Morgunblaðið - 31.05.1995, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 31.05.1995, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 1995 7 FRÉTTIR Steinefni í slitlag flutt inn frá Noregi VERKTAKAFYRIRTÆKIÐ Hlað- bær-Colas hefur flutt inn 12 þúsund tonn af steinefnum til framleiðslu á malbiki frá Noregi. Efnið verður notað í slitlag á 6V2 km kafla á Reykjanesbraut í sumar og einnig í slitlag á Höfðabakkabrúna. Sigurður Sigurðsson, fram- kvæmdastjóri Hlaðbæjar-Colas, segir ástæðuna fyrir því að efnið sé sótt til Noregs þá að fyrirtækið fær ekki það magn sem það þarf hér innanlands. Framleiðslan ekki næg til að anna eftirspurn Hann segir að Reykjavíkurborg fái steinefni frá Seljadal í Mosfells- bæ en framleiðslan þar sé ekki það mikil að hún anni eftirspurninni. Þess vegna flytji fyrirtækið inn þriðjung af ársþörf af steinefnum. „Við höfum flutt inn tvo 6 tonna farma og eigum enn eftir að flytja inn ljósu steinefnin í slitlag. Við höfum flutt þetta inn undanfarin ár í hluta af framleiðslunni. Þó að á íslandi sé fullt af grjóti þá er ekki mikið af nothæfum steinefnum í nágrenni við höfuðborgina," segir Sigurður. Bygging mislægra gatnamóta á mótum . Höfðabakka og Vestur- landsvegar stendur nú sem hæst og stefnt er að því að umferð verði komin á gatnamótin í september næstkomandi. Nú er bygging sjálfs brúardekksins að hefjast. í frétt frá Álftarósi og Hlaðbæ- Colas, framkvæmdaaðilunum, seg- ir að af þeim sökum verði að tak- marka hæð ökutækja sem undir brúarundirsláttinn fara, en há- markshæð verður fjórir metrar. Þeir bílar sem eru hærri verða að fara til hliðar við gatnamótin. Sett- ur verður upp sérstakur viðvörun- arbúnaður, bæði hljóð- og ljós- merki sem aðvarar ökumenn öku- tækja sem eru hærri en 4 metrar. Búast má við einhveijum töfum á umferð, sérstaklega í byijun með- an vegfarendur eru að venjast breyttum aðstæðum. Jafnframt verður hámarkshraði lækkaður í 45 km á klst. Morgunblaðið/Halldór Kolbeins HLAÐBÆR-Colas hefur flutt inn 12 þúsund tonn af steinefnum frá Noregi sem verða notuð i malbik á Reykjanesbraut og nýju Höfðabakkabrúna. Nýsköpunarsjóður námsmanna 5 milljóna aukafjár- veiting Á RÍKISSTJÓRNARFUNDI í gær var samþykkt að frumkvæði Bjöms Bjamasonar menntamálaráðherra að veita fimm milljónir króna til rann- sóknarverkefna á vegum Nýsköpun- arsjóðs námsmanna. I fréttatilkynningu frá Stúdenta- ráði Háskóla íslands segir, að þessi aukaíjárveiting muni reynast stúdent- um mjög dýrmæt og veiti að líkindum um 25 nýjum verkefnum brautar- gengi og að minnsta kosti jafn mörg- um_ stúdentum sumarvinnu. Áður hafði verið úthlutað 20 millj. króna úr sjóðnum sem dugði aðeins til að styrkja um helming þeirra rúm- lega 200 verkefna sem sótt hafði verið um styrk til. Aukafjárveiting ríkisstjórnarinnar er í samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar um eflingu nýsköpunarsjóðsins. Stúdentar hafa einnig leitað til sveit- arfélaga og fyrirtækia um framlög til nýsköpunarsjóðs en svör hafa ekki borist. Gripnir með grill TVEIR menn voru vistaðir í fangageymslum lögreglunnar í fyrrinótt, eftir að þeir voru gripnir með stolið gasgrill. Mennirnir ætluðu í heim- sókn í hús í Grafarvogi, en var ekki hleypt inn þar sem þeir voru undir áhrifum áfengis. Þeir fóru í næstu götu og fundu þar gasgrill, sem þeir ákváðu að taka með sér. Grill- inu drösluðu þeir með sér nokkurn spotta og fylgdi þeim flutningi töluverður hávaði, sem gerði fólki rúmrusk. Lög- reglan var kölluð til og þegar annar mannanna sá til ferða hennar reyndi hann að skríða undir kyrrstæðan bíl, til að fela sig. Lögreglan vistaði báða mennina í fangageymslu um nóttina. Ekið yfir fót verkfallsvarðar TÍÐINDALÍTIÐ var i verkfalls- vörslu Sleipnismanna í gær að sögn Óskars Stefánsssonar, formanns félagsins. Tilkynnt var til lögreglu að rútu hefði verið bakkað yfir fót manns á Eiríksgötu í gærmorgun og staðfesti Óskar að urn verkfalls- vörð var að ræða. Hins vegar sé atvikið einungis smávægilegt óhapp en ekki átök. Maðurinn var lítið meiddur og fór sjálfur á slysadeild. Óskar sagði verkfallsverði hafa fengið ströng fyrirmæli um að leysa mál með við- ræðum og forðast ofbeldi. Verk- fallsbrotum hafi fækkað mjög frá mánudegi til þriðjudags, sem hann telji endurspegla að atvinnurekend- ur taki mið af tilkynningum félags- ins um að íekið verði harðt á þeim. ---------*-*-*---- Helgidagalög endurskoðuð DÓMS- og kirkjumálaráðherra hefur skipað nefnd til að endurskoða lög um almannafrið á helgidögum þjóð- kirkjunnar. Nefndina skipa Lára Margrét Ragnarsdóttir alþingismaður, sem jafnframt er formaður nefndarinnar, Hjálmar Jónsson alþingismaður og Valgerður Sverridóttir alþingismað- ur. ■oOMARBLÖM Flauelsblóm Enn góð kau Stjúpur sumarblóm í bakka: JjolunJlauelsblóm, stjúpur og skrautnál

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.