Morgunblaðið - 31.05.1995, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 31.05.1995, Blaðsíða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 1995 AKUREYRI MORGUNBLAÐIÐ Formannsskipti í Iðju, félagi verksmiðjufólks Þorsteinn tekur við af Kristínu ÞORSTEINN E. Am- órsson hefur tekið við formennsku í verka- lýðsfélaginu Iðju, fé- lagi verksmiðjufólks á Akureyri. Hann tók við af Kristínu Hjálmarsdótt- ur sem verið hefur for- maður félagsins síð- astliðin 14 ár en hún gaf ekki kost á sér til endurkjörs. Formanns- skiptin fóm fram á aðalfundi Iðju nýverið og voru Kristínu þar þökkuð vel unnin störf í þágu félagins og verkalýðshreyfingar- innar. „Eg hef starfað á skrifstofu Iðju frá því í ágúst á síðasta ári og því farinn að kannast ágætlega við mig hér,“ sagði Þorsteinn en hann er Akureyringur, fæddur árið 1947. Hann starfaði í 15 ára hjá Sam- bandsverksmiðjunum á Gleráreyr- um, en nú síðast eða frá 1988 í bruggverksmiðjunni Viking. „Þetta starf leggst ágætlega í mig, ég hefði ekki gefið kost á mér í það öðruvísi," sagði hann, en á síðustu árom hefur hann haft nokkur af- skipti af verkalýðsmálum. Hægur bati Þorsteinn sagði að sér virtist sem heldur væri að birta til í at- vinnulífinu í bænum, ástandið virtist vera að batna. „Það má kannski orða það svo að þetta sé hægur bati, mér finnst nokkuð vera um að atvinnurekendur séu að bæta við sig mannskap," sagði Þor- steinn og bætti við að heldur hefði saxast á atvinnuleysisskránna hjá félaginu, færri væm á skrá en vora í vetur. Um 700 félagsmenn era nú í Iðju, félagi verksmiðjufólks en vora þegar mest var á bilinu 12-1400 talsins. Hrun iðnaðarins í sam- bandsverksmiðjunum settu sitt mark á félagið, en að sögn Þor- steins eru málin heldur að mjakast upp á við á ný. Auk Þorsteins eru aðrir í stjórn Iðju, Arndís Sigurpálsdóttir, vara- formaður, Margrét Marvinsdóttir, ritari, Ingunn Pálsdóttir, gjaldkeri og Jóhann s. Baldursson, með- stjórnandi. Þorsteinn E. Arnórsson HÁ8KÚUNN ÁAKUREYRI HÁSKÓLINN Á AKUREYRI Auglýsing um innritun nýnema Heilbrigðisdeild: Kennaradeild: Rekstrardeild: Sjávarútvegsdeild: Hjúkrunarfræði Kennaranám Rekstrarfræði Iðnrekstrarfræði Gæðastjórnun Sjávarútvegsfræði Reglulegri innritun nýnema lýkur 1. júní nk. Með umsókn á að fylgja staðfest afrit af prófskírteinum. Ef prófum er ekki lokið skal senda skírteini um leið og þau liggja fyrir. Við innritun ber að greiða 25% skrásetn- ingargjalds, kr. 5.750 og er þessi hluti óafturkræfur fyrir þá nemendur sem veitt er skólavist. Bent er á, að auðveld- ast er að leggja þessa upphæð inn á póstgíróreikning Há- skólans á Akureyri, reikningsnúmer 0900-26-156876. Skilyrði fyrir inntöku í háskólann er stúdentspróf eða annað nám sem stjóm háskólans metur jafngilt. í gæðastjómunarbraut rekstrardeildar gilda þó sérstök inntökuskilyrði um tveggja ára rekstramám eða annað nám sem stjóm háskólans metur jafngilt. Á fyrsta ári í heil- brigðisdeild er gert ráð fyrir að fjöldatakmörkunum verði beitt. Þannig verði fjöldi þeirra 1. árs nemenda sem fá að halda áfram námi á vormisseri 1996 takmarkaður við töluna 25. Umsóknarfrestur um húsnceði á vegum Félagsstofnunar stúdenta á Akureyri er til 