Morgunblaðið - 31.05.1995, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 31.05.1995, Blaðsíða 20
20 MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 1995 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR FERÐALÖG Meistari drasl- myndanna KVIKMYNDIR Bíóborgín Ed Wood ★ ★ ★ Leikstjóri: Tim Burton. Aðalhiutverk: Johnny Depp, Sara Jessica Parker; Martin Landau, Bill Murray. Touchstone Pictures. 1994. BANDARÍSKI leikstjórinn Tim Burton hefur í öllum myndum sínum Qallað um fólk sem er utangarðs í samfélaginu hvort sem það eru draugar, leðurblökumenn eða upp- vakningur með klippikrumlu og í nýjustu myndinni, „Ed Wood“, hefur hann fundið sinn utangarðsmann í leikstjóra verstu b-mynda aldarinnar. í samhengi fyrri mynda Burtons má sjá hvað honum þykir svo heillandi við Edward Wood yngri. Hann var hinn eini og sanni utangarðsmaður kvikmyndanna í senn einstaklega hæfileikalaus og ástríðufullur leik- stjóri, sem gerði hræðilegar drasl- myndir á fimm dögum af ekkert minni eldmóði en átrúnaðargoðið Orson Welles gerði sín meistaraverk. Burton lætur þá hittast fyrir tilviljun í frábæru atriði og það kemur í ljós að vandamál þeirra við kvikmynda- gerðina eru hin sömu; eilífar málam- iðlanir. En þar sem annar gerði Blaðakónginn Kane gerði hinn vís- indahrollvekjuna Áætlun 9 úr út- geimi. Hvað skildi þá að? Ed Wood kallaði það raunsæi ef leikari gekk óvart á leikmyndina. Burton hefur reist honum bauta- stein við hæfi, svart/hvíta, angur- væra kómedíu sem ber stundum svipmót b-myndanna og maður fær það jafnvel á tilfinninguna að mynd- in hafi verið gerð á fimm dögum. Leikur Johnny Depps í hlutverki Woods er í talsvert ýktum stíl hins ódrepandi fullhuga er mætir hveiju fáránlegu vandamálinu sem upp kemur með sigurbrosi. Helsti veik- leiki Woods fyrir utan að velja sér rangt lífsstarf var kvenfatnaður en hann var klæðskiptingur og angóru- peysur voru í sérstöku uppáhaldi. Þannig leiddist hann inn í kvikmynd- irnar. Fyrsta myndin var Gunni eða Gunna („Glen or Glenda") um klæð- skipting sem kom út úr skápnum en af hveiju hann setti atriði í mynd- ina af buffalóhjörð á harðahlaupum er ráðgáta. Vináttusamband Woods og hroll- vekjuleikarans Bela Lugosi er í mið- punkti myndarinnar og Martin Land- au er stórkostlegur í hlutverki Bela. Sagt er að Burton byggi það að ein- hveiju leyti á sínu eigin sambandi við hrollvekjuleikarann Vincent Price, sem nú er látinn. Líklega hafa fáir brugðið upp raunsærri mynd af kvikmyndastjömu sem lifað hefur sitt besta en Landau og Burton gera hér. Grimmúðlegt andlitið í svart/hvítu virkar eins og helgríma á manni sem aðeins á eftir að deyja, kominn að fótum fram í eiturlyfjafíkn og öllum gleymdur. En gríman felur líka einstakt ljúfmenni og Drakúla- leikara fram í fingurgóma, sem reyndar er kominn í hendumar á versta leikstjóra sögunnar. Samband þeirra tveggja er hjartað og sálin í myndinni, ljúfsárt og gamansamt og ekki síst hentugt því enn mátti nota Bela í fjármögnun, sérstaklega þó eftir lát hans. í leiðinni fáum við unaðslega lýs- ingu á starfsháttum b-mynda leik- stjórans Ed Woods sem einkennist af fullkominni smekkleysu og krist- ailast í atriði þar sem allur kvik- myndahópurinn er skírður í sundlaug babtistasafnaðar, sem §ármagnar Áætlun 9 úr útgeimi. Seinna kemur í ljós að búið var að lofa kórstjóran- um hlutverki. Þetta er aðeins ein saga af mörgum í safaríkri mynd. Yfirleitt fjalla ævisögulegar myndir um fólk sem skarað hefur framúr um sína ævi og sett mark sitt á sam- tímann og þær verða of mikilfengleg- ar og einhvem veginn falskar. Því er ekki að heilsa hér. Ed Wood taldi sig í raun framleiða snilldarverk þótt aðrir litu það ekki sömu augum. Það er