Morgunblaðið - 06.05.1995, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 6. MAÍ 1995 41
Framúrskar-
andi árang-
ur íslenskra
dansara
DANS
Blackpool,
E n g 1 a n d i
39. dairshátíð barna og
ungling-a.
ENN einu sinni streymdu dans-
arar til Blackpool á Englandi hvað-
anæva úr heiminum til að taka
þátt í hinni árlegu danshátíð barna
og unglinga, sem nú var haldin í
39. skipti. Þetta er einhver sú
sterkasta keppni sem er í boði fyr-
ir þennan aldurshóp og hefur oft
verið nefnd hin „óopinbera heims-
meistarakeppni“ barna og ungl-
inga. Keppnin stendur yfir í 6 daga
og er keppt í fjölmörgum greinum
suður-amerískra-, standard- og
gömlu dansa. Yfirleitt er einungis
keppt í tveimur aldursflokkum í
samkvæmisdansakeppni; 12 ára
dönsum (cha.cha, sömbu, rúmbu
og jive). Alls kepptu 82 pör og af
þeim voru 10 íslensk. Þetta var
önnur tveggja „aðalkeppna" fyrir
þennan aldursflokk og því mikil
spenna í húsinu. í 2. umferð (48
pör) fóru 7 Islensk pör og 3 fóru
svo áfram í þá 3. (24 pör). Tvö
íslensk pör komust svo í undanúr-
slitin (12 pör) og áfram í úrslitin.
Þetta voru þau Gunnar Hrafn
Gunnarsson og Ragnheiður Eiríks-
dóttir, sem höfnuðu í 4. sæti, og
Haraldur Anton Skúlason og Sig-
rún Ýr Magnúsdóttir, sem höfnuðu
í 6. sæti. Þetta sýnir, svo um
munar, að við erum farin að skjóta
nokkrum af sterkustu dansþjóðum
heims ref fyrir rass. 12-15 ára
kepptu í vínarvalsi og voru 164
pör skráð til leiks, þar af 13 ís-
lensk og komust 9 áfram í 2.
umferð (101 par). í 3. umferð (44
pör) komust 2 pör og og eitt par
Morgunblaðið/Jóhann Gunnar Amarsson
SIGURSTEINN Stefánsson og Elísabet Sif Haraldsdóttir náðu
stórkostlegum árangri að þessu sinni. Hér dansa þau Pasí dopble.
og yngri og 12-15 ára.
íslendingar létu sitt ekki eftir
liggja og fjölmenntu á staðinn. Um
150 manns lögðu af stað laugar-
deginum 15. apríl frá Keflavík og
var mikil stemmning og tilhlökkun
vegna fararinnar, jafnt hjá ungum
sem öldnum. Eftir stutt og gott
flug var lent í Blackpool og fóru
svo allir á hótelið að koma sér og
sínum fyrir.
Keppnin átti ekki að hefjast fyrr
en á mánudeginum og nýttu menn
þá sunnudaginn til að skoða síg
um, því af nógu var að taka. I
Blackpool er alltaf hægt að fmna
sér eitthvað til að drepa tímann,
þar er hið ágætasta „tívolí“ þar
sem m.a. er hæsti og hraðskreið-
asti rússíbani I heiminum og mörg-
um fannst nóg um og horfðu bara
á. Þama er einnig mjög skemmti-
legt sædýrasafn og fjöldinn allur
af spilavítum og sölum.
Árangur íslendinga átti eftir að
verða einhver sá besti sem íslenskt
íþróttafólk hefur náð á erlendum
vettvangi og er ætlunin að rekja
hér á eftir, í stórum dráttum,
hvernig vikan leið.
Mánudagur
Mánudagurinn var fyrsti keppn-
isdagurinn. Mikill fjöldi keppenda
var mættur til leiks. í flokki 12
ára og yngri kepptu 66 pör fyrsta
daginn, þar af 10 frá Islandi og
var þá keppt í vínarvalsi. í 2.
umferð, 48 para úrslit, komust níu
íslensk pör og 3 þeirra fóru áfram
í 3. umferð, 24 para úrslit, sem
er frábær árangur í svona sterkri
keppni. Eitt par komst svo í undan-
úrslit í vínarvalsinum, en það voru
þau Gunnar Hrafn Gunnarsson og
Ragnheiður Eiríksdóttir.
I flokki 12-15 ára var keppt í
samba og hófu 178 pör keppni,
þar af 17 íslensk. Þessi aldurs-
flokkur er glfurlega sterkur og þar
er margt stórkostlegra dansara.