20. júní 1995. Umsóknareyðublöð og upplýsingar eru veittar á skrifstofu háskólans, Þingvallastræti 23, 600 Akureyri, sími 96-30900, frá klukkan 9.00 til 14.00. Upplýsingar um húsnæði á vegum Félagsmálastofnunar stúdenta á Akureyri eru veittar í síma 985-40787 og 96-30968. Háskólinn á Akureyri. Veruleg vandræði víða vegna kulda og gróðurleysis Girt á og við snjó- skaflana Grýtubakka. Morgunblaðið. „ÞETTA er að verða hálf rosa- legt,“ sögðu Flosi Kristinsson og Þórdís Þórhallsdóttir bændur á Höfða í Grýtubakkahreppi, en þau þorðu ekki annað en sefja inn allt lambfé á sunnudagskvöld. Kalsarigning hafði verið allan daginn og fram á kvöld. Þau búa með tæplega 400 kindur. Veruleg vandræði hafa skapast vegna kuldanna í vor. Víða eru mikil þrengsli orðin í fjárhúsum en af þeirra völdum eykst hætta á ýmsum sjúkdómum sem geta m.a. valdið lambadauða, en sauð- burði er víðast að ljúka. Vegna kulda og gróðurleysis er allt fé á gjöf og reynt er að halda því innan girðinga. A flest- um bæjum eru girðingar enn á kafi í snjó. Vinnumennirnir á Hóli, Tryggvi Jónsson og Sigurð- ur Þorsteinsson, voru í gærmorg- Morgunblaðið/Jónas Baldursson un í óða önn að setja upp girðing- ar á og við snjóskafla. Þó maímán- uði sé að ljúka er notkunartíma vélsleða í byggð enn ekki lokið, en Tryggvi og Sigurður fluttu allt girðingarefni á vélsleða. Myndlistaskólinn á Akureyri Þijú námskeið í júnímánuði MYNDLISTASKÓLINN á Akureyri verður með myndsmiðju í skólanum dagana 6. til 14. júní, bæði fyrir börn og fullorðna. Þetta er ný- breytni í starfsemi skólans, nokkurs konar tilraun sem efnt er til vegna fyrirspurna þar um, m.a. erlendis frá og einnig hefur fólk úr ná- grannabyggðalögum Akureyrar sýnt því áhuga að sækja námskeið við skólann að sumarlagi að sögn Guðmundar Ármanns og Rósu Kristínar Júlíusdóttur kennara við skólann. Þrjú námskeið Þijú námskeið verða í gangi á þessu tímabili. Myndamótun fyrir börn á aldrinum 5-8 ára og 9-11 ára, stendur hálfan daginn í sjö virka daga og er þemað norræn goðafræði. Kenndar verða margs konar mótunaraðferðir og unnið með ýmis efni auk þess sem farið verður í vettvangsferðir út í nátt- úrana og leitað þar fanga. Mynd- smiðju barna lýkur með sýningu í skólanum. Kennarar á þessu nám- „MANNVERAN í blíðu og stríðu,“ er yfírskrift ráðstefnu á vegum heilbrigðisdeildar Háskólans á Ak- ureyri sem haldin verður í Odd- fellowhúsinu á Akureyri dagana 12. og 13. júní næstkomandi. Ráðstefn- an er öllum opin. Fjölmargir fyrirlestrar verða fiuttir á ráðstefnunni. Dr. Sigur- bjöm Einarsson biskup mun leitast við að svara spurningunni „hvað er maðurinn frammi fyrir eilífð- inni?“ og Valgerður Valgarðsdóttir hjúkrunarfræðingur og djákni fjall- ar um áfallahjálp og líknarþjónustu. Sigmundur Sigfússon yfirlæknir geðdeildar FSA flytur fyrirlestur um geðheilbrigði íslendinga og Karólína Stefánsdóttir fjölskyldu- ráðgjafi um fjölskylduheilbrigði. Þá munu Ólafur H. Oddsson héraðs- læknir og Kristín Aðalsteinsdóttir háskólakennari fjalla um íslenska karla og konur í blíðu og stríðu. skeiði verða Jane Darowskikh frá Bandaríkjunum og Rósa Kristín Júlíusdóttir. Þá verður námskeið í teiknun, málun og þiykki fyrir