einskonar hamingja. Arnaldur Indriðason LJósmynd/Golli MEÐ nýrri samgöngntækni, jeppum og vélsleðum, upplifir margt ungt fólk ísland á áhugaverðan hátt. Nýta á sögu þjóðar í þágn ferðaþjónustu „BRÁÐA nauðsyn ber til að veita þjónustu á Þingvöll- um lengur en skamman tíma yfír sumarið. Þingvellir eru helgasti staður þjóðarinnar og þarf að vera aðgengi- legur allt árið. Þar vantar náðhús, gistiaðstöðu og veitingasölu utan hásumars. Veitingahúsið Valhöll ætti að vera opið yfír vetrartímann a.m.k. um helgar eða samkvæmt pöntun." Efnislega er þetta skoðun nefndar, sem skipuð var til að setja fram hugmyndir um hvemig nýta má sögu þjóðarinnar, sögustaði, þjóðhætti, verkmenningu og bókmenntir til að efla og bæta ferðaþjónustu innan- lands. Nefndin hefur nú skilað skýrslu til Halldórs Blöndal, sam- gönguráðherra og var hún kynnt á blaðamannafundi nýlega. íslenska leiðsögumenn fyrir íslendinga Skýrslan flallar einkum um ís- lenska ferðamenn og í henni kem- ur m.a. fram sú skoðun að auka þurfi menntun íslenskra leiðsögu- manna fyrir íslendinga á ferða- lagi. Það mætti t.d. gera með námskeiðum eða námsbrautum við framhaldsskóla og/eða há- skóla. Telur nefndin að með slík- um undirbúningi ættu menn að geta öðlast ákveðin réttindi, en einnig þurfí að kalla til fleiri, þótt þeir hafí ekki formleg réttindi leiðsögumanns t.d. til að kynna listgreinar eða vinnu- brögð. Valgarður Egilsson, læknir, var formaður nefndar- innar, en auk hans áttu þar sæti Erla Kristjánsdóttir, kennslustjóri í Kennaraháskóla íslands, Gunnlaugur Eiðsson, leiðsögumaður, Jón Böðvarsson, íslenskufræð- ingur og Margrét Hallgrímsdóttir, fomleifafræðingur og forstöðumaður Árbæjarsafns. Starfsmaður nefndar- innar var Þórhallur Jósepsson, aðstoðarmaður sam- gönguráðherra. Nútímalegri söfn Brýnt er, að mati nefndarinnar, að huga betur að móttöku ferðamanna á söfnum og færa þurfi söfn í nútímalegra horf. Í skýrslunni kemur fram að fyrst þurfi þó að koma til nokkur viðhorfsbreyting. Sérstök sýningaraðstaða þurfi að vera fyrir hendi á söfnum og leiðsögumenn, sem geta miðlað fróðleik. Merkja þurfi muni með helstu upplýsingum á fjórum tungumál- um og veita nánari fróðleik í bæklingum og á mynd- böndum. Einnig að afdrep sé fyrir gesti, þar sem þeir hafi aðgang að skrám, bæklingum og myndböndum. Skortir skilti Á sögufrægum stöðum skortir mjög merkingar, jafnt skilti sem ritaðan fróðleik. Nefndin leggur áherslu á að skilti séu gerð af smekkvísi og þau séu ekki lýti í umhverfínu. Hún telur vanta myndbönd um sögustaði og minjar í einstökum héruðum og minnir á mikilvægi þess að ömefni sem frásögur em tengdar, séu skráð og vernduð. „Mikill fjársjóður sagna er til, sums staðar á hver þúfa og stein- vala sér sögu,“ segir í skýrslunni. „Hér þurfa ferðamiðstöðvar að hjálpa til og veita góða upplýs- ingaþjónustu." Göngustígar eru víða nauðsynlegir og snyrtiklefar við fjölfarna staði. Sérstök áhersla er lögð á bætta aðstöðu á Þingvöll- um. Ungir íslendingar á ferð Þá er þarft að vekja meiri áhuga ungs fólks á þjóðháttum og menn- ingarsögu. „Ungt fólk ferðast mikið um landið. Með nýrri sam- göngutækni, jeppum og snjósleðum, er upplifun þess ný og áhugaverð. Ef kynning á ömefnum og sögu fyrri kynslóða er vel fram borin, heillar hún ungt fólk.