Morgunblaðið - 31.05.1995, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 31.05.1995, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 1995 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Almannavarnir gagnrýndar á ráðstefnu Neytendasamtök um innfluttar búvörur Fyrirhugaðar bensínstöðvar Irving Oil Morgunblaðið/Þorkell Bóka- brennur í borginni LÖGREGLAN var á varðbergi í gær og fyrradag vegna árvissra bókabrenna víða um Reykjavík. Samræmdum prófum í 10. bekkj- um grunnskóla lauk í gær. • Að sögn lögreglu virðast grunnskólanemar hafa tekið upp þann sið undanfarin ár að brenna skólabækur sínar að loknum prófum, líklega til að fagna því að hafa lært efni þeirra svo vel að aldrei gefist ástæða til að fletta upp í þeim að nýju. í gær var tilkynnt um bóka- brennur í Grafarvogi, Árbæ og Breiðholti, en engin meiðsli urðu eða skemmdir á öðrum eignum. Nokkurt ónæði varð í Kringl- unni og Borgarkringlunni síð- degis í gær vegna óláta í ungling- um. Borgarkringlunni var lokað klukkustund fyrr en vanalega vegna þessa og sex unglingar voru færðir á lögreglustöð vegna óláta og ölvunar. Lögreglu var ekki kunnugt um vandræði í miðborginni, enda fögnuðu flestir próflokum frið- samlega eins og blómarósimar á myndinni. í gærkvöldi var þó orðið mjög margt um manninn þar og talsverð ölvun. RÁÐSTEFNA á vegum Almanna- varna ríkisins hófst í Hnífsdal í gær. í henni taka þátt um 90 manns sem tengdust snjóflóðun- um í Súðavík og á Grund í Reyk- hólasveit í janúar sl. með ýmsum hætti. í starfshópum kom fram margvísleg gagnrýni á fjölmarga þætti. Þátttakendur í ráðstefnunni koma m.a. frá björgunaraðilum, almannavörnum, lögreglu, áfaila- hjálparhópum og heilbrigðisstétt- um. Ráðstefnunni er ætlað að vinna skýrslu og verður hún samin af starfshópum sem hver um sig fer með einstaka þætti málsins. Brotinn samningur í gær kom fram hörð gagnrýni frá Landsbjörgu, Landssambandi björgunarsveita, í skýrslu sem samin hefur verið á vegum sam- bandsins. Þar er harðlega gagn- rýnt hvernig staðið var að því af hálfu Almannavama ríkisins að boða Landsbjörgu til þátttöku í björgunarstarfinu. Fram kemur að forsvarsmenn Landsbjargar telja að þar hafi verið brotinn samning- ur, sem gerður var um síðustu áramót, um það hvernig standa skuli að boðun á viðbúnaðarstigi. Þá var gagnrýnt hvernig staðið var að undirbúningi og framkvæmd liðsaukaflutnings og hversu seint hann fór af stað. Á ráðstefnunni var ekki tekin afstaða til þessara athugasemda. Jón Gunnarsson, ritari Landsbjarg- ar, sagði að samtökin myndu setja fram tillögur um breytt fyrirkomu- lag og vinna þeim brautargengi á öðrum vettvangi. Niðurstöður ráðstefnunnar verða notaðar til að gefa út endan- lega skýrslu sem tekur til allra sviða sem tengjast björgunarað- gerðum og aðhlynningu eftir snjó- flóðin í Súðavík. íslensk lyfjaverk- smiðja í Litháen LYFJAFRAMLEIÐSLA hefst um mánaðamótin júní-júlí í nýrri lyfja- verksmiðju í Litháen í eigu ís- lenska heilsufélagsins hf., Lyfja- verslunar ríkisins, íslenskra aðal- verktaka auk sænskra og lithá- ískra aðila. íslenskir aðalverktak- ar, ÍAV, reistu verksmiðjuhúsið en sænsku aðilarnir útvega tækjabún- aðinn en