Morgunblaðið - 07.05.1995, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 7. MAÍ1995 B 5
6.789 skráðu sig í gesta-
bók á Þverfellshomi
fo® tm
Hjálmar R. Bárðarson, fyrrverandi siglingamálastjóri þakkar
viðurkenningu úr Minningarsjóði Páls Jónssonar á aðalfundi
Ferðafélagsins.
AÐALFUNDUR Ferðafélags ís-
lands var haldinn að Mörkinni 6
fyrir nokkru. Forseti félagsins Páll
Sigurðsson setti fundinn og greindi
frá starfi Ferðafélagsins árið 1994.
Nýr gönguskáli var settur niður
í Hrafntinnuskeri í september sl.
stærri og betur búinn en gamli skál-
inn. í húsinu er rafljós og þar er
hitað upp með jarðhita. Salerni er
innanhúss og er það nýlunda í sælu-
húsum Ferðafélagsins.
Ferðafélagið setti upp nýja hring-
sjá á Þverfellshorni Esju. Verk þetta
vann félagið í minningu Jóns J.
Víðis landmælingamanns. Efndi
Ferðafélagið til Esjugönguárs af
þessu tilefni, hönnuð var gestabók
og sérstakt merki Esjugönguársins.
Fjöldi þeirra sem gengu á Þverfells-
horn og rituðu nöfn sín í gestabók-
ina reyndist miklu meiri en búist
hafði verið við eða alls 6.789 manns.
Öllu þessu fólki var sent Esjumerk-
ið til minningar um gönguferð á
Esju á Esjugönguári Ferðafélags-
ins._
Útgáfa árbókar Ferðafélagsins
1994 markar á vissan hátt tíma-
mót, segir í frétt frá FÍ. Til þess
að bæta bókina samþykkti stjórn
Ferðafélagsins á haustdögum 1993
að brot bókarinnar skyldi stækkað
svo að meira væri hægt að vanda
til umbrots en áður. Árbókin var í
septemberbyrjun tilnefnd til ís-
lensku bókmenntaverðlaunanna.
Þátttakendur í ferðum ársins
voru 7.830 í 281 ferð og er þátttak-
endafjöldinn sá næstmesti frá upp-
hafi, aðeins afmælisárið 1977 voru
þátttakendur fleiri eða 8021. Rað-
ganga ársins var tileinkuð 50 ára
afmæli lýðveldisins, var hún gengin
í 8 áföngum frá Bessastöðum til
Þingvalla, en forseti íslands, frú
Vigdís Finnbogadóttir, fylgdi henni
úr hlaði 17. apríl. Þátttakendur
urðu alls 1.155 talsins.
Hjálmar Bárðarson heiðraður
Afhending úr minningarsjóði
Páls Jónssonar fór fram á þessum
aðalfundi í fyrsta skipti. Páll Jóns-
son lést árið 1985, en hann var lengi
í stjórn Ferðafélagsins og ritstjóri
árbókar frá 1968 til 1982. Sam-
dóma niðurstaða sjóðsstjórnar var
sú að veita Hjálmari R. Bárðar-
syni, fyrrverandi siglingamála-
stjóra, fyrstu viðurkenningu úr
sjóðnum fyrir fagrar og vel unnar
bækur um land og þjóð.
Nýr varaforseti var kjörinn á
þessum aðalfundi, Haukur Jóhann-
esson jarðfræðingur, og meðstjóm-
endur til næstu þriggja ára þau
Ingibjörg Þráinsdóttir, Jón Viðar
Sigurðsson og Sigríður Þorbjarnar-
dóttir.
Varði doktors-
ritgerð í líffræði
LAUFEY Þóra
Ámundadóttir varði í
febrúar síðastliðnum
doktorsritgerð í sam-
eindalíffræði við
frumulíffræðideild Ge-
orgetownháskóla í
Washington, D.C.,
Bandaríkjunum. Rit-
gerðin nefnist „The Int-
eraction of Transform-
ing Growth Factor
[TGFQ with c-Myc and
Neu in Mouse Mamm-
ary and Salivary Gland
Thumorigenesis".
