Morgunblaðið - 31.05.1995, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 31.05.1995, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 1995 MORGUNBLAÐIÐ L FRÉTTIR Morgunblaðið/Sverrir VIÐ tæmdar skúffurnar stendur Guðmunda Matthíasdóttir af- greiðslustúlka í Úri og skarti við Bankastræti. Klaus Kinkel væntan- legnr til Islands HALLDÓR Ásgrímsson utanríkis- ráðherra átti í gær viðræður við Klaus Kinkel, utanríkisráðherra Þýskalands, í tengslum við fund utanríkisráðherra Atlantshafs- bandalagsins sem nú stendur yfír. Ákveðið var á fundi þeirra að Kin- kel kæmi hingað til að kynna sér sjónarmið fslendinga vegna þróun- arinnar innan Evrópusambandsins en ekki er búið að dagsetja heim- sóknina, að sögn Halldórs. „Ég vonast til þess að hann geti komið til íslands og kynnt sér okkar mál en hann hefur verið hvatamaður að því að íslendingar gengju í Evrópusambandið," sagði Halldór í samtali við Morgunblað- ið. „Ég tel nauðsynlegt að ræða þessi mál betur við Þjóðverja til að fá fram betri skilning á okkar afstöðu og aðstöðu okkar. Mér fmnst að þegar við útskýrum okk- ar aðstöðu komi fram góður skiln- ingur á því hvers vegna við höfum ekki sótt um aðild.“ Þjóðverjar vilja veita Islendingum aðstoð „Einnig ræddi ég við hann um þau vandamál sem uppi eru hvað okkur varðar vegna stækkunar Evrópusambandsins en það á ekki síst við um síldarmarkaði okkar, sem við höfum verulegar áhyggjur af. Það er alveg ljóst að Þjóðveijar vilja gera það sem þeir geta til að aðstoða okkur en það liggja ekki fyrir neinar skuldbindingar í því sambandi, enda ekki hægt að gefa þær,“ sagði Halldór. Halldór kveðst einnig hafa notað tækifærið og átt samtöl við Bjom Tore Godal, utanríkisráðherra Nor- egs, um deilu þjóðanna. „Við erum ákveðnir í að vera áfram í sam- bandi og leita leiða til að missa þessa deilu ekki úr böndum en við erum í sjálfu sér ekkert nær sam- komulagi en áður,“ sagði Halldór. Skarti fyrir 2 milljónir stolið Mannvirkjasjóður NATO Stórt verkefni vonandi boðið út „HURÐIN hafði verið spennt upp, líklega með stóru kúbeini og greini- legt að þjófamir gátu áthafnað sig héma inni í töluverðan tíma, því bókstaflega öllum hringjum, úrum og öðm skarti var stolið," sagði Haraldur Komelíusson gullsmiður í samtali við Morgunblaðið í gær. Sýningarborð tæmd Rannsóknarlögregla ríkisins rannsakar _nú innbrot í verslun Haraldar, Úr og skart, í Banka- stræti 6, en það uppgötvaðist þegar starfsfólk verslunarinnar kom til starfa í gærmorgun. Talið er að verðmæti þýfísins sé um 2 milljónir króna. Innbrotið var tilkynnt til lögregl- unnar í Reykjavík kl. rúmlega 9 í gærmorgun, en rannsóknarlögregl- an tók strax við rannsókn málsins. „Ég á erfítt með að meta verðmæti þýfisins, en ætli það sé ekki um tvær milljónir króna,“ sagði Harald- ur. „Við verslunina háttar svo til að gengið er inn í hana um dyr í undirgangi og fremst í þeim undir- gangi er jámgrind. Ekki er ljóst hvort sú jámgrind var læst þessa nótt. Héma hefur aldrei verið brot- ist inn á þennan hátt. Ég hef orðið fyrir því að menn hafí brotið rúðu og hrifsað eitthvað úr glugganum, en núna vom öll sýningarborð tæmd.“ Haraldur sagði að hann væri tryggður gegn tjóni af þessu tagi. 24 FYRIRTÆKI sóttust eftir því að taka þátt í útboði um viðhald á ratsjárstöðinni á Stokksnesi á veg- um Mannvirkjasjóðs Atlantshafs- bandalagsins. Samkvæmt upplýs- ingum frá varnarmálaskrifstofu ut- anríkisráðuneytisins taka níu fyrir- tæki þátt í endanlegu útboði. Vonir standa til að eitt stórt viðhaldsverk- efni fyrir mannvirkjasjóðinn verði boðið út næsta vor auk nokkurra smærri verkefna. Þrenns konar framkvæmdir hafa almennt verið skilgreindar sem verk fyrir bandaríska varnarliðið, þ.e.a.s. verkefni á vegum Mannvirkjasjóðs