uppsetningu á honum lýkur í næsta mánuði. Forstjóri verksmiðjunnar er Ámi Ámason og markaðsstjóri Gunnar Hinz. Undirritaður var samningur milli hluthafa síðastliðið sumar og þá var jafnframt gengið frá láns- samningum. Þá er fýrirtækið Ger GmbH, sem ÍAV eiga 80% í og Ármannsfell 20%, að reisa 20 svo- kallaðar permoform íbúðir í Stuttg- art í Þýskalandi og er áætlað að verkinu ljúki næsta haust. Þar er töluverður fjöldi íslenskra iðnaðar- manna í vinnu. Um frekari fram- kvæmdir í Þýskalandi er ekki af- ráðið, en Árni Grétar Finnsson, stjórnarformaður ÍAV, segir að gefist þessar framkvæmdir vel sé hugsanlegt að ráðist verði í fleiri verkefni þar. Ámi Grétar segir að önnur verkefni séu í athugun, þar á meðal í Víetnam. ÍAV á þriðj- ungshlut I fýrirtækinu HeH Inter- national sem hefur haslað sér völl í landinu og hefur fomýtingarrétt á lóð í miðborg Saigon þar sem áætlað er að reisa skrifstofu- og hótelbyggingu. Einnig hafa ýmsir aðrir möguleikar verið þar í skoð- un, að sögn Áma Grétars. Dýrari en innlend- ar nema kjúkling- ur og kalkúnn „GATT breytir nánast engu um verð á búvöm í íslenskum verslun- um til lækkunar, nema þá helst á kjúklingakjöti og kalkún, enda er himinhátt verð á þessum tegundum hér á landi frægt,“ segir Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytenda- samtakanna. Neytendasamtökin hafa tekið saman tölur um hugsanlegt smá- söluverð á innfluttum búvömm. Jóhannes segir að þær forsendur, sem samtökin hafí gefíð sér við útreikningana væm að smásölu- álagning á innlendar vömr væri 30%, en sama krónutala í álagningu legðist á innfluttu vömna. í þessum útreikningum er ein- ungis miðað við að vömrnar séu fluttar inn frá Danmörku og undir ákvæði sem kveður á um að flytja megi magn, sem nemur 3% af inn- anlandsneyslu, inn á lægri tollum en ella. Yrði flutt inn magn umfram þessi 3% yrði það á hærra verði en hér kemur fram. Jóhannes Gunn- arsson var efíns um að meira yrði Dæmi um verðmun á innlendum og eriendum iandbúnaðarafurðum Verð, kr/kg. Innlent Erlent Svínakótilettur 1 .172 1.617 Svínalundir^—"fy 1 .556 2.596 Svínalærl ÉEjf 711 675 Nautahakk^ 889 1.241 Nautalundir |L 2 .734 3.395 Lambalæri 882 980 Kjúklingar^-,. 776 638 Kalkúnn «1 .042 710 Gauda ostur^f^ 734 1.270 Smjör 348 813 flutt inn en sem næmi 3%, enda væri verðlagningin „út ár korti", eins og hann orðaði það. ■ Tillit tekið til/6 Nytjamarkaður RKÍ REYKJAVÍKURDEILD Rauða kross íslands opnar Nytjamarkað í Bolholti 6 í dag. Þar verða seld notuð húsgögn sem annars færu í eyðingu hjá Sorpu. Sorpa hefur útvegað nokkmm líknarfélögum notuð húsgögn og tæki, að fenginni heimild þeirra aðila sem í hlut eiga, sl. eitt og hálft ár. Ekki hefur verið unnt að halda því áfram með óbreyttum hætti og var því leitað samstarfs við Reykjavíkurdeild RKL Reykjavíkurdeild RKÍ hefur einnig áhuga á að bæta einni deild við starfsemi Nytjamarkaðarins, þ.e. sölu á notuðum fatnaði og þá að fenginni heimild gefenda. Andlát GUNNAR HUSEBY GUNNAR Huseby, einn mesti afreksmað- ur íslands í íþróttum, lést á sunnudagskvöld á gjörgæsludeild Landspítalans eftir stutt en erfið veikindi. Hann var á 72. aldurs- ári. Gunnar Huseby fæddist í