Morgunblaðið - 31.05.1995, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 1995 15
VIÐSKIPTI
Tryg og Balt-
ica sameinast
Stærsta trvggingafélag Danmerkur
Kaupmannahöfn. Rcutcr.
DÖNSKU tryggingafélögin Baltica
Forsikring og Tryg Forsikring til-
kynntu á þriðjudag að þau hefðu
sameinazt í stærsta tryggingafyrir-
tæki Danmerkur.
Nýja tryggingafélagið, Tryg-
Baltica Forsikring, fær 20% mark-
aðshlutdeild og verður stærsta fyr-
irtæki á sínu sviði í Danmörku í
stað Codan Forsikring, sem Sun
Alliance í Bretlandi á 65% hlut í
og er með 15-16% markaðshlut-
deild.
Alf Durch-Pedersen, aðalfram-
kvæmdastjóri Tryg, sagði að samr-
uninn mundi stuðla að stöðugleika
og traustara skipulagi i greininni.
Nokkur stórfyrirtæki og mörg önnur
fyrirtæki mundu starfa hlið við hlið,
samkeppni mundi halda áfram og
viðskiptavinir mundu njóta góðs af.
Codan varð öflugt fyrirtæki 1993
þegar það keypti Hafnia, keppinaut
sinn, þar sem eignarhaldsfélagið
Hafnia Holding varð gjaldþrota.
Eignarhaldsfélag Baltica Forsi-
krings, Baltica Holding, varð gjald-
þrota og stærsti banki Danmerkur,
Den Danske Bank, tók við fyrirtæk-
inu.
Bæði Hafnia og Baltica færðust
of mikið í fang í baráttu um að
verða öflugasta tryggingafyrirtæki
Norðurlanda á sama tíma og hrun
varð á fasteignamarkaði og verði
hlutabréfa í tryggingafélögum.
Samkvæmt flóknum samningi
um sameininguna selur Danske
Bank Tryg meirihluta sinn í Baltica
fyrir 5.7 milljarða danskra króna
og kaupir um leið líftryggingar
Baltica aftur fyrir 6.8 milljarða d.
króna — og heldur þeim.
Aðrir helztu aðilar á dönskum
tryggingamarkaði eru Topdan-
mark, sem Tryg á meirihluta í, og
Alm. Brand.
Skandia fór halloka
Samkvæmt góðum heimildum
fékk Tryg harða keppni frá sænska
tryggingafélaginu Skandia í bar-
áttu um að kaupa Baltica. Líta verð-
ur svo á að Skandia hafi beðið lægri
hlut í togstreitu um markaðshlut-
deild í Danmörku samkvæmt heim-
ildunum.
Sérfræðingur í Kaupmannahöfn
kvað samrunanna „góðan fyrir
Tryg jafnt sem Danske Bank.“
Hann kvað verðið sanngjarnt og
spáði því að Tryg-Baltica Forsikring
yrði ábatasamt fyrirtæki.
Framkvæmdastjóri Danske
Bank, Knud Sörensen, sagði að
afkoma bankans fyrstu sex mánuð-
ina 1995 mundi batna um 800 millj-
ónir danskra króna.
Bílaiðnaður
Milljarða tap Niss-
an en bata spáð
Tókýó. Reuter.
NISSAN, annað stærsta bifreiða-
fyrirtæki Japans, hefur skýrt frá 2
milljarða dollara tapi vegna sterkrar
stöðu jensins, en segir að aukin
sala í ár muni leiða til þess að móð-
urfyrirtækið verði rekið með hagn-
aði í fyrsta sinn í fjögur ár.
Nettótap Nissans nam 166 millj-
örðum jena á fjárhagsári fyrirtækis-
ins til 31. marz, samanborið við tap
upp á 86,92 milljarða jena ári áður.
Sterk staða jens gegn dollar kom
niður á útflutningi og gengisfelling-
in í Mexíkó kostaði Nissan 50 millj-
arða jena. En fyrirtækið kveðst vera
á batavegi og spáir því að móðurfyr-
irtækið muni skila hagnaði upp á
10 milljarða jena eða 119 milljónir
dollara á yfirstandandi fjárhagsári,
samanborið við tap upp á 74,81
milljarð jena eða 891 milljón dollara
í fyrra.
Refsitollar
Boðaðir refsitollar Bandaríkja-
manna eru ekki teknir með í reikn-
inginn. Sérfræðingur við Nikko-
rannsóknarstöðina telur að þeir
muni minnka sölu Nissans um 30
milljarða jena eða 357 milljónir doll-
ara og auk þess hefur dregið úr
bílaeftirspurn í Bandaríkjunum að
undanförnu.
------♦---------- ,
Málmar
hækka í verði
London. Rcuter.
VERÐ á málmum virðist fara
hækkandi á ný, en sérfræðingar
hvetja til varkárni. Sumir telja að
aðeins sé um leiðréttingar að ræða
eftir mikla verðlækkun fyrr á þessu
ári í kjölfar 75% hækkunar í fyrra.
Á1 hefur hækkað um 7,2% síðan
það lækkaði í 1.712 dollara 1. maí.
Það seldist á 1.830 dollara á mið-
vikudag.
Kopar hefur hækkað um 5% síðan
aðeins fengust 2,688 dollarar fyrir
tonnið 5. maí, lægsta verð á þessu
ári. Á miðvikudag komst verðið í
2,815 dollara.
Aðrir málmar hafa fylgt á eftir.
Til dæmis hefur nikkel hækkað um
15,2% í maí.
Hvaö heitir þó? - hverra manna ertu?
ER ÆTTARMÓT
í UPPSIGLINGU?
A stóru ættarmóti er tilvalið að næla nöfn
þótttakenda í barm þeirra. I Múlalundi
færð þú barmmerki fyrir þetta eða önnur
tilefni. Einnig fóst þar plastmöppurnar
þægilegu fyrir Ijósmyndirnar.
Hafðu samband við sölumenn okkar
í síma 562 8501 eða 562 8502.
Múlalundur
Vinnustofa SÍBS • Hátún 10c
Símar: 562 8501 og 562 8502
AEG AEG AS
AEG ,
Ai.veg EinstökGædi
SUMARTILBOD
Þegar gamla ryksugan sýgur sitt síðasta,
þá er kominn tími til oð endurnýja.
Er þá ekki tilvalið að skoða AEG möguleikana.
EG ACG AEG A!
AEG
Ryksuga Vampyr 7400 1400 w.
Þrjór sogstillingar. Sexföld síun.Ultrafilter skilar 99.97%
hreinu lofti. Pokastærð 4 L. Inndraganleg snúra.
Lengjanlegt sogrör. Fylgihlutageymsla.
Verð áður 18.720,- eða 17.789,- stgr.
Verð nú 15.900,- stgr.
B R Æ. Ð U R N I R
=)] ORMSSONHF
Lágmúla 8, Sími 553 8820
AtG AEG