Morgunblaðið - 07.05.1995, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 7. MAÍ1995 B 9
Lítill leiðarvísir
Eðlilega er erfitt fyrir ókunnan
að velja úr ríflega 60 plötu safni
Frank Zappa og vegna fjölbreytn-
innar er eins víst að sá sem kann
að meta Overnight Sensation finn-
ist Chungas Revenge, þar sem
meðal annars má finna perluna
Forleikur að síðkvöldi yxna gas-
grímu, hrein steypa. Hver hefur
og sína skoðun á Zappa og al-
gengt að tónlistaráhugamenn
kunni að meta ákveðin tímabil í
tónlistarsögu Zappa en ekki önn-
ur. Flestir eru þó sammála um að
skyldueign sé fyrsta platan Freak
Out, sem kom út 1966, þá We’re
Only in it For the Money sem
áður er getið, íjölþætt meistara-
verk og kom út 1967, Uncle Meat,
sem kom út 1969 og á er tónlist
úr samnefndri kvikmynd, Hot
Rats, sem er nánast einungis leik-
in tónlist og Zappa fer á kostum
á gítarinn, kom út 1970, Grand
Wazoo, þar sem Zappa leikur sína
tegund af jass með stórsveit, kom
út 1972, Ovemite Sensation, sem
er fyrsta platan í fönkrokkpopp-
röð, kom út 1973, Joe’s Garage,
Act I og Act II & III sem komu
út 1980, Shut up ’n Play Your
Guitar, þriggja platna safn gíta-
reinleiks sem sánnaði í eitt skipti
fyrir öll að Zappa var með fremstu
gítarleikurum rokksögunnar, kom
út 1981, Jazz from Hell, sem kom
út 1986 og Zappa leikur sjálfur
að mestu á Synclavier-tölvu, en
fyrir hana fékk hann jass Grammy
verðlaun, sex binda tónleikaútgáf-
una You Cán’t do that oii Stage
Any More sem kom út 1988 til
1991, The Perfect Stranger, þar
sem Pierre Boulez stýrir hljóm-
sveitarverkum Zappa, og loks ber
að nefna Yellow Shark, sem áður
er getið og kom út 1993. Þegar
menn hafa svo kynnt sér ofan-
greindar plötur, sem gefa prýði-
lega mynd af tónlistarmanninum
Frank Zappa, er eins víst að fleiri
rati í safnið, enda má segja að á
öllum plötunum megi finna gull-
mola, þó stundum þurfí að grafa
djúpt.
FRANK Z APPA á dygga aðdá-
endur um heim allan, þar á
meðal hér á landi þar sem svo-
nefnt Zappavinafélag starfar,
og verður haldið sérstakt
Zappakvöld á Bíóbarnum næst-
komandi fimmtudag. Formaður
þess er Sverrir Tynes sem safn-
ar Zappa af kappi. Hann segist
eiga eitthvað um 300 Zappaplöt-
ur, sem verður að teýast allgott
þegar litíð er til þess að Zappa
gaf út 61 plötu. Því tíl viðbótar
á hann mÚdð myndbandasafn,
liklega 80 spóiur. Sverrir segist
reyndar hafa hætt að mestu að
kaupa ólöglegar útgáfur á plöt-
um eða diskum, hann safni þeim
á segulböndum og eigi eitthvað
á annað þúsund klukkustunda
af tónlist á bandi.