Reykjavík 4. nóvember 1923. Und- anfama áratugi var hann starfsmaður Vatnsveitu Reykjavík- aði í kúluvarpi á Evr- ópumeistaramótinu í Ósló 1946. Varði hann titilinn fjórum ámm síðar í Bmssel og setti þá Norðurlandamet, varpaði 16,74 metra, sem var íslandsmet til ársins 1967. Gunnar varpaði kúlu fýrstur íslendinga yfír 15 og 16 metra og kringlu yfir 50 metra. Hann varð margoft ís- landsmeistari í báðum ur. Gunnar Huseby var fremstur íslendinga í kúluvarpi og kringlukasti 1941-51 og vann fyrstur íslendinga Evrópu- meistaratitil í íþróttum er hann sigr- greinum. Hann vann Konungsbikarinn fyrir besta afrek 17. júní mótsins oftar en nokkur annar eða 1941,1944-46 og 1948-51. Borgarskipulag sam- þykkir staðsetningu BORGARRAÐ hefur samþykkt umsögn borgarskipulags um að fall- ist verði á breytta iandnotkun Vegna staðsetningar á fyrirhuguðum bens- ínafgreiðslum og verslunum kanad- íska fyrirtækisins Irving Oil við Hraunbæ og Eiðsgranda. Að sögn Guðrúnar Ágústsdóttur, forseta borgarstjómar og formanns skipu- lagsnefndar, mun samþykkt borg- arráðs verða vísað til skipulags- stjóra ríkisins til endanlegrar af- greiðslu. Athugasemdir bárust frá þremur aðilum. vegna bensínafgreiðslunnar við Hraunbæ og tvær vegna Eiðs- granda. „Við teljum ekki að þær athugasemdir sem bárust hindri að þarna geti risið bensínstöðvar," sagði Guðrún. Hugað verði að umferðaröryggi í athugasemdum vegna breytinga á landnotkun í Hraunbæ við Bæjar- háls í Árbæjarhverfi er lýst áhyggj- um vegna aukinnar umferðar og mengunar frá bensínstöðinni auk þess sem bent er á að bensínstöð sé fyrir í hverfínu. í umsögn borgarskipulags kemur fram að umferðasérfræðingar telji að bensínstöð á þessum stað þjóni nær eingöngu þeirri umferð sem fer um hverfið. Bent er á að með teng- ingu Suðurlandsvegar við Vestur- landsveg í Smálöndum hafí dregið töluvert úr umferð um Bæjarháls. Við endanlega hönnun á aðkomu að bensínstöðinni þurfí að huga vel að umferðaröryggismálum og sjá til þess að ekki myndist biðraðir á nærliggjandi gatnamótum. Tvö bréf bárust með athugsemd- um vegna fyrirhugaðrar bensín- stöðvar við Eiðsgranda. í bréfí frá Sölusambandi íslenskra fískfram- leiðenda er bent á að fyrirhuguð bensínafgreiðsla verði í um 70-90 metra fjarlægð frá fískverkunarstöð fyrirtækisins. í umsögn borg- arskipulags segir að bensínstöðvar og jafnvel olíubirgðastöðvar séu í Reykjavík sem og um allt land í innan við 100 metra fjarlægð frá íbúðarbyggð og atvinnustarfsemi. Ekki sé kunnugt um nein mengun- arslys eða kvartanir yfir nábýli við bensínstöðvar. Útsýni og útivist í erindi lóðasamtaka Keilu- granda 2-J.O og Rekagranda 1-7, er bent á að ekki sé þörf á þjón- ustu á þessum stað og að bensín- stöðin skerði möguleika á útivist og útsýni. í umsögn borgarskipu- lags kemur fram að engin algild mælistika sé til að meta hvort of mikið sé af ákveðinni tegund af þjónustu eins og bensínafgreiðslu í einstökum borgarhlutum. Um staðsetningu bensínstöðvar á strandræmunni sé það að segja að á uppfyllingunni sé fyrirhuguð dælustöð fráveitukerfis borgarinn- ar og nauðsynlegt sé að hanna mannvirkin samhliða.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.