri til
Ólafsfjarðar og bjó þar til
dauðadags. Systkini hennar
voru: Rögnvaldur Þorleifsson,
fyrrv. vélstjóri, Ólafsfirði, Jón-
ína Þorleifsdóttir, Sigrún Anna
Þorleifsdóttir, en þau eru öll
látin, og Sigvaldi Páll Þorleifs-
son, sem er útgerðarmaður í
Ólafsfirði.
Unnur giftist árið 1932 eftir-
lifandi eiginmanni sínum, Jóni
Ellert Sigurpáls-
syni, fyrrv. skip-
stjóra og hafnar-
verði. Þau eignuð-
ust þijú börn. Þau
eru: 1) Lárus, fram-
kvæmdastjóri og
fyrrverandi alþing-
ismaður, Reykjavík,
kvæntur Guðrúnu
Jónsdóttur frá
Meiðastöðum í
Garði. Þau eiga
fjögur börn. 2) Guð-
rún hárgreiðslu-
meistari, Ólafsfirði,
gift Valdimar Stein-
grímssyni, starfsmanni Vega-
gerðar ríkisins. Þau eiga þrjú
börn. 3) Þórleifur famkvæmda-
stjóri, Seltjarnarnesbæ, kvænt-
ur Elísabetu F. Eiríksdóttur.
Þau eiga þijú börn. Barnabörn
Unnar og Jóns eru tíu og barna-
barnabörn átta.
Utför Unnar fer fram frá
Ólafsfjarðarkirkju í dag og
hefst athöfnin klukkan 13.30.
UNNUR Þorleifsdóttir frá Ólafs-
firði, tengdamóðir mín, er látin 86
ára að aldri. Ég hitti þau hjónin,
Unni og Jón Sigurpálsson, fyrst
fyrir rúmum 40 árum þegar ég
kynntist syni þeirra, eiginmanni
mínum, Lárusi Jónssyni. Móður
mína missti ég á unga aldri og
skemmst er frá því að segja að
Unnur og Jón urðu mér frá því að
leiðir okkar lágu saman eins og
bestu foreldrar. Heimili þeirra,
Hornbrekkuvegur 1, í Ólafsfirði
hefur alla tíð verið athvarf og skjól
allrar fjölskyldunnar. Þangað þótti
okkur öllum, börnunum, barnabörn-
um og barnabarnabörnum, gott að
koma og njóta hlýju, gestrisni og
andlegs styrks þeirra. Lengst af
þótti t.d. börnum okkar engin jól
vera nema þau væru haldin hátíðleg
á heimili ömmu og afa. Oft voru
margir þar saman komnir og má
fullyrða að allir fóru þaðan með
gott veganesti til þess að njóta og
takast á við lífið.
Það kom fljótt í ljós að við Unn-
ur áttum margt sameiginlegt og
nutum þess að vinna og rabba sam-
an. Hún var listfeng og mikil hann-
yrðakona eins og sjá má á þeim
verkum hennar sem prýða heimili
íjölskyldunnar. Okkur þótti gaman
að skeggræða um þessar hannyrðir
eða um bókmenntir, trúmál, lífið
og tilveruna.
Unnur var skarpgreind, fróð-
leiksfús, víðlesin og nánast sjálf-
menntuð, því hún naut einungis
almennrar barnaskólamenntunar,
eins og hún var á hennar tíð. Hún
hafði yndi af tónlist og spilaði á
píanó. Sérstöku ástfóstri tók hún
við íslenskar bókmenntir, einkum
þó ljóð, en hún las mikið og kunni
utanað mörg öndvegisljóð tungunn-
ar, sem hún m.a. gerði sér til dund-
urs að skrifa upp eftir að hún veikt-
ist. Hún vann lengst af utan heimil-
is alla algenga vinnu, sem til féll í
sjávarþorpi, beitti línu og stokkaði
upp, þegar útgerð smærri báta var
undirstaða atvinnulífsms, og vann
við fiskverkun. Jafnframt var hún
mikilvirk og vandvirk húsmóðir,
ástrík eiginkona og umhyggjusöm
móðir og amma. Þegar ég rak um
skeið saumastofu í Ólafsfirði var
hún kjölfestan í þeirri starfsemi
með mér. Hún hafði mörg áhuga-
mál. Þar má m.a. nefna slysavarn-
ir, safnaðar- og trúmál. Eiginmaður
hennar, Jón Sigurpálsson, var sjó-
maður og þurfti oft að dveljast lang-
dvölum að heiman, en þá þurfti hún
að treysta á eigin dugnað við stjórn
heimilisins og ummönnun barn-
anna. Hún þekkti því einnig hættur
þær sem sjómennsku fylgja og helg-
aði sig mjög slysavörnum. Hún var
formaður kvennadeildar Slysa-
varnafélags ÓlafsQarðar um tíu ára
skeið og sat fjölmörg slysavarna-
þing, en á þeim árum vann deildin
að því að reisa slysavamaskýli og
að smíðað yrði björgunarskip fyrir
Norðurland.
Segja má að höfuðáhugamál
Unnar hafi verið á sviði trúmála.
Hún lifði lifandi trúarlífi og bar
Biblían sem hún las daglega því
gjöggt vitni. Það var sú uppspretta
og andlegur orkugjafi sem allir
nutu af sem voru samvistum við
hana. Hún var afar bænheit og
naut þess að kenna börnum sínum
og ömmubörnum fallegar bænir.
