Morgunblaðið - 31.05.1995, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 31.05.1995, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ1995 27 ingaráhugi Húsvíkinga er rómaður. Dóra sat ekki mörg ár á skólabekk umfram skyldunám, en fékk í föðruhúsum þann áhuga á listum er hélst ævilangt. Dóra hafði bjarta og tæra söngrödd líkt og bræður hennar og kunni mikinn'fjölda laga, þar á meðal nokkrar perlur sem eru orðnar hluti af sjálfum mér. Þá sótti hún leikhús alla tíð með Þórði af miklum áhuga og las mik- ið. Það var gott að koma til Dóru og Þórðar. Andrúmsloftið var nota- legt og móttökurnar ávallt hlýjar, og voru vinir mínir ekki síður vel- komnir þar en ég. Þórður og Dóra voru meðal frumbyggjanna á Flöt- unum í Garðabæ. Þar naut smekk- vísi Dóru sín út í æsar. Ég mynn- ist þess er erlenda gesti bar að garði fór pabbi ævinlega með þá í ökuferð um Reykjavík og ná- grenni. Endaði ferðin oftar en ekki á Stekkjarflötinni án þess að gerð væru boð á undan sér. Það var stoltur tengdafaðir sem sýndi gest- unum þetta fallega heimili. Dóra var snögg í hreyfingum og rösk til verka. Hún hafði ríka kímnigáfu og átti iðulega til smell- in tilsvör. Hún var lagleg og glæsi- leg, lágvaxin en samt stór. Hún var stór í reisn sinni. Fráfall henn- ar er sviplegt og sárt. En minning- in um tígulega, kjarkmikla og góða konu lifir. Ragnar Einarsson. Börn finna hvar þau eru velkom- in og hvar ekki. Hjá Dóru voru þau alltaf sérstaklega velkomin. Það var ekki bara súkkulaðikakan, notalegar stundir með allri fjöl- skyidunni á sunnudagsmorgnum og bíltúrar til ömmu og afa sem þarna skiptu sköpum. Það var umhyggja Dóru og sá eiginleiki hennar að láta alltaf sem við vin- konur Jakobínu værum hluti af fjöl- skyldunni. Frá sex ára aldri fengum við að vera með í einu og öllu á sama hátt og börnin hennar Qögur og fannst okkur það heiður að hún skyldi hafa skoðun á tilveru okkar og framkomu. En þessi umhyggja var ekki bara bundin við litlar skottur í teygju- tvisti. Heimili Dóru og Þórðar stóð okkur alltaf opið. Eftirminnilegar eru stundirnar frá unglingsárunum þegar vinahópur Jakobínu sat í stofunni, spjallaði um heima og geima og spilaði plötur Bjama og Asgeirs fram eftir nóttu - oftar en ekki með húsráðendum. Þegar farið var í Kerlingarfjöll á sumrin eða Skálafell að vetrar- lagi nutum við góðs af því er fjöl- skyldubíllinn var troðfylltur svo að allir fengju sinn .skerf af útiveru og hollustu. Þá hvatti Dóra okkur óspart til að nýta tímann vel ... við áttum ekki að hangsa og kjafta í brekkunum. Kaffitímamir voru til þess. Og þegar kom að skólaútskrift- um og síðar brúðkaupum voru Dóra og Þórður ómissandi. Þau töldu ekki eftir sér að skella sér landshlutanna á milli til að fylgja vinkonu í hnapphelduna, eftir að vera búin að kanna ráðahaginn gaumgæfilega áður. Fjölskyldan stækkaði og barna- börnin fóru ekki varhluta af um- hyggjunni. Samband Dóru við þau var einstakt. Það var ekkert verið að fjölyrða um hlutina, þau voru einfaldlega sótt til að fara í sund eða á skíði. Svo voru þau líka stund- um sótt bara til að komast í nota- lega andrúmsloftið hjá ömmu og afa, borða góðan mat, kúra og hvíla sig. Þessar stundir eru fjár- sjóður sem þau munu búa að alla tíð. Minningabrotin streyma fram við andlát Dóru. Við vinkonurnar viljum þakka fyrir allt. Það voru forréttindi að njóta leiðsagnar hennar og hvatningar. Elsku Þórð- ur, Jakobína, Ásgeir, Bjarni, Ás- mundur og íjölskyldur. Hugur okk- ar og fjölskyldna okkar er hjá ykk- ur á þessum erfiðu tímum. Guð veri með ykkur. Fyrir hönd starfsmanna í Garða- skóla langar okkur að senda Dóru dálítla kveðju, nú þegar leiðir skilja. Dóra starfaði sem gangavörður í Garðaskóla um árabil. Starfsheitið gangavörður er ef til vill ekki sér- lega