“ Nefndin bendir á að fyrirlestrar nái ekki alltaf athygli unga fólksins, myndefni, tónlist og leikfærsla ákveð- inna atriða gæti hentað betur. Einnig vann nefndin að hugmyndum varðandi er- lenda ferðamenn. Benti hún m.a. á Vestur-íslendinga sem markhóp og ennfremur mikilvægi þess að kynna heiminum að Leifur heppni var íslendingur, ekki Norð- maður. „Brýnt er að Leifur Eiríksson og venslafólk hans njóti þess orðstírs sem þeim ber í Ameríku. Slóð þessa fólks má rekja hér á landi bæ frá bæ. Og ættir margra Vestur-íslendinga má rekja til Guðríðar Þorbjarnar- dóttur, hinnar fyrstu evrópsku móður á amerískri grund." BLAÐAMANNAFUNDUR. Frá vinstri: Þórhallur Jósepsson, að- stoðarmaður samgönguráðherra, Halldór Blöndal, samgönguráð- herra, og Valgarður Egilsson, for- maður nefndarinnar. SÍÐASTA sýning íslenska dansflokksins á „Heitum dönsum" verður á morgun Síðasta sýning á „Hdtum dönsum“ SÍÐASTA sýning íslenska dans- flokksins á „Heitum dönsum" í Þjóðleikhúsinu verður á morg- un fimmtudag kl. 20. Á efnisskránni eru verkin „Carmen“ eftir Sveinbjörgu Alexanders, „Sólardansar“ eft- ir Lambros Lambrou, „Adagi- etto“ eftir Charles Czarny og „Til Láru“ eftir Per Jonsson við tónlist Hjálmars H. Ragnars- sonar. Lastafans Diddu ÚT ER komin ljóðabókin Lastafans og lausar skrúfur eftir Sigurlaugu Jónsdóttur, sem kallar sig Diddu. Didda er fædd 1964 og ólst upp í Reykjavík. Hún hefur vakið nokkra athygli fyrir ljóð sín, en Didda þyk- ir berorð um vímuefna- neyslu og kynlíf og er stíll hennar oft harðsoðinn og ögrandi. í kynningu segir: „Ljóðin í bók- inni eru, að sögn Diddu, enginn skáldskapur heldur eru þau sann- leiksbrot og svipmyndir úr lífi henn- ar, sprottin af reynslu sem flestir eru svo lánsamir að þurfa ekki að ganga í gegn- um á leið sinni til manns. Þetta eru áleitin ljóð, sterk og áhrifarík í umbúðaleysi sínu, ljóð sem verða skiptar skoðanir um en láta engan ósnortinn." Útgefandi er Forlagið. Lastafans og lausar skrúfur er fyrsta ljóðabók Diddu. Þórarinn Leifsson gerði mynd á kápu. Bókin er 49 bls. og er prentuð í prent- smiðjunni Odda. Bókin kostar 1.690 kr. Didda Ferðir um hvíta- sunnuhelgina ÚTIVIST SUNNUDAG 4.júní verður gengið frá Gjábakka að Þingvöllum, eftir Gjábakkastíg um Ölkofrastaði og í Skógarkot. Þaðan verður gengið að Oxarárfossi og loks austur Al- mannagjá eftir Langastíg. Þetta er létt og skemmtileg ganga fyrir alla fjölskylduna. Frítt fyrir böm yngri en 16 ára. Lagt verður af stað frá BSÍ, bensínsölu kl.10,30 FÍ -v Hvítasunnuferðir 2.-5. júní eru: Snæfellsnes-Snæfellsjökull og er gengið á jökulinn(7-8 klst.) annan daginn. Famar skoðunarferðir á láglendi eftir því sem tími vinnst til. Litast um á Amarstapa, Djúpa- lónssandi, Hellnum, Hólahólum og víðar. Gist að Görðum í Staðarsveit í svefnpokaplássi. Þá verður ganga á Öræfajökul (2119 m). Gangan fram ogtil baka tekur um 14 klst. Dagur fer í að kenna fólki að nota brodda og ísax- ir en í þessari ferð eru slík hjálpar- tæki nauðsynleg. Farin verður „Virkisjökulsleið" á leiðarenda. Gist í svefnpokapiássi að Hofí í Öræfa- syeit. Brottför í þessar ferðir verður kl. 20 föstud. 2.júní. Ferð Þórsmörk-Langidalur. Sniðin fyrir fjölskyldufólk; útivera, gönguferðir, leikir. Einnig er ferð á Fimmvörðuháls. Ekið að Skóg- um og gengið yfir hálsinn. Gist í Skagfjörðsskála og það á við um Þórsmerkurfara líka. Brottför í þessar ferðir er kl. 20 á föstudags- kvöld. Dagsferðir eru; sunnud.4.júní kl. 13 Gamla Krýsuvík. og mánudag S.júní kl.13 Arnarfell-Þingvellir. Loks má nefna að miðvikud. 7.júní kl. 20 verður skógræktarferð i Heiðmörk. Hafnar- ganga í kvöld HAFNARGÖNGUHÓPURINN rifjar í kvöld upp jarðsögu hafn- arsvæðisins og verður þetta kynnt í stuttu spjalli og í göngu- ferð og sjóferð sem hópurinn stendur fyrir í kvöld. Mæting er við Hafnarhúsið að vestan kl. 20. Þaðan er farið um Miðbakka og Ámi Hjartarson mun fræða menn. Um kl. 20.30 er val um að ganga eða sigla inn í Sunda- höfn. Ókeypis er í gönguferðirn- ar en 500 kr. kynningarverð í sjóferðina. Allir eru velkomnir. ) ) ) I I ) I I I I I

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.