Unnur Þorleifsdóttir var mikill,
sterkur en jafnframt hlýr persónu-
leiki. Lífsstíll hennar einkenndist
öðru fremur af reisn, vinnusemi
utan og innan heimilis, vandvirkni
og formfestu, en þó umfram allt
fórnfýsi og trúarstyrk. Hún gaf öll-
um sem næst henni stóðu og um-
gengust hana ómælt af þessum
persónuleika sínum og bjargfastri
trú á kærleiksboðun Krists, sem
hún taldi kjarnann í því sem Guð
vildi að við öll sýndum í verki gagn-
vart náunganum og í samfélaginu.
Ég þakka Unni, tengdamóður
minni, að leiðarlokum alla ástúð
hennar og þær ómetanlegu gjafír
sem hún hefur gefið mér og fjöl-
skyldunni. Guð blessi okkur öllum
minningu Unnar Þorleifsdóttur.
Rúna.
Kona okkur kenndi trú,
kærar þakkir sendum nú.
Amma veistu, eg er þú,
ætíð hlýjar vegsemd sú.
Það er mikill missir þegar kona
eins og hún amma okkar kveður
jarðvistina. Heimurinn gjörvallur
virðist í sárum þar sem stórt skarð
hefur verið höggvið í hóp þeirra
manna og kvenna sem standa fyrir
kærleika og mannvizku og eru öðr-
um fordæmi fyrir heilbrigðu og
skynsamlegu lífi. Við sem vorum
þeirra forréttinda aðnjótandi að
vera hluti af lífí hennar látum hugg-
ast í minningu um konu, sem nú
lifir í guðlegri vist en auk þess í
hugskotum okkar allra.
Sá heimur sem amma sýndi okk-
ur bamabörnunum var raunsær.
Hún kom okkur í skilning um að
lífið væri oft erfitt en við ættum
aldrei að gefast upp, við skyldum
trúa á hið góða í sjálfum okkur og
öðrum og breyta eftir því. í leik og
í starfi hversdagsins kenndi hún
okkur vinnusemi og hollustu við þau
verk sem vinna þurfti og á hátíðar-
og tyllidögum sýndi hún góða siði
og fjölskyldurækni. Hún kenndi
manni að gleðjast yfir góðum hlut-
um og sýndi kærleika í sorg. Þær
glöddu oft hjarta okkar krakkanna
sögur hennar frá Hombrekku og
af hundinum Offa, sem og sögur
úr Biblíunni, þar sem hún leitaðist
við að kenna okkur muninn á réttu
og röngu. Síðast en ekki síst gaf
amma ástinni merkingu í einstöku
hjónabandi með manni sínum og
afa okkar, Jóni Sigurpálssyni. Með
samheldni sinni og reisn hafa þessi
sérstöku hjón verið afkomendum
sínum og öðrum sameiningartákn
og sýnt fram á gildi hjónabandsins
í heimi þar sem fjölskyldan á sífellt
undir högg að sækja.
Amma hefur snert sálartetrið í
okkur með ólýsanlegum hætti. í
sérhveiju viðmóti okkar koma við-
horf hennar fram; í orði og afstöðu,
í gleði og sorg. Hún er til í okkur
og er það ómetanlegt veganesti í
lífínu.
Elsku afí, Guð gefí þér styrk á
þessari sorgarstundu. „Fel drottni
vegu þína og treystu honum og
hann muri vel fyrir sjá.“
Elsku amma, við viljum þakka
þér fyrir það ljós sem þú tendraðir
í lífi okkar. Guð gefi okkur styrk
til að vera verðugir minnisvarðar
persónu þinnar og til að viðhalda
því ljósi sem þú stóðst fyrir.
Þín elskandi dótturbörn,
Pétur, Unnur Anna og Jóna
Ellen Valdimarsbörn.
t
Þökkum innilega auösýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför
GUÐNÝJAR
GUÐMUNDSDÓTTUR,
Sólheimum 25.
Sérstakar þakkir faerum við starfsfólki
heimahlynningar Krabbameinsfélagsins
og deildar 11-E, Landspitalanum.
Nikulás Guðmundsson,
Guðrún Nikulásdóttir, Björn Vignir Björnsson,
Birgir Örn Björnsson,
Guðný Björg Björnsdóttir.
t
Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug
við andlát og útför elskulegrar móður,
fósturmóður, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
INGIBJARGAR
GUÐFINNSDÓTTUR,
Holtastíg 9,
Bolungarvík.
Birna Hjaltalín Pálsdóttir,
Kristín Sigurðardóttir,
Hrafnhildur Hagalín Guðmundsdóttir,
Ingibjörg Vagnsdóttir,
Soffía Vagnsdóttir,
Hrólfur Vagnsson,
Margrét Vagnsdóttir,
Pálfna Vagnsdóttir,
Þórður Vagnsson,
Guðrún Inga Benediktsdóttir,
Guðbrandur Benediktsson,
Benedikt Guðbrandsson,
Pétur Jónasson,
Ketill Helgason,
Roland Smelt,
Elsbeth Moser,
Haukur Vagnsson,
Halldór Páll Eydal,
Eva Leile Banine,
Pétur Örn Sverrisson,
og barnabarnabörn.