Morgunblaðið - 07.05.1995, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 07.05.1995, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. MAÍ1995 B 9 Lítill leiðarvísir Eðlilega er erfitt fyrir ókunnan að velja úr ríflega 60 plötu safni Frank Zappa og vegna fjölbreytn- innar er eins víst að sá sem kann að meta Overnight Sensation finn- ist Chungas Revenge, þar sem meðal annars má finna perluna Forleikur að síðkvöldi yxna gas- grímu, hrein steypa. Hver hefur og sína skoðun á Zappa og al- gengt að tónlistaráhugamenn kunni að meta ákveðin tímabil í tónlistarsögu Zappa en ekki önn- ur. Flestir eru þó sammála um að skyldueign sé fyrsta platan Freak Out, sem kom út 1966, þá We’re Only in it For the Money sem áður er getið, íjölþætt meistara- verk og kom út 1967, Uncle Meat, sem kom út 1969 og á er tónlist úr samnefndri kvikmynd, Hot Rats, sem er nánast einungis leik- in tónlist og Zappa fer á kostum á gítarinn, kom út 1970, Grand Wazoo, þar sem Zappa leikur sína tegund af jass með stórsveit, kom út 1972, Ovemite Sensation, sem er fyrsta platan í fönkrokkpopp- röð, kom út 1973, Joe’s Garage, Act I og Act II & III sem komu út 1980, Shut up ’n Play Your Guitar, þriggja platna safn gíta- reinleiks sem sánnaði í eitt skipti fyrir öll að Zappa var með fremstu gítarleikurum rokksögunnar, kom út 1981, Jazz from Hell, sem kom út 1986 og Zappa leikur sjálfur að mestu á Synclavier-tölvu, en fyrir hana fékk hann jass Grammy verðlaun, sex binda tónleikaútgáf- una You Cán’t do that oii Stage Any More sem kom út 1988 til 1991, The Perfect Stranger, þar sem Pierre Boulez stýrir hljóm- sveitarverkum Zappa, og loks ber að nefna Yellow Shark, sem áður er getið og kom út 1993. Þegar menn hafa svo kynnt sér ofan- greindar plötur, sem gefa prýði- lega mynd af tónlistarmanninum Frank Zappa, er eins víst að fleiri rati í safnið, enda má segja að á öllum plötunum megi finna gull- mola, þó stundum þurfí að grafa djúpt. FRANK Z APPA á dygga aðdá- endur um heim allan, þar á meðal hér á landi þar sem svo- nefnt Zappavinafélag starfar, og verður haldið sérstakt Zappakvöld á Bíóbarnum næst- komandi fimmtudag. Formaður þess er Sverrir Tynes sem safn- ar Zappa af kappi. Hann segist eiga eitthvað um 300 Zappaplöt- ur, sem verður að teýast allgott þegar litíð er til þess að Zappa gaf út 61 plötu. Því tíl viðbótar á hann mÚdð myndbandasafn, liklega 80 spóiur. Sverrir segist reyndar hafa hætt að mestu að kaupa ólöglegar útgáfur á plöt- um eða diskum, hann safni þeim á segulböndum og eigi eitthvað á annað þúsund klukkustunda af tónlist á bandi. Hlustar skipulega Sverrir segir að hann sé ekki búinn að hlusta á allt, en það sé ekki mikið, því hann hlustí skipulega á böndin, geri iaga- lista og skrifi athugasemdir um upptökuna. „Það er svo gaman að fylgjast með því hvernig tón- listin þróaðist hjá Zappa, maður heyrir hvernig hugmynd að lagi kviknar sem stef í öðru lagi og síðan tekur það á sig mynd á tónleikum þar til fuilsmíðað iag er orðið tíi,“ segir hann, en hann leggur áherslu á að mest gaman hafi hann af að hlusta á tónleikaupptökur með Zappa, þar hafi mest verið á seyði. „Eg hiusta ekki samfellt á þessar upptökur," segir Sverrir, „en tek tarnir og hiusta þá ansi stíft“ Hann segist vera búinn að horfa á ailar my ndbandsspól- urnar, enda hafi hann þann háttinn á þegar hann fær slíka spólu að horfa á hana, skrifa niður lagalista og athugasemdir um lögin. Safnið spannar allan tónlistarferil Zappa og þannig er tii að mynda upptaka af þvi þegar hann kom fyrst fram i sjónvarpi, 22 ára, og spilaði á reiðhjól í skemmtíþætti 1964, fram tíl síðustu Evrópuferðar hans þegar Nútímahyómsveit Frankfurt fluttí Yellow Shark fyrir tveimur árum, en hann lést síðar sama ár. SA hann átta sinnum A tónleikum Sverrir hefur ekki látið sér nægja að hlusta á Zappa og horfa heima í stofu, því hann sá hann átta sinnum á tónleik- um, alla framúrskarandi. Fyrst sá hann Zappa á tónleikum 1978, þannig að áhuginn hefur lifað lengi, enda segist Sverrir hafa verið þrettán ára þegar hann hreifst af Zappa. „Siðan sá ég hann á þrennum tónleik- um í Lundúnum 1982.1984 var ég að kaupa mér íbúð og komst ekki, sem ég hef séð eftír síðan, en 1988 sá ég hann í Kaup- mannahöfn, kom heim og fór aftur út viku síðar og sá hann i Amsterdam. Það var síðasta eiginlega tónleikaferð hans, enda var hann þá orðinn veik- ur, en svo sá ég hann 1993, þegar flutt var verkið Yellow Shark.