börn og ungl- inga í umsjá Kristjáns Jóhannsson- ar og Guðmundar Ármanns. Það stendur í sjö daga, hálfan daginn og verður farið í vettvangsferðir, gerðar skissur og þær útfærðar á margvíslegan hátt í mismunandi efni auk þess sem kenndar verða ýmsar aðferðir, m.a. meðferð vatns- lita. Loks verður í boði námskeið fyr- ir fullorðna í teiknun, málun og þrykki sem þeir Kristján og Guð- mundur sjá um. Um er að ræða alhíiða myndsmiðju fyrir áhuga- sama bytjendur. Byrjað verður á grunnatriðum, teiknun grunn- forma, Ijarvídd, litafræði og verk- efnum þar sem teiknað er eftir fyrirmyndum. Innritun á þessi námskeið og frekari upplýsingar eru gefnar í Myndlistaskólanum en innritun lýk- ur á föstudag, 2. júní. Hópumræður um þema ráðstefn- unnar verður seinni daginn og verð- ur þá fjallað um eilífðina, áfalla- hjálp, líknarþjónustu, geð- og fjöl- skylduheilbrigði og íslenska karla og konur í blíðu og stríðu. Sex nýjar rannsóknir kynntar Einnig verða á ráðstefnunni kynntar sex rannsóknir nýútskrif- aðra hjúkrunarfræðinga frá Há- skólanum á Akureyri en þær eru: „Upplifun foreldra sem hafa eign- ast barn með Down-heilkenni“, „Einelti", „Þegar ástvinur skyndi- lega deyr, upplifun aðstandenda á bráðamóttöku“ „Reynsla offeitra af samskiptum við heilbrigðisstarfs- fólk,“ „Haustlíðan“, „Upplifun karl- manna af hjúkrunarnámi og starfi". Skráning og nánari upplýsingar um ráðstefnuna er á skrifstofu Háskólans á Akureyri. Þróun í fyrirtækj- um og stofnunum ANETTE Wolthers flytur fyr- irlestur á vegum endurmennt- unardeildar Háskólans á Ak- ureyri og fræðslunefndar Ak- ureyrarbæjar í húsnæði skól- ans við Þingvallastræti 23, stofu 24, í kvöld miðvikudags- kvöldið 31. maí kl. 20.30. í fyrirlestrinum fjallar hún um mikilvægi þróunar í fyrir- tækjum og stofnunum, nám í starfi, samskipti og ný hlut- verk stjórnenda og starfsfólks. Anette Wolthers er kennslustjóri við Danmarks Folvaltningshöjskole og hefur þar umsjón með endurmennt- un og þjálfun opinberra starfs- manna, en einnig sinnir hún ráðgjöf á sviði stjórnunar, starfsmannastefnu og jafn- réttismála víða um heim. Áður starfaði hún m.a. við dönsku járnbrautirnar bæði sem jafn- réttisráðgjafi og verkefnis- stjóri þróunarverkefnis í stjórnskipulagi og starfs- mannamálum. Hún er stödd á Akureyri vegna þróunarverkefnis Akur- eyrarbæjar „Auður - nám í starfi hjá Akureyrarbæ,“ en hún er ráðgefandi við verkefn- ið. Dráttarvéla- námskeið NÁMSKEIÐ í akstri og meðferð dráttarvéla fer fram á Akureyri, dagana 2. og 3. júní næstkomandi. Innritun á námskeiðið fer fram í dag, miðvikudag og á morgun fimmtudaginn 1. júní frá kl. 13 til 17 á skrifstofu Vinnueftirlits ríkisins á Akur- eyri, en það ásamt Umferðar- ráði, Slysavarnarfélagi ís- lands, Ökukennarafélagi ís- lands og menntamálaráðu- neytinu standa að námskeið- inu. Námskeiðin eru ætluð ungl- ingum sem fæddir eru árin 1980, 1981 og 1982. Um er að ræða fræðslu og þjálfun í akstri dráttarvéla, en margir bændur setja þátttöku að slíku námskeiði að skilyrði fyrir sveitadvöl. Námskeiðið kostar 3.500 krónur. Ráðstefna heilbrigðisdeildar háskólans Mannveran í blíðu o g stríðu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.