Morgunblaðið - 31.05.1995, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 31.05.1995, Blaðsíða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 1995 MORGUNBLAÐIÐ 1- i FRÉTTIR: EVRÓPA Reuter HIN NÝJA bygging ráðherraráðs Evrópusambandsins í Brussel. Fundir ráðsins eiga nú að verða aðgengilegri almenningi og verð- ur sjónvarpað beint frá Justus Lipsius, eins og byggingin er kölluð. Fundir ráðherraráðsins opnaðir Danir og Svíar telja of skammt gengið í lýðræðisátt Brussel. Reuter. ________________ERLEMT_______________ Spá stærri jarðskjálfta á Kamtsjatka en á Sakhalín ^ Reynt að ná lifandi fólki úr rústunum | Neftegorsk. Reuter. RÁÐHERRARÁÐ Evrópusam- bandsins samþykkti í fyrrakvöld að opna fundi sína í auknum mæli fyrir almenningi og fjölmiðl- um. Þannig verður nú umræðum um sumar tillögur að nýrri Iöggjöf sjónvarpað beint. Danir og Svíar, sem einkum hafa beitt sér fyrir breytingum í lýðræðisátt, telja þó of skammt gengið. Ráðherraráðið er helzta lög- gjafarstofnun ESB, enda hefur Evrópuþingið enn takmörkuð völd. Utanríkisráðherrar ESB- ríkjanna samþykktu á mánudag- inn að sjónvarpa umræðum um ýmis helztu löggjafarmálefni. Jafnframt vöktu þeir athygli á að ráðherrar notuðu ekki lengur rétt sinn til að halda leyndum úrslitum atkvæðagreiðslna og hygðust ekki nota hann í framtíð- inni. Bætt upplýsingaflæði til fjölmiðla og almennings Samþykkt var að bæta upplýs- ingaflæði til fjölmiðla og almenn- ings fyrir ráðherraráðsfundi um þau mál, sem yrðu á dagskrá. Danir höfðu lagt fram tillögu um að fundargerðir ráðherraráðs- funda yrðu gerðar opinberar. Sam- þykkt var að fela nefnd fastafull- trúa aðildarríkjanna (COREPER) að meta það með hvaða skilyrðum slíkt mætti gerast. Utanríkisráðherra Danmerkur, Niels Helveg Petersen, sagði að árangur hefði náðst á fundinum og stefnan væri í rétta átt, en ekki hefði verið gengið nógu langt. Hann sagði að Danmörk myndi halda áfram að þrýsta á breyting- ar. Lena Hjelm-Wallén, utanríkis- ráðherra Svíþjóðar, sagði að árangur fundarins væri ófullnægj- andi og breytingarnar gengju of hægt fyrir sig. Á dagskrá ríkjaráðstefnunnar Báðir ráðherrarnir sögðu að opnari ákvarðanataka og lýðræð- islegri vinnubrögð yrðu áreiðan- lega á dagskrá ríkjaráðstefnu ESB um framtíðarskipulag sambands- ins, sem hefst á næsta ári. „Málið snýst um grundvallaratriði í lýð- ræðislegri ábyrgð stjórnvalda," sagði Helveg Petersen. Andstæðingar tillagna Norður- landanna benda á að með því að opna fundi ráðherraráðsins muni hinar raunverulegu umræður um erfiðustu málin einfaldlega færast eitthvert annað. BJORGUNARMENN unnu að því í gær að bjarga fólki, sem er lokað lifandi undir rústum fjölbýlishús- anna, sem hrundu í jarðskjálftunum í Neftegorsk á Sakhalín á sunnu- dag. Embættismenn telja samt, að meira en 2.000 manns hafi farist. Rússneskur jarðskjálftafræðingur spáði því í gær, að stór skjálfti yrði á Kamtsjatkaskaga bráðlega og stærri en sá, sem eyddi Neftegorsk á Sakhalíneyju. Björgunarmenn töldu sig hafa heyrt til 32 manna í