14 íslensk pör fóru áfram I 2.
umferð (120 pör) og 5 fóru I þá
3. (48 pör). Tvö íslensk pör fóru
svo I 4. umferð (24 pör) og héldu
svo beint áfram I undanúrslitin (12
pör), við mikinn fögnuð íslenskra
áhorfenda. Þetta voru þau Bene-
dikt Einarsson og Berglind Ing-
varsdóttir og Sigursteinn Stefáns-
son og Elísabet Sif Haraldsdóttir,
þau síðamefndu héldu svo áfram
I úrslitin og náðu þeim glæsilega
árangri að hafna I 3. sæti á eftir
tveimur framúrskarandi slóvensk-
um danspömm.
Þriðjudagur
Á þriðjudeginum kepptu 12 ára
og yngri I 4 suður-amerískum
LANDSLIÐ íslands 12 ára og yngri skipað f.v. Helgu Helgadóttur, Guðna Kristinssyni, Ragn-
heiði Eiríksdóttur, Gunnari Hrafn Gunnarssyni, Aðalheiði Sigfúsdóttur, Sturlaugi Garðarssyni
og Sigrúnu Ýr Magnúsdóttur og Haraldi Antoni Skúlasyni.
komst I 4. umferð (24 pör). 12-13
ára krakkar kepptu I tangó og
quickstep og gekk nokkuð vel. Af
69 pörum voru 9 íslensk og kom-
ust 6 þeirra áfram I 2. umferð (48
pör) og 2 I þriðju umferð (24 pör).
Liðakeppni 12-15 ára fór fram á
þriðjudeginum. íslenska liðið hafn-
aði I 6. sæti.
Miðvikudagur
12 ára og yngri kepptu einungis
I quickstep þennan dag og af 80
skráðum pömm vom 10 íslensk.
Öll komust þau áfram I 2. umferð
(54 pör), en 2 fóm svo áfram I
3. umferð (21 par) og eitt I undan-
úrslit (13 pör), en það voru þau
Haraldur Anton Skúlason og Sig-
rún Ýr Magnúsdóttir.
12-15 ára kepptu I annarri
„stóm“ keppninni á miðvikudegin-
um; suður-amerísku dönsunum.
196 pör voru skráð til leiks og af
þeim voru 15 íslensk pör. Af þeim
komust 6 áfram I 2. umferð (100
pör), 2 pör I 3. umferð og áfram
í þá 4. (24 pör), sem er stórkostleg-
ur árangur I svona sterkri keppni.
Annað þessara para, þau Sigur-
steinn Stefánsson og Elísabet Sif
Haraldsdóttir, náði þeim einstaka
árangri að komast I úrslit í þessum
flokki og hafna I 5. sæti. Að öllum
ólöstuðum held ég að þetta sé sá
stærsti sigur sem Islendingar hafa
unnið í danskeppni á erlendum
vettvangi, ef miðað er við hversu
sterk þessi keppni var. Fagnaðarl-
átum íslendinganna ætlaði heldur
aldrei að linna þegar kallað var inn
I úrslitin.
ÍSLENSKI hópurinn sem keppti í Blackpool.
Glæsilegt ungt íþróttafólk.
Fimmtudagur
Það var mikið að gera hjá 12
ára og yngri á þessum keppnis-
degi. Þau byijuðu á að keppa I jive.
Jive hefur löngum verið einn sterk-
asti dans okkar fólks, enda lét
árangurinn ekki á sér standa. Af
þeim 80 pörum sem skráð voru
komu 10 frá íslandi. 8 þeirra kom-
ust I 2. umferð (55 pör), 4 komust
í þá 3. (29 pör) og þijú pör fóru
I undanúrslit og beint I úrslit. Þetta
voru þau Gunnar Hrafn Gunnars-
son og Ragnheiður Eiríksdóttir,
sem höfnuðu I 6. sæti, Davíð Gill
Jónsson og Halldóra Sif Halldórs-
dóttir sem höfnuðu I 4. sæti. Þau
eru jafnfram yngsta íslenska parið
sem hefur náð svona glæsilegum
árangri I alþjóðlegri danskeppni.
Og síðast en ekki síst Haraldur
Anton Skúlason og Sigrún Ýr
Magnúsdóttir en þau sigruðu í
þessari keppni og er það I annað
sinn sem íslenskt par sigrar I þess-
ari keppni. 12 ára og yngri kepptu
einnig I landakeppni þennan dag
og er skemmst frá því að segja
að íslensku pörin dönsuðu alveg
frábærlega vel og gerðu sér lítið
fyrir og sigruðu I þessari landa-
keppni. Sá árangur er einnig ákaf-
lega glæsilegur og sá besti sem
íslenskt „landslið" hefur náð I
dansi. Liðið skipuðu: Haraldur
Anton Skúlason (fyrirliði) og Sig-
rún Ýr Magnúsdóttir, Sturlaugur
Garðarsson og Aðalheiður Sigfús-
dóttir, Gunnar Hrafn Gunnarsson
og Ragnheiður Eiríksdóttir og
Guðni Kristinsson og Helga Helga-
dóttir. 12-15 ára áttu einnig erfíð-
an dag því þá kepptu þau I hinni
stóru keppninni; standard-dönsun-
um. 175 pör voru skráð til leiks
og af íslensku pörunum 14 komust
6 áfram í 2. umferð (101 par) tvö
komust I 3. umferð (50 pör) og
eitt par komst I 4. umferð (28 pör).