NATO, byggingaframkvæmdir á vegum vamarliðsins og í þriðja lagi kaup á vöru og þjónustu fyrir vam- arliðið. íslenskir aðalverktakar höfðu einkarétt á öllum bygginga- framkvæindum fyrir NÁTO og varnarliðið til 1. apríl sl. en þá var einkaréttur fyrirtækisins á bygg- ingaframkvæmdum fyrir NATO' afnuminn. Fyrirtækið heldur ennþá einkarétti á bygginga- og viðhalds- framkvæmdum fyrir varnarliðið ásamt Keflavíkurverktökum. Einnig voru samningar um kaup á vöm og þjónustu gefnir fijálsir 1. apríl en áður hafði utanríkisráðu- neytið tilnefnt einstök fyrirtæki. Símamenn sömdu FÉLAG íslenskra símamanna og samninganefnd ríkisins undirrituðu nýjan kjarasamning hjá ríkissátta- semjara í gærkvöldi. Að sögn Birg- is Guðjónssonar, sem stýrði samn- inganefnd ríkisins í viðræðum, felur samningurinn í sér svipaðar hækk- anir og önnur félög hafa verið að semja um að undanförnu. Samningnum fylgja bókanir um endurmenntun símamanna og frí. Tekist var á um nokkur smærri atriði samningsins og á endanum hjó sáttasemjari á hnútinn með inn- anhússsáttatillögu. í gær ákvað samninganefnd rík- isins að vísa kjaradeilu þeirra við Félag íslenskra náttúrufræðinga til ríkissáttasemjara. Félög náttúru- fræðinga og símamanna eru meðal stærstu félaga innan BHMR. Vinnustöðvun í álverinu í Straumsvík yfirvofandi náist ekki samningar fyrir 10. júní SAMNINGAFUNDUR verður í dag hjá ríkissáttasemjara í deilu ÍSAL og starfsmanna álversins en lítill árangur varð á fyrsta fundi deiluað- ila sem haldinn var sl. föstudag. Gylfí Ingvarsson aðaltrúnaðarmað- ur starfsmanna í álverinu segir að á fundinum hafí komið fram hjá fulltrúum vinnuveitenda að Alusu- isse muni ekki taka ákvörðun um hugsanlega stækkun álvers fyrr en kjarasamningar við starfsfólk hafí verið endurskoðaðir. Kurt Wolfensberger, fulltrúi Alusuisse í samningaviðræðunum um stækkun álversins í Straumsvík vildi ekki tjá sig beint um hugsan- legt verkfall. „Lausn vinnudeilunn- ar er í höndum framkvæmdastjóm- ar ÍSAL. Það er ekki í mínum verka- hring að blanda mér inn í það. Menn eru enn að tala saman og á meðan þeir gera það er óþarfi að tala um verkfall," segir Wolfens- berger. Hann viðurkennir hins veg- ar að verkfallshótun starfsmanna ÍSAL kemur á slæmum tíma fyrir samningaviðræðumar um stækkun álversins í Straumsvík. Wolfensber- ger segir að hann hefði kosið að ljúka því verkefni við eðlilegar að- stæður og hann muni taka verk- fallshótunina með í reikninginn þegar hann gerir upp dæmið um stækkun álversins áður en það verð- ur lagt fyrir stjórn Alusuisse. „Ófriðurinn á vinnustaðnum veldur mér vonbrigðum af því að það skiptir einmitt núna meginmáli að gagnkvæmt traust og öryggi ríki í álverinu," segir hann. „Af- staða verkalýðsfélaga og vinnufrið- ur eru að sjálfsögðu tekin með í reikninginn þegar um svona stóra fjárfestingu er að ræða. Við lítum til baka og búumst við að ástandið verði svipað í framtíðinni. Það hafa ekki verið nein vemleg vandræði í ÍSAL undanfarin ár og ég trúi ekki öðm en að vinnudeilan verði leyst Akvörðun um stækkun sögð bíða samninganna Verkfall er yfirvofandi í álverinu í Straums- vík 10. júní verði ekki samið áður. Aðal- trúnaðarmaður starfsmanna kveðst telja að ISAL vilji ná fram breytingum á samn- ingum til að auðvelda innflutning erlendra verktaka. Talsmaður Alusuisse segir að verkfallsboðun hafi áhrif á ákvörðun um stækkun álvers. Morgunblaðið/Þorkell FULLTRÚI Alusuisse í samn- ingaviðræðum um stækkun ál- vers segir tillit verða tekið til afstöðu verkalýðsfélaga áður en ákvörðun verður tekin. friðsamlega að þessu sinni. Ég hef alltaf verið þeirrar skoðunar að stækkunin skipti alla miklu máli og allir vilji gera sitt til að af henni verði." Gylfi vill tengja tilkomu þessara krafna í sáttaviðræðunum