rústunum og var þá notkun vinnuvéla hætt og reynt að grafa eftir fólkinu með berum höndum. Er það erfítt verk enda hrundu byggingarnar saman eins og spilaborg. Voru þær illa byggðar og alls ekki gerðar til að standast jarðskjálfta auk þess sem rekstri mælastöðva, sem hefðu hugsanlega getað varað við hrær- ingunum, hafði verið hætt. Þjóðarsorg í dag Um 800 sérfræðingar ýmiss kon- ar eru nú við björgunarstörf í Neft- egorsk og eru 18 flugvélar og 14 þyrlur notaðar til að flytja slasað fólk á sjúkrahús. Skortur á stórum krönum hefur hins vegar háð starf- inu og einnig ástand fjarskiptamála á Sakhalín, sem er slæmt. Borís Jeltsín, forseti Rússlands, sagði í gær, að þjóðarsorg yrði í öllu land- inu í dag og hét að greiða fjölskyld- um þeirra, sem fórust, á sjöunda hundrað þúsunda ísl. kr. í bætur. Alexander Sídorín, yfirmaður jarðskjálftastofnunar rússnesku eðlisfræðistofnunarinnar, spáði því í gær, að annar skjálfti og öflugri en sá á Sakhalín myndi verða á Kamtsjatkaskaga á næstu árum. Telur hann upptökin munu verða skammt frá borginni Petr- opavlovsk-Kamtsjatskí og segir, að treysta verði byggingar þar án taf- ar. Borgarbúar eru um 300.000. „Jarðflekavirknin á Sakhalín- og Kamtsjatkasvæðinu verður mjög mikil á árunum 1996-’98 og þá mun verða þar stærri skjálfti en í Nefteg- orsk,“ sagði Sídorín. í janúar sl. sögðu rússneskir jarðskjálftafræð- ingar, að stór skjálfti myndi verða í Kyrrahafshéruðum Rússlands á þessu ári. Ottast „Stóra skjálftann" Skjálftavirknin að undanförnu hefur vakið upp ótta í Kazakhstan og einkum í höfuðborginni, Almaty, [, við að „Stóri skjálftinn" sé væntan- ^ legur. Jarðskjálftafræðingar spá P því, að hann verði á næstu árum í p héruðunum, sem liggja að Almaty, en þau eru á flekamótum, þar sem indverska meginlandið rekst á Asíu- flekann. Rússar lögðu grunn að Almaty 1854 en 1887 hrundi bærinn til grunna í jarðskjálfta. Fyrir 80 árum sagði breski ferðalangurinn Steph- en Graham, að skjálftavirkni væri p þar svo mikil, að útilokað væri að k hafa þar höfuðborg enda ekki óhætt að byggja þar tveggja hæða hús | hvað þá meira. Á sovéttímanum var þessum viðvörunum í engu sinnt og nú býr meira en milljón manna í Almaty, þar af margir í illa byggð- um fjölbýlishúsum. Reuter MYNDIR, sem hafa borist frá Neftegorsk, minna helst á Hiroshima eftir kjarnorkusprenginguna svo alger er eyðileggingin. Flest húsin voru reist á sjöunda og áttunda áratug aldarinna og hélst allt í hendur, léleg hönnun, léleg smíð og lítið viðhald. I | > Í > í Boðin vopn upp í skuldir Ecu-mynt í umferð 5 árum eftir ákvörðun Brussel. Reuter. FRAMKVÆMDASTJÓRN Evr- ópusambandsins mun I dag gefa út skýrslu, þar sem fram kemur að Ecu-mynt og -seðlar muni ekki verða í vösum almennra borgara fyrr en allt að fimm árum eftir að ákveðið verði að koma á sameiginlegri Evrópu- mynt. Yves-Thibault de Silguy, sem fer með efnahagsmál í fram- kvæmdastjórn ESB, skýrði frá því í síðustu viku að Evrópu- myntinni yrði komið á í þremur þrepum. Fyrsta skrefið yrði að leiðtogar ESB