Föstudagur
Áfram var haldið að dansa og
þennan dag kepptu 12 ára og yngri
í hinni stóru keppninni; standard-
dönsunum. Skráð til leiks voru 64
pör og þar af 10 frá íslandi. Þau
komust öll I 2. umferð (54 pör) og
3 pör fóru áfram I 3. umferð (24
pör) og tvö íslensk pör fóru I und-
anúrslit, en það voru þau Haraldur
Anton Skúlason og Sigrún Ýr
Magnúsdóttir og Gunnar Hrafn
Gunnarsson og Ragnheiður Eiríks-
dóttir. 12-15 ára kepptu einungis
I jive. 186 pör voru skráð og þar
af 17 íslensk. í 2. umferð (108
pör) komust 14 íslensk pör og I
3. umferð (62 pör) komust 6 pör.
í 4. umferð, undanúrslit og úrslit
fóru tvö pör, þau Benedikt Einars-
son og Berglind Ingvarsdóttir sem
höfnuðu I 4. sæti og Sigursteinn
Stefánsson og Elísabet Sif Har-
aldsdóttir sem höfnuðu I 2. sæti.
Að mínu mati áttu þau Sigursteinn
og Elísabet skilið að sigra, þau
dönsuðu af miklu meiri krafti og
miklu betur en Bretarnir, sem sigr-
uðu. Árangurinn er engu að síður
góður.
Laugardagur
12 ára og yngri kepptu I cha,
cha.cha síðasta keppnisdaginn að
þessu sinni I Blackpool. Af 82
skráðum pörum áttum við 10 pör,
sem öll komust I 2. umferð (52
pör). { þá 3. (29 pör) fóru 3 ís-
lensk pör og tvö þeirra fóru I úr-
slit. Það voru þau Haraldur Anton
Skúlason og Sigrún Ýr Magnús-
dóttir sem höfnuðu I 2. sæti og
Gunnar Hrafn Gunnarsson og
Ragnheiður Eiríksdóttir sem sigr-
uðu I þessum flokki. Að eiga 2
efstu pörin á verðlaunapalli I al-
þjóðlegri danskeppni er meira held-
ur en nokkur hefði þorað að vona
næstu 15 árin, en þetta eru frá-
bærir dansarar sem eiga þetta svo
sannarlega skilið. 12-13 ára
kepptu I cha,cha,cha og rúmbu og
voru 78 pör skráð til leiks, þar af
11 íslensk, sem öll fóru I 2. um-
ferð (53 pör). í þriðju umferð (26
pör) fóru 4 pör. Tvö komust í und-
anúrslit, en það voru þau Eðvarð
Gíslason og Ásta Lára Jónsdóttir
og Benedikt Einarsson og Berglind
Ingvarsdóttir, en þau síðarnefndu
komust I úrslit og gerðu sér lítið
fyrir og fóru á toppinn. Þetta er I
annað sinn sem Berglind og Bene-
dikt sigra I keppni I Blackpool,
þetta er svo sannarlega glæsilegt
par sem á framtíðina fýrir sér.
12-15 ára kepptu I quickstep og
af 147 skráðum pörum voru 10
íslensk. Öll fóru þau áfram I 2.
umferð (84 pör) og 4 fóru áfram
I 3. umferð (52 pör) og 2 I 4.
umferð (24 pör). Eitt íslenskt par
fór alla leið I úrslitin, en það voru
þau Sigursteinn Stefánsson og
Elísabet Sif Haraldsdóttir og höfn-
uðu þau I 6. sæti.
Það má með sanni segja að allir
keppendurnir okkar hafi sigrað,
því að fara á dansgólfið I svo
sterkri keppni er stór sigur útaf
fyrir sig. Islensku keppendurnir
voru sjálfum sér og öðrum til sóma,
hvort sem er utan dansgólfs eða
á. Þessi ferð íslenskra dansara til
Blackpool hefur sýnt það og sann-
að að við eigum hæfileikríkt og
efnilegt dansíþróttafólk, sem við
getum svo sannarlega verið stolt
af.
Jóhann Gunnar Arnarsson