“ Sverrir segist ekki ætla sér að kaupa allar Zappaplöturnar aftur, þó verið sé að gefa þær út endurhljóðblandaðar af Zappa sjálfum, hann eigi ailar upptökurnar S tvl- og þrítaki. „Eg veit ekki... kannski eiga þær eftir að tínast hingað inn smám saman,“ segir hann og hlær við, „en núorðið kaupi ég bara sérstakar og sjaldlieyrðar útgáfur og þá heist tónleikaupp- tökur.“ Hvað varsvomerkilegt við Zíippa? „AHir safnarar eru að full- nægja áráttu," segir Sverrir, „en hjá Zappa skipti tónlistin mig mestu máli til að byrja með. Eftír því sem á leið fannst mér svo meira til mannsins koma og þegar ég er að fara að hlusta á einhverja tónleika byija ég iðulega á að hlusta á viðtöl við Zappa áður. Hann hafði svo skemmtílegar skoðan- ir á öUu, sem ég er mikið til sammála," segir Sverrir. Marg- ir hafa deilt á Zappa fyrir að hafa einangrast frá umheimin- um, hann hafi lifað í einskonar gerviheimi, farið lítið út fyrir hússins dyr nema á tónleika- ferðum, og haldið sig i hfjóð- veri nánast allan sólarhringinn. Sverrir tekur ekki undir þessa gagnrýni. „Það er reyndar rétt að hann fór helst aldrei út fyrir hússins dyr, en hann fylgdist nýög vel með umheiminum í gegnum sjónvai-p og horfði þá á margar stöðvar tíl að ná sem heillegastri mynd af þvi sem fram fór, horfði á margar út- gáfur af sömu fréttínni til að lesa á milli línanna." Síðustu ár hafa þær raddir orðið æ liáværari sem saka Zappa um kvenfyrirlitningu í textum, en Sverrir vísar þeirri gagnrýni á bug. „ÖU hans verk eru byggð á einhveiju raun- verulegu og þar má hvergi finna kvenfyrirUtningu eða for- dónm. Hann var iðinn við að skjóta á það sem honum þóttí miður og ef hann hefur fyrirUt- ið eittlivað þá var það sjón- varpsprestar og eiturlyf." Fyrirlestur og nám- skeið Gloriu Karpinski GLORIA Karpinski verður með fyrirlestur og námskeið á íslandi dagana 11.-21. maí. Hún hefur starfað sem kennari og andlegur leiðbeinandi víðsvegar um heim, ip.a. í Bandaríkjunum, Sviss, Þýskalandi, Japan og íslandi. Hún er höfundur bókarinnar „Where two Worlds touch“ sem íjallar um and- lega þroskaleið mannsins. Gloria vinn- ur út frá heildrænum aðferðum í starfí sínu, þ.e. tengsl- um líkama og huga, tilfínningar og sálar. Fyrirlestur Gloriu, „Barefoot on Holy Ground - on pratical mysticism“, verður að Hótel Loftleiðum 11. maí kl. 20. Gloria verður með tvö námskeið, fyrra námskeiðið nefnist „Teacher’s Lab - on Service and sharing“ og er helgarnámskeið. Seinna námskeiðið, „Playing the creative edge“, verður haldið að Laugum í Sælings- dal 18.-21. maí. Nánari upplýsingar veita Fanný Jónmundsdóttir, Kristbjörg Kristmundsdóttir og Linda Konráðsdóttir. Gloría Karpinski Dagbók rwl Haskóia íslands Dagbók Háskóla íslands fyrir vik-. una 7.-14. maí: Þriðjudagur 9. maí: í boði rannsóknastofu í kvenna- fræðum flytur Kelley Johnson, kennari við Háskólann í Melbourne í Ástralíu, opinberan fyrirlestur sem kallast „The Women on the Hill: An Ethnographic Study of Institutionalized Women.“ Stofa 101 í Odda, kl. 17:15. Allir vel- komnir. Miðvikudagur 10. maí. Juha Alatalo heldur fyrirlestur hjá Líffræðistofnun, Grensásvegi 12, sem nefnist „Global Warming: Impact on Arctic Plants.“ Stofa G6, kl. 12:15. Allir velkomnir. Fimmtudagur 11. maí. Á vegum málstofu hagfræði- skorar flytur Mark E. Johnson, prófessor við Flórídaháskóla í Or- lando, fyrirlesturinn „Genetic and Other Stochastic Optimization Algorithms with Applications“. Fyrirlesturinn hefst kl. 16:15 í Odda, stofu 101. Allir velkomnir. Námskeið Endurmenntunar- stofnunar 8.-12. mai 1995: í Tæknigarði 8. til 12. maí kl. 8:30-12:30: Prófun á hugbúnaði: „ESPITI - Software testing." Leið- beinandi Hans Schaefer, Software Test Consulting, Noregi. í Tæknigarði 8. og 11. maí kl. 8:30-12:30: Lærdómsfyrirtækið: „The Fifth Discipline - The Art and Practice of the Leaming Org- anisation.“ Leiðbeinandi Höskuld- ur Frímannsson lektor. u Lokum eftir 2 vikur á Laugavegi r Engir skór yfir Skoverslunin Laugavegi 1 1 - Simi: 21675 990 e|esjne>|0-| e|esjne>io-i e|esjne>io-i eiesjne^oi eiesjne^o-j e|es utsala Lokautsalá Lokautsala Lokautsala Lokautsala Lokautsale Lokautsala Lokautsala Lokautsala Lokautsala Lokaú

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.