ákvæðu hvaða ríki tækju þátt í myntbandalag- inu. Allt að ári síðar myndu bankar, fyrirtæki og ríkis- stjórnir byrja að nota myntina í viðskiptum sín á milli. Þar með yrði ekki aftur snúið. Þriðja stigið kæmist í framkvæmd allt að fjórum árum síðar; þá fengi almenningur Ecu-mynt og -seðla til almennrar notkunar. De Silguy sagði að tíma tæki að prenta seðla, slá mynt og breyta peningavélum og því þyrfti þetta langt aðlögunar- tímabil. Hins vegar sagði hann að tæknilegu úrlausnarefnin væru ekki stærsta vandamálið. Al- menningsálitið væri víða á móti sameiginlegri mynt, t.d. í Dan- mörkku, Bretlandi, Þýzkalandi og Austurríki. „Það verður að kenna fólki að láta sér þykja vænt um myntina,“ sagði de Silguy. „Almenningsálitið er stærsta hindrunin.“ Helsinkí. Morgunblaðið. OLEG Davidov, varaforsætisráðherra Rússa, sagði í Helsinki í gær að Rúss- ar væru fúsir til að greiða allar skuld- ir sínar við Finna í formi vopna. Davidov lét þess getið að Finnar gætu eignast hvað sem er úr vopna- búri Rússa að kjamorkuvopnum und- anskildum. Nefndi hann meðai annars kafbáta en samkvæmt sérstökum friðarsamningi Finnlands og Sovét- ríkjanna voru vopn til árása líkt og kafbátar á bannlista Finna. Finna hafa þegar lýst yfir því ein- hliða að þeir hyggist ekki lengur hlíta ákvæðum friðarsamningsins hvað landvamir varðar. Hefur yfirlýsing Davidovs verið túlkuð sem viðurkenn- ing Rússa á þeirri stefnu. Við hrun Sovétríkjanna skulduðu þau Finnum 5,5 milljarða marka (rúma 80 millj- arða króna). Ole Norrback Evrópuráðherra Finna segir að aðeins verði unnt að taka við vopnum sem greiðslu í tak- mörkuðum mæli. Palestínumenn • vilja aukin völd ' Kaíró, Jerúsalem. Reuter. VIÐRÆÐUR fulltrúa Palestínu- manna og ísraela í Egyptalandi gengu treglega í gær en hinir fyrr- nefndu vilja fá aukin völd á her- numdu svæðunum. „Við viljum allt og sættum okkur ekki við ábyrgð á afmörkuðum málum,“ sagði embættismaður úr röðum Palest- ínumanna. Shimon Peres, utan- ríkisráðherra ísraels, hét Yasser Arafat, leiðtoga Palestínumanna, því fyrir skömmu að staðið yrði við áætlun um að auka völd stjóm- ar Palestínumanna fyrir 1. júlí. Viðræðumar em þáttur í Oslóar- samkomulagi deiluaðila frá 1993 um takmarkaða sjálfstjórn Palest- ínumanna á hemumdu svæðunum en þá var kveðið á um að smám saman fengju þeir full yfirráð á svæðum sínum og þar yrðu haldn- ar fijálsar kosningar. ísraelar vilja fara hægar í sakirnar og vilja ekki afsala sér æðstu völdum á Vestur- ■ >. bakkanum strax. Hernaðarsérfræðingar ísraels og Sýrlands munu hittast í næsta | mánuði í Washington til að ræða möguleika á friðarsamningum ríkj- anna. Yitzhak Rabin, forsætisráð- herra ísraels, olli miklu írafári meðal 13.000 landnema gyðinga á Gólanhæðum fyrir síðustu helgi er hann sagði koma til greina að flytja þá á brott ef samningar næðust við Sýrlendinga um frið. ísraelar tóku Gólanhæðir af Sýrlendingum í sex daga stríðinu 1967 en hæðirn- ar em afar mikilvægar hernaðar- * lega.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.