tilkomumikið en veruleikinn á bak við starfsheitið er þeim mun foiyitnilegri. í stórum skóla þar sem margir ærslafullir og glaðbeittir unglingar eru saman komnir er þörf á góðum húsaga. Þar kemur harður járnagi og einstrengingsháttur þó að litlu haldi en þeim mun betur gefst að sýna hlýlegt aðhald, lempni og skilning. í stórum hópi unglinga verða oft margvíslegir árekstrar, tilfinningarnar eru í uppnámi og erfitt að ná áttum í umróti þessa mikla breytingaskeiðs. Þá er gott að geta leitað til einhvers sem kann að hlusta og hughreysta. Á þessum starfsvettvangi nutu mannkostir Dóru sín ákaflega vel. Hún kenndi nemendunum að bera virðingu fyrir öðrum og gæta þann- ig sjálfsvirðingar. Hún sýndi þeim fram á nauðsyn þess að umgangast vinnustað sinn, skólann, þannig að það bæri þeim gott vitni. Oft þurfti Dóra líka að hugga og hughreysta nemendur sem orðið höfðu fyrir mótlæti eða áttu í einhveijum vanda. Öll þessi vandasömu störf fórust henni vel úr hendi vegna þess að hún var þeirrar gerðar. Eflaust hefur það oft gert Dóru auðveldará um vik að hún hafði búið hér í Garðabæ í tugi ára og þekkti því foreldra og jafnvel afa og ömmu þeirra nemenda sem hér eru við nám. Sjálf átti hún mörg, mannvænleg börn og barnabörn, þannig að starf hennar snerist lengstum um börn og unglinga, heima og í skólanum. Eflaust læra unglingarnir margt nytsamlegt í skólabókunum en hitt er þó engum vafa undirorpið að þeir sem eiga traust og skilning nemendanna kenna með viðmóti sínu og verkum sumt það sem aldr- ei verður sett í bók en kemur mönn- um samt að mestu haldi í lífinu. Þannig miðlaði Dóra miklu til þeirra mörgu nemenda sem hér hafa átt lengri eða skemmri dvöl í liðnum árum. Dóra, þessi brosmildá og hrausta kona, sem ævinlega bar með sér andblæ gleði og atorku, féll frá fyrr en okkur uggði. Við sem bárum gæfu til að kynnast henni þökkum samfylgdina á þessari kveðjustund. Aðstandendum hennar, eiginmanni, bömum og öðru venslaliði sendum við dýpstu samúðarkveðjur. Fyrir hönd starfsmanna í Garða- skóla, Ársæll Friðriksson, Gunnlaugur Sigurðsson. Við vinamissi leita minningarnar á hugann, svo ótal margt rifjast upp frá liðnum stundum. Dóra, vin- kona mín, sem lést langt um aldur fram, var nágranni minn á Stekkjarflötinni í Garðabæ um þtjá- tíu ára skeið. íbúar Stekkjarflatar voru nokkurs_ konar frumbyggjar þesf> hverfis. Á fyrstu árunum var engin verslun þar, en bíll frá Kaup- félagi Hafnarfjarðar kom einu sinni á dag í götuna. Þá hittumst við konurnar í götunni og þar hófust líka kynni sem með tímanum urðu að traustri vináttu. Dóra var mikill skíðaunnandi, eins og öll fjölsklda hennar. Við hjónin áttum margar ánægjustund- ir með þeim í Austurríki, á Akur- eyri og í Skálafelli ásamt fjölmörg- um vinum okkar í Garðabæ. Fyrir nokkrum árum bytjuðum við þijár vinkonur á Stekkjarflöt- inni, Dóra, Þórdís og undirrituð að synda daglega í sundlauginni hér í Garðabæ. Núna erum við tuttugu og fímm vinkonur sem synt höfum daglega um árabíl. En nú er skarð fyrir skildi, Dóra er horfin úr hópn- um og söknum við hennar sárt. En sárastur er söknuður Þórðar og barna þeirra og votta ég þeim mína dýpstu samúð. Blessuð sé minning Dóru Sigur- jónsdóttur. Berta Eiðsdóttir. Nú er komið að skilnaðarstund. Skilnaðarstund sem kom of fljótt. Elsku Dóra, þín er sárt saknað í hópi okkar gangavarða Garða- skóla. í okkar hóp hefur verið högg- ið stórt skarð. Minningamar hrann- ast upp, hvort heldur það eru spaugilegu atriðin sem við upplifð- um saman hér í skólanum eða þau málefni sem þurftu góðrar úrlausn- ar við. Samverustundirnar sem við áttum utan vinnutíma eru ekki síð- ur eftirminnilegar. Góð er í minningunni stundin sem við áttum þegar þú bauðst okkur öllum heim á þitt fallega heimili á Stekkjarflöt. Sárt er til þess að hugsa að aldrei framar mætir þú brosandi og hress til vinnu nýkomin úr sundi svo glæsi- leg og fín. En glæsileiki og sam- viskusemi var þitt aðalsmerki. Ós- érhlífni,' vönduð vinnubrögð og heiðarleiki voru nokkrir af góðum kostum þínum sem við nutum í svo ríkum mæli. Oft eigum við eftir að minnast þín og vitna í þig ekki síst þegar vanda skal til verka. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þðkk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Elsku Þórður, Ásgeir, Bjarni, Jakobína, Ásundur og aðstandend- ur, ykkur vottum við okkar dýpstu samúð. Hafi Dóra hjartans þökk fyrir allt. Guð geymi hana. Gangaverðir Garðaskóla. Það er ekki auðvelt að sætta sig við fráfall Dóru. Hún var einhvern veginn ímynd heilbrigðis, skíða- maður mikill, göngugarpur og úti- vistarkona, þróttmikil og hraust- leg. Veikindi eða heilsuleysi höfðu aldrei hijáð hana og þess vegna var áfallið enn meira þegar hún greindist með alvarlegan sjúkdóm nú á vordögum. Dóra var sannur Þingeyingur, stolt af uppruna sínum. Hún var hreinskiptin og traust og oft gust- aði af þessari fínlegu konu. Allt sem Dóra tók sér fyrir hend- ur lauk hún með sóma. Hún var afburða húsmóðir og bar heimili þeirra Þórðar þess fagurt vitni. Ég minnist þess að mamma tók alltaf til hendinni heima hjá okkur þegar hún kom frá Dóru mágkonu sinni þó að við hin í fjölskyldunni sæjum ekki nokkra ástæðu til til- tektar. Mamma og Dóra voru góð- ar vinkonur og ekki var haldið boð hjá foreldrum mínum án þess að Dóra aðstoðaði við undirbúning enda hamhleypa til verka. Þegar hún hafði lagt blessun sína á verk- ið var óhætt að bjóða gestum S bæinn. Það var gaman að fylgjast með Dóru vinna og mátti margt læra af kunnáttu hennar og verk- lagni sem einkenndist af hrað- virkni en samt ótrúlegri vand- virkni. Hún var frábær matmóðir og munaði lítið um að fæða fimm manna fjölskyldu af Ægissíðunni með engum fyrirvara. Fjölskylda mín og fjölskylda Þórðar og Dóru umgengust mikið hér á árum áður og tengdumst við systkinabörnin sterkum vináttuböndum sem vara enn. Þær eru margar gleðistund- irnar sem við áttum saman og í " minningunni sé ég Dóru fyrir mér geislandi af gleði sem smitaði alla viðstadda, jafnt börn sem full- orðna. Þannig man ég Dóru. Þórð- ur og Dóra voru samhent hjón og það verður ekki auðvelt fyrir frænda minn að takast á við lifið án hennar en minningin um góða konu lifir. ANNA EINARSON + Anna Einarson fæddist í Reykjavík 28. októ- ber 1917. Hún lést á heimili sínu hinn 21. maí 1995. For- eldrar hennar voru Egill Guttormsson, stórkaupmaður í Reykjavík og kona hans Ingibjörg Sig- urðardóttir. Systk- ini hennar voru Sigurður Helgi Eg- ilsson, stórkaup- maður og Elín Eg- ilsdóttir, stórkaup- maður er lést fyrir tæpum tveimur árum. Ánna giftist Birgi Einarson, fyrrum apó- tekara í Vesturbæjarapóteki, þann 28. júlí 1939, en hann lést þann 30. nóvember síðast- liðinn. Börn þeirra eru 1) Magnús B. Einarson, f. 29. júní 1943, læknir á Reykjalundi, kvæntur Dóru Þórhallsdóttur, hjúkrunarfræðingi. 2) Unnur Einarson Kawadry, f. 7. janúar 1947, apótekari í Frakklandi, gift Eric Kawadry, kjarneðlis- fræðingi. 3) Ingibjörg Ásta Hafstein, f. 19. apríl 1953, píanókennari, gift Pétri Kr. Hafstein, hæstaréttardómara. Barnabörn Birgis og Onnu eru 10 talsins. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. LÁTIN er í Reykjavík, Anna Einar- son, föðursystir mín, eftir stutta en snarpa sjúkdómsbaráttu. Heim þennan kvaddi hún með þeirri reisn sem einkenndi allt hennar líf. Anna frænka mín var gift Birgi Einarson, fyrrum apótekara í Vest- urbæjarapóteki, sem lést 30. nóv- ember sl. tæplega áttræður að aldri. Ekki get ég sagt að það hafi komið mér á óvart að svo stutt yrði á milli þeirra sem raun ber vitni. Þau voru í raun óaðskiljan- leg og ákaflega elsk hvort að öðru. Anna valdi sér það hlutskipti í lífinu að sinna húsmóðurstörf- um, ala upp börn sín og vaka yfir velferð fjölskyldu sinnar allr- ar. Állt þetta gerði hún ákaflega veL Segja má að hún hafi verið einskonar leið- togi stórfjölskyldunn- ar, því að fátt mann-~ legt var henni óviðkomandi í vel- ferðarmálum okkar allra. Mikill menningarbragur var yfír fallegu heimili þeirra Önnu og Birgis. Þau hjónin voru alla tíð unnendur fagurra lista, ekki síst klassískrar tónlistar. Eitt síðasta verk Önnu var að stofna minn- ingarsjóð um eiginmann sinn, í því skyni að styrkja píanóleikara til framhaldsnáms. Anna og Birgir lögðu mikla áherslu á menntun og gildi henn- ar, bæði við uppeldi barna sinna og endranær. Éitt aðal áhugamál Önnu var franska og franskar bók- menntir og lagði hún mikla rækt' við frönskunám fram á síðasta dag. Frá 1970 var hún í frönskum leshring ásamt nokkrum vinkonum sem höfðu sama áhugamál. Þetta veit ég að var henni mikil lífsfyll- ing. Eftir á að hyggja tel ég að Anna frænka mín hafí verið mér um margt fyrirmynd í lífinu. Sem barn og unglingur sóttist ég mjög eftir samneyti við hana og fjölskyldu hennar og það samá á við um syst- kini mín. Ég og fjölskylda mín öll kveðjum Önnu frænku með söknuði og virð- ingu og þökkum henni samfylgdina í lífinu. Blessuð sé minning hennar. Sigrún I. Sigurðardóttir. OSKAR KJARTANSSON + Óskar Kjartans- son bókbindari var fæddur í Vest- mannaeyjum 4. febrúar 1925. Hann lést í Landsspíta- lanum í Reylyavík 23. maí sl. Foreldr- ar Óskars voru Sig- ríður Valtýsdóttir og Kjartan Árna- son. Systir hans var Elín Kjartansdótt- ir, en hún lést ung að árum. Óskar fluttist til Reykja- víkur liðlega tví- tugur og bjó þar til dauðadags. Hann var ókvæntur og barn- laus. Óskar verður jarðsunginn frá Landakirkju í Vestmanna- eyjum í dag, miðvikudag, og Að hryggjast og gleðjast hér um fáa daga. Að heilsast og kveðjast það er lífsins saga. (Páll J. Árdal) ÞESSI orð skáldsins komu upp í huga minn þegar mér var tilkynnt andlát Óskars frænda míns. Hann hefur kvatt þetta jarðlíf en eftir lifir minningin, svipmyndir liðinna daga i Vestmannaeyjum og síðar i Reykjavík.^ Við vorum systkina- börn, við Óskar. Hann var fæddur í Vestmannaeyjum. Foreldrar hans voru Sigríður Valtýsdóttir frá Ön- undarhorni undir Eyjafjöllum og Kjartan Árnason. Eina systur átti Óskar, Elínu, sem var ári yngri en hann og voru þau mjög samrýnd. Kjartan faðir þeirra lést frá þeim ungum og ólust upp systkinin. _ upp saman hjá móður sinni. Einnig var Ósk- ar mikið hjá föð- urömmu sinni, Elínu í Brekkuhúsi, en hann var mjög hændur að henni. Þegar Elín systir hans var aðeins 16 ára gömul veiktist hún al- varlega af heilahimnu- bólgu og lést skömmu síðar. Mikil og sár lífs- reynsla var það fyrir Óskar svo ungan að sjá á eftir systur sinni. Eftir það bjuggu þau saman mæðginin þar til Óskar fluttist til Reykjavíkur, þá rúmlega- - tvítugur. Hann lærði bókband og vann við þá iðn í allmörg ár. Óskar var mikill bókaunnandi. Síðar starf- aði hann sem húsvörður hjá Reykjavíkurborg og víðar. Óskar var glæsilegur maður, stór og mikill á velli, en fáskiptinn. Hann var ókvæntur og barnlaus, en barngóður og lét sér annt um unga frændur sína og frænkur og gladdist innilega þegar vel gekk hjá þeim. Sendi hann þá gjarnan gjafir og góðar óskir þeim til handa. Óskar kvaddi heimili sitt 22. maí . - sl. Leiðin lá upp á Landspítala þar sem hann átti að gangast undir erfíða skurðaðgerð á mjöðm að morgni 23. maí. Áður en til þeirrar aðgerðar kom var hann allur. Með virðingu og þakklæti frá mér og minni fjölskyldu kveð ég kæran frænda og vin. Svava Jónsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.