Hlustar skipulega
Sverrir segir að hann sé ekki
búinn að hlusta á allt, en það
sé ekki mikið, því hann hlustí
skipulega á böndin, geri iaga-
lista og skrifi athugasemdir um
upptökuna. „Það er svo gaman
að fylgjast með því hvernig tón-
listin þróaðist hjá Zappa, maður
heyrir hvernig hugmynd að lagi
kviknar sem stef í öðru lagi og
síðan tekur það á sig mynd á
tónleikum þar til fuilsmíðað iag
er orðið tíi,“ segir hann, en
hann leggur áherslu á að mest
gaman hafi hann af að hlusta á
tónleikaupptökur með Zappa,
þar hafi mest verið á seyði. „Eg
hiusta ekki samfellt á þessar
upptökur," segir Sverrir, „en
tek tarnir og hiusta þá ansi
stíft“ Hann segist vera búinn
að horfa á ailar my ndbandsspól-
urnar, enda hafi hann þann
háttinn á þegar hann fær slíka
spólu að horfa á hana, skrifa
niður lagalista og athugasemdir
um lögin. Safnið spannar allan
tónlistarferil Zappa og þannig
er tii að mynda upptaka af þvi
þegar hann kom fyrst fram i
sjónvarpi, 22 ára, og spilaði á
reiðhjól í skemmtíþætti 1964,
fram tíl síðustu Evrópuferðar
hans þegar Nútímahyómsveit
Frankfurt fluttí Yellow Shark
fyrir tveimur árum, en hann
lést síðar sama ár.
SA hann átta sinnum A
tónleikum
Sverrir hefur ekki látið sér
nægja að hlusta á Zappa og
horfa heima í stofu, því hann
sá hann átta sinnum á tónleik-
um, alla framúrskarandi. Fyrst
sá hann Zappa á tónleikum
1978, þannig að áhuginn hefur
lifað lengi, enda segist Sverrir
hafa verið þrettán ára þegar
hann hreifst af Zappa. „Siðan
sá ég hann á þrennum tónleik-
um í Lundúnum 1982.1984 var
ég að kaupa mér íbúð og komst
ekki, sem ég hef séð eftír síðan,
en 1988 sá ég hann í Kaup-
mannahöfn, kom heim og fór
aftur út viku síðar og sá hann
i Amsterdam. Það var síðasta
eiginlega tónleikaferð hans,
enda var hann þá orðinn veik-
ur, en svo sá ég hann 1993,
þegar flutt var verkið Yellow
Shark.“
Sverrir segist ekki ætla sér
að kaupa allar Zappaplöturnar
aftur, þó verið sé að gefa þær
út endurhljóðblandaðar af
Zappa sjálfum, hann eigi ailar
upptökurnar S tvl- og þrítaki.
„Eg veit ekki... kannski eiga
þær eftir að tínast hingað inn
smám saman,“ segir hann og
hlær við, „en núorðið kaupi ég
bara sérstakar og sjaldlieyrðar
útgáfur og þá heist tónleikaupp-
tökur.“
Hvað varsvomerkilegt við
Zíippa?
„AHir safnarar eru að full-
nægja áráttu," segir Sverrir,
„en hjá Zappa skipti tónlistin
mig mestu máli til að byrja
með. Eftír því sem á leið fannst
mér svo meira til mannsins
koma og þegar ég er að fara
að hlusta á einhverja tónleika
byija ég iðulega á að hlusta á
viðtöl við Zappa áður. Hann
hafði svo skemmtílegar skoðan-
ir á öUu, sem ég er mikið til
sammála," segir Sverrir. Marg-
ir hafa deilt á Zappa fyrir að
hafa einangrast frá umheimin-
um, hann hafi lifað í einskonar
gerviheimi, farið lítið út fyrir
hússins dyr nema á tónleika-
ferðum, og haldið sig i hfjóð-
veri nánast allan sólarhringinn.
Sverrir tekur ekki undir þessa
gagnrýni. „Það er reyndar rétt
að hann fór helst aldrei út fyrir
hússins dyr, en hann fylgdist
nýög vel með umheiminum í
gegnum sjónvai-p og horfði þá
á margar stöðvar tíl að ná sem
heillegastri mynd af þvi sem
fram fór, horfði á margar út-
gáfur af sömu fréttínni til að
lesa á milli línanna."