Laufey Þóra lauk
Dr. Laufey Þóra
Ámundadóttir.
stúdentsprófi frá
Menntaskólanum við
Sund 1982 og B.Sc.
prófi í líffræði við Há-
skóla íslands 1987. Ári
síðar lauk hún fram-
haldsverkefni við líf-
fræðiskor raunvísinda-
deildar Háskóla íslands
undir handleiðslu dr.
Guðmundar Eggerts-
sonar. Haustið 1989
hóf Laufey doktorsnám
við frumulíffræðideild
Georgetownháskóla í
Washington D.C.,
Bandaríkjunum. Leið-
beinandi hennar var Dr. Robert
Dickson.
Rannsóknirnar beindust að þrem
krabbameinsvaldandi genum sem eru
nefnd TGF(, c-Myc og Neu. Þau hafa
öll verið tengd brjóstakrabbameini
vegna genamögnunar og/eða yfirtj-
áningar. Athugað var hvort TGF( og
c-Myc annarsvegar, og TGF( og Neu
hinsvegar, vinna saman við myndun
bijóstakrabbameins í músum.
Styrki til doktorsnáms hlaut Lauf-
ey Þóra frá Fulbright-stofnuninni,
American-Scandinavian Foundation,
Krabbameinsfélagi Reykjavíkur og
frumulíffræðideild Georgetownhá-
skóla. Laufey Þóra starfar nú á
rannsóknarstofu dr. Philip Leder í
erfðafræðideild Harvardháskóla í
Boston.
Foreldrar hennar eru Sigrún Þór-
isdóttir og Ámundi Gunnar Ólafsson.
Eiginmaður Laufeyjar Þóru er dr.
Þorkell Andrésson sem er við störf
í frumulíffræðideild sama háskóla.
Námskeið fyrir Bifreiðasala
Prófnefnd bifreiöasala og Frœðslumiösföö bílgreina auglýsa námskeiö
fyrir Bifreiðasala 15.-24. maí n.k. (próf 29. maí). Námskeiðið er 23 kennslu-
stundir, fer fram síödegis og á kvöldin í 7 skipti samtals og varir í 2 vikur.
Námsþœttir:
Kauparéttur
Samningaréttur
Veðréttur lausafjármuna, þinglýsingar
og viðskiptabréfareglur
Mat á ástandi og verðmœti ökutœkja,
ráðgjöf við kaupendur
Reglur um skráningu ökutœkja, skoðun ofl
Fjármálaleg ráðgjöf við kaupendur
Opinber gjöld af ökutœkjum
Vátryggingar ökutœkja
Reglur um virðisaukaskattsbíla
Sölu- og samningatœkni
Indríði Þorkelsson, lögmaður hdl
Andrí Ámason, lögmaður hrí
Bjarki H. Diego, lögmaður hdl
Finnbogi Eyjólfsson. blaðafulltrúi Heklu hf
Cunnar Svavarsson, verkfrœðingur
Bjöm Jónsson, viðskiptafrœðingur
Bergþór Magnússon, fjármálaráðuneytið
Einar Þorfáksson, Tryggingarmiðstöðin hf
Bjamfreður Ólafsson, embaetti Rikisskattstj.
Sigþór Karísson, viðskiptafrœðingur
Námskeiðið, sem er eitt af skilyrðum þess að hljóta leyfi til rekstrar á bilasölu, er haldið
samkvœmt Lögum um sölu notaðra ökutaekja nr. 69/1994 og Reglugerð um námskeið og próf til
að öðlast leyfi til sölu notaðra ökutaekja nr. 407/1994.
Námskeiðsgjald
kr. 35.000,-
(P
Suðurlandsbraut 30 • l08Reykjavik
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
Upplýsingar og skráning:
sími 581-3011
fax 581 -3208
búfræðingar
eru menntaöir í
Nordisk Landboskole
Bufræðingar frá Nordisk Landboskole
hafa víðtæka menntun í faginu auk
verslunarmenntunar og hafa Því fyrirtaks
atvinnumöguleika.