nýlegum fregnum um endurvakinn áhuga Atlantal-hópsins á byggingu álvers á Keilisnesi. Alusuisse inn í kjaradeílur „Höfuðáhersluatriði ÍSAL nú voru ekki komin fram í viðræðum okkar seinast í apríl þegar fyrirtæk- ið kynnti lista yfír þau atriði sem það teldi að yrði að vera í nýjum kjarasamningi. Okkur hafði einnig verið sagt í fyrri kjaradeilum að Alusuisse blandaði sér aldrei í gerð kjarasamnings en nú eru þeir komn- ir þar inn á mjög afgerandi hátt að því er virðist," segir Gylfi. „Við tökum þessa menn alvarlega og höfum vissulega áhuga á stækk- un álvers og fjölgun starfa fyrir ís- lenska launþega, en mig grunar að tal Alusuisse um að auka þátt verk- taka tákni að íslenskir launþegar njóti kannski ekki góðs af. Verktaka fyrir útlendinga? Kröfur um þessar breytingar eru hugsanlega settar fram til að koma að erlendu vinnuafli að mínu viti. Launaflokkabreytingin er mjög já- kvæð en verði hún til þess að við séum að semja um að tiltekinn fjöldi starfsmana hér missi vinnu sína til verktaka á lægri launum frá öðrum svæðum Evrópu, er ekki um mikinn ávinning að ræða fyrir okkur. Ný- lega voru 3 þýskar konur ráðnar til sumarafleysinga í almenna verkamannavinnu í álverinu án þess að þessar ráðningar væru bomar undir verkalýðsfélögin eins og alltaf hefur verið gert, á sama tíma og yfir 200 manns sóttu um vinnu hér í sumar og fengu ekki. Þetta er lít- ið dæmi en eflaust fyrsta skrefíð í þessa átt. Þess má jafnframt geta að fjölgun starfsmanna með til- komu stækkunar myndi aldrei ná þeim fjölda starfsmanna sem hér var, þegar þeir voru flestir." Rannveig Rist talsmaður ÍSAL kveðst ekki kannast við áform um að auka þátt erlendra verktaka í álverinu í framtíðinni. Málið snúist um stjómunarrétt í fyrirtækinu og hvort að fyrirtækið hafi leyfí til að setja verktaka inn í störf eða ekki, en tilgangurinn sé ekki að ráða fremur erlenda verktaka en inn- lenda. Þýsku konurnar séu námsmenn í heimalandi sínu, hver þeirra sé aðeins ráöin í mánaðartíma og þar af sé ein í starfsþjálfun en hinar vinni á flutningadeild. Laun þeirra séu sambærileg við laun annarra starfsmanna og þær séu einungis lítið brot af þeim hópi sem ráðinn hafi verið til sumarafleysinga* alls um 160 starfsmenn. Átvinnuleysi sé margfalt meira í Þýskalandi en hérlendis og dæmi séu um að ÍSAL hafí útvegað íslendingum verkefni erlendis til skamms tíma. „Það er engin sérstök stefna hjá ÍSAL að innleiða útlent vinnuafl, heldur gegnir einfaldlega allt öðru máli um flutninga á fólki milli landa nú en áður fyrr í kjölfar milliríkjasamn- inga. Margir íslenskir námsmenn halda til dæmis til starfa erlendis yfír sumartímann,“ segir Rannveig. Vilja greiðslu vegna I hagræðingar Ekki er búið að ganga frá verk- fallsboðun en Gylfi kveðst reikna fastlega með að það verði gert 2. júní nk. og yrði verkfall boðað frá og með 10. júní eins og gert var ráð fyrir. Fyrirtækið hefur tveggja vikna frest til að hægja á og stöðva starfsemi sína. Starfsmenn álvers- ins sem verkfallsboðun nær til eru um 500 talsins og tilheyra 10 verka- lýðsfélögum er boða verkfall sam- eiginlega. Gerðar er kröfur um breytingar á launaflokkum og sam- komulag um svo kallaða form- greiðslu, en samsvarandi hagræð- ingarsamkomulag hafa verið gerð við starfsmenn álversins 1989 og 1991, þó ekki án nokkurs ágrein- ings um túlkun þeirra. 1993 náðist sátt um að leggja þetta samkomu- lag til hliðar vegna slæms árferðis á álmarkaði, en jafnframt samþykkt að samið yrði um nýtt fyrirkomulag á greiðslum vegna hagræðingar. Gylfí segist ekki greina vilja hjá ÍSAL að standa við þau fyrirheit, þrátt fyrir aukin afköst seinustu misseri með færri starfsmönnum. I I I > > í > > > > > i \ > \ > I > i \ > > \

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.