Síðustu ár hafa þær raddir
orðið æ liáværari sem saka
Zappa um kvenfyrirlitningu í
textum, en Sverrir vísar þeirri
gagnrýni á bug. „ÖU hans verk
eru byggð á einhveiju raun-
verulegu og þar má hvergi
finna kvenfyrirUtningu eða for-
dónm. Hann var iðinn við að
skjóta á það sem honum þóttí
miður og ef hann hefur fyrirUt-
ið eittlivað þá var það sjón-
varpsprestar og eiturlyf."
Fyrirlestur og nám-
skeið Gloriu Karpinski
GLORIA Karpinski
verður með fyrirlestur
og námskeið á íslandi
dagana 11.-21. maí.
Hún hefur starfað sem
kennari og andlegur
leiðbeinandi víðsvegar
um heim, ip.a. í
Bandaríkjunum,
Sviss, Þýskalandi,
Japan og íslandi.
Hún er höfundur
bókarinnar „Where
two Worlds touch“
sem íjallar um and-
lega þroskaleið
mannsins. Gloria vinn-
ur út frá heildrænum
aðferðum í starfí sínu, þ.e. tengsl-
um líkama og huga, tilfínningar
og sálar.
Fyrirlestur Gloriu,
„Barefoot on Holy
Ground - on pratical
mysticism“, verður að
Hótel Loftleiðum 11.
maí kl. 20.
Gloria verður með
tvö námskeið, fyrra
námskeiðið nefnist
„Teacher’s Lab - on
Service and sharing“
og er helgarnámskeið.
Seinna námskeiðið,
„Playing the creative
edge“, verður haldið
að Laugum í Sælings-
dal 18.-21. maí.
Nánari upplýsingar
veita Fanný Jónmundsdóttir,
Kristbjörg Kristmundsdóttir og
Linda Konráðsdóttir.
Gloría Karpinski
Dagbók
rwl Haskóia
íslands
Dagbók Háskóla íslands fyrir vik-.
una 7.-14. maí:
Þriðjudagur 9. maí:
í boði rannsóknastofu í kvenna-
fræðum flytur Kelley Johnson,
kennari við Háskólann í Melbourne
í Ástralíu, opinberan fyrirlestur
sem kallast „The Women on the
Hill: An Ethnographic Study of
Institutionalized Women.“ Stofa
101 í Odda, kl. 17:15. Allir vel-
komnir.
Miðvikudagur 10. maí.
Juha Alatalo heldur fyrirlestur
hjá Líffræðistofnun, Grensásvegi
12, sem nefnist „Global Warming:
Impact on Arctic Plants.“ Stofa
G6, kl. 12:15. Allir velkomnir.
Fimmtudagur 11. maí.
Á vegum málstofu hagfræði-
skorar flytur Mark E. Johnson,
prófessor við Flórídaháskóla í Or-
lando, fyrirlesturinn „Genetic and
Other Stochastic Optimization
Algorithms with Applications“.
Fyrirlesturinn hefst kl. 16:15 í
Odda, stofu 101. Allir velkomnir.
Námskeið Endurmenntunar-
stofnunar 8.-12. mai 1995:
í Tæknigarði 8. til 12. maí kl.
8:30-12:30: Prófun á hugbúnaði:
„ESPITI - Software testing." Leið-
beinandi Hans Schaefer, Software
Test Consulting, Noregi.
í Tæknigarði 8. og 11. maí kl.
8:30-12:30: Lærdómsfyrirtækið:
„The Fifth Discipline - The Art
and Practice of the Leaming Org-
anisation.“ Leiðbeinandi Höskuld-
ur Frímannsson lektor.
u
Lokum eftir 2 vikur á Laugavegi
r
Engir skór yfir
Skoverslunin Laugavegi 1 1 - Simi: 21675
990
e|esjne>|0-| e|esjne>io-i e|esjne>io-i eiesjne^oi eiesjne^o-j e|es
utsala Lokautsalá Lokautsala Lokautsala Lokautsala Lokautsale Lokautsala Lokautsala Lokautsala Lokautsala Lokaú