2ja ára bóklegt nám
2 sérgreinar: líffræði eóa hagfræði/kaupskapur
Inntökukröfur: 10. bekkur + faglegt nám sem
bóndi eða aðstoðarmaður í landbúnaði. Próf frá
menntaskóla, öldungadeild, tækniskóla eða
verslunarskóla með verkmenntun innan
landbúnaðar
Námið hefst 4. september 1995
Hringdu og ræddu við okkur. Við getum líka sent
Þér upplýsingapésa.
nORDISK LAflDBOSKOLE
Rugárdsvej 286 ■ DK-5210 Odense NV • Danmark
Telefon +45 66 16 18 90 ■ Telefax +45 66 16 56 90
Kennsla 1 búfræði hófst fyrir 31 ðri I Nordisk Landboskole. bar fæst úrvalsmenntun
og kennslureynsla, sem tryggir fyrsta flokks menntun. I skólanum höldum við
námskeið fyrir nemendur frð mörgum löndum I Afriku, Aslu og Austur-Evrópu.
RÁÐSTEFNA UM
STARFSÞJÁLFUN OG
ENDURMENNTUN
þar sem hleypt verður af stokkunum á íslandi Leonardó áœtlun
Evrópusambandsins um samstarfá sviði starfsmenntunar á
framhaldsskóla- og háskólastigi og á sviði endur- og
símenntunar í atvirmulífinu.
11 maí 1995 á Grand Hótel Reykjavík
10:00 Opnunarávörp frá fulltrúum menntamáiaráðuneytis og
framkvæmdastjómar Evrópusambandsins
10:15 Kynning á Leonardó áætlun Evrópusambandsins:
Flokkur 1 og III sem sótt er um beint til viðkomandi
landsskrifstofa; samstarfsverkefni á framhaldsskólastigi
Tim Mawson, framkvœmdastjórn Evrópusambandsins
Flokkur II og III sem sótt er um beint til
framkvæmdastjómarinnar; samstarfsverkefni á háskólastigi
Steve Bainbridge, framkvœmdastjóm Evrópusambandsins
12:00 Kynning á helstu tegundum verkefna og meginniðurstöðum úr
þeim áætiunum sem sameinast undir hatti Leonardó
áætlunarinnar:
COMETT - Samstarf háskóla og atvinnulífs um starfsþjálfun
og tæknimenntun
Hellen M. Gunnarsdóttir, Háskóla íslands
12:30 Hádegisverður
14:00 Kynning á helstu tegundum verkefna, frh.:
FORCE - Samstarf á sviði endurmenntunar og
starfsþjálfunar í atvinnulífínu
John Moore, FORCE skrifstofan á írlandi
PETRA - Samstarf um starfsmenntun á framhaldsskólastigi
Lise Fogh, PETRA skrifstofan í Danmörku
15:00 Kynning á starfsemi landsskrifstofu Leonardó á íslandi;
skipulagi, þjónustu og ferli við umsóknir sem sendar em beint
til skrifstofunnar
Ágúst H. Ingþórsson, Rannsóknaþjónustu Háskólans
15:45 Kynning á Samstarfsnefnd atvinnulífs og skóla og hlutverki
hennar f framkvæmd Lconardó
Sigmundur Guðbjamason, stjómarformaður Sammenntar
16:00 Umræður um möguleg íslensk verkefni innan Leonardó
áætlunarinnar
17:00 Mótttaka á Grand Hótel Reykjavík f boði
menntamálaráðuneytis og landsskrifstofu Leonardó á íslandi.
Ráðslefnustjóri verður Sólrún Jensdóttir, skrifstojustjóri t
menntamálaráðuneytinu
Þátttaka er ókeypis og öllum opin meðan húsrúm leyfir.
Einungis þeim sem skrá sig fyrirfram verður tryggð þátttaka.
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku til Rannsóknaþjónustu
Háskólans s. 569 4900 í síðasta tagi 8. maí
Rannsóknaþjónusta Háskólans
Tæknlgaröl, Dunhaga 5, 107 Reykjavík. Slml